Austurland


Austurland - 01.10.1921, Side 4

Austurland - 01.10.1921, Side 4
4 AUSTURland Hyggilegast er að kaupa neðanskráðar vörur í Lyfjabúð Seyðisfjarðar Allrahanda Engifer Kanil Kardemommur heilar og steyttar Karry sterkasta teg. Nellikur Pipar beisk- asta teg. Lárberjablöð „Bonemasse" Búðingsduft Gerduft í bréfum, öskjum og lausri vigt Eggjaduft Þurkuð heilegg Þurk. eggjarauðu Sætar möndlur Kokosmjöl Skóáburður brúnn og svartur Citrondropa Möndludropa Vanilledropa Vanillesykur BI. ávaxtasaft Hindberjasaft Kirsuberjasaft Semoule-grjón handa börnum Möndlusápa og Rosenglycerinsápa fæst nú aftur. Assellol og Assellol Maltextrakt mjög bragðgott, styrkjandi og nærandi handa börnum og fullorðnum — og eng- inn er svo magaveikur að hann þoli það ekki. Lífrœnt- jdrnmeðal Bra^ðgott,styrkjanói,blóðaukanöi. Seyðisfjarðar Apótek P. L.MOGENSE.N. Rheumatoi nýtt gigtarmeðal, sem hríf- ur mjög fljótt. Incitamin nýtt sárameðal, sem einnig er miög fljótvirkt. Kreolin er langbezta fjárbaðið. Tóbaksbaunir og tóbaksdropar eru ómissandi í neftóbak. AUSTURLAND kemur út vikulega. Verð 5 kr. árgangurinn. Gjalddagi 1. júlí Ritstjóri og ábyrgðarmaður Guðm. G. Hagalín — Sími 54 — Afgreiðslu- og innheimtu-maöur Herm. Þorsteinsson — Sími 13 B — Prentsmiðja Austuriands. Vinnustofa mín er flutt í hús Guðrúnar Ólafsdóttur, næsta hús við bóka- verzlun Péturs Jóhannssonar. Guðm. W. Kristjánsson úrsmiður. rAFMAGNSTQÐVAr RAFMAGNSTOÐVAR Mikið af allskonar Vefjartvisti Nýkominn í verzlun St. Th. Jónssonar. Mótorbátur til sölu. Mótorbátur 8 smálestir að stærð, súðbyggður úr B/4” eik. Með 10 hesta nýlegri og ágætri Gideonsvél með öllu tilheyrandi og vel útbúinn, er til sölu. Veiðarfæri geta fylgt ef vill. Bátur og vél hetlr verið vel hirt og er í ágætu standi. Listhafendur snúi sér til Hermann Þorsteinsson, Seyðisfirði. Prentsmiðja Austurlands umbúðapappír tvíritunarbækur prentar og selur allskonar eyðublöð og reikninga, með eða án firmanafns. Hefur til sölu ágætan póst- pappír (margar teg.) og umslög, áprentað eftir vild. Leysir fljótt og vel af hendi allskonar prentun. fæst keyptur í Prentsmiðju Austurlands. fást eftir pöntun prent- aðar og h e f t a r í PRENTSMIÐJU AUSTURLANDS burtu, ef þér er ant um líf þitt og Iimi. Eg skal tæta þig í sundur, ögn fyrir ögn, eins og feyskna tusku. Þú mátt vera viss um það, að ekki skal verða eftir hinn minsti vottur af dy^ð þinni og dásemdum. Mér sjálfum til bölvunar hef eg getið þig, óræktar- ormurinn þinn. Hann skalf og titraði frá hvirfli til ilja. Pabbí, er þá mín sökin? Já, þín er sökin, afstyrmið þitt, því að þú ert mér þrándur í götu. Sekur ertu, af því að þú ert ekki maður til að ganga eftir rétti þínum. Þú ert viðbjóðslegri en sjálfdauður rolluskrokkur. Ef þú hefðir nú ekki verið veiklaður vesalingur, þá hefði það verið sök sér, þá hefði þó verið hægt að drepa þig, en jafnvel sú leið er lokuð. Mér þykir það leitt þín vegna, kvikindisgreyið þitt. Hann gafst upp. Ó, Marja, skelfing er að vita hvað mennirnir geta verið orðn- ir aumir. Ef það hefðu verið einhverir aðrir — ja, þá hefðu þeir ef til vill slitið af sér snöruna. En við sitjum föst í henni —■ meira að segja gæti það sem bezt komið fyrir, að við smeygð- um henni hvort á annars höfuð. — Hvaða bull er nú í þér? sagði Marja hrædd og leit á hann jþar sem hann stóð, fílsterkur, þungbúinn og kaldur sem klakinn. — Bara að hann gæti dáið — það er einmitt það — bara að hann gæti dáið — það væri okkur öllum fyrir beztu, þá væri alt eins og það ætti að vera. Þá mundi eg fá ættingjum þínum jörðina mína í hendur, til þess að gera þá ánægða — og við tvö, við gætum farið til Siberíu, eða til Kuban. Og yrði svo spurt að hver þú værir, þá segði eg auðvitað að þú værir konan mín. Það væri víst hæg- ur vandi að útvega skjallega sönnun þess. Svo mundi eg fara að verzla í einhverju þorpinu, og á því gætum við fleytt fram lífinu — og þá mundi guð áreiðanlega fyrirgefa okkur synd okkar. Til lífsviðurværis þyrftum við nú ekki svo mikið Og svo mundum við reyna að létta mönnum lífið. og þeir mundu hjálpa okkur til að friða samvizku okkar. — Finst þér að það gæti ekki gengið bærilega, Mascha? — Jú, sagði hún og stundi, lygndi augunum og varð hugsandi á svip. Þau þögðu nokkra hríð. — Vatn- ið niðaði.......... — Líkastur er hann nú liðnu líki. Kannske hann deyi bráðum, sagði Silan Petrov ömurlega. — Ojá, guö gefi að það verði sem fyrst, sagði þá Marja og kross- aði sig. Geislar vorsólarinnar rufu skýin og vörpuðu öllum litum regnbogans á vatnsflötinn og gerðu hann gullinn. Og vindurinn kom. Alt titraði í brosi. Heiðblár himininn gægðist gegnum skýjarofin og speglaði sig í fljótinu. Og nú voru prammarnir komnir út úr skýjaklökkunum miklu. Þeir höfðu þjappast saman í fer- lega, svarta þúst og héngu grafkyr og eins og hykandi yfir hinu breiða fljóti. Það var sem þau væru að í- huga það, hvort þau ættu að flýja geislandi vorsólina, sem átti slíka gnægð Ijóss og gleði, eða hvort þau ættu að velja leiðina mót féndum sín- um, snædrífu hinnar köldu vetrarnæt- ur, sem eigi hafði í tæka tíð flúið vorið. En framundan prömmunum var heiður himinn, og sólin björt og gleðj- andi færðist hærrá og hærra yfir fljótið, upp á bláhvolf himinsins. Á stjórnborða gat að líta fjall- krýndan fljótsbakkann, faldaðan græn- um skógum. Og á bakborða sást óljóst fagurgræn ábreiða — engi, stráð daggperlum. Loftið fyltist angan frjóvgrar mold- ar, gróandi grasa og trjálímsblöndn- um ilmi barrtrjánna. Silan Petrov leit aftur í skutinn, þar sem Sergei óg Mitrij stóðu eins og steingjörvungar. En svo langt var á milli, að enn þá gat hann ekki greint andlitsdrættina. Síðan leit hann á Marju. Henni var kalt, og hún stóð hnípin við ár sína. Sólin varpaði yfir hana geislaflóði, er hún stóð þarna og horfði fram- undan sér társtokknum augum. Um varir hennar lék hið dularfulla, töfr- andi bros, sem gerir hverja konu, jafnvel þótt eigi sé hún fögur, heill- andi og girnilega. — Hafið augun í höfðinu, piltar mínir, þrumaði Silan Petrov fullum hálsi og fann brjóst sitt fyllast þrótti og dug. Og svo var sem rödd hans vekti alt af svefni. Lengi á eftir vörpuðu fljótsbakkarn- ir bergmálinu á milli sín. — Endir —

x

Austurland

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.