Austurland - 18.09.1920, Qupperneq 3
AUSTURLAND
3
AUSTURLAND
kemur út vikulega.
Verð 5 kr. árgangurinn.
Gjalddagi 1. júlí
Ritstjóri, ábyrgðar- og afgreiðslu-
maður Guðm. G. Hagalín. Sími 6 c.
Innheimtumaður
Einar Blandon, kaupmaður.
Prentsmiðja Austurlands.
slfkar póstgön ,ur komist á, verða
aldrei góð c'ia fljót skil á pósti.
Leiörétting.
Slæmur misgáningur var það í
síðasta blaði, er sagt var að skip-
ið „Svalan“ væri eign Hinna sam-
einuðu íslenzku verzlana. Sem
kunnugt er eiga samvinnufélögin
skipið. „Beskytteren“ var það, en
ekki Fálkinn.er tók hér færeysku
sjómennina. Þá hafði og af vangá
fallið úr nafn ábyrgðarmanns
blaðsins.
Jarðsíminn.
Þess var getið í síðasta blaði,
að leggja skyldi hér jarðsíma. Er
nú það verk hafið, en eigi er kom-
inn nema nokkur hluti símans,
en á því, sem vantar, er bráðlega
von. Virðist verkið ganga fljótt
og byzt verkstjórinn, Brynjólfur
Eiríksson, við því, að eigi þurfum
við mjög lengi að bíða símans,
ef alt gengur eins og horfur eru
og það, sem vantar, keniur í tæka
tíð. Síminn á að koma upp á
fjórum stöðum í bænum. Mun
það öllum símanotendum hér
gleðiefni að fá jaenna síma, þar
eð ástandið hefur verið ótækt
undanfarið.
Hitt og þetta.
Taugaveikin í Póllandi
geysar nú afskaplega, svo að
búist er við að allri álfunni geti
stafað hætta af. Árið 1916 voru í
Póllandi og Galizíu 34 þús. til-
felli af taugaveiki, 1917 44 þús.,
1918 97 þús. og 1919 231 þús.
í janúar—febrúar þetta ár voru
tilfellin orðin 46,500. Nú er sagt
að vart muni meira ,en einn lækn-
ir fyrir hver 150 þús. í landinu.
60°/o kvað deyja úr þessari tauga-
veiki, þrátt fyrir það að stjórn
Póllands gerir sitt ýtrasta til að
stemma stigu fyrir veikinni á all-
an hátt — með bólusetningum,
sjúkrahúsum og fl.
Rabindranath Tagore,
föðurlandsvinurinn og þjóð-
skáldið indverska, sem hefur feng-
ið Nobelsverðlaun, ætlaði í þess-
um mánuði að sjá sig um á
Norðurlöndum, ásamt syni sínum
og tengdadóttur. Hann vill meðal
annars kynna sér samvinnufélags-
skap Dana, sem hann hefur heyrt
í VERZLUN T. L. IMSLANDS ERFINGJA
er nýkomið mikið af allskonar
Hollenzkri vefnaðarvöru,
svo sem: Tvisttau, Morgunkjólatau, Flonel, Skyrtutau, Léreft
bleiað og óbleiað, Kamgarn blátt, Peisufataklœði, Sjöl,
Herðaklútar, Lök, Tilbúnir karlmannsfatnaðir og m. fl.
Herm. Þorsteinsson, Seyðisfirði
hefur fyrirliggjandi í heildsölu: Tilbúin föt, Sjóföt: Sjóhatta, Nærföt, Milliskyrtur,
Ullarpeisur, Cigarettur (Three castle, Capstan o. fl. tegundir), Reyktóbak (Old
English, Waverly Mix. o. fi. teg.). Smábrauð í blikkkössum, margar teg. Átsúkku-
laði, margar teg. Kaffi, ágætis teg. — Aðeins selt kaupmönnum og kaupfélögum.
látið mikið af — en ekki þó af
því að hann álíti hann tímabær-
an á Indlandi, þar sem ekki er
nema rúmlega fimti hver maður
læs og skrifandi. Það liggur ekki
fyrir löndum mínum, segir Rabin-
dranath Tagore, að verða Boise-
vikkar eða sameignamenn, en
sjálfstjórn, innan brezka alríkisins
viljum við fá í líkingu við Canada.
Þessari sjálfstjórn ætlum vér að
ná fyrir eigin andans kraft, en
ekki með vopnum. Rabindranath
Tagore er annálað ljúfmenni, en
þegar berast í tal afskifti Evrópu-
manna af Asíu, þá hitnar gamla
manninum: „Þið Vestmenn hafið
fært óhamingju yfir Asíu. Þið er-
uð nú að reyna að murka sálina
úr Kína. Japan er eyðilagt og
andlaust. Þið flytjið með ykkur
ruddaskap og blóðsúthellingar.
Af fótsporum ykkar vex hvervetna
ófriður og hatur....“ og margt
fleira satt sagði hann.
Verðgengi peninga.
Nú er kominn „kúrs“ á íslenzka
krónu, sem er alls ekki til. Vinur
vor Dani ætlar að græða á sinni
krónu fyrir það, að hún hefur
gengið gegn um íslenzkan banka.
Verðgengi peninga er víða lágt
nú á tímum. T. d. er þýzka mark-
ið vanalega um 15 aura virði.
En sami vasaklútur sem kostar í
Berlín 10 mörk, kostar 150 mörk
í Warschau. Pólska markið er
fyrst og fremst miklu lægra en
hið þýzka, en Pólverjar heimta
toll borgaðan í gulli ella nífaldan
í seðlum. — Víða er pottur brot-
inn. —
Á stríðsdrunum
1914—19 mistu Norðmenn 804
skip á 1,218,584 smálestir, Danir
233 skip á 259,864 smálestir og
Svíar 177 skip á 206,864 smálestir.
/ smíðum
eru hjá Norðmönnum (1. júlí)
107 skip á ca. 110000 smálestir,
hjá Svíum 69 skip á ca. 115000
smál. og hjá Dönum 85 skip á ca.
130000 smálestir.
Verzlunarfloti
Norömannna var í árslok 1919
1697 skip (yfir 100 smál.) á sam-
tals 1946416 smálestir, en það
var 22,5°/u minni smálestatala en
fyrir stríðið. Til 1. júlí 1920 höfðu
bæzt við 59 skip á 180000 smál.
og eiga þeir því sem stendur 1536
skip á samtals 2126000 smálestir.
Danir
áttu í árslok 1919 708 skip á
749,020 smálestir, eða 4,6°/o minna
smálestatal en fyrir ófriðinn. Við-
bót á fyrra helmingi þessa árs er
21 skip á 28000 smálestir. Eiga
þeir því nú 729 skip á 777000
smálestir.
Svíar
áttu í árslok 1919 1253 skip á
994037 smáleslir eða 9,5°/o færri
smálestir en 1913. Bæzt hafa við
á þessu ári 9 skip á 29000 smál.
Eiga þeir því nú 1262 skip á
samtals 1023000 smálestir.
Omar Lockleas,
ameríski flugmaðurinn, sá sem
lék það að fara úr einni flugvél
í aðra uppi í loftinu, fórst nýlega
við annan, mann á flugvél; var
að láta kvikmynda 1000 feta fall
vélarinnar. Kannske kvikmyndin
hafi aftur tekisf.
Forstjóri
grænlenzku nýlendanna vill draga
úr hungrinu í Grænlandi, sem
um var getið eigi alls fyrir löngu
hér í blaðinu. Telur sögurnar ýkt-
ar og segir alt gert sem hægt sé
til að afstýra hallæri. — Líklega
þykir engin nýlunda þótt einstaka
Græniendingur hrökkvi upp af úr
sulti á veturna norður þar.
Roald Amundsai
Lagði loks af stað 6. f. m. frá
Nome (Alaska) til norðurheim-
skautsins, sem hann ætiar sér að
finna. En ekki býzt hann við að
koma heim fyr en eftir 5 ár.
Hið danska karltöflurœktunarfélag
(Dansk Kartoffeldyrkerforening)
vill koma á danskar kartöflur
sama orði og danski svínkjöt,
smjör og egg hafa hvervetna afl-
að sér erlendis, en það verður
með því móti að nékta að eins
góðar tegundir og hafa eftirlit
með öllum aðfluttum kartöflum,
að þær séu ósjúkar og óskemdar
og vel hæfar til manneldis. Danir
flytja út ógrynni af kartöflum,
einkum til Englands og Ameríku.
Pianó,
afar vandað og
gott, til sölu hjá
Herm. Þorsteinssyni.
Vátryggingar
Brunatryggingar
Sjóvátryggingar
Stríðsvátryggingar
Sigurður Jónsson
Sími 2 og 52.
Auglýsing.
Hér með lýsi ég því yfir að ég
er hætt öllum þvottum.
Stefanía jónsdóttir.
Sveitamenn!
Hér með tilkynnist að vaðmál
aílflestra (sem sent hafa fyrir
ágústm. síðastl.) eru nú komin.
pr. Klæðaverksmiðjuna „Álafoss"
J. E. Waage.
NÆRSVEITARNENN
sem koma til bæjarins, eru beðn-
ir að vitja blaðsins á afgreiðsluna.
Ofangreint félag hefur umboðs-
menn um heim allan og þeir sem
panta hjá því þurfa ekki að ótt-
ast að þeir fái skepnufóður, þeir
fá beztu tegund af kartöflum.
Adam og Eva
voru þeir fyrstu Bolsevikkar en
Djöfullinn var sá fyrsti Lenin,
segir franskt blað.
Bannlögin í Finnlandi.
Af því að innflutningur áfengis
(löglegur) fer stöðugt vaxandi, en
smyglun um alt land óviðráðan-
leg, er nú helzt í ráði að afnema
bannlögin þar fyrst um sinn til
10 ára og sjá svo hverju fram
vindur.
Roskinn lœknir biður ungrar stúlku:
Hún: Mér þykir sómi að til-
majlum yðar, góði læknir! — en
aldursmunurinn -------
Harin: Jú — en ég held ég
treysti mér til að lækna hann á
stuttum tíma.
Bolsivíkkar í Noregi.
Orðið hefur það uppvíst, að
ritstjórinn norski, Alfred Madsen,
hafði í fórum sínum 70 þúsund
rússneskar gullrúflur, er hann ætl-
aði að flytja inn. Handsamaði lög-
reglan ritstjóraskepnuna og hefur
líklega komið svo ár sinni fyrir
borð, að rúflurnar verði ekki að
tilætiuðum notum. En er ekki
betra að liafa gát á vissum mönn-
um hér á landi líka?
» i