Alþýðublaðið - 06.01.1963, Side 10
„Fram og KR hafa ekki sótt
urn leyfi KSÍ til þátttöku
í Evrópubikarkeppninni",
f segir Björgvin Schram í stuttu
viðtali viÖ Alþýðublaðið
Olympíusvæðið
í Tokíó 1964
EI^ÍS OG SKYRT hefur verið
frá ■ í, blaðinu verður mikið um að
vera'" í knattspyrnunni hér næsta
sumar. Það er þátttaka í undan-
keppni Olympíuleikanna, hugsan-
leg þátttaka Fram og KR í Evrópu
bikarkeppni meistaraliða og bik-
armeistara, hinar hefðbundnu
vor- og miðsumarheimsóknir er-
lendra liða, nú og svo hin föstu
mót, íslandsmót, Reykjavíkurmót,
Bikarkeppnin o. s. frv.
Nú í byrjun árs datt okkur í hug
að leita upplýsinga um undirbún-
ing íslenzkra knattspyrnumanna
fypr þessi miklu átök og höfðum
því samband við formann Knatt-
sþyrnusambands Islands, Björgvin
Schfám og lögðum fyrir hanh
n'ókkrar spurningar.
— Ætlar stjórn KSÍ að efna til
sérstakra samæfinga fyrir undan-
keppni Olympíuleikanna?
—: Um þetta hefur enn engin á-
kvörðun verið tekin í stjórninni,
en trúlega þykir mér að treyst
verði á félögin cins og undanfar
in ár og er margt, sem mælir með
því. Það fyrsta er, að fjárráð okk
ar eru það lítil að við höfum tæp
lega efni á að ráða sérstakan
landsþjálfara. Nú, og svo telja fé
lógin að slíkar æfingar trufli
þeirra þjálfun. KSÍ vonar því og
treystir, að félögin og knattspyrnu
mennirnir bregðist ekki og æfi af
kappi fyrir hina mörgu stórleiki
ársins.
— Hvernig er það, verður und-
ankeppni OL að Ijúka á þessu ári?
— Nei, henni verður að vera
lokið í síðasta lagi 30. júni 1964.
Það er möguleiki á því að eitthvað
af leikjum okkar fari fram vorið
1964.
— Ilvað verða mörg lið í hverj
um riðli, er ykkur kunnugt um
það?
— Nei, við vitum það ekki enn
þá, en raðað eða dregið verður í
riðla í Kairó í lok þessa mánaðar.
Eitt vitum við, það verða annað
hvort 3 eða 4 lönd í riðli.
— Hvað segið þið í KSÍ um
Þessi mynd sýnir Olympíu-
leikvanginn í Tokíó og ná-
grenni hans.
þátttöku Fram og KR í Evrópu-
bikarkeppni?
— Ennþá hafa okkur ekki borizt
umsóknir frá félögunum um þetta
og ég get því ekki sagt neitt á-;
kveðið um málið í bili. Vonandi
getur samt orðið úr þátttöku af
okkar hálfu í þessari keppni.
— Að lokum Björgvin, hvað
viltu segja um íslenzka knattr
spyrnu í dag og framtíðarmörgu-
leika hennar?
— Ég var mjög ánægður með
landsleiki okkar í fyrrasumar, þá
sýndi landsljð okkar, að það hef-
ur getu til að glíma við erfið við
fangsefni með sóma. Um framtíð,
ina er erfitt að spá, við vonum
það bezta, en skilyrðin til þess að i
þær vonir rætist, er að íþrótta-
mennirnir hafi tíma og vilja til að
sinna íþróttinni.
beztir í stökki
EINS og við höfum skýrt frá hefur
mikið farið fram af stökkmótum í
Eyrópu nú um áramótin. Norski
skíðakappinn Toralf Engan hefur
borið sigur úr býtum á öllum þess-
qhen hlaut Sengan 229,9 stig og
chen hlaut Sngan 229,9 stig og
stökk 84 og 89 m. Annar varð
Georg Thoma, V-Þýzkalandi með
217,3 stig. Hann stökk 83,5 og 85,5
m. Stökk Engans voru stórkostleg
í þessari frægu stökkbraut.
í Oberstdorf sigraði Engan og
hlaut 214,2 stig. (72,0 og 70,5).
Næstur varð Max Bolkart, Vestur-
Þýzkalandi með 199,3 stig. Loks
Sigraði Engan í Innsbruek, lilaut
231,2‘ stig. Hann stökk 95 og 85 m.
í öðjph sæti var ólympíumeistarinn
Reeknagel með 215,7 stig. Rechna-
egl stökk 87 og 79 m.
Allir íþróttamenn fara lofsam-
Iegum orðum um Engan og segja,
að nú hafi Norðmenn aftur forystu
í skíðastökkinu, eins og þeir höfðu
áður um áraraðir. En það er ekki
aðeins Engan, heldur eru ýmsir
fleiri, má þar nefna Yggeseth,
Brandtæg og fleiri.
Finnar eru ekki eins sterkir og
þeir hafa verið, en beztur er Hal-
onen. Georg Thoma, sem varð
ólympíumeistari í norrænni tví-
keppni í Squaw Valley 1960, er
mjög góður stökkmaður og sama
má segja um landa hans, Max Bol-
kart.
'mÓTTAFRÉTflR
I STUTTU. MÁU
Bikarmeistarar KR — taka þeir þátt í Evrópubikarkeppnl?
I
Á SKAUTAMÓTI í Munchen á
nýársdag sigraði Gunther Traub
í 500 m. á 42,8 sek.
Knut Johannesssen hinn kunni
skautakappi Norðmanna er ekki
dauður úr öllum æðum. Á móti
á Bislet um áramótin setti hann
norskt met í 500 m. skautahlaupi,
hljóp á 8.04,2 mín. Áhorfendur
voru 27 þús. á mátinu.
NORÐMAÐURINN Toralf Eng
an sigraði glæsilega í þýzk-aust-
urisku stökkvikunni og blöðin
segja, að hann hafi meiri yfirburði
en Rocknagel var upp á sitt bezta.
Danir sigruðu Svía í körfukna .t-
leik kvenna með 35 stigum gegn
31. Staðan í hálfleik var 15:10.
Svíar sigruðu Japani ,í HM stú-
denta í handknáttleik með 26:15,
og Danir Spánverja með 24:17.
Hamoud Ameur, Frakklandi sigr
aði í nýárshlaupi í Sao Paulo, hann
hljóp á 22.08,5 mín. Annar varð
de Oliveira, Brasilíu, og þriðji O.
Suarez, Argentínu. — Svíinn Ove
Karlsson varð 15. og Finninn Olavi
Salonen 27.
]£ 6. janúar 1963 - ALÞYÐUBLAÐIÐ