Austurland - 22.04.1922, Qupperneq 3

Austurland - 22.04.1922, Qupperneq 3
AUSTURLAND 3 Tuliniusverzlun á Vestdalsevri hefur með síðustu skipum fengið mikið af allskonar vörum. — Meðal annars má nefna: Kornvörur, jarðepli, brauð, pylsur, ost. Nýlenduvörur. Járnvörur, blikkvörur, leir- og gler-vörur, emailleraðar vörur. Timbur. - Skófatnað. - Olíuíöt og allskonar vinuuföt. Vörurnar verða seldar með mjög sanngjörnu verði. Herm. Thorsteinsson & to. Sfmi 13. ' Seyðisfirði. Símnefni Manni. Kaupa í sumar fyrir peninga: Ull, Lambskinn, Selskinn,Lýsi og Sundmaga. Taka aö sér aö selja fisk og allar aðrar innlendar afuröir. fram tekjur sínar sér“ þ. e. börn í foreldrahúsum yfir 21 árs, sem því eru sjálfstæðir skattgreiðendur. Enda skilst mér að höfundinum liggi nær að skilja þetta á þennan hátt, og grein- ir okkur þá ekki mikið á um það at- riði. En það er annað í grein hans, sem eg sérstaklega vil benda á, aö muni ekki vera rétt skilið. Greinarhöf. tekur dæmi af tveim skattþegnum, sem hann nefnir A og B. — A rekur búið með 5—6 ófjár- ráða börnum sínuin, en B með 4 ó- viðkomandi vinnuhjúum, 2 karlmönn- um og 2 kvenm., jafnmiklar tekjur á- ætlaðar hjá báðum 9450 kr. og aðr- ar ástæður jafnar. — Mun þá vera ó- hætt að áaetia 6 óþroskaöa unglinga móti 4 þroskuðum. — Verða þá tekjur þessara skattgreiðenda, eftir skilningi höfundarins: A 7000 kr. og af því 280 kr. skattur, en B 1300 kr. og af því 16 kr. skattur og 43 kr. skattur sem vinnufólkið greiðir, sam- tals 59 kr. Ef þessi skilningur er nú í raun og veru réttur, væri ekki undarlegt þótt skattalögin séu þyrnir í augum manna hvaö þetta atriði snertir. En hér er nokkuð að athuga. Fyrst og fremst er það, að höfund- inum sést yfir að draga skattfrjálsu upphæðina 500 kr. frá 6 börnum. — þann frádrátt hafa allir skattgreiðend- ur jafnt ósjálfstæðir sem sjálfstæðir. — Samkv. 13. gr. umræddra laga, orðunum : „Frá hreinum tekjum heim- ilisfastra manna hér á landi skal draga 500 kr. og er sú upphæð skattfrjáls" og reglugerðarákvæði 15. gr. bls. 18, málsgr. „Framfæri“. Þar stendur: „En með tekjum ósjálfstæðra skatt- greiðenda, sem eru í foreldrahúsum, er framfærið aldrei talið. 20 ára gam- all maður, sem er í foreldrahúsurn* geldur eigi skatt af framfæri því, sem hann fær hjá föður sínum. En þó ber að draga 500 kr. frá tekjum hans, samkv. A I. l.“ Þessi frádráttur nemur samtals 3000 kr. eftir eru þá 4000 kr. Skattur af þeirri upphæð 100 kr. Að öðru leyti er naumast hægt að ætla að bóndi sem rekur bú- skap með 9 börnum sínum frá 14— 20 ára, kosti ekki, að minsta kosti, sem nemur 1000 kr. þeim til fram- færis og menningar og þá um leið framfæris annaðhvort í heimahúsum eða á skólum. Þessa upphæð hefur framteljandi líka skattfrjálsa samkv. 13. gr. laganna annari málsgrein; reglugerðarákvæði 15 gr. 2 c. bis. 17 og sömu gr. bis. 18 c-Iiður. Þá eru eftir 3000 kr.. Skattur af því 60 kr. eða 1 kr. meira en B og vinnufólk hans greiðir. En auðvitað minkar skatturinn og eykst, eftir því, hvort kostað er meira eða minna til menn- ingar barnanna. Ekki ósennilegt að hann hverfi alveg hjá mörgum undir líkum kringumstæðum. Þetta hygg eg sé réttur skilningur á þessu atriði, en skýrari hefði reglu- gerðin mátt vera, bæði um þetta og fleira, og er víst ekkert einsdæmi þó hún sé misskilin í einu og öðru, enda ekki að ástæðulausu. Með því sem að framan er sagt, er engu slegið föstu um það, að ekki hefði mátt koma þessu atriði betur fyrir, svo sém með því, að láta börn í foreldrahúsum innan 20 ára, telja eigur sínar og tekjur fram sér, þ. e. koma fram sem sjálfstæða skattgreið- endur; mjög hæpið samt, að sú leið- in reyndist réttlátari, eða heppilegri til framkvæmda. Breytingatill. Þorleifs Jónssonarog fIM sem höf minnist á, þess efnis, aö kaup og framfæri skylduliðs mætti draga frá atvinnutekjum, held eg að hafi verið fljóthugsað, því. ef fram- færið hefði átt að dragast frá, varð 500 kr. frádrátturinn að falla niður, þar sem svo stóð á, annars kom mis- rétti fram. 500 kr. frádráttinn hafa allir únd- antekningarlaust eftir mínum skilningi, séu þeir 14 ára gamlir — og teljast ekki ómagar .— jafnt ósjálfstæði skattgreiðandinn í foreldrahúsum sem æðsti starfsmaður landsins og hand- aflamaðurinn, og skilst mér, að þessi skattfrjálsa upphæð sé ætluð sem þurftartekjur, þ. e. til lífsviðurhalds, °g getur víst enginn neitað, að er jafnrétti. Um hitt má deila, hvort þessi upphæð er of há eða of lág. Þá er hitt atriðið. Ef ætti að draga kaup frá atvinnutekjum, af hverju ætti þá að greiða skatt? Árskaup hvers einstaklings er það, sem hann vinnur sér inn á því ári. Hvort það eru nefndar tekjur eða kaup skiftir engu máli. Kaup embættismanna eru tekjur þeirra og af þeim eiga þeir að greiða skatt, með þeim takmörkunum úm frádrátt, er lögin setja. Kaup vinnumannsins er það, sem hann vinnur sér inn, hvort sem eru afurðir af gripum, er hann hefur í framgangi, eða aflar þess á annan hátt, og í dæminu sem greinarh. tek- ur, hefur B 1300 kr. i kaup fyrir sig og konuna, af því leiðir að kaup fjöl- skyldumannsins, eru þær tekjur, sem búið gefur a.f sér, með þeim takmörk- unum um frádrátt, er lögin setja. En hversu réttlátur sá frádráttur er á ýmsum sviðum í heild sinni, læt eg ósagt að sinni. Vík ef til viíl að því síðar, ef tími vinst til. Annar skattþegn. AUSTURLAND Verð 5 kr. drgangurinn. Gjalö ' gj 1. júi Ritstjóri i .íbyrgðarmaður Guðm. u. Hagalín — Sími 54 — Afgreiðslu- og innheimtu-maður Herm. Þorsteinsson — Sími 13 — Prentsmiðja Austurlands. FJÁRMARK. Sýlt og fjöður aftan hægra, blað- stýft fr. vinstra. Jön Einarsson, — Hrafnkellsstöðum, Fijótsdal. — Hjólhesta °e saumavélar útvegar undirritaður. Ennfr. ann- ast viðgerðir og útvegar varahluta. Talsverðar birgðir nú hér á staðnum. Jóh. Petersen, BúOareyri. Vegna þess hve mikið er um aprílmál- in, verður hitt og þetta að sitja á hakanum.

x

Austurland

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austurland
https://timarit.is/publication/163

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.