Austurland - 29.10.1921, Qupperneq 4
4
AUSTURLAND
Símskeyti
frá
fréttaritara Austurlands.
Rvík 23/io.
Reutersfréttastofa tilkynnir að
allar stjórnir Bandamanna hafi
samþykt tillögur um skiftingu Efri-
schlesíu, án nokkurs fyrirvara enn
þá óráðstafað ýmsum fjárhagsat-
riðum, en niðurstaðan mælisthvar-
yetna illa fyrir og réttur Þjóðverja
sagður mjög fyrir borð borinn. Ber-
línarfregnir segja Þjóðverja flýja
frá Efrischlesíu, þúsundum saman
þrátt fyrir margvíslegar tilraunir
alþjóðanefndarinnar til að stöðva
þann flótta. Nýafstaðnar bæjar-
stjórnarkosninar í Berlín, jafnað-
armenn urðu í minnihluta. Verð-
bréfahækkun afskapleg í kauphöll-
inni í Berlín. Sum verðbréf hafa
hækkað um 1000°/o, en mark-
gengið fallið gífurlega, 290 danskir
aurar jafngilda hundrað mörkum.
Pólskar hersveitir réðust inn í
Efrischlesíu, en voru hraktar til
baka. Ráðstjórnin rússneska hef-
ur lagt vinnuskatt á bændur, hund-
rað dagsverk árlega í þágu ríkis-
ins. Reuters fréttastofa tilkynnir,
að lýðveldisvörðurinn og sjóliðið
hafi gert byltingu í Lissabon, for-
sætisráðherrann fyrverandi ogýms-
ir samverkamenn hans í gamla
ráðuneytinu handteknir og skotnir,
sagt að uppreistarforinginn Man-
uele Opelle hafi myndað nýtt
ráðuneyti. Havasfregnstofa hefir
nú verið látin gefa út tilkynningu
um hvernig Efrischlesíu verði skift.
Landamerkin eiga að liggja aust-
an við Liebnitz til suðurs, austan-
vert við Beuten til Kattowitz og
verða þær borgir allar í þýzka
hlutanum. Borgirnar Tarnau og
Königshuette verða pólskar. Frá
Kattowitz liggja landamerkin til
suðvesturs fyrir norðan Rybnik til
Oderfljóts fyrir sunnan Ratibor.
Rvík 26. okt.
Ríkisbanki ráðstjórnar Rússlands
stofnsettur, bankaútibú í Berlín.
Rússnesk verzlunarnefnd, sjötíu
manns, komin til Kristjaníu. Breta-
stjórn hefur sent flotadeild til
Portúgals, til að gæta brezkra
hagsmupa. Bretar og írar deila
mjög í samningunum, viðbúið að
ráðstefnan verði rofin. Hersveitir
Bandaríkjanna, sem verið hafa í
Rínarlöndunum eru teknar að halda
heimleiðis. Finsensstofnunin í
Kaupmannahöfn heldur 25 ára
afmæli hátíðlegt með víxlu nýrra
deilda. Sagt er að Karl keisari
hafi enn þá gert tiiraun til að
brjótast til valda í Austurríki. Frá
Berlín er símað að Wirth-ráðu-
neytið hafi beiðst lausnar og er
lausnarbeiðnin rökstudd með löngu
máli um það, að vonir Þjóðverja
um skiftingu Efrischlesíu þeim í
hag fjárhagslega séu að engu orðn-
ar og allar horfur gerbreyttar og
að stjórnin sjái ekki fært að halda
fram stefnu þeirri, er hún hafi
fyigt.
í tieíidsölu fyrirliggjantli:
Frakkar
Tilbúnir fatnaðir
Fataefni
Frakkaefni
Kápueíni
Fóðurefni
Höfuðföt t
Sokkar
Handsápur
Dósamjóik
Vindlar
stórir og smáir
Munntóbak í bréfum
Munntóbak í glösum
og dósum í sósu.
Sparkknettir
Gæði verðs og vöru samfara.
Sig. Arngrímsson.
Hitt og þetta.
Beðið hefur
Gestur Jóhannsson að geta þess, að
grein hans, sú, sem nú er birt í blaðinu,
sé skrifuð áður en síðasti bæjarstjórn-
arfundur var haldinn. f greinina hefur
siæðst inn meinleg prentvilla 2. síðu 2.
dálki, 3.' línu að ofan. Stendur þar:
„En hversvegna o. s. frv.“ í stað: En
hinsvegar. Ennfremur á sömu síðu 3.
dálki, 23. Ifnu að ofan: „Þegar eg
hreyföi því 1920". Á að vera: Sum-
ariö 1920, þá er í 4 d. sömu síðu 24.
I. aö ofan: „Verulegt". Á að vera:
Viöunanlegt.
Lestrarpróf.
Eins og auglýst var, var lestrarpróf
utanskólabarna innan 10 ára haldið hér
áður en barnaskólinn hófst. Kom í Ijós
á prófinu, að skólanefnd þótti ástæða
til að skifta sér af fræðslu 6 barna á
aldrinum frá 8—10 ára. Hefur nú
nefndin séð um kenslu handa þeim. í
ljós kom við prófið, að sum börnin
voru frá þeim heimilum, sem ætla mætti
að góð skilyrði hefðu til að láta börn-
in fá sæmilega þekkingu. Er slíkt stór
vítavert og mun verða til þess að eigi
verða gerðar af skólanefndarinnar hálfu
neinar fvilnanir með undanþágu frá
prófinu. En sumir foreldra í bænum
hafa reynt að skjóta börnum sínum
undan, og mun skólanefndin bráðlega
boða börn þau á próf og ganga ríkt
eftir því framvegis, að foreldrum hald-
ist eigi uppi að skjóta sér undan lestr-
arprófsákvæðinu. Á prófum, sem þeg-
ar hafa verið haldin, hefur það kom-
ið glögglega í Ijós, að full ástæða er til
afskifta. Og samkvæmt fræðslulögun-
um er skólanefndum heimilað, þar sem
foreldrar þverskallasf við að láta kenna
börnum sínum nægilega lestur, að fá
þeim kenslu, hvað sem foreldrarnir
segja. Mega allir sjá nauðsyn þá, sem
á því er, að börnin séu lesandi þegar
þau koma í skólann, þar eð ella geta
þau alls ekki haft full not kenslunnar
og draga að óþörfu tíma frá hinum.
Bœjarstjórnarfundur
var haldinn í fyrradag og lögð þar
fram fjárhagsáætlun bæjarins fyrir næsta
ár. Var henni vísað til 2. umr. eftir
litlar umræður. Tekjur og gjöld eru
ááetluð 86 þúsundir króna. Niður á að
jafna samkvæmt áætluninni 43 þúsund-
um. Var þá tekin fyrir leiga Garðars-
húsanna. Höföu tvö tilboð komið,
2500 króna tilboð frá konsúl St. Th.
Jónssyni, fyrverandi leigjanda, og 3000
króna tilboð frá Kaupfélaginu. En
hafnarnefnd lagði til með samþykki
Stefáns, að honum yrðu leigð öll hús-
in með kolaplássi fyrir 3150 kr. til 3ja
ára og forgangsréttur Sameinaða gufu-,
skipafélagsins skyldi falla burt. Þá kom
fram tillaga frá Sveini Árnasyni um að
gefa báðum lýsthafendum kost á Ieigu
R
A
F
H
I
T
U
N
R
A F M AGNSTÖÐVAR
Therma
rafsuðu
áhöld
bezt.
Indr.
Helgassn.
AFMAGNSTÖÐVAR
AUSTURLAND
kemur út vikulega.
Verð 5 kr. árgangurinn.
Gjalddagi 1. júlí
Ritstjóri og ábyrgðarmaður
Guðm. G. Hagalín
— Sími 54 —
Afgreiðslu- og innheimtu-maður
Herm. Þorsteinsson
— Sími 13 B —
Prentsmiðja Austurlands.
Ágætt baðlyf
nýkomið.
Framtíðin.
er nú komið aftur í verzlun St. Th. Jóns-
sonar; með því má spara smjör og sykur
Fjárbaðið komið.
Loksins er nú fjárbaðið góða komið. Þeir, sem hafa beðið
eftir því, eru nú beðnir að vitja þess sem fyrst.
Verzl. St. Th. Jónssonar, Seyðisfirði.
Verð á vörum
er sem hér segir:
Hveiti, fjórar tegundir í pokum 63 kg. 48,00, 50,00, 55,00 og 56,00.
Hafragrjón, í pokum 63 kg. 45,00.
Rúgmjöl, 100 kg. sekkur 50,00.
— 50 — — 25,25.
Molasykur, kg. 110.
Sáldsykur, — 100.
Útbó Landsverzlunar,
Seyöisfirði.
Unglingaskólinn
á Seyöisfirði byrjar þriðjudaginn 1. nóvember, Þá eiga nemendur
skólans aö mæta í skólahúsinu kl. 4 e. h.
f. h. Skólanefndar
Sveinn Árnason.
húsanna þannig, að þeim yrði skift á
milli þeirra. Var sú tillága feld og
íleiri breytingartillögur, sem fram komu
í málinu. Loks var tillaga hafnarnefnd-
ar samþykt með þeirri breýtingu, að
kolaplássið skyldi leigt fyrir 300 krónur
í stað 150 kr. Voru 5 með, en4 móti.
Umræðurnar og meðferð málsins þótti
hvorttveggja all-kynlegt og skemtilegt á
sína vísu. Er óhætt að segja, að ekki
sé það víða venja, að hreinir og beinir
samningar fari fram á öpinberum fund-
um bæjarstjórna. Kemur slfkt all-
skringilega fyrir sjónir, og á betur við
aö það fari fram í kyrþei, af þar til
völdum mönnum úr bæjarstjórninni.
Spurningar og svör rnilli bæjarstjórnar-
manna og „privat“ manns, sem er að
semja um leigu á eign, gætu komiö fram
í því liósi, sem ekki mun vera heppi-
legt virðingu bæjarstjórnarinnar, jafnvel
Hvaö er „Korn Flakes"?
Þaö er amerískt nýmeti sem hver
húsmóöir vill nota þegar hún hefur
reynt það einu sinni. Stór pakki að
eins kr. 1,45. Fæst aðefns hjá
H.f. Framtíöin.
þannig, að bæjarstjórnin sé blátt áfram
að spyrja samningsaðila, hvað hún megi
gera í þessu eða hinu máli og hvað
honum allra mildilegast þóknist.
Hjónaband.
Gefin voru saman á Norðfirði í gær,
Kristín Blöndal og Ingi T. Lárusson,
tónskáld og stöðvarstjóri. Óskar „Aust-
urland“ hjónunum allra heilla.