Alþýðublaðið - 30.08.1962, Blaðsíða 2
1 itstjoiar: Gísli J. Asipórsson íáb.) og Benedikt Gröndal. — Aðstoðarritstjóri:
í (Jörgvin Guðmundsson. — Símar: 14 900 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasimi
3 4 906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið. — Prentcmiðja Alþýðublaðsins, Hverfisgötu
l —10. — Askriftargj ald kr. 55,00 á mánuðí. 1 lausasölu kr. T.OO eint. Utgef-
andi: Alþýðuflokkurinn. -- Frarakvæmdastjóri: Asgpir Jóhannesson,
j Adenauer og Churchill
i VALDAMENN stórvelda þurfa mikið að tala
’um þúsund þjalir heimsmálanna dag hvern. Öðru
,hverju kemur fyrir, að þeir ruglast í ríminu og
fara rangt með staðreyndir. Þeim eru oftast fyr
irgefnar slíkar yfirsjónir, eftir að þær hafa verið
'leiðréttar á einbverh hátt, en eðlilega angra því
lík atvik þá, sem hlut e:ga að máli.
íslendingar hafa ekki farið varhluta af slíkum
skekkjum. Winston Churchill kom hingað til
lands á stríðsárunum og var forkunnarvel tekið.
Eftir það festust í huga hans tvær meginvillur.
Önnur var sú, að íslendingar hafi samþykkt
brezka hernámið, og hin, að Churchill væri sjálf
ur faðir hitaveitunnar í Reykjavík. Hafa þessar
ivillur komið fram í bókum hans og munu því
miður standa þar að eilífu. Samt breyta þessar
villur ekki staðreyndum málanna.
HANNES
Á HORNINU
★ Förnm við rangt a&, þeg
ar slys verða?
★ Rætt við lækni á slysa-
stað.
★ Um Stór-Reykjavík og
sveitirnar.
★ Hvað ætla bændur að
Revkjavík, viljum koma vel íram
við bændur. En ef bændurnir vilja
vera miklir menn og -leggja upib i
ævintýri, þá verða þeir að gera það
!á sinn kostnað. Við skuldum þémi
iekki neitt. Og hagur bænda er það
betri en verkamanna, að þeir þurfa
| ekki að kvarta.
I EN ÞÓ FÓLKIB flytji til Stór-
i Reykjavíkur, og þó útkjájkar og
afdalir fari úr byggð í bili, þá er
það engin hætta heldur þjóðarhag-
ur, enda tiltækilegt þegar fólkinu
fjölgar. ísland er líka það vestar-
lega, og stendur á svo traustum
grunni, að það verður aldrei dreg
ið austur fyrir tjald.“
STJÓKN Nemendasambands
Húsmæðraskólans gengst fyrir
stofnun sjóðs við Húsmæðrakenn
araskólann til minningar um
Helgu Sigurðarcíótlur fyrrum skóla
stjóra.
Höfuðmarkmið sjóðsins verður
að styrkja stúlkur við nám í skól
anum.
Minningarkort verða afhent og
gjöfum i sjóðinn veitt viðtaka í
Bókaverzlun Xsafoldar, Austur-
stræti og í Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
ganga langt?
VEGFARANDI skrifar: „Nýlega
kom ég þar að, sem mikið umferð-
arslys hafði orðið. Ungur maður
lá í götunni og mannfjöldi í kring
um hann. Enginn hreyfði hann,
enda er talið rétt að hreyfa ekki
slasaða menn fyrr en þeir, sem
kunna að fara með þá, koma og |
fara með þá í sjúkrahús. Stór blóð-
pollur var á götunni og virtist unga |
manninum vera að blæða út. Ég
sá hvar bíll með læknismerki kom
að og maður steig út úr honum.
Maðurinn staðnæmdist við hliðina
á mér.
Frá barnaskólum
Reykjavíkur
Börn fædd 1955, 1954 og 1953 eiga að sækja
skóla í spetembermánuði.
7 ára börn (f. 1955) komi í skólana 1. sept. kl. 9 f. h.
8 ára börn (f. 1954) komi í skólana 1. sept. kl." 10 f.h.
9 ára börn (f. 1953)komi í skólana 1. sept. kl. 11 f. h.
Nú ivirðist það hafa festst í huga dr. Konrads
Adenauers, kanzlara Vestur-Þýzkalands, að ís-
lendingar hafi sótt um aðild að Efnahagsbanda-
lagi Evrópu, og hann telur okkur í þeim hópi, er
<hann talar blaðalaust við sjónvarpsmenn í Ber-
lín. Þetta misminni gamla mannsins breytir þó
ekki sannleika málsins, sem eru öllum íslendng
um kunnur, frekar en villur Churchills eða ann-
arra breyta sögulegum staðreyndum.
Rússar segja NEI
ÖLL STÓRVELDI virðast vera sammála um I
nauðsyn aívopnunar til a& tryggja frið, nema Kín
verjar, sem telja afvopnun töf á heimsyfirráðum
- kommúnismans. Hins vegar hefur gengið illa að
ýná samkomulagi um fyrstu skrefin, sem. hljóta
að verða bann við tilraunum með kjarnorku- |
! vopn.
Undanfarna mánuði hafa Vesturveldin gert
hverja tillöguna á fætur annarri til að koma slíkri
afvopnun á. Þau hafa dregið mjög úr fyrri kröf-
um sínum um eftirlit í trausti þess, að ekki sé p
hægt að sprengja kjarnorkuvopn án þess að það i
heyrist á mælitæki annarra þjóða.
Sovétríkin hafa neitað að fallast á þessar til- J
lögur hverja af annarri. Fer nú að verða erfið-
ara að skilja afstöðu Rússa og vaknar óhjá- |
'kvæmilega sá grunur, að þeir vilji alls ekki af-
ívopnun. Þegar það verður Ijóst, hlýtur afstaða |
’manna að breytast, ekki sízt þeirra hugsjóna-
“manna, sem halda uppi baráttu g.egn kjarnorku |
íiVopnum. §
ÉG SNÉRI MÉR að honum og
sagði: „Þetta er hörmulegt. Ég sé
ekki betur en að honum sé að
blæða út.“ — „Já“, svaraði maður
inn. „Það er liætt við að hann liafi
þetta ekki af honum blæðir svo ört‘
„Eruð þér ekki læknir?” spurði ég.
„Jú,“ svaraði maðurinn „en ég vil
ekki grípa fram fyrir hendurnar
á þeim, sem taka hann og fara með
hann.“ — Mig furðaði á þessu tali
læknisins. Ekki veit ég með vissu
hvernig fór með þennan unga slas
aða mann. Ég held að hann hafi
lifað. En þetta dæmi sýnir okkur,
að ekki er allt eins og það á að
vera. Hefði læknirinn getað stöðv-
að blæðingu mannsins?"
FYRRVERANDI BÓNDI skrifar:
„Og þú líka — “ varð mér að orði,
er ég sá greinina um hættuna af
Stór-Reykjavík. Það er ljómandi
fallegur maður, sem skrifar þetta,
og ekki nema þrítugur. Ekki var
ég orðinn svona íhaldssamur á hans
aldri. A svæðinu frá Akranesi til
Vestmannaeyja með aðliggjandi
uppsveitum, búa um tveir þriðju
af þjóðinni. Þetta er byggilegasti
hluti íslands og hefir bezt skilyrði
til góðrar afkomu. Þess vegna.vex
fólksfjöldinn hér stöðugt, og von-
andi verður svo áfram.
REYKJAVÍK HEFUR ekkert
unnið til saka annað en að vera mið
svæðis í beztu athafnahéruðunum,
liafa bezta höfn og góðar samgöng
ur. Við verðum -að þora að búa í
þéttbýli. ef við óskum eftir vax-
andi velmegun og velgengni. En
það held ég sé ósk flestra fyrir
úppváxandi æskufólk. Hínir eru
starblindir ofstækismenn.
ER FORMAÐUR Búnaðarfélags
íslands sfeit bændavikunni sagði
hánn, að Reykvíkingar væru ræfl-
ar og rónar. Þetta var þakklæti til
okkar fyrir viðskiptin, sem ég hélt
að hagur bænda byggðist á. Aldrei
var ég svona vitlaus meðan ég var
verzlunarmaður, að ég Iastaði við-
skiptavinina. Við, alþýðufólkið í
Foreldrar athugið:
Mjög áríðandi er, að grein sé gerð fyrir öllum
börnum á ofangr. aldri, (7, 8 og 9. ára), í skól
unum þennan dag. Geti börnin ekki komið
sjálf, verða foreldrar eða aðrir að gera grein
fyrir þeim í skólunum.
Ath: Skólabverfi Breiðagerðisskóla nær nú að
Háaleitisbraut (sunnan Mfklubrautar).
Kennarafundur verður í skólunum 1. sept.
kl. 8,30 f. h.
Fræðslustjórinn í Reykjavík.
2 30. ágúst 1962 - ALÞÝÐU3LAÐIÐ