Austurland - 17.07.1920, Page 2
2
AUSTURLAND
Nathan & Olsen,
S e y ð i s f i r ð i.
Hafa íyrirliKgjandi:
Hnífapör,
Borðhnífa,
Matskeiðar,
Teskeiðar,
Vasahnífa,
Skœri,
Kjóla- og kápuhnappa,
Buxnatölur,
Nikkeltölur,
Hárgreiður,
Höfuðkamba.
Flugnaveiðara
Káputau, Tvisttau, Kvenbuxur, Kvenbolir, Kvenkjólar og kápur
VERZLUN
HALLDÓRS JÓNSSONAR
HEFUR FVRIRLKiöJANDI II.FSTAR NAUfiSYNJAVÖRUR.SVO SEM
KORNVÖRUR, TILBÚINN FATNAÐ
NIÐURSOÐIN MATVÆLI SKÓTAU
HREINLÆTISVÖRUR, HÁLSLÍN
NÝLENDUVÖRUR, SÆLGÆTI
ÁLNAVÖRUR, TÓBAKSVÖRUR
MARGT FLEIRA. - KYNNIÐ YÐUR VERt) OG VÖRUGÆÐi.
SÍMI 6 SÍMNEFNI „HALLDÓR“
við því, að ekki yrði eftir því
sókst að verða slík fóstra, að
minsta kosti meðan ekki er meiri
fólksþröng í landinu en nú er.
Þá skulum vér með nokkrum
orðum drepa á íslenzku sveita-
heimilin, með tóvinnunni og öðr-
um iðnaði, er frúin varpar frá
sér sem úreltu fánýti:
Ljós eru kveikt og hver gengur
að vinnu sinni. Einn sezt að lestri
og les upphátt fyrir alla. Á milli er
hætt lestrinum og rætt um efni þess
sem lesið er. Stærri börnin hlýða á,
en hin minni leika sér róleg að
leggjum og skeljum á gólfinu. Og
móðirin situr hjá yngsta barninu,
sem er í vöggu, hefur eitthvað
verk í hönd og vaggar barninu.
Og bóndúnn situr hjá henni, einn-
ig að verki sínu. Eða heimilislíf
eins og skáldið lýsir í kvæðinu
„Heima“. Konan þessa skálds
reiddi honum matinn og vann
hvorki í skurðgrefti eða á skrif-
stofu.
Það sem vér eigum að stefna
að, er ekki að flytja starfsvið
kormnnar út fyrir heimilið á
kostnað hinna beztu hvata henn-
ar, heldur gera hana sem hæfasta
til jvess að gegna störfum sínum
sem húsfreyja og móðir. Látum
hana eiga við hvers konar önnur
störf og hafa full réttindi til þeirra
allra, ef hún finnur hjá sér hvöt
til þess og hæfileika. En kven-rétt-
indakonur og byltingafrúr ættu að
muna það, að draga skóna af
fótum sér, er þær stíga inn á
svið heimilisins í ræðu eða riti,
— því að sá staður er heilög jörð.
Búnaðarsambands-
fundurinn 1920.
Niðurl.
Það má benda á það í sam-
bandi við þessar tilraunabústillög-
■r, að okkar gamli góði Austfirð-
ingur og vinur, Jón frá Sleöbrjót,
hefur hreyft líkum eða sömu til-
lögum í „Tímanum" í fyrra. Hug-
myndin á |vví djúpar og víðfeðma
rætur í austfirzkum hugsjónaheimi.
Af þeim málum, sem eru ný á
starfsskrá sambandsins, vil ég
nefna heimilisiðnaö og forða-
tryggingar. Undirritaður flutti svo-
hljóðandi tillögu í heimilisiðnað-
armálinu:
„Fundurinn heimilar stjórn sam-
bandsins að veita 5 mönnum
styrk til að nema spuna á þand-
spunavélar á væntanlegu spuna-
vélanámskeiði á Akureyri á næsta
vetri, — 100 kr. hverjum. Jafn-
framt skorar fundurinn á fulltrú-
ana, að beitast fyrir því, að ein
spunavél verði keypt í hverju
búnaðarfélagi".
Fundurinn samþykti þessa til-
lögu og ákvað að af þessum 5
mönnum skyldi 1 vera af sam-
bandssvæðinu norðan Smjörvatns-
heiðar, 2 af Héraði, 1 úr fjaröa-
sveitum Suður-Múlasýslu oö 1 úr
Skaftafel Issýsl u.
Tilefnið til að ég flutti þetta
mál var grein í „íslendingi“ í vet-
ur um heimilisiðnað, eftir Hall-
dóru Bjarnadóttur framkvæmdar-
stj. Heimilisiðnaðarfél. íslands;
þar sem hún getur þess, að
Heimilisiðnaðarfélag Norðurlande
hafi fengiö mann nokkurn til þess
að smíða hér á landi spunavélar
af skoskri gerð, sem farnar #ru
að breiöast út um Þingeyjarsýslu.
Getur hún þess einnig, að félag-
ið muni halda námskeið á Akur-
eyri á n. k. vetri fyrir þá se#n
vilja læra að fara með þessar
vélar. Að öðru leyti skal hér vís-
að til greinarinnnar, en benda þó
á, að liér er tækifæri til að ryðja
nýju nytsömu verkfæri fljóla brapt,
með því að senda mennina til
að læra að fara með vélarnar og
prófa þær. Sal bent á það, að
hyggilegast mun að á námskeiöið
fari smiðir eða vel laghentir menn,
sem ef til vill gætu lært að smíða
vélarnar líka.
Góðir Austfirðingar! Athugið
þetta mál vel. Lesið grein H. B.
í 1. og 2. tbl. „ísl.“ 1920.
í fóöurtryggingarmálinu bar
undirritaður líka upp svohljóð-
andi tillögu:
„Fundurinn skorar á stjórn
sambandsins að taka fóðurtrygg-
ingarmálið til rækilegrar íhugun-
ar og leggja tillögur fyrir næsta
fund. Sérstaklega skal hún athuga
hvort eigi séu leiöir til að mynda
samvinnufélagsskap um fóðurkaup,
er liafi fóður til sölu á þeim
ííma, sem flutningur þess þarf að
fara fram á“. Tími vanst eigi til
að ræða þetta mikla mál nánar,
enda óundirbúið að öllu leyti.
Hefi ég og eigi tíma til að skýra
nákvæmlega hvað fyrir mér vakir
nú, en er vís að gera það seinna;
að eins benda á þaö, að sam-
vinnugrundvöllurinn er hið trausta
bjarg sem líkindi eru til að öll
framtíðarmenning verði bygð á,
og samvinnan sá mikli galdur
sem alla hnúta leysir; eins þann
sem harðast sverfur að landbún-
aðinum (fóðurleysið).
Þess má geta, að mainnaskifti
urðu í stjórninni. Fór séra Magn-
ús í Vallanesi úr henni, en Pálf
bóndi Hermannsson á Vífilsstöö-
um kom í hans stað. Var nú
bæði, að séra Magnús gaf eigi
kost á að starfa lengur í stjórn-
inni og jarðræktarflokknum þótti
eigi manna vant í hana. Hefur
séra Magnús veriö formaður sam-
bandsins síðan það hóf göngu
sína og meginstoðin í öllum fram-
kvæmdum þess. Hefur hann jafn-
an verið boðberi hinnar stóru
stefnu í öllum búnaðarmálum, sem
sambandið hefur haft með hönd-
uin og jafnan stýrt öllum málum
svo horfi liafa haldið, þrátt fyrir
litla kjölfestu í skilningi almenn-
ings á málunum og þverbelging
ýmsra manna, sem reynt hafa að
leika riddara og reiða stór spjót
að hugsjónum lians og persónu.
Austfiröingar standa í stórri
þakkarskuld við séra Magnús fyr-
ir starf hans í þágu sambandsins
og forgöngu á ýmsum sviöum
búnaðarmálanna.
Honum ber heiður og þökk
íyrir þaö altsaman.
Egilsstöðum 30. júní 1920.
tíened. Gtslason.
Hitt og þetta.
Minniug Jóhanns Sigurjónssonar.
íslendingafélagið í Höfn hefur
ákveðið að efna til almennra
samskota með það fyrir augum,
að reistur verði minnisvaröi á
leiöi Jóhanns Sigurjónssonar
skálds. Jóhann hat'ði sjálfur valið
sér legsteininn, sjóbarinn grástein,
er lægi ofan á íslenzku hraun-
grýti, en utan með leiðinu væru
íslenzk blóm. Ætlast er til að
gengið verði þannig frá gröfinni
í sumar eða haust. Ennfremur
hefur stjórn félagsins ákveðið aö
kaupa grafreitinn til svo langs
tíma, sem kirkjugarðurinn verður
til, og stofna sjóð til viöhalds
grafreitinum. Á legsteininn er að
eins höggvið nafn Jóhanns, fæð-
ingardagur og ár — dánardagur
og ár. Og er það eftir ósk Jó-
hanns.
Schi llerstofn unin
j}ýzka hefur skorað á erlenda
mentavini að leggja eitthvað að
mörkum til hjálpar andans mönn-
um í Þýzkalandi, þar eð þeir eru
í all-miklum nauðum staddir og
þjóðinni þýzku þykir annað þarf-
ara en gefa þeim gaum. Schiller-
stofnunin þýzka í Weimar hefur
haft það markmiö að hjálpa bág-
stöddum rithöfundum, sjúkum og
óvinnufærum.
Lenin.
Nefnd sú, er brezkir verkamenn
sendu til Rússlands, hefur lýst sig
andvíga Bolchevicka stefnunni,
eins og hún kemur fram i Rúss-
landi. Aftur á móti hefur nefndin
iýst því yfir, að hún vilji að Rúss-
ar verði látnir sjálfráðir um
stjórnarfyrirkomulag sitt, viðskiíta-
bannið skuli upphefja og Bretar
viöurkenna rússnesku stjórnina.
Nefndarmenn telja Lenin mikinn
mann, en óþjálan og ein|íykkan
og furðu fáfróðan um það sem
fram fer í heiminum. Nú hefur
frézt, að Lenin sé ekki fjærri því
að slá hendinni af hugsjón Bolche-
vicka, sem óframkvæmanlegri. Og
þjóta mun í mörgum skjá, ef
fregnin reynizt sönn.
Mont Ilverest.
Landafræðifélagið í Lundúnum
hefur nokkra hríð verið að undir-
búa för til Himalayafjalla og
hyggst að láta klifa hæsta tind
heimsins, Mont Everest. Til farar-
innar hefur verið valinn C. Bruce