Alþýðublaðið - 07.01.1962, Síða 4

Alþýðublaðið - 07.01.1962, Síða 4
líefSvíkircgar — Suðurnesjamenn B I N G Ó í Ungmennafélagshúsinu Keflavík í kvöld kl. 9. Margir glæsilegir vinningar meðal annars ihitnn vinsæli Sindrastóll, útvarpslborð, stand lampi o. fl. o. fi. Aðgangur ókeypis. — Húsið opnað kl. 8. Í.B.K. Ingólfs-Café BINGÓ í dag kl. 3. Meðal vinninga: 12 manna maatarstell — 12 manna kaffistill, gólflampi o. fl. Borðpantanir í síma 12826. Ingólfs-Café GÖMLU DANS/LRKIR í kvöld kl. 9. Dansstjóri Sigurður Runólfsson. Aðgöngumiðasala frá kl. 8. Sími 12826. Dansskóli Rigmor Hansson — Sími 13159 — samkvæmisdans- KENNSLA (Nýju og nýjustu dansarnir) Hefst núna í vikunni í öllum flokkum. Fyrir unglinga — fullorðna — börn' — byrjendur_ framhald. Upplýsingar og innritun í súna 13159 í dag og þriðjudaginn. PANSSKÓLI RIGMOR HANSSON, sími 13159. alþýðublaðið vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif enda í þessum hverfum: Söriaskjóli Högunum Freyjugötu Afgreiðsla Alþýðublaðsins, sími 14901. Auglýslngasími blaðsins er 1490» ER VIÐREISNIN íhalds- og afturhaldsstefna, sem mótast af sérhagsmunum auðmanna, gerir hina ríku ríkari og hina fátseku fátækari? Er -Alþýðu- flokkurinn orðinn svo aftur haldssamur, að hann vinni aðeins fyrir auðmenn þjóð- félagsins? Slíkar spurningar vakna við lestur Tímans eða Þjóðvilj- ans, þar sem þessu er haldið fram nálega dag hvern. Að vísu er veimegun þjóðarinn- ar nokkur sönnun um hið gagnstæða, svo og vinstri stefna eins og aukning trygg- inga, sem Alþýðufokkurinn gat aldrei komið fram í sam- vinnu við framsókn og komma. En við skulum kanna málið betur. Á sama tíma sem framsókn armenn fordæma Alþýðu- flokkinn á íslandi bera þeir jafnan lof á alþýðuflokka ann arra landa, sérstaklega í Nor- égi. Engum lesanda Tímans getur dulizt, að norski Verka- mannaflokkurinn sé vinstri flokkur, sannur alþýðuflokk- ur. Allt er þetta hverju orði sannara. Þess vegna vona ég, að framsóknarmenn leggi eyrun við, því ég hef aflað nokkurra upplýsinga um stjórn efnahagsmála í Noregi til samanburðar við það, sem Alþýðuflokkurinn hér heima hefur gert með þátttöku í við reisninni. Þessar upplýsingar eru frá hlutlausum aðila, teknar úr bókinni ,,The Prob- lem of Rising Prices“, sem byggð er á sameiginlegri rann sókn sex frægra hagfræðinga. Einn kaflinn er hrein upptaln ing á efnahagsráðstöfunum* hinna ýmsu þjóða í Vestur-1 Evrópu og Norður-Ameríku, og þar skulum við athuga, hvað jafnaðarmannasljórnin norska, viðurkennd vinstri- stjórn, hefur aðhafzt síðustu átta ár. Eitt höfuðéinkenni viðreisn arinnar er föst yfirstjórn á út- lánum bankanna og takmörk un bankalána, en það hafa framsóknarmenn talið hvað svívirðilegasta íhaldsráðstöf- un stjórnarinnar. Einmitt . þetta er þó sú stefna, sem norska stjórnin hefur notað mest til að halda jafnvægi í efnahagsmálum. í desember 1953 var bönkum og trygg- ingafélögum í Noregi falið að draga úr lánastarfsemi. í jan- úar 1954 var sett hámark á útlán ríkisbankanna og gildir það enn í dag. í janúar 1955 voru gefnar út nýjar og enn strangari reglur um útlán einkabanka og sparisjóða. Bönkum var falið að draga úr lánum til fjárfestingar, sér- slaklega innflutnings fjárfest ingarvöru, svo og til afborg- unarsölu. í febrúar 1955 voru settar reglur um lágmarks inneignir banka og sparisjóða hjá seðlabanka, sem Eysteinn kallar „frystingu sparifjár“ og þykja mikil firn á íslandi. í desember 1955 var gert sam komulag við bankana um að takmarka enn útlán næstu tvö ár. Ef sparifé ykist skyldi kauoa fyrir það ríkisskulda bréf, en ekki lána það út. Tryggingafélög voru lálin kaupa ríkisskuldabréf. Spari- sjóðir beðnir að fara varlega í byggingalán. f febrúar 1957 og janúar 1959 gerðist enn hið sama, og í janúar 1960 voru enn gerðar svipaðar ráð stafanir, og skyldu sparisjóð- ir nú kaupa ríkisskuldabréf fyrir 15% af aukningu spari- fjár, en tryggingafélög fyrir 115 milljónir. Þessi upptalning sýnir, hvernig hin vinstrisinnaða al- þýðuflokksstjórn í Noregi,sem enginn hefur nokkru sinni á- kært um kyrrstöðu eða aftur- hald, hefur notað yfirstjórn bankakerfisins til að halda efnahagslífinu í böndurn og missa ekki sljórn þess út í ógöngur, eins og Hermann stóð andspænis, er hann gafst upp á hengifluginu 1958 — Betra að Hermann hefði fyrr lært eitthvað af Gerhardsen! Þá hefur hækkun vaxta til að fyrirbyggja ofþenslu í efna hagskerfinu hér verið gagn- rýnd. Þessi aðferð er þó notuð um allan heim. I Noregi hafa vextir á síðustu 8 árum verið hækkaðir tvisvar sinnum, og nam hækkunin samtals 60%. Svíar gerðu á þessu tímabili fimm vaxtabreytingar og Danir fjórar, flestallar til hækkunar. Kanadamenn hækkuðu vexti á tveim árum sex sinnum, samtals yfir 100 % Af þessu má glögglega sjá, að jafnvel viðurkenndir vinstrhnenn eins og Gerhard sen, Erlander og H. C. Han- sen eru sekir um það, sem Eysteinn kallar „vaxtaokur“ og íhaldsstefnu. Skyldi ekki hitt vera sönnu nær, að þeir hafi stefnu, sem er fjárhags- lega heilbrigð og mun liag stæðari fyrir almenning en stjórnlaust efnahagskerfi, sem endar á hengiflugi? Verzlunarfrelsi það, sem við reisnin hefur komið á, er varla nefnt nú á dögum, og sýnir það bezt, hversu vel það gengur. í Noregi hefur sömu stefnu verið fylgt, nema hvað norska alþýðuflokksstjórnin byrjaði fyrr og losaði um höft in í áföngum á nokkrum ár- um. Þá hefur verðlagseftirlit Framhald á 13. síðu. Hafnarfjörður Hafnarfjörður HRAUNPRÝÐI 'heldur aðalfund þriðjudag 9. jan. kl. 8,30 í S j álf stæðishúsinu. Venjuleg aðalfundarstörf, önnur mál. Skemmtiatrði: Upplestur, spurningaþáttur o. fl. Konur eru hvattar til að mæta. Stjórnin. 41 7. janúar 1962 — Alþýðublaðið

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.