Austurland - 14.01.1908, Qupperneq 3

Austurland - 14.01.1908, Qupperneq 3
meinalaust þótt skipstjórinn á Vestu afli sér vina á Seyðisfirði með því að hæla innsiglingunni þar, hún á það að ýmsu leyti skilið, að henni sé hælt, en hann getur það vel án þess að niðra innsiglingu á aðra firði að ástæðu- lausu. Það er nógur rígur inilli fjarð- anna hér á Austurlandi þótt förukonu hjalið milli þeirra minnki. Eskfirðingur. Búnaðarmál. Það er gefið í skyn í síðasta blaði Austurl. að lítið birtist í blöðunum um framkvæmdir Búnaðarsambands Austurands þetta er ekki als kostar rétt. Formaður sambandsins séra Einar Þórðarson skrifar alllanga skýrslu um sambandið í síðasta hefti búnaðarrits- ins: en skýrslan er samt nokkuð gömul, því fátt er þar um framkvæmdir sam- bandsins í sumar. Um mjólkursamlagsbú á Fljótsdals- héraði skrifar Elliði O. Norðdal í Austra nýlega og hvetur til þeirra. Hann segir meðal annars að þrautin sé þyngst að byrja. Athugavert er það hvort þraut- in muni eigi verða sumstaðar eins þung að halda áfram mjólkurbúunum eins og byrja þau. Svo hefir það viljað reyn- ast í Eyjafjarðar og Þingeyjarsýslu t. d. á Möðruvöllum í Hörgárdal, Nesi í Fnjóskadal og ef til vill víðar. f>að má því telja hyggilegt af héraðsmönnum að fara varlega í stofnun rjóinabúa, því hæpið mun vera að þau þrífist þar nema fráfærur séu aftur teknar upp. Um baðanir á sauðfé ritar Björn Bjarnarson í Gröf í Búnað- arritið og Hallgrímur Þorbergsson í Norðurland, og ber þeim báðum saman um að bráðnauðsynlegtséað baða fé á haustum eða fyrrihluta vetrar. Eggja þeir bændur mjög að láta baða alt fé sitt, kalla það slæpingsskap og leti ef eigi sé baðað, og segja að fjárkláði geti aldrei þrifist hjá þeim, sem baða. Hallgrímur heldur á móti tóbaksbaði, en meir með kreolín baði, sem ódýr- ara sé. »Það verður varla álitin búhæf- ur maður úr þessu, sam ekki vill baða fé sitt á hverju hausti«, segir Björn. Hann segir að eigi þurfi að baða lömb á vorin undan þeim ám sem bað- aðar eru á haustin. Slíku höfum vér heyrt góðan fjármann á Héraði halda fram. Björn og Hallgrímur halda því fram með sannfæringarfestu að það sé krónu hagnaður á kind að baða. Báðir lýsa þeir baðkerum og aðferðum við að baða og Björn segist hafa 40 potta af vatni móti 1 pott af Kreólíni í baðlög, Þá aðferð að þrifa sauðfé með þvíað hella ofan í það þrifalegi eða bera í það fyrirdæmir Hallgrímur. Ef enginn vill mótmæla, og færa rök að því að þessir mikilsmetnu búfræðingar fari með öfgar, er þeir telja það krónu mun að baða frá því að baða ekki eða bera í fé, ætti það að verða áhugamál sveit- arfélaga að koma á altnennum böðun- um, og þau ættu á einhvern hátt að hvetja og styrkja bændur til þess að koma böðuninni fram á hentugum tím- um. Hinir nefndu herrar, sem svo rösk- lega hafa um þetta ritað hefðu jafn- framt átt að brýna það fyrir bændum að nauðsynlegt sé að böðunin sé vel af hendi leyst, baðlögurinn nógu sterk- ur og sauðkindin höfð nógu lengi niðri í baðinu svo hún bjórblotni öll, þótt ullarþykk sé, það er ekki gagn að því að böðun sé svo illa af hendi leyst að sauðfé gangi með óþrif eftir sem áður. Mjölner kom hingað 4 þ. m. á útleið. Far- þegi með honum til útlanda var Sig- urður Helgi kaupmaður af Siglufirði. Mislingar hafa gengið ákafir hér á Eskifirði það af er þessum mánuði. Þeir hafa lagst allþungt á marga, einkuni fullorð- ið fólk. Af afleiðingum þeirra hefur látist ungur sjómaður hér Halldór Sveinsson frá konu og tveim börnum. Veðrátta. styllingar voru þennan mánuð fram til 12. brá þá til suðáustan áttar með hrakviðri. Enn gengur sauðfé gjaflaust víðast hér í fjörðunum og hefir eigi verið hýst. Lömbum ekki kennt át. Rekið er seman einu sinni á dag til að hleypa til ásauðum. SamtísisgíuII —o— „Samningur er samningur og á aö standa sem stafur á bók“ er orðtak gamla Petersens. Hann er norskur bóndi í Amenku, allra vænsti karl og mjög áreiðanlegur, en þykir sjá um sig í viðskiftum. Þegar seinni konan hans veiktist snögglega fyrir ári síðan varð hann að leita læknis. Eftir að læknirinn hafði skoðað húsfreyjuna, sagði hann bónda að veikin yrði langvinn og læknishjálpin myndi kosta töluvert. Lækni þótti vissara að láta bónda vita, að hann yrði að borga sérsóma- samlega, því þeir höfðu átt saman áður, og lækni þóttist þá hafa farið halloka í viðskiftunum. Hann hafði nefnilega fyrir nokkrum árum verið sóttur til fyrri konu Petersens, og þá höfðu þeir samið um að læknir fengi 40 krónir fyrir að lækna hana, en svo dó konan, þótti Petersen samningurinn eigi hafa verið uppfylltur og neitaði að borga 40 krónurnar, en bauð frani helfinginn, 20 kr., sem karli fannst hæfileg borgun, og það hafði læknir orðið að láta sér nægja. - Nú vildi hann vera forsjálli og sagði bónda, að ef hann ætti að stunda konu lians fyrir ákveðið verð, yrðu þeir að gera um það glöggan samn- ing, svo eigi færi eins og síðast. «Mikil ósköp,» sagði Petersen, «ég borga yður 50 krónur, hvort heldur þér læknið hana eða gerið útaf við hana, og var þetta fastmælum bundið og Petersen las upp sinn gamla for- mála: «samningur er sanmingur og á að standa eins og stafur á bók». Læknirinn gerði það sem hann gat til að lækna konuna, en það heppn- aðist eigi, og hún dó á 15. degi frá því lians hafði verið vitjað. Nokkru eftir jarðarförina, þegar lækni var farið að lengja eftir borgun fyrir starf sitt, heimsótti hann Petersen, sem var mjög sorgbitinn, og fór að minn- ast á borgunina. Bóndi tók því mjög vinsamlega, en bað hann áður en þeir ræddu það mál, að svara tveim spurningum sam- viskusamlega. í fyrsta lagi: «Gerðuð þér útaf við konuna mína sálugu?» Læknir varð fár við og neitaði spurn- ingunni með þykkju. í öðru lagi: «Læknuðuð þér konuna mína sálugu?» «Því miður bar ég eigi gæfu til þess,» svaraði læknir mýkri í máli. «Þér hafið þá hvorugt gert af því, sem þér áttuð að fá 50 kr. fyrir, og samningur er samningur og á að standa eins og stafur á bók, og samn- ingurinn er óuppfylltur af yður hálfu. En af því þér hafið verið að ómaka yður hingað minna vegna, vil ég borga yður 25 kr. fyrir það, sem mér finnst vel boðið gegn kvittun yðar um, að þér hafið einkis frekar af mér að krefjast.» Læknir beit sig í vörina og ritaði undir slíka kvittun. Hann gat þess við Petersen um leið og hann fór, að ef þeir þyrftu að semja um læknisstörf framvegis, væri bezt fyrir þá að hafa lögfræðing við. Tvígiftu hjénin. Bóndinn: »Hvaða læti eru þetta fram í baðstofunni, kona?» Konan: «Og það er ekki annað en að rnínir krakkar og þínir krakkar eru að fljúgast á við okkar krakka.» Ritgerðir sem »Austurlandi* hafa borist um póstgöngur í Suðurmúlasýslu, um vinnu- fólksekluna og um starf millilanda- nefndarinnar verða að bíða til næstu blaða sökum rúmleysis, og biðjum vér höfundana velvirðingar á þeim drætti. í næstu blöðum «Austurlands» eiga að koma myndir af öllum millilandanefnd- armönnunum íslenzku, sem ferðast til Danmerkur í næsta mánuði. ÞAKKARÁVARP. Hér með þökkum við hjartanlega hinum heiðruðu sveitungum okkar alla þá hjálp og gjafir er þeir hafa látið okkurí té að undan- förnu, fyrst i sumar er þeir slóu túnblettinn okkar fyrir ekkert, og síðan í haust, er við urðuin fyrir því óhappi að missaeinukúna okkar, um burðin, voru þeir óðar búnir að skjóta samar og gefa okkur peninga meir en fyrir aðra kú. Þessi kærleiksverkbiðjum viðGuð aðlauna öllum þeim, sem þar tóku þátt í, þcgar þeim mest á liggur. Teigagerðisklöpp 2. janúar 1908 Anna Olsen. Jens Olsen. --------• Brunabóta fjelagið, »Det kongl. octr. alm. Brandassu- rance-Compagni« tekur til ábyrgðar gegn tjóni af eldsvoða: hús, vörur, innanhúsmuni, lifandi pening o. fl. Menn snúi sjer til undirritaðs um- boðsmanns fjelagsins, sem gefur allar nauðsynlegar upplýsingar. Carl D. Tulinius Efterf., Eskifirði. Heiðruðu Austfirðingar! Orgel oe Piano af öllum stærðum útvegar undir- ritaður frá Jóni Pálssyni í Reykjavík. Gjörið svo vel og snúið yður til mín. Príslistar til sýnis, með mynd- um. Einum mánuði eftir að þið pantið, getið þið fengið hjóðfærin heim til yðar, eða á næstu höfn. Gæði þeirra hljóðfæra er Jón Páls- son pantar eru óviðjafnanleg. Reynzlan sannfærir. Eskifirði, ‘7,, 1907. Bjarni Eiríksson. Nýjar kvöldvökur Stærsta sögutímarit sem gefið er út á Islandi, kostar aðeins 3 krónur árgangurinn (36 arkir). — 2 árg. byrjar í þessum mánuði. 2 langar og ágætar sögur ganga í gegn um hann allan. Jón Sigurjónsson prentari á Seyðisfirði hefir stóra útsölu af Nýjum kvöldvökum. Seyðfirðingar geta því snúið sér til hans. BIÐJIÐ kaupmann yðar um Edelstein, Olsen & Cos beztu og ódýrustu Cylinderoliu, Vélaoliu, Cunstvélafeiti, Þurkunartvist, Kardólineum, Tjöru o. fl. o. fl Sjóvátrygging. Undirritaður, sem hefur aðalumboð á íslandi fyrir fjelagið Det kgl. octr. Söassurance-Compagni i Kjöbenhavn», tekur að sér að vátryggja gegn sjóskaða, útlendar og innlendar vörur, með öllum fyrsta flokks skipum, hafna á milli hér á landi og til útlanda, samkvæmt regluni þeim, sem prentaðar eru á vátryggingarskfrteinum félagsins. Þeir, sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til mín. Umboðsmaður minn á Norðurlandi er herra kaupmaður Otto T u I i n i u s, Akureyri. Virðingarfyllst Carl D. Tulinius Efíeri Eskifirði.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/162

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.