Alþýðublaðið - 17.07.1962, Síða 11
Auðveldur sigur
, :1 gegn ÍBÁ
Það eru stundum margir, sem berjast um bolfann!
VALUR SIGRAÐIÍSFIRÐ-
INGA OG FRAM AKRANES
VALIJR gjörsigraði ísfirðinga
á ísafirði á laugardag með 4
mörkum gegn engu. — Valsmenn
voru í sókn mestallan leikin, í fyrri
hálfleik tókst þeim þó ekki að
skora
Nýliði í Valsliðinu, Bergur
Guðnason skoraði fyrsta markið,
síðan bættu Björgvin og Matthías
tveim við og fjórða markið skoraði
Bergur.
Lið ísfirðinga er nú nærri von-
laust um að halda sæti sínu í
I. deild.
I
Framarar voru heppnir á Akra-
nesi á sunnudaginn, er þeir sigr-
uðu Skagamenn með 1 marki
gegn engu. Jafntefli hefði verið
sanngjarnt eftir gangi leiksins.
Akurnesingar hófu leikinn með
hörkusókn og áttu hvert upphl. af
öðru og t. d. varði Geir þrjú góð
skot frá Þórði Jónssyni með prýði.
Fram riær nú smám saman
tökum á leiknum og eftir 25 mín.
skorar Guðmundur Óskarsson
eftir fyrirsendingu Hallgríms
Schevings og nokkur mistök í
vörn Akurnesinga.
Framhald á 13. síðu.
ÚRSLIT
I. deild
KR — Akureyri 4:1
Fram — Akranes 1:0
Valur — ísafj. 4:0
Staðan í I. deild:
L U J T M St.
7 3 3 1 13:5 9
6 3 2 2 13:6 8
7 3 2 2 9:4 8
5 2 2 1 12:6 6
6303 12:12 6
7 0 1 6 1:27 1
Ingvar og Guðjón í einvígi.
Frarn
KR
Valur
ÍA
ÍBA
ÍBÍ
II. deild
Reynir — Víkingur 3:0
Keflav. — Hafnarfj. 3:1
L U J T M St.
ÍBK 7 6 0 1 32:6 12
Þróftur 6 5 0 1 24:10 10
Breiðabl. 6 3 0 3 19:18 6
ÍBH 7 3 0 4 15:19 6
Reynir 7 2 0 5 14:21 6
Víkingur 7 1 0 6 6:36 2
KR-INGAR bættu næsta auðveld
lega við sig báðum stigunum í
fyrri leik þeirra og Akureyringa,
í íslandsmótinu á sunnudaginn var.
Almennt mun hafa verið við því
búizt að þarna yrði um mjög tví-
sýnan leik að ræða.
Ekki verður annað - sagt^en-að
leikurinn í heild hafi verið í slat-
ara lagi, og þá ckki sízt af Akur-
eyringa hálfu, sem oft hafa sýnt
ibæði dugnað og keppnishörku, en
i brást hvorttveggja í þetta sinn. —
Marktækifæri þeirra voru lítil,
sem engin og samleikurinn mjög
í molum. Áberandi var hvað send-
ingar voru yfirleitt ónákvæmar og
fumkenndar. Flestar þeirra höfn-
j uðu hjá mótherjunum.
Sókn KR, hverju sinni var mikl-
um mun sneggri og marktækifæri
þeirra oft allgóð, þó þeim mistæk-
ist að nýta þau sem skyidi. En
helminginn af mörkum sínum, sem
urðu fjögur samtals, gerðu þeir eft
ir regin-mistök varnar mótnerj-
anna og fengu þau þar af leiðandi |
án mikillar fyrirhafnar, en hin tvö
síðari mörkin voru bæði skoruð,
eftir ágætan samleik og með góð-
um skotum.
Framan af fyrri hálfleiknum var
sókn KR nær allsráðandi, en leik-
urinn jafnaðist nokkuð er á leið,
| og í síðari hálfleiknum var sókn
Akureyringa mun meiri, án þess
þó að mark KR kæmist í neina
teljandi hættu, að undanskyldu
því, er Akureyringum tókst eitt
sinn að skora, þó meira fyrir mis-
tök miðframvarðarins, en eigin
snilli. Að vísu var skotið, sem mark
ið kom úr gott og fast.
Miðað við það að þarna áttust
við, úr báðum liðum, meginuppi-
staða landsliðsins, verður leikurinn
í heild að teljast síður en svo já-
kvæður fyrir knattleikni vora. En
þarna voru sjö landsliðsmenn að
verki.
KR skoraði fyrsta mark sitt þeg-
ar í byrjun leiks. Ellert sendi bolt-
ann í netið, eftir að miðverðinum
hafði mistekist fráspyrnan, en
knötturinn hrökk til Ellerts, sem
var í stuttu færi við markið. —
Nokkru síðar skoraði svo Ellert aft-
ur. Einar hugðist taka knöttinn eft-
ir laust skot, en Ellert var íljótari
og náði að slæma til boltans og
sendi hann inn, fram hjá mark-
verði.
Er skammt var liðið á síðari
hálfleikinn náðu Akureyringar all-
góðri sókn. Kári fékk boltann,
sendi til Steingríms, er síðan af-
greiddi hann vel til Páls, sem var
fyrir opnu marki og í góðu skot-
færi, en Heimir bjargaði með út-
hlaupi á réttri stundu. Knötturinn
kom í hann. Hornspyrna, en mark-
inu var bjargað. Er 10 mínútur
voru af leik, sendi KR knöttinn
inn í þriðja sinn. Markið kom eft-
ir samfellda sókn, sem átti upptök
sín hjá Sveini Jónssyni með send-
ingu hans til Sigurþórs, v. útherja.
en hann lék laglega á bakvörðinn
og sendi svo vel fyrir markið, þar
var Jón Sigurðsson vel staðsettur í
góðu færi og bætti því við, sem
dugði, með hörkuskoti. Aðdrag-
andi og endalok þessarar sóknar
var eitt hið bezta í leijcnum. Fjór-
um mínútum síðar tekst svo Akur-
eyringum að gera þetta eina mark
sitt, Skúli h. innh. sendi knöttinri
inn eftir að Herði Felixsyni hafði
mistekist fráspyrna og knötturinn
hrokkið til Skúla. Skot Skúla var .
ágætt, fast og snöggt. Loks skor-
aði svo Jón Sigurðsson aftur á síð-
ustu mínútum leiksins, úr sendingu
Gunnars Guðmannssonar, eftir að
hann hafði fengið knöttinn frá t
Sigurþór.
] ‘í liði KR voru þeir Jón og Sig-
' urþór í framlínunni, sem bezt
jbörðust, en Sveinn Jónsson fram-
] vörður sýndi mestan dugnað og
vinnuherkju í KR-liðinu, í heild.
Framlína Akureyringa, sem ann
ars er betri hluti liðsins, var ó-
iveiju snerpulítir og ósamtaka —
i Steingrími tókst illa til í viðureign
inni við Hörð og tókst aldrei að
skapa sér nein skotskilyrði. Kári
var heldur ekki í essinu sínu. —
Skorti mjög á að þessir „topp-
leikmenn" stæðu sig eins og stund-
um áður. Jón Stefánsson miðvörð-
ur lék nú aftur, eftir meiðslin, sem
hann hlaut í sumar. Var hann
traustur að vanda, og bezti maður
varriarinnar.
Karl Bergmann dæmdi og hefði
jvissulega mátt vera, bæði ákveðn-
ari og röggsamari.
Völlurinn var háll eftir rign-
inguna, og því allerfitt að fóta sig
á honum, á stundum, en það eitt
afsakar ekki- með öllu, ýmiskonar
mistök í sendingum, skotum úr
upplögðum færum og fleira slíkt.
EB
Lofgrein um is-
lenzkar iþrötfir
ÍDRÆTSLIV heitir snoturt mál-
gagn Danska íþróttasambands-
ins. Það kemur út reglulega einu
sinni í mánuði — 12 til 16 síður
hverju sinni. Ritstjóri er Evald
Andersen, þekktur íþróttaleiðtogi
og íþróttafréttamaður, sem skrif-
ar auk þess fyrir ýmis blöð önnur
á Norðurlöndunum, einkum í Sví-
þjóð. Hann var hér í júnímánuöi
þátttakandi í VIII. móti norrænna
íþróttafréttamanna, og setti mjög
svip á mótið, stjórnaði þar fund-
um, ásamt Sven Ekström frá
Gautaborg og fór þeim báðum
mjög vel úr hendi fundarstjórnin.
Evald Andersen hefur nú e.ytt
1 og Vá úr síðu í 7. tölublaði hins
víðlesna blaðs síns, til að segja frá
mótinu í Reykjavík. Aðalfyrirsögn-
in er með stóru letri: „Á ÍSLANDI
LÆRA ALLIR AÐ SYNDA“. Und-
irfyrirsögn, með smærra letri: „En
hnefaleikar eru bannaðir og knatt-
spyrnan er ein um að draga að á-
horfendur svo um munar. ,— Nor-
rænir íþróttafréttamenn hélda
fund í Reykjavík“.
Síðan hefst greinin:
„VIII. mót Norrænna íþrótta-
fréttamanna var haldið á íslaftdi
í síðasta mánuði. Á eyju, sem hef-
ur aðeins 170 þúsund íbúa getuft
maður ekki vonast til að hitta
fjölda íþróttafréttamanna, og þetta
var í fyrsta skipti, sem íslenzkir
íþróttafréttamenn sáu um slikt
Framhald á 13. Eíðn.
< -íí
Hér varð Einar aðeins á undan Gunnari Felixsyni.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 17. júíí 1962 H
I