Alþýðublaðið - 20.01.1962, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 20.01.1962, Blaðsíða 2
tlíBtJórar: Gísli J. Ástþonsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjón: Bförgvin GuSmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasíml 14 906. — ABsetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu •—lo. — Áskriftargjald kr. 55,00 á mánuði. í lausasölu kr. 3,00 eint. Útgef- andl: Alþýðuflokkurinn. — Framkvæmdastjóri Sverrir Kjartansson. Eru þeir saklausir ‘ÞESSI at'hyglisverða setning eftir Einar Olgeirs spn stóð í ritstjórnargrein Þjóðviljans í gær: „ÞAÐ ÞÝÐIR EKKERT FYRIR AFTUR- HALDIÐ AÐ KOMA ÁBYRGÐINNI AF ÖLLU SEM MISFARAST KANN í LÖNDUM ÞESS- UM YFIR Á SÓSÍALISTAFLOKKINN ÍS- LENZKA“. IÞama er Þjóðviljinn að reyna að losa sig við öll tsngsl við þá atburði, ,sem stöðugt gerast í löndum kommúnismans, en ekki geta samrýmzt hugsunar liiætti og lýðræðiskennd íslendinga. Blaðið er að reyna að hreinsa sig af dómsmorðunum í Sovét nikjunum og meðferðiinni á Stalín. Það neitar á feyrgð á kúgun, ^angabúðum, aftökum og öðru fíví, sem upplýst hefur verið um kommúnista löndin. Svona getur Þjóðviljipn ekki sloppið. Svona geta íslenzkir kommúnistaforingjar ekki þvegið hendur sínar. Af því að þeir hafa alla tíð varið og vegsamað síjórnarfar kommúnistaríkjanna, en aldrei gagn rýnt neitt, sem þar hefur gerzt. Af því að þeir tóku svaril Stalíns, þegar aftök •urnar miklu voru í Sovétríkjunum fyrir stríð, og svívirtu Alþýðublaðið, riitstjóra þess ag aðra, sem gagnrýndu aðfarirnar í Rússlandi. Af því að Þjóðviljinn hefur alla tíð kallað það „Rússagaldur“ og ofstæki. sem Alþýðublaðið hef ur sagt um aðfarir kommúnistaforingja úti í lönd um, en mest af því hefur nú verið viðurkennt ■rétt í ræðum Krústjovs. Það sýnilr furðulega ósvífni, ef íslenzkir komm 'únistaforingjar halda, að þeir geti bjargað sér á svona einfaldan hátt. Þegar upplýst er af æðstu valdamönnum Sovétríkjanna, að Þjóðviljinn og ðnnur kommúnistamálgögn hafi logið í 25 ár, veg samað glæpamenn sem bjargvætti heimsins, hylm að yfir manndráp og óréttlæti, ættu íslenzkir 'kommúnistar að hafa manndóm til að viðurkenna mistök sín undanbragðalaust. Það sýnir rag- ' mennsku að segja eftir allt, sem á undan er •gengið: Við styðjum bara það, sem er gott í sósía •lismanum, við berum enga ábyrgð á því illa, sem Ifommúnistar hafa gert. ■ Kjarni málsins er þessi: íslenzkir kommúnista •foringjar hafa logið að íslendihgum um þessi mál •125 ár. Þeir hafa aldrei efazt. aldrei hikað, aldrei gagnrýnt neitt í Sovétríkjunum. Af þessu geta '.þeir aldrei hreinsað sig. FLÖ.K K URl N N r.. i STOFNFUNDUR Kjördæmisráðs Alþýðuflokksins , á Vesturlandi verður haldinn í Borgarnesi næst- r i komandi sunnudag 21. janúar kl. 2 e. h. Miðstjóm Alþýðuflokksins. 20. jan. 1962 — Alþýðnblaðið BSB2 IIM UPPBQD Á SJÁLFUM SÉR MENN eru misjafnlega naskir á það hvað séu fréttir og hvað ekki fréttir. Þetta fer ekki alltaf eftir því, hvort menn geti skrifað fréttir eða ekki. Eg hef þekkt góða blaða menn, það er góða fréttamenn, sem ekki gátu skrifað sjálfir, eða réttara sagt, áttu ákaflega erfitt með það. Það virðist vera kominn dálítill hópur manna á blöðin, sem álítur það ágæt- ar fréttir, hvorf þeir sjálfir gangi milli blaða eða ekki. — Varla getur lélegri frétta- mennsku. VÍSIR hefur nýlega riðið á vaðið með skrif um þetta — og talar mjög um einn blaða- mann, en minnist og á fleiri. Segir hann jafnvel, að ritstjóri Alþýðublaðsins sé að fara frá Alþýðublaðinu, en það eru getsakir. — Þá gefur hann í skyn, að ákveðinn blaðamaður, sem vann hjá Tímanum, fór til Alþýðublaðsins og síðan aftur til Tímans, hafi átt mest- an þátíinn í því að gera þær útlitsbreytingar, sem urðu á Alþýðublaðinu fyrir nokkrum árum. sitt blað og hlutverk þess, þá verður starf hans utan gátta. ANNARS eru þessi skrif blaðamanna um uppboð á sjálf- um sér, flæking þeirra núlli blaða, snilld þeirra eða klaufa cpörk, þeim til lítils sóma, — og það eru undarlega gerðir menn, sem skrifa hver um annan — og jafnvel alltaf á höttunum með það, að fá slík skrif um sjálfa sig. Mér finnst þetta vera fyrir neðan virð- ingu þeirra. Þeir ættu að hætta því. ANNARS LANGAR MIG «1 að bæta nokkrum orðum við um blaðamennsku almennt fyrst ég fór að minnast.á þetta: Blaðamennska er sérstakur hæfileiki. Það er ekki hægt að taka mann og „gera hann að blaðamanni.“ Aratuga reynsla hefur sannað mér þetta. Mað- ur, sem skrifar vel, hefur góð- an stíl, getur verið alveg óhæf- ur blaðamaður. Annar, sem á erfitt með að skrifa, getur ver ið mjög góður blaðamaður. — Þegar það fer saman, að mað- , ur hefur glöggt auga fyrir fréttagildi — og hann getur skrifað vel, þá er hann fyrsta flokks blaðamaður. ÉG HEF ALLTAF álitið, a5 það sé skilyrði fyrir að vera góður blaðamaður, aft viðkom* andi hafi haft hug á bók* menntaafrekum. Skyldleikinn er miög náinn milli blaða- mennsku og listrænnar löng* unar. Þá kemur flýtir og mjög við sögu. Og fleira kemur til greina. Eg sagði einu sinni við iingan mann, sem var aft byrja, blaðamennsku: „Þú verður aŒ Veva ákaflega aðgangsfrekur og framúrskarandi kurteis.“ EINU SINNI átti hann a3 skrifa mjög mikla frétt. Hann gerði margar tilraunir, en hringdi svo til mín og sagðist ekki geta þaft. Eg sagfti; —< „Hugsaðu þér aðeins að þö sérf að yrkja kvæði um þetta mikla slys, en hann hafði oft birt kvæði sín. „Eg skal reyna, sagfti hann. Nokkru síðar um kvöldið hringdi hann og las fyrir mig fréttina. Hún var afbragð, enda birtist hún ekki aðeins í blaði unga mannsins, heldur og í blöðum vestan hafs og austan. Hannes á horninu. ÞETTA ER ALVEG tilhæfu- laust. Hann átti engan þátt í þeim breytingum, ekki hinn minnsta. Þar vann Gísli Ast- þórsson að einn, stjórnaði sókn inni og stýrfti henni í einu og öllu. Hann hafði stúdei'að þetta starf lengi og gekk að því af miklum dugnaði. Vitan- lega unnu margir með honum af alúð og kosbgæfni, en sízt af öllu þessi ágæti maður, því aft hann kom að blaðinu, þeg- ar breytingar Gísla voru komnar í fast form. í GAMLA DAGA var það óhugsandi, að blaðamenn hlypu milli blaða, jafnvel þó að annað blað biði margfalt betri kjör. Það var annað, sem dró, annað sem kynnti upp starfsáhugann. Peningar, leyfi, aðbúnaður og þess hátt- ar lífsins gæði, gátu ekki vegið upp á móti því. Eg þekkti blaðamann, sem fékk slík boð frá öflugra blaði, en hann léði áldrei máls á neinu slíku. Það er líka reynsla blaðanna, að þau hafa ekki grætt á slík- um kaupum, ég held, að þar sé engin undantekning. Margt veldur þessu, en það þó fyrst og fremst, að ef blaðamanni þykir ekki sjálfum vænt um „Efst á ÞJÓÐVILJINN hefur undan- farið verið að narta í útvarps- þáttinn „Efst á baugi“ og hald ið því fram, að sá þáttur væri hlutdrægur og hallaði um of á Sovétríkin og fylgirík; þeirra. í tilefni af þessum fullyrð'ng- um Þjóðviljans vil ég taka fram efbrfarandi: Þættinum ,,Efst á baugi“ er ætlað að fjalla um erlenda at- burði svo og ýmis erlend mál efni, sem fróðleg og skemmti leg mega teljast fyrir hlust- endur. Af þessu leiðir að þátt- urinn hlýtur að fjalta um bæði þægilegar og óþægilegar stað- reyndir fyrir stórveldiu og ým is önnur ríkj heims. Og þannig hefur þetta verið. Þátturinn hefur því ekki eingöngu f.iail- að um ástand mála í Sovétrikj unum heldur einnig í ftestum helztu ríkjum Vesturlanda — Þann'g hefur þátturinn skýrt frá efnahagsefriðleikum í Bret landi, hermdarverkum Frakka í Bizerte, kynþáttavandamál- inu í Bandaríkjunum og ein- ræði Francos og Salazar svo baugi" nokkur dæm; séu nefnd. En að sjálfsögðu hefur einmg verið skýrt frá fjölmörgum góðum hlutum í löndum þessum. alveg á sama hátt og ekki hefur ein göngu verið skýrt frá þvingun- arvinnu Rússa í Síberíu heldur einnig frá afrekum þeirra á sviði geimvís'.nda. Ekkert blað hefur séð ástæðu tl þess að taka upp hanzkann fyrir Frakka, Spánverja, Bandaríkjam. eða Portúgali, vegna þeirra óþægilegu hluta, sem þáttur nn „Efst á baugi“ hefur fjallað um meðal þess- ara þjóða. En í hvert sinn, sem sagt er frá óþægilegri stað- reynd í Sovétríkjunum, rekur Þjóðviljinn upp væl. Mér v'rð- ist því að það séu fremur þeir, Þjóðviljamenn, sem eru lilut- dræg'r heldur en við sem stjórnum þættinum „Efst á baugi“. Þeim er nefnilega sama þó „hallað sé á“ aiia aðra en Rússa og fylgif'ska þeirra. Björgvin Gnðmundsson.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.