Austurland - 14.01.1908, Qupperneq 1

Austurland - 14.01.1908, Qupperneq 1
«Austurland» telur 36 blöð í ár- gangi. Verð árgangs 3 kr. inn- anlands. erlendis 4 kr. Borgist fyrir nýár. Uppsögn bundin við árgangamót, ógild nema skrifleg komi til útgefanda fyrir nýár. Auglýsingar verða teknar í «Austurland» fyrir 1 kronu þuml- ungurinn af venjulegri dálkbreidd. Þeir sem mikið auglýsa fá all- mikinn afslátt, Engin auglýsing kostar minna en 50 aura. I. ár. Eskifirði, 14. janiiar 1908. 16. “blað. «Austurland» hefir fyrir skömmu flutt myndir af þremur íslenzkuni stór- kaupmönnum og umboðssölum i Kaup- mannahöfn. Fjórði íslenzkur umboðs- sali er þar, Fr. Chr. Nielsen, og' höf- um vér en ekki getað fengið mynd hans. Þegar verzlun íslands var leyst úr læðingi um m-iðja öldina sem leið, var hún öll í höndum Dana, eins og kunnugt er, og hún hélt áfram að vera það fyrstu áratugina. Menning ís- lendinga var þá ekki svo mikil, að þeir gætu þá sjálfir brotist í að fara að reka verzlun sína til útlanda. Eftir- tekt og þekking hinnar miklu verzl- unarþjóðar sem næst oss líggur, Breta, á högum vorum og landsafurðum hér var heldur eigi svo mikil franian af, að þeir færu að brjótast í að hafa hér færandi verzlun, þó leið ekki á löngu frá því verzlunin var gefin frjáls að þeir gerðu tilraunii í þá átt, líklega i fyrstu mest fyrir milligöngu íslend- ingsins Sveinbjarnar Jakobsens, en þeirra fyrstu tilraunir misheppnuðust flestar og hættu. Um 1870 voru mikil uni- brot í landi hér að koma á innlend- um bændafélaga verzlunum, og eftir þann tíma fara íslendingar að nafninu til, að hafa ofurlítið meiri afskifti af verzlun sinni, og síðan fram að þessum tíma fært sig meira og nteira upp á skaftið í því efni. 1873 fékk Tryggvi Gunnarsson stórkaupmann Slimmon f Leith til þess að kaupa hér sauðfé og hesta og hélt hann þeirri verzlun áfram nteira og ntinna í 12 eða 14 ár. — 1882 byrjar kaupfélags- skapurinn í Pingeyjarsýslu og breiðsti svo smátt og smátt út unt landið. Kaupfélögin höfðu og hafa aðallega haft viðskifti sín við Breta, að því leyti, að aðalumboðsmaður þeirra og framkvæmdarstjóri erlendis hefir átt heima á Bretlandi. Eftir 1890 fer hinum svo nefndu innlendu sntákaupmönnnm ntjög að fjölga víðsvegar um landið, og höfðu þeir flestir untboðsmenn erlendis bæði til að kaupa og selja vörur fyrir sig. Það hafði mikla þýðingu fyrir þessa smákaupmenn, sem sumir uxu upp í það að verða stórir kaupmenn, að umboðsmenn þeirra væru kunnugir verzlun hér og varningi þeim, er hér væri sótst eftir eða hér framleiddur, því sumir þeirra voru lítt verzlunar- fróðir. Til Kaupmannahafnar var því helzt leiðin fyrir þá, að fá sér umboðs- menn. í Leith í Skotlandi fóru þó sumir að fá vörur, helzt í gegnum danska konsúlinn þar, sem stundum hafði íslending á skrifstofu sinni. En enginn varanlegur kaupmanna umboðs- maður er kunnugur var hér á landi var á Englandi nema Zölner og ef til vill Coperland & Berrie fram að 1901. Það ár bauð Garðar Gíslason, sem þá var búsettur í Leith, sig fram sem um- boðsmann íslenzkra kaupmanna. Það má því telja hann sem landnámsmann frá íslandi í þeirri grein þar í landi, og í mikið þótti þá ráðist af korn- ungum og lítt reyndum verzlunar- rnanni. Hann hefir nú í 6 ár rekið umboðssölustarfann í Leith og áunnið sér traust og vinsældir sinna viðskifta- manna. Þessi ár hefur hann meir en rpörgum er kunnugt greitt fyrir sölu ýmsra íslenzkra afurða í Englandi, og hefir hann mikinn hug á að gera það framvegis, og getur slíkt orðið íslenzkri verzlun til stórgagns. Oss íslendinga vantar eigi nú orðið framboð á erlend- um vörum, eifikum margskonar iðnað- arvörum og óþarfa. Vörubjóðarnir fyrir erlend verzlunarhús eru hér á sveimi kringum landið meiri hluta árs- ins til þess að jaga varningi sínum út í íslenzka kaupmenn, sem síðan á að borgast í peningum. En tilfinnan- lega hefir oss vantað og vandar en duglega umboðssala eða erindisreka til þess að bjóða fram og mæla með varningi vorum á erlendum mark ði. Væri það meiÞ sómi íyrir unga menn og efnilega, er eitthvað vilja sér ti! frama vinna, að fara til útlanda og reyna að selja þar íslenzkar afurðir og koma þeini þar í álit, heldur en flækj- ast hér um landið fyrir útlenda auð- kýfinga til þess að selja fyrir þá ýmsan óþarfa fyrir peninga. Hver góður drengur á heiður og sæmd skilið, sem vinnur að því að koma íslenzkum varningi í meira álit erlendis og auka með því verðmæti hans þar. Að þessu hefir Garðar Gíslason meðal annars unnið fyrirfarandi ár. Hann er því verzlun íslands þarfur maður. Hann er enn á bezta aldri, og því vonandi og óskandi að hann verði það mörg ár enn, og því fretnur má vænta þess, sem hann mun nú vera búinn að fá langtum víðtækari þekkingá verzlunarvörum vor- um, og gildi þeirra og göllum, en þegar hann byrjaði umboðssölu sína. Garðar Gíslason er fæddurá Þverá í Dalsmynni 1876. Foreldrar hans voru Gísli Ásmundsson og Þorbjörg Olgeirs- dóttir er bjuggu þar þá góðu búi. Ásmundur faðir Gísla föður Garðars var Gíslason frá Nesi í Höfðahverfi. Systkini Gísla í Nesi voru Páll faðir Þórðar á Kjarna og Herdís á Stóru- völlum og er margt fólk á Norður- og Austurlandi frá þeim komið. Gísli faðir Garðars tók við búi af föður sínum á Þverá í Dalsmynni, hafði hann fengið góða menntun í æsku, enda var faðir hans fræðimaður og vel að sér, en Gísli námfús. Hann var ágætur búmaðurog bjó mörg árrausnar búi á Þverá. Kostaði hann þrjá syni sína í lærðaskólann og einn systurson sinn að mestu. Sýnir það bezt hver dugnaðar maður hann var, og bjó hann þá á hlunnindalausri dalajörð. Ekki var það heldur búbót fyrir liann, að hann gengdi oddvita, hreppstjóra og sýslunefndarstörfum í mörg ár f Hálshreppi, sem er víðlendur og strjál- byggður. Garðar Gíslason ólst upp hjá for- eldrum sínum þar til 1892, þá fór hann á Möðruvallaskólann og var þar í tvo vetur. Var hann síðan tvö ár barnakennari á vetrum, en eitthvað við verzlun á sumrum. Vorið 1897 fór hann að Grund í Eyjafirði til Magnúsar kaupmanns Sigurðssonar og var við verzlun hans þar til um haustið 1899. Þá sigldi hann til Kaupmannahafnar og var þar í verzlunarskóla einn vetur. En réðist þaðan til verzlunarfélagsins Coperland & Berrie á Skotlandi. Síðan byrjaði hann uinboðsverzlun upp á eigin spýtur 1901 eins og áður er sagt. 1903 tók hann ungan Englend- ing í félag með sér. Umboðsverzlun þeirra hefir stöðugt aukist ár frá ári síðan. í hitt eð fyrra Iétu þeir byggja stórt hús í Reykjavík, sem þeir liafa í sýnishorn af útlendum vörum, sem þeir útvega kaupmönnum. Þurfakaup- menn á Suðurlandi nú eigi að renna blint í sjóinn með vörupantanir sínar, þar sem þeir eiga kost á að skoða sýnishorn Garðars Gíslasonar í Reykja- vík. Þó þykir oss meira umvert að hann mun vera á góðum vegi að ná ágæt- um verzlunarsamböndum við sölu á ýmsum íslenzkum vörum í Skotíandi, og væri óskandi að honum yrði sem mest ágengt í því efni, og til þess ættu íslenzkir kaupmenn, sem bezt að styðja hann. Garðar Gíslason er kvæntur Þóru Sigfúsdóttur frá Varðgjá í Eyjafirði og eiga þau hjón 1 barn. Atvlnnumál ágreiningur um hvalveiðar. Inngangsorð. — Ólíkar skoðanir. — Kyn- leg fyrirbrigði. — Oremja sjómanna. — Hálf- sögð saga. — Rannsókn hafsins. — Líkinda- rök. — Óskoðaðar hliðar. — Meirihluta skoðanir. — Ályktar orð. — Niðurlag. Ýmsir hafa mælst til þess, aðegrit- aði nokkur orð um þetta mál; einn þeirra mun vera ritstjóri Austurlands. Sakir búsýslu og margvíslegs annríkis verð eg þó að fara fljótt yfir og sneiðahjá tímafrekum tilvitnunum. Tilgangi mín- um er náð, ef málið verður skoðað frá fleiri hliðum og gætilegar en formæl- endur fiskimanna virðast hafa gjört undanfarið í Austurlandi. Eg veit að þeim er óljúft að líta á það annan veg, og sést það bezt af svari til útvegs- bóndans Mjófirzka. Hann reit ljósa og staðgóða hugvekju um rnálið í 12. nr. blaðsins, en varð það á um leið að stíga ögn á stórutá mótstöðumannsins enda varð svarið til hans mestmegnis af- gæðingur. Hins sama get ég vænst, en til- gangur minn er eigi að fara í skatt- yrðingar um þetta má'i, og ósæmilegt tel eg að gjöra það að rógsmáli. Segja má að 2 ólíkar skoðanir ríki í þessu máli og skipi landsmönnum í flokka, þó er eigi örgrant að fleiri séu til. Sjómenn margir, einkum hér eystra, halda því fram, að hvalaveiðar séu átu- mein als annars sjávarúthalds, eyðileggi göngu síldar og fisks og baki landinu ómetanlegt tjón beint og óbeint. Höf- undur einn í Austurlandi, sem nefnir sig B. M. S., hefir einkum tekið aðsér að sýna, hvernig þetta megi verða. Síðar skal eg athuga nánar kenningu hans; hér nægir að taka fram,að hann

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/162

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.