Alþýðublaðið - 01.02.1962, Side 5
Ung móðir
iýkur guð-
TUTTUGU og fjögurra ára*
gömul kona, Auður Eir Vil-
hjálmsdóttir, Iauk í gæj,- guð-
fræðiprófi frá Háskóla íslands.
Kapella háskólans var full af
fólki í gær kl. 5 síðd., þegar
Auður flutti prófpredikun sína.
12 áteksfrar
i gærdag
Hún er önnur íslenzkra kvenna,
sem lokið hefur guðfræðiprófi.
Hin er Geirþrúður Hildur
Bernhöft, sem Iauk prófi 1945.
Hún er nú húsfrú í Beykjavík.
Kapella háskólans var troð-
full í gær, þegar predikun Auð-
ar hófst, og urðu margir að
standa. Einkum bar mikið á
konum á ýmsum aldri.
í kapellunni voru m. a. for-
eldrar Auðar, Vilhjálmur Þ.
Gíslason útvarpsstjóri, og Inga
Árnadóttir kona hans. Þar voru
einnig Gylfi Þ. Gíslason,
menntamálaráðherra, biskup-
inn yfir íslandi, herra Sigur-
björn Einarsson, Ásmundur
Guðmundsson, fyrrv. biskup,
Bjarni Jónsson vígslubiskup,
Jón Auðuns dómprófastur og
ýmsir aðrir kennimenn og
ættingjar Auðar.
1 predikun sinni fjallaði
Auður um kærleikann og þær
ýmsu myndir, sem hann birt-
ist í. Á undan og eftir voru
sungnir sáimar.
MIKIL HÁLKA og nofekur*
ófærð var á götum bæjaríms £
gær. Umferð íafðist oft mikið
vegna keðjulausra bíla, scm
stöðvuðust £ miðjum brekk-
um. Klukkan sex í gærkvöMi
höfðu orðið tólf árekstrar í feæn
um, og þar af eitt slys, þó ekkl
alvarlegt.
Slysið varð með þeim hætti,
að ungur piltur á skellinöðru
sem kom hjólandi niður Lauga
veginn, hjólaði undir vörubíts-
pall skammt fyrir neðan
Mjólkurstöðina. Drengurinn
sem heitir Þór Guðiaugsson,
fékk töluvert högg á andlitið,
en mun hafa sloppið með blóð-
nasir og nokkrar hruflur.
Þá fór bifreið út ef Sléttu-
vegi í Fossvogi, en þar er veg-
kanturinn nokkuð hár. Bifreið
in skemmdist furðulítið og
engin slys urðu á mönnum.
Aðrir árekstrar voru fremur
smávægilegir, en þó urðu
nokkrar skemmdir á bifreið-
um.
Auður lauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla íslands árið
1956. Um haustið giftist hún
Þórði Erni Sigurðssyni, sem
varð stúdent frá MR þá um
vorið. Auður dvaldist með
manni sínum erlendis um tíma,
í Edinborg og á Spáni.
Þau hjónin eiga eina dóttur,
hún er þriggja ára og heitir
Dalla, Þórður, maður Auðar,
kennir latínu og ensku við MR.
Heimili þeirra er að Bi’aga-
götu 29.
Auður skýrði Alþýðublaðinu
frá því í gær, að hún hefði
ekki enn tekið ákvörðun um
hvort hún vígist til prests, en
kvaðst mundu gera það, ef
starf hennar krefðist þess. Auð
ur hefur starfað mikið innan
KFUM og K í Reykjavík.
MYNDIRNAR; Efri myndin
sýnir Auði í predikunarstóln-
um í kapellu háskólans. Sitj-
andi eru Jóhann Hannesson
prófessor, og Jón Auðuns dóm-
prófastur.
Neðri myndin er tekin að
prófinu loknu. Talið frá vinstri
er Þórður, eiginmaður Auðar,
Auður sjálf, Herra Sigurbjörn
Einarsson biskup, óg loks Dalla
dóttir Auðar.
Enn er síld í
Jökuldjúpinu
VARÐSKIPIÐ ÆGIR ,lá í
vari innan við Garðskaga í
gærkvöldi, er Alþýðublaðið
hafði tal af Jakobi Jakobssyni,
f’skifræðing, sem er um borð
í skipinu. Hann sagði, að eng
inn síldarbátur hefði nú kom-
ið á miðin í rúma viku vegna
veðurs, og i gærkvöldi var
ekkert útlit fyrir að það
myndi batna.
Ægir leitaði í Jökuldjúpinu
í nótt, þrátt fyrir slæm skil-
yrði, og fann nokkrar stórar
og góðar torfur. Hefur síldin.
nú faert sig nokkuð innar í
djúpið, um 5—6 mílur í ncrð
austur.
Sagði Jakob, að auðséð væri,
að sildin myndi nú halda sig
á sömu slóðum um nokkúrn
KLUKKAN 20.40 í gærkvöldi
var slökkviliðið kvaít um bor®
í togarann Þorkel mána, cn þar
hafði kviknað í út frá olmhííun
i við hásetaklefa. Var eltlurinn
snarlega slökktur og hiutast
i litlar skemmdir af.
Alþýðublaðið — 1. febr. 1962 5