Austurland - 22.04.1922, Qupperneq 2
2
AUSTUkLAND
Seyðisfirði
hafa fyrirliggjandi:
Sykur, höggvinn Kandís Þakpappa
Strausykur Gerduft Vatnsfötur galv.
Export Sagogrjón Umbúðastriga
Kartöflumjöl Maismjöl Zinkhvítu
Bankabygg Krystalsápu Kítti
Hrísgrjón Fiskilínur Flandsápu
Baunir Öngla Kex, og margt fleira
Herm. Thorsteinsson & Co.
Sími 13 Seyðisfirði Símnefni: Manni
Hafa fyrirliggjandi: Sólaleður og allskonar skinn til skó-
smíða. Skófatnað. Skóreimar. Skósvertuna „Cito“. Fiskilínur. Línu-
tauma. Línukróka nr. 7. Smurningsolíur. Öxulfeiti. Skrifpappír o fl.
Útvega allskonar vörur. — Fljót afgreiðsla. — Áreiðanleg viðskifti.
Nýkomnar vörur:
Cheviot, klæði, kjólatau, rautt flauel. Súkkulaði. Sumarfataefni Ijós,
lasting, ermafóður, sultutau, millistrigi, sængurdúkur, lakaléreft, flónel.
Tekex, Hattar svartir, nærföt, trollbuxur. Mjólk. Alominiumpottar 6
stærðir. Brjóstsykur, kakaó, te. — Sköfatnaður á börn og fullorðna.
Byssur, hinar beztu og ódýrustu sem fáanlegar eru.
— Gummístígvél og rifflar koma mjög bráðlega. —
VERZLUN E. J. WAAGE.
Líft
kaupa menn beztar og ódýrastar í líftryggingarfél.
A N D V A K A
hjá Herm. Þorsteinssyni,
Seyðisfirði.
ryggingar
Steinolía.
í sumar mun eg hafa fyrirliggj-
andi steinolín hér á Seyðisfirði
frá Landsverzluninni. —
Herm. Þorsteinsson
Vestfirzkan ágætis
harðfisk og rikling
útvegar og selur Einar
Jónsson, Pöntun, Seyðisf.
isl. smjör og skyr tekið sem
borgun, ef vill. — Bændur,
athugið þetta!
hafa gefið út eftir sig „kvæða-
kver“. Heiti þau „Náttsölir" „Sól-
dægur“, „Langeldar" og „Blindsker"
Nöfnin séu nóu falleg, en annars alt
tómur leirburður barnaskapur og stæl-
ingar. Ekki skulu menn ætla að þetta
séu að nokkru leyti rökstudd ummæli
og því ekki verð svara, enda ætla ég
ekki að gera athugasemd við sjálfan
dóminn. En höfundur tekur þarna
bók mína „Blindsker" og getur þess
að ég hefði fengið skáldastyrk fyrir
haná, eða fyrir kvæðin, sem hann
hefur áður lýst í hinum sameiginlega
dómi. Mega því þeir, er hafa traust
á ummælum blaðsins, ef þeir annars
eru tii, hafa lágar hugmyndir um nefnd
þá, er skiftir skáldastyrknum. En svo
er mál með vexti, að 9 arkir af 12
í hinu svonefnda „kvæðakveri“ eru
óbundið mál. (Þess getur ritstjórinn
ekki). Og mun bókmentanefndin hafa
litið á það sem kjarna bókarinnar.
Ritstjóri „Tímans" á líklega eftir að
lesa bókina, hefur þó ef til vill séð
um hana dóm eftir mág sinn Ásgeir
Ásgeirsson kennaraskólakennara og
cand. theol., sem skrifaði í „Skóla-
blaðið" af góðum skilningi, einmitt
um sögurnar! Ritstjórinn hafði eigi
áður minst á bókina, en notar
þarna tækifærið til að smeygja um-
sögn um hana inn í dóm sinn um
„kvæðakverin". Hefur honum virzt sú
aðferð hæfilega sakleysisleg og eigi
eins tortryggileg og að taka bókina
eina. En sumir mundu kalla aðferð
þessa tilraun til að skaða höfund
bókarinnar á lúalegan hátt með falsi
og yfirdrepsskap. Minnir það menn
ef til vill á ummælin í „Tímanum"
um bók Sigurðar skálds Sigurðsson-
ar frá Arnarholti, þá'er blaðið varð
ósátt við hann út úr pólitík. Kvað
þá „Tíminn“ Sigurð hafa gefið út
bók, sem ekkert hefði sér annað til
ágætis en það, að í henni fyndist eng-
in prentvilla! En einmitt sú bók er
og verður af öllum sanngjörnum
mönnum sem vit hafa á talin „klass-
isk“ í bókmentunum íslenzku, þótt
eigi sé hún nema „kvæðakver". Loks
skal þess getið, að ritstjórinn telur
skástu setninguna í „kvæðakverunum".
„Mér fanst ég finna til“. (Ég hef ekki
lesið umræddar ljóðabækur enn -
og veit því ekki í hverri þeirra setn-
ingin er). Mér hefur því dottið í hug,
hvort eigi mætti segja um ritstjórann,
að það hefði hann lengst komist á
sannleiksbrautinni, að hann gæti sagt:
Mér fanst ég segja satt. Því miður
munu þeir menn hafa verið til, og
eru að því er virðist enn, sem ekki
vita hvenær þeir Ijúga eða segja satt.
Guðm. G. Hagalín.
Símskeyti
frá fréttaritara Austurlands.
Rvík 8. apríl
Annar togari Sleipnisfélagsins er
kominn og heitir Gulltoppur. Ný
ferðaáætlun er komin út fyrir Ster-
ling og á hann að fara austur um land
20. apríl, í hringferð. Fylla kemur
um mánaöamótin. Gullfoss fór frá
Kaupmannahöfn í morgun. Verkbann-
inu í Danmörku er lokið, vinna byrj-
ar á mánudaginn. í Neðrideild í
gær var rætt frumvarp um að heim-
ila stjórninni nefndarskipun til að meta
útlendan gjaldeyri. í dí.g var rætt um
innflutningshöftin: Voru ræðumenn
Þrír: Sveinn Ólafsson, framsögumaö-
ur, atvinnumálaráðherra tjáði sig hlið-
hollan frumvarpinu, en Magnús Jóns-
son docent flutti langa mótmælaræðu
og vildi fella frumvarpið strax. Fram-
hald fyrstu umræðu verður á mánu-
daginn.
Rvík 11. apríl
Sorgarguðsþjónusta var haldin í
Vínarborg til minningar um Karl keis-
ara. Var krafist að hann yrði jarö-
settur þar, en stjórnin neitaði. Hav-
as fréttastofa tilkynnir að hjarta Karls
keisara verði flutt til Austurríkis.
Stjórnin f Budapest hefur leyft Zitu
keisaraekkju og börnum hennar lands-
vist. Genúafundurinn byrjar í dag,
35 ríki eru þátttakendur og 300 blaða-
menn eru viðstaddir. Þrjátíu pokum
af brerkum stjórnarpósti til Genúa,
var rænt úr franskri hraðlest. Breta-
stjórn hefur tilkynt aö hún vilji fram-
vegis taka rentur af herlánum þeim
er Frakkar skulda Bretum. Hefur
þetta vakið mikinn óhug, þar eð árs-
rentur eru ekki minna en 14 miljarð-
ar gullmarka, sem Frakkar geta með
engu móti greitt.
Fáíkinn tók í landhelgi þýzka tog-
arann Wilhelm Reinhold, sem áöur
smyglaði víni hingað. Þórður Guö-
mundsson í Hala, fyrrum alþingis-
maður, er dáinn. Viðskiftahöftin voru
rædd á 2 þingfundum í Neðri deild í
gær. Framhald 1. umr. ennþá ídag.
Rvík 12. apríl.
Tvær flugvélar rákust á í blindþoku,
milli Parísar og Lundúna. Valera
hótar uppreist í írlandi. Genúafund-
urinn var settur 10. þ. m., forseti var
kjörinp Facta forsætisráðherra ítala.
í fundarbyrjun urðu hnippingar milli
franska ráðherrans Barthon og Tschi-
tscherin utanríkisráðherra ráðstjórnar
Rússlands. Lauk þeim svo, að fundar-
Stjóri tók af þeim orðið.
í Neðrideild í gærdag urðu hvass-
ar umræður um viðskiftahöftin á
tveim þingfundum. Framhald fyrstu
umræðu.
Rvík 14 avríl
Frumvarpinu um að meta erlendan
gjaldeyri vísað til annarar umræðu
með 19 atkv. gegn 6. Fyrsta umræða
um viðskiftahöftin stóð fjóra daga,
sex þingfundi. Var frumvarpinu vísaö
til annarar urnræðu með 17 atkv gegn
11,5 kváðust að eins greiða því atkv.
til annarar umræðu. Breyting er fram-
komin frá Birni Hallssyni og fleirum
um að heimila stjórninni að eins að
banna innflutning á vörum, er hún
telji ónauðsynlegar, en gjaldeyris eft-
irlitinu og nefndarskipuninni sé slept.
Horfur á að breytingin verði samþykt
eða frumvarpið felt í Efrideild.
Rvík. 18 apríl
Genúafundurinn: Lloyd George hefur
lagt fyrir fjárhagsnefnd tillögu um
stórt útlent lán handa Þýzkalandi og
fengið samþykt að Þýzkaland og
Rússland hafi jafnrétti við önnur ríki
á fundinum. Sveinn Björnsson, sendi-
herra, fer til Genúa og situr ráðstefn-
una sem fulltrúi íslands. Góöur
togaraafli. Gullfoss kom í gærkvöld.
Ekkjufrú Þórunn Jónassen dáin.
Rvík 20. apríl
Vélbátur fórst frá Eyrarbakka ann-
an páskadag og druknuðu sjö menn.
Einnig fórst frá Hafnarfirði róðrar-
bátur með þrem mönnum, síðastl.
þriðjudag. Fjárlögin voru afgreidd frá
þinginu í gær, með hundrað þús. kr.
tekjuhalla. För Sterlings heíur verið
frestað til 26. þ. m. vegna þingmann-
anna.
Englandsbanki hefur lækkað forv.
niður í 4 prc.
MYNTGENGI í KAUPMH. ls/4:
Sterlingspund ......... 20,78
Dollar ................. 4,71
Mörk .................. 1,66
Saenskar krónur .... 122,50
Norskar — .... 88,50
Franki frakkneskur .. 44,00
— svissneskur .. 91,75
Lírur ................. 25,85
Pesetar ............... 73,15
Gyllini .............. 178,80
Tekju- og
eignaskattslögin.
í 12. tbl. Austurlands frá 25. f. m.
er grein með þessari yfirskrift, en
undirskriftinni Skattþegn.
Aðaltilgangur höfundarins er að
vekja eftirtekt á 11. og 12. gr. tekju-
skattslaganna, og kemst hann að þeirri
niðurstöðu, að vafi geti leikið á, hvern-
ig skilja beri nefndar lagagreinir um
framtal ófjárráða barna í foreldrahús-
um, en á þeim skilningi geti að nokkru
oltið, „hversu réttlát eða ranglát" Iög-
in eru gagnvart skattþegnum inn-
byrðis.
Þessar lagagreinir skilst mér að
naumast verði misskildar. Samkv.
11. gr. má ekki teija til reksturskostn-
aðar kaup og fæði foreldra og barna
í foreldrahúsum innan 21 árs, og sam-
kvæmt 12. gr. skal faðir telja fram
eignir og tekjur barna, serri teljast,
— innan sama aldurstakmarks — með
sínum.
Með orðinu skyldulið í 11. gr. get-
ur ekki verið meint annað, en for-
eldrar og börn í foreldrahúsum inn-
an 21 árs, samanber ,tnema sá telji