Austurland


Austurland - 30.10.1920, Side 3

Austurland - 30.10.1920, Side 3
AUSTURLAND o Goodtemplarasíkiíkan „Hvðt‘, heldur fund í barnaskólanum á sunnudaginn 31. þ. nt. kl. 4^2 síðd. Nýir félagar velkomnir. Járnbrautar- og flutnings-menn enn þá ekki ráðnir í því, hvort þeir eigi að hefja samúðarverkfall. Kjósa skal einn mann 6. nóv. í bæjarstjórn Reykjavíkur í stað Sveins Björnssonar. „Sjálf- stjórn“ fylgir Georg Ólafssyni forstjóra verzlunarmálaskriístof- unnar, en á móti er Þórður læknir á Kleppi. Kvöldskemtun haldin til ágóða ekkju Jóhanns Sigurjóns- sonar, sungið og lesið upp, Sig. Nordal flytur fyrirlestur um Jóhann. Rvík 2B/io. Járnbrautamenn í Hnglandi hafa sent forsætisráðherranum hótun um að hefja samúðarverk- fali um miðnætti á laugardagsnótt síðastl., ef ekki væru samningar teknir upp við námamenn. L. George hefur skýrt frá því í neðri málstofunni, að framkoma náma- manna sé mjög varhugaverð og geri alla samninga torsóttari. Þýzkt blað spáir því, að náma- menn í Þýzkalandi og annarsstað- ar á meginlandinu, muni hefja samúðarverkfall, ef formaður al- þjóðasambands námamanna fari fram á það. Þýzka stjórnin hefur gert samninga við stjórn Rússa um sölu á túrbínum, eimreiðum og járnbrautaefnum fyrir 6 milli- ónir gullmarka. Andvirðið þegar greitt í ýmsum erlendum bönkum. Fénu skal varið til matvæla- og hráefna-kaupa. Branting, stjórnar- formaður Svía, hefur beiðst lausn- ar fyrir sig og ráðuneyti sitt. Verðlagsnefnd hefur sett há- marksverð á sykur. Rvík 20/io. Símað frá Stockhólmi að kon- ungur hafi beðið de Geer lands- höfðingja að mynda bráðabirgða- ráðuneyti er taki við af Branting. Stórþingið norska hefur samþykt nýtt grundvallarlagafrumvarp og fært kosningarréttaraldurstakmark- ið niður í 23 ár. Gömul kona brann inni í Flatey á Skjálfanda í fyrranótt. Kom eld- ur upp í húsi Jóhanns Bjarnason- ar. Konan svaf uppi á lofti og var ekki unt að bjarga henni. Eldur- inn breiddist fljótt út; bóndinn staddur í Húsavík. Húsið vátrygt 2000 kr. Tiifinnanlegur skaði. Heyafli á Hvanneyri í sumar 2700 hestar, 1000 hestar þar af hirtir, vothey. Rvík 27/io. Borgarstjórinn í Cork er dáinn úr húngri eftir að hafa soltið á þriðja mánuð. Lloyd George hef- ur lagt fram ákveðnar tillögur til samkomulags við námamenn. Bú- ist við að þeir fái kauphækkun samfara aukinni framleiðslu. Búist er við að samkomulag náist bráð- lega og verkfallinu verði brátt lokið. Verkamannaóeirðir miklar eru í Rúmeníu. Járnbrautarmenn hafa gert víðtækar kröfur. Lýst yfir að Búkarest sé í uppreistar- ástandi. Lögskipað þar eftirlit með allri blaðaútgáfu. Hermálaráðherra Frakka hefur lýst sig mótfallinn því að Frakkar minki herbúnað sinn. Símað er frá Róm, að D’annuncio hafi beðið Lenin um fjárhagshjálp. Nýtt tímarit komið út að tilhlut- un „Iðnfræðafélags íslands". Heitir tímaritið „Sindri“. Fyrirlestur, sem biskupinn flutti við háskólann í Uppsölum í fyrra, er kominn út aukinn á sænsku. Rvík 20/io. SvensKa ráðuneytið myndað. De Geer er forsætisráðherra, Wrangel greifi, utanríkisráðherra; Ráðuneytið í Grikklandi hefur hvatt Pál prins til konungs. (Alex- ander konungur lézt nýlega af apabiti og fer útför hans fram í dag). Helland Hansen prófessor í Kristianíu hefur fundið upp að- ferð til þess að vinna magnesíum úr sjó. Ráðgert er að saltverk- smiðjurnar í Bergen framleiði 1000 smálestir af því á ári. Svar- ar það 7/4 af heimsframleiðslunni, ætlað að nota magnesíum í stað járns og stáls í gufuvélar og mótora. Sendisveit Bolsivikka í Berlín hefur selt skrautgripi fyrir 81/2 millión marka, og skal verja fénu til undirróðurs. Verkamanna- sambandið danska hefur skipað iðnaðarráð til [>ess að sjá um stjórn og rekstur atvinnufyrirtækja af hálfu verkamanna. Samningum milli ensku stjórnarinnar og náma- manna miðar vel áfram. Talið líklegt að þeir endi bráðlega. ísland kom í gærkvöldi og fer norður og austur um land, og síðan út. Fréttir. Skip. E.s. „Borg“ kom hingað í vik- unni norðan um land. Með henni fór héðan Þórarinn B. Þórarins- son, kaupmaður. — E.s. „Kora“ kom hingað í fyrradag og fór svo að segja samstundis. Tímarit „Iðnfræðafélags íslands", sem um er getið hér í baðinu, er stutt af öllum helztu iðnfræðingum þessa lands. Mun það geta komið almenningi að miklugagni og veitt honu n margskonar fróðleik. Ritstjóri verður Ottó B Arnar kaupmaður, áður símamaður. Lokið er nú jarðsímalagningunni hér, en ókonmir eru enn svonefndir „Kabel-kassar“, er nota þarf til þess að unt sé að taka símann til afnota. Austurrísku börnin. Borist hafa oss til austurrísku Þakkarávarp. Beztu þakkir öilum þeim, er á einn eður annan hátt sýndu mér hjálp í mínum miklu veikindum, og bið ég guð að launa þeim af sínurr ríkdómi. Þóranna Jónsdóttir. Tvo hðseta vantar á seglskipið „Janes“, er fer héðan eftir nokkra daga til Helsingfors. Lysthafendur snúi sértil St. Th. Jónssonar barnanna 30 krónur frá Ara Arn- alds og frú og 5 krónur frá Pétri Jóhannssyni,bóksala. Beztu þakkir. Barnaskólinn hér verður settur hinn 1. nóv- ember og er ætlað að hann hætti 15. maí. Dönsk blöð láta all-mjög af „Konungsglímu“ Kambans, sem leikin hefur verið undanförnu á konunglega leikhús- inu í Khöfn. En sum telja leikritið eigi samboðið þroska þeim, er kemur í ljós í hinum sfðustu leik- ritum hans. Enda mun það satt vera. Og oflof er það, sem surn blöðin flytja um leikritið. Blaðið „Folket“ (nýtt blað) segir meðal annars: „Kamban mótar svo pers- ónur sínar, að þær standa glögg- ar fyrir sjónum manna. Og hon- um fatast aldrei, er hann skygnist í sálardjúp manna, hann er þar einlægur og hylur ekki neitt“. Og ennfremur segir blaðið; „Álit hans á konunni minnir á Strindberg,' Karnban er að eins heilbrigðari og hreinni og heilnæmari biær yfir honum....“. En sem mönn- um er kunnugt, var Strindberg eitthvert hið mesta leikritaskáld Norðurlanda, líklega fremstur allra, að Ibsen undanteknum. til lands, en hristi að eins höfuð- ið. Það var svo sem deginum ljósara, að ekki þurfti að hugsa um aðra lendingu en Voginn. — Gáið þið vel að seglinu, kallaði hann, — það kann að vera kastvindi hérna undir hlíð- inni. Mennirnir litu til hans sem snöggvast og störöu síðan ýmist á sjóinn eða seglið. Þeir þektu það af eigin reynzlu, hve vara- samt það gat verið að sigla með hlíðinni. Báturinn skreið hratt og komst nú brátt innfyrir versta kastvinda- svæðið, án þess að hann hrepti nokkuð óhapp. Formaðurinn beitti nú bátnum nær landinu og ósjór- inn varð minni. Hásetarnir sátu þögulir og hvestu augun í áttina til Vogsins. Vogahöfðinn byrgði þangað sýn. Hann varð æ skuggalegri, þó að innar dragi, þar eð alt af dimdi meira og meira. Veðrið lægði, svo að nú varð siglt án mikillar lífshættu. Nú reið að eins á að ná Vognum, áður en fulldimt yrði. Loftið var svo myrkt, að auðvit- að var, að ekki sæi handaskil þegar dimt væri orðið. Og innar færðist báturinn, unz Ijósin sáust í Vogabænum. En auðséð var að þeir mundu enga hjálp fá t lendingunni, þar eð svo dimt var orðið, að þeir gátu eigi sést frá bænum. Brátt voru þeir komnir að skerj- unum við Voginn. Þeir gátu eigi greint leiðarmerkin, en Þorvaldur spurði Grím gamla ráða, hvar bíða skyldi lags og hversu leiðin Iægi upp. Grímur gamli þekti all- ar lendingar umhverfis fjörðinn og var gætinn og athugull sjó- maður. Seglið var tekið, árar lagðar út og lags beðið. Þegar ólagið var riðið af, benti Þorvaldur með hendinni. Árarnar skullu í sjóinn og báturinn þaut áfram. Ræðar- arnir sigu fast á árarnar, bökin kreptust og réttu úr sér, stinn eins og stálfjaðrir, hnúarnir hvítn- uðu og blóðið kom fram undir neglurnar, saltdrifin andlitin urðu dökkrauð og brakið í súð og keipum bátsins ýskraði gegnum öskur brimsins. Þorvaldur beit á kampinn og augu hans lýstu und- an sjóhattinum í dimmunni. Stýrið lék í höndum hans fram og aftur, eins og sporður urriða í á. Það var sem iðandi þrótturinn og á- huginn læstu sig um tjargaðar og harðar súðir bátsins, sem iðaði og skalf knúinn árunum, sem hert- ir hnúar hásetanna héldu uni hlummana á. En alt í einu fatað- ist hásetunum áralagið. Stór alda reið undir skut bátsins og árarn- ar á bakborða flæktust hvor fyrir annari. Ár Jakobs hafði stungist í báruna og heft ár Þórðar, er lent hafði ofan á henni í næsta áratogi. Báturinn tók snögt við- bragð og æddi með ógurlegum hraða í áttina til skersins bak- borðsmegin. Þorvaldur réð ekkert við hann með stýrinu og stóð nú upp með stýrissveifina reidda í hægri hendi. — Farðu í opið helvíti, Jakob, öskraði hann og stökk fram í bát- inn, en í sama bili skall yfir hann bára og alt fór í kaf. Aldan^ægi- leg og ógnum þrungin, æddi upp fjöruna, sleikti þaragarðinn hvít- um löðurtungum og barði saman hnullungunum, svo að ekkért hljóð heyrðist, utan glamur grjótsins í fjörunni og gnýr brimsins á skerj- unum. Næsta bára fleygði leyfum bátsins og líkum sjómannanna upp í fjöruna. -----Orðið var áliðið nætur. Loftið var nú lítt skýjað og mán- inn skein hátt á lofti og varpaði fölvum bjarma yfir fjöruna. Geisl- arnir flöktu í hvítu löörinu og stikluðu glitrandi á gljávotum steinunum. Komið var nær há- fjöru og öldurnar brutu nú fram-

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.