Alþýðublaðið - 17.07.1962, Blaðsíða 14
DAGBÓK þriðjudagur
Þriðjudagnr
17. júlí:
12,00 Hádeg-
isútvarp, —
13,00 „Við vinnuna". 15,00 Síð-
degisúvarp. 18,30 Harmoniku-
lög. 19,30 Fréttir. 20,00 Tón-
leikar: „Matinées Musicales“
op. 24 eftir Benjamin Britten.
20,15 Ný ríki í Suðurálfu; 9. er-
indi: Mið-afrísku-lýðveldin,
Tchad og Kamerún (Eiríkur Sig
Urbergsson viðskfr.). 20,40 Frá
tónlistarhátíðinni í Björgvin í
vor. 21,05 íslenzkt tónlistar-
kvöld: Baldur Andrésson talar
um Markús Kristjánsson og
kynnir verk hans. 21,45 íþróttir.
22,00 Fréttir. 22,10 Lög unga
fólksins. 23,00 Dagskrárlok.
Frá Ferðahappdrætti bruna-
varða: Dráttur hefur farið
fram, eftirfarandi númer
hlutu vinning: 1. Flugfar fyr-
ir tvo til Kaupmannahafnar
og til baka, nr. 4627. 2. Ferð
á 1. farrými Gullfoss til Kmh
og til baka fyrir einn, nr. 6107.
3. Ferð fyrir tvo á 1. farrými
með Esju í hringferð um land
ið, nr. 5012. 4. Flugfar út á
land og til baka, nr. 5400. 5.
Ferð fyrir tvo með Norðurleið
h.f. til Akureyrar og til baka,
nr. 2264. 6. Ferð fyrir tvo með
Norðurleið h.f. til Akureyrar
og til baka, nr. 4339. 7. 210
ferðir milli Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar, nr. 455. Vir.n-
inganna má vitja á venjuæg-
um skrifstofutíma á ekrifstofu
slökkvistöðvarinnar. (Birt án
ábyrgðar).
Flugfélag
íslands h.f.:
Millilandaflug: —
Hrímfaxi fer til
Glasg. og Kmh kl. 08,00 í dag.
Væntanleg aftur til Rvk kl. 22,
40 ■ í kvöld. Fiugvélin fer til
Glasg: og Kmh kl. 08,00 í fyrra-
málið. Gullfaxi fer til London
kl.912.30 í dag. Væntanleg aftur
til Rvk kl. 23,30 í kvöld. Flug-
vélin fer til Oslo og Kmh kl.
08,30 í fyrramálið. ■— Innan-
landsflug: í dag er áætlað að
fljúga til Akureyrar (3 ferðir).
Egilsstaða, Húsavíkur, ísafjarð-
ar, Vestmannaeyja (2 ferðir),
og Sauðárkróks. — Á morgun
er áætlað að fljúga til Akureyr
ar (2 ferðir), Egilsstaða, Hellu,
Hornafjarðar, ísafjarðar og
Vestmannaeyja (2 ferðir).
toftleiðir h.f.: Þriðjudag 17. júlí
er Leifur Eiríksson væntanleg-
ur frá New Vork kl. 09,00 Fer
til Luxemburg kl. 10.30. Kemur
til baka frá Luxemburg kl. 24,
00. Fer til New York ki. 01,30.
Frá Náttúrulækningafélaginu:
Fjallagrasaferð N.L.F.R. verð
ur farin að forfallalausu laug
ardaginn 21. júlí n.k. kl. 8.30
árd., frá skrifstofu félagsins
Laufásvegi 2. Farið verður 4
nágrenni Hveravalla, ef til vill
í Skálholt, að Gullfossi og víð
ar. Tjöld, svefnpoka og nesti
þarf að hafa með. Áskrifta-
listar eru í N.L.F.R.-búðinni
Týsgötu 8 sími 10263 og í sknf
stofunni. Laufásvegi 2. Menn
eru vinsamlega beðnir að til-
kynna þátttöku fyrir fimmtu-
dagskvöld 19. júlí. Ath. utan-
félagsfólk er velkomið.
Skipadeiíd S.Í.S.:
j Hvassafell cr í Gdy
Enax£9 nia. Arnarfell lest-
ar síld á Raufarh.
til Finnlands. Jökulfell iestar
fisk á Austfjarðarhöínum. Dís-
arfell fór fram hjá Kmh á surnu
dagskvöld á leið til ís’and. .—
Litlafell er á leið ti’. Rvk frá
Norðurlandshöfnum. Ilelgafell
er í Archangelsk Hamrafell fór
10. þ. m. frá Hat'narfirði áleiðis
til Palermo og Batumi.
Hafskip: Laxá er í Stornoway.
Skipaútgerð ríkisins
Hekla er væntanleg til Rvíkur
árdegis á morgun frá Norður-
löndum Esja er í Rvik Herjólf-
ur fer frá Vmeyjum kl. 21 í
kvöld til Rvíkur Skjaldbreið er
á Breiðafirði Herðubreið fer frá
Rvík í dag vestur um land í
hringferð.
Eimskipafélag Reykjavíkur h.f.
Katla fer frá Bilbao í dag áleið
is til Lissabon Askja er væntan
leg til Hamborgar í dag.
dinningarspjöld „Sjálfsbjörg"
félags fatlaðra fást á eftirtöld
um stöðum: Garðs-apóteki,
Holts-apotekl Reykjavikur-
apoteki, Vesturbæjar-apoteki
Verzlunninni Roði Laugavegi
74. Bókabúð ísafoldar Austur
stræti 8. Bókabúðinni Laugar
nesvegi 52 Bókbúðinni Bræðra
borgarstíg 9 og i Skrifstofu
Sjálfsbjargar.
<5T*
SÖFN
Bæj^rbokasafn
Revk lavíkur: —
Síml 12308. AB-
alsarrnr bin^-
holtsstræti 29 A: Útlánsdelld
2-10 alla virka daga nema laug
ardaga 1-4. Lokað á sunnudög
um. Lesstofa: 10-10 alla virka
daga, nema laugardaga 10-4.
Lokað á sunnudögum. Útibúið
Hólmgarði 34: Opið 5-7 aUa
virka daga, nema laugardaga.
Útibúið Hofsvallagötu 16: Op
Ið 5.30-7.30 aUa Wrka daga
nema laugardag*
Þjóðmlnjasafnlð og Hstasa &
ríklslns er opið daglega fi’á
tí. 1,30 tíl 4,00 e. h.
’.istasafn Elnars Jónssonar er
npið daglega frá 1,30 tíl 3,30.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74
Opið: sunnudaga, þriðjudaga
^og fimmudagr frá wi 1.30—4.00
Árbæjarsafn er oplð aUa daga
frá kl. 2—6 nema mánudaga.
Opið á sunnudögum frá ld,
2—7.
'á vold- og
apturvórð-
nr L. R. f
• £■ Kvöld-
»kt ki ih.oo—1PO.3O. Vfetur-
vakt: Víkingur Arnórsson. Næt-
urvakt: Guðmundur Georgsson.
Læknavarðstofan: Slml 15030,
EYÐAItVAKl Læknafélags
íeykjavíkur og Sjúkrasam-
ags Reykjavikur er kl. 13-17
lla daga frá mánudagl JU
stmi
14 17. júlí 1962 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Öryggismál sjóma nna . ... .
Framhald af 7 síðu.
„Hvað stoðar að eiga ,sér
styrk og þor,
ef stigið er öfugt í blindni
hvert spor?“
Þannig spyr skáldið almennt.
En ég vildi að gefnu nokkru til-
efni draga þennan snjalla vís-
dóm fram sem ábendingu til fiski
skipstjórnarmanna og Sjómanna-
skólans okkar. „Öfug spor“ geta
verið dýr — einkum til falls á sjó
— og stundum nægir til falls
meira að segja aðeins eitt, sem
getur í senn verið það fyrsta og
síðasta, ef illa tekst til . . .
Þó að ég vilji ekki ætla hæfi-
leikum skipstjórnarmanna að
koma í staðinn fyrir sjóhæfni
skipa, er, öðru nær en ég hafi
tilhrieigingu til þess að draga úr
eða vanmeta þýðingu skipstjórn-
arinnar. Tek ég undir.öll vevð-
skulduð og réttmæt orð skipa-
skoðuparstjóra þar um. Það er
fyrst, þegar hann er búinn að
segja frá, að „námskeið fyrir
fiskiskipstjóra séu í dag mjög
stutt og tími muni því naumur
nema til að kenna það allra nauð-
synlegasta til daglegrar notkun-
ar“, að mér líkar ekki viðhorf
hans í næstu málsgrein. Hún er
svona:
9
„Það mun því afsakanlegt
eins og nú er ástatt, að ekki sc
kennt neitt um stöðugleika
skipa“.
Þessu er ég algjörlega ósam-
mála og vil fullyrða það gagn-
stæða: Þetta er ekki afsakanlegt,
einkum „eins og nú er ástatt ’,
hverju eða hverjum, sem um er
að kenna! Ég sé ekki nokkra á-
stæðu til þess að „hespa af“ skip
sjórnarnám fiskimanna. Öðru
nær! Hvað liggur fiskiskipstjcr-
um á í námi öðrum fremur? Mér
er tjáð, að það kosti fjögurra ára
iðnnám að ná sér í réttindi til
þess að raka og klippa manns-
haus — ekki hættulegra eða við-
urhlutameira fyrirtækis .— að ó-
gleymdum möguleika rakhnifsins!
Skipstjórum er falið á viðkvæm-
um stundum hættu og hamfara að
gæta lífs margra manna á sjó og
þýðingarmikils þáttar lífsham-
ingju ástvina þeirra í landi, þeg-
ar „bilið er mjótt“ milli lífs og
dauða. Það segir sig þess vegna
sjáift, hver óumdeilanleg lífsnauð
syn það er, að þessir menn, sem
svo þung ábyrgð er lögð á herð-
ar, fái þá beztu fræðslu og þjálf-
un, sem nokkur kostur er að veita
á hverjum tima. Þar má einskis
láta ófreistað Getum við því flokk
að tímaskort til náms við Sjó-
mannaskólann undir óyfirstígan-
lega örðugleika, sem maður í auð
mýkt og uppgjöf á að „bugta“ sig
fyrir? Eða telja einn þýðingar-
mesta þáttinn í námi til þess að
halda skipi sínu á réttum kili —
fræðsluna um stöðugleika skipa
— ekki til „hins allra nauðsyn-
legasta".
Svo tekið sé dæmi um aðra
:nenn, sem einnig — þótt mjög á
aðra lund sé ■— eins og skipstjór-
um er ætlað það hlutverk að
gæta lífs og lima annarra manna
— læknana — er þeim nú ætlað
að fórna hvorki meira en minna
en V3 til V2 starfsævi sinnár til
náms. Þeir þægju sjálfsagt sumir
að hafa þennan aðdraganda til
læknisréttinda eitthvað styttri.
Þeir eru bara eðlilega ekkert
spurðir að því. Þetta er talið nauð
synlegt og því er það gert. Hvers
vegna ekki að hafa sams konar
viðhorf í lærdómsmálum fiski-
skipastjórnarmanna? Hvað liggur
þeim á umfram aðra menn?
Þeirra bíður þó yfirleitt góð lífs-
kjör í fjárhagslegu tilliti —
sumra betri en nokkurra annarra
manna, og alltaf helmingi og
sundum margfalt meiri ctn uhdir-
manna þeirra. Þeir mega því vel
kosta talsverðu til náms síns, og
ég er ekkert í vafa um vilja og
getu þeirra sjálfra. Á hverju þarf
að standa? Ekki vantar kennara
við Sjómannaskólann. Þeir eru
fyrir hendi og kenna öðrum nem-
endum umrætt nauðsynjafag vet-
ur hvern. Ekki stendur viðkoma
stéttarinnar tæpt, þannig að sér-
staklega liggi á þess vegna. Á
nálega hverju fiskiskipi bíða lærð
ir skipstjórnarmenn þess að „kom
ast í stöðu“. Það er því senni-
lega nær „offramleiðslu" heldur
en hitt. Hví þá ekki að fara sér
hægar og læra betur? Þótt gott
sé að hafa sem flesta sæmilega
búna undir sjómennsku, er betra
að hafa færri með 1. flokks skip-
stjórnarmenntun.
Að síðustu ívitnuðum orðum
skipaskoðunarstjóra sögðum, er
eins og hann fái strax eftirþanka.
Það væri ekki rétt að láta þess
ógetið. Hann segir þá: „Þó finnst
mér þetta atriði vera mjög- svo
aðkallandi vandamál . . Það lái
ég honum sannarlega ekki — og
ættu þau ummæli hans a. m. k. að
verða forráðamönnum Sjómanna-
skólans meira en umhugsunar-
efni. Brjóstviti manna ber ég
virðingu fyrir og eðlislægir hæfi-
leikar í ákveðnar áttir geta verið
stórkostlega hrífandi. En slíkar
guðsgjafir ættu vissulega að full-
komnast við raunhæfa, vísinda-
lega þekkingu, og er ég skipaskoð
unarstjóra fyllilega sammála um
allt það, er hann segir í sambandi
við áhrif þekkingar skipstjórnar-
manna til eflingar meðfæddum
hæfileikum þeirra.
Hér skal nú látið staðar num-
ið. Mér þykir að sumu leyti held-
ur fyrir því að vera e. t. v. að
hrella jafn ágætan mann og skipa
skoðunarstjóra nú í hásumar-
blíðunni með athugasemdum mín
um að nokkru varðandi virðulegt
embætti hans. En það er nú oft
þannig, að hafi manni á annað
borð orðið það á að segja A, verð
ur maður einnig að segja B — og
stundum meira. Ég bið hann, án
tilefnis að líta nú sem í fyrra
skiptið á hugleiðingar mínar um
þessi mál sem vilja til þátttöku f.
vekjandi umræðum og gagnlegum
aðgerðum til úrbóta.
Þetta slysavarnarmál, lað-
ar ekki til hlédrægni. En þótt það
sé rætt hér allmjög í spurnar-
formi, ætlast ég engan veginn til,
mín vegna, að skipaskoðunar-
stjóri svari þeim frekar en honum
sjálfum sýnist, enda sumar spurn
inganna alls ekki sérstaklega
beint til hans. Hitt er aðalatriði
þessa máls, að gert sé það, sem
gera þarf, og ég vil treysta hon-
um til þess að eiga þar góðan hlut
í æskilegri lausn mála. Til þess
hefur hann bæði þekkingu og
valda-aðstöðu. Góðvilja hans ef-
ast ég ekki um.
(Allar leturbreytingar gerðar af
mér. Svo var og í fyrri grein
minni).
Reykjavík, 12. júlí 1962.
— Bþkr.
Frá Ferðafé-
Iagi fslands
Ferðafélag íslands
fer tvær sumarleyfisferðir nk.
laugardag. Önnur er 6 daga ferð
um Kjalvegssvæðið. Gist verð-
ur í sæluhúsum félagsins á
Kjalvegi. — Hin ferðin er 9
daga ferð um Fjallabaksveg
nyrðri (Landmannaleið). Upp-
lýsingar í skrifstofu félagsins
í Túngötu 5. Símar 19533 og
11798.
Maðurinn minn og. faðir okkar,
Gunnlaugur Halldórsson,
Mjógötu 7, ísafirði,
andaðist í Reykjavík aðfaranótt 16. þessa mánaðar.
Guðrún Finnbogadóttir og börn.
Jarðarför
Þórdísar Magnúsdóttur,
Bogahlíð 26,
sem andaðist 10. þ. m. fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
18. júlí kl. 1,30 e. h.
Blóm afbeðin, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á
Slysavarnafélag íslands.
Ragnhildur Eyja Þórðardóttir,
Sigfús Kr. Gunnlaugsson.