Árvakur - 02.01.1914, Qupperneq 2
24
ARVAKUR
cJQer meó eru þeir, sam eiga ógreiéó
árgjöló íií vaóóeiíóar JBanósBanfians, er
fjeííu i gjaíóóaga 1. ofiíööermán. síóastl.,
áminíir um aó greióa þau ásamí óráttar*
vöxtum Jrá gjaíóóaga.
Stjórn Lnndsbankans.
Símfréttir.
Kaugm.höfn, Aðfangadag jóla.
Menelik annar keisari i Abessiníu er dáinn.
(Menelik annar var fæddur 17. Ág. 1844 og hlaut konungdóm í
Schoa 1865 en árið 1889 náði hann undir sig keisaradæmi í Abessiniu
eftir fall Jóhannesar keisara, gerði hann þá samninga við ítali um vernd
landsins, en er honum þótti þeir gerast allágengir þá lýsti hann því yfir
að landið væri úr vernd þeirra og algerlega frjálst. ítalir sendu þá her á
hendur honum, en hann varðist af hreysti og urðu ítalir frá að hverfa
og gefa landið laust. Þetta var 1896 og óx Menelik af þeim viðskiftum.
Menelik þótti mestur stjórnari um Austurlönd annar en Japanskeisari, og
gerði mjög margar ráðstafanir til þess að bæta kjör landsmanna, á meðal
þeirra ráðstafana voru algerð aðflutningsbannslög á öllu áfengi. Dótturson
hans, Lidj Jeassu (f. 1896), tekur við stjórninni.)
Njósnarmalin í Svíþjóð.
Hinn danski lautenant sem handtekinn var nýlega hjá Boden-víg-
girðingunum í Svíþjóð og sakaður um njósnir fyrir Rússa, hefir nú með-
gengið. Er hér um miklar og alvarlegar njósnir að ræða.
(Boden er rammgert virki er stendur á austurbakka Stóru Luleelfar,
skamt fyrir ofan mynni hennar. Eru þaðan 70 rastir austur í lönd Rússa
(Finnland). Þetta er aðalvarnarvirki Svía gegn landher frá Rússlandi.)
Kaupm.höfn, jóladag.
Estrup er dáinn.
(Jacob Brönnum Scavenius Estrup var fæddur í Sórey 16. Apríl
1825. Hann var utanríkisráðherra Dana 1865—69 og ráðuneytisforseti og
fjármálaráðherra til 1894. Hann hafði liæst metorð allra danskra manna,
hærri en ráðherrar. Siðustu árin var hann landþingismaður, og þótt
gamall væri, þá var hann enn einn af áhrifameiri stjórnmálamönnum Dana.)
„ÁvvakuF<( kemur venjulega
út einu sinni á viku.
Misserisgjald fastra, innlendra
kaupenda 1 kr. 25 aur, erlendis
2 kr. Er þannig ódýrasta blað
landsins. í lausasölu kostar blaðið
5 aura.
Sanngjarnt auglýsingaverð.
Útgefandi: Hlutafélag í Rvík.
Ritstjóri og ábyrgðarm.: Pétur
Zóphóníasson, Grettisgötu 19 C.
Afgreiðslum.: Porsteinn Sigurðs-
son, Laugaveg 22 B. Simi 431.
Afgreiðslumaður einn annast alla
fjárheimtu. Hann og Gutenberg
taka við auglgsingum.
Ráðaneytisskifti á Frakklandi. Eftir
8 mánaöa stjórn hefir Barthou-ráða-
neytið á Frakklandi orðið að víkja úr
sessi. Þegar það tók við stjórn snemma
á árinu 1913, þóttust menn sannfærðir
um, að þvi yrði langra lífdaga auðið,
þar sem það var skipað einhverjum
hinum sljórnvitrustu og stjórnfærustu
mönnum i landinu. En nú hefir frum-
varp um aukin fjárframlög til hersins,
900 millionir franka í eitt skifti fyrir
öll, til þess að unt sé að framfylgja
lögunum um lenging herþjónustu tíma
nýliða (3 ár í stað 2) orðið ráðaneytinu
að fjörtjóni.
Eftir miklar málaumleitanir hefir loks
áköfum framsóknarmanni, Doumergue,
tekist að setja nýtt ráðaneyti á laggirnar.
Hægri menn búast vfð því versta af
stjórn þessari, og nefna hana byltinga-
ráðaneytið.
Kona er þverteknr fyrir að vera manni
sínnm undirgeíln. í hvita húsinu i Was-
hington fór nýlega fram hjónavígsla, er
vakið hefir eftirtekt víða um lönd.
Wilson forseti Bandaríkjauna gifti
dóttur sína, Miss Jessie, manni nokkr-
um að nafni Mr. Sayre.
Margt fyrirmanna og fyrirkvenna i
hátískubúningum frá París voru þar
viðstödd.
Vígslan átti að fara fram kl. 4l/a í
austursalnum, en faðir brúðarinnar sat
á ráðherrastefnu og virtist hafa gleymt
athöfn þeirri, er til stóð. En rétt i þvi
að klukkan var að verða 4‘/» sprettur
hann og ráðherrarnir upp, þvo sér um
hendurnar og þjóta yfir í austursalinn.
Sjóliðs-hljóðfærasveitin lék þá brúð
kaupslagið úr »Lohengrin«*) og að því
búnu hófst vígsluathöfnin, er stóð yfir í
10 mín. Fyrir þrábeiðni brúðarinnar
feldi presturinn sem gaf þau saman
niður orðin, að konan sé manni sínum
undirgetin, úr vigsluformálanum, og er
mælt að faðir brúðarinnar og unnusti
hennar hafi stutt bæn hennar.
Þegar vígsluathöfninni var lokið, rudd-
ust vinkonur og vinir brúðarinnar inn
yfir silkisnúrurnar og upp að altarinu,
þar sem þau höfðu verið gefin saman,
til þess að flytja brúðhjónunum heilla-
óskir sínar, en á meðan urðu ráðherr-
arnir og aðrir æðstu fyrirmenn ríkisins,
sem voru þar viðstaddir, að bíða þar
til þessum fagnaðarlátum var lokið.
Að því búnu voru gestunum boðnar
ýmsar hressingar meðan þeir virtu fyrir
sér brúðargjafirnar. Kendi þar ýmissa
grasa, svo sem dýrindis demautskart-
grips frá þjóðfulltrúadeildinni, silfur-
borðbúnaðar frá efri deildinni, búra
með páfagauka, hunda, hesta m. m. En
mest þótti brúðurinni varið i sjal, er
eldastúlka foreldra hennar hafði heklað
handa henni, og það var eina gjöfin, er
hún hafði meðferðis á brúðkaupsferð
sinni. En enginn vissi hvert brúðkaups-
förinni var heitið, ekki einu sinni for-
eldrar brúðarinnar.
’) Svo nefnist frægur tónleikur eftir
tónskáldið Richard Wagner.
Pegar brúðhjónin óku á stað skömmu
síðar gerðu boðsgestirnir að þeim skot-
hríð mikla og köstuðu að þeim hrís-
grjónum og silki-ilskóm. Pótti fara vel
á þvi, hvað brúðgumann snerti, því
menn þóttust renna grun í, að konan
mundi ætla sjer að hafa tökin á honum.
Innlendar fréttir*.
17545 bréf og bréfspjöld voru borin
út frá pósthúsinu hér um bæinn á að-
fangadagskvöld og jóladag liinn fyrsta.
Er það meira en verið hefir.
Skólapiltar léku 2. og 4. dag jóla í
Góðtemplarahúsinu Hermannaglettur og
Misskilniug. Var fult hús og þótti góð
skemtun.
Hafís var nokkur fyrir framan ísa-
fjarðardjúp um og fyrir jólin, en eftir
síðustu fréttum er hann farinn og fyrir
Norðurlandi hefir hans aldrei orðið
vart.
Hólakirkja. 150 ára afmælis hennar
var minst á Sauðárkrók. Hélt Brynleifur
skólakennari Tobiasson þar fyrirlestur,
að tilhlutun Kvenfélagsins þar, um merka
Skagfirðinga (Hallgr. Pétursson o. fl.).
Fóstbræðnr skemtu hér tvisvar milli
jóla og nýárs með söng, og hlutu að
vanda þakklæti áheyrendanna, og fer
það að vonum því söngur þeirra er
góður.
Bjarni Björnsson skemti fólki í Báru-
búð á Priðjudagskvöldið með eftir-
hermum. Pykir fólki ílestu þar gaman
að vera.
Smásögnr Hebels er gefnar voru út í
Khöfn 1880 hafa ekki fengist í bóka-
verslunum í mörg ár, heflr afgangurinn
af upplaginu legið hjá útgefanda þess.
Nú hefir Guðm. bóksaii Gamalíeisson
keypt það og sett á bókamarkaðinn.
Pessar gömlu, vinsælu barnasögur munu
vera fyrsta bókin er próf. Finnur Jóns-
son heflr íslenskað, eða séð um útgáfu á.
Jólaglaðning. Dómkirkjuprestunum hér
bárust 1071 kr. 17 aur. alls í peningum
til þes's að gleðja fátæklinga bæarins
um jólin og auk þess 50 skippund af
kolum. Pessu var skift á milli 315 fá-
tæklinga. — Fríkirkjuprestinum bárust
rúmar 630 kr. er var skift milli 180
heimila.
Sjálfstæðisfélagið hér lét nýlega fara
fram prófkosningu á þingmannaefnum
fyrir sig. Féllu atkvæði svo að Sveinn
lögfr. Björnsson fékk rúman helming
atkvæða, en tæpan þriðjung fengu þeir
Gísli lögfr. Sveinsson, Magnús Blöndahl
kaupm. og Sigurður Jónsson barna-
kennari. Rúm 90 atkvæði voru greidd.
Ekki er samt neitt afráðið enn um það
hverja það bjóði fram af sinni hálfu.
Fiskiveiðahlutafélag. Njörður heitir
nýtt félag er heíir verið stofnað hér í
bænum til þess að kaupa og gera út
eitt botnvörpuskip þegar frá verlíðar-
byrjun. Formaður þess er Elías Stef-
ánsson framkvæmdarstjóri, en með-
stjórnendur skipstjórarnir Finnur Finns-
son og Guðmundur Guðnason og verður
hinn síðarnefndi skipstjóri skipsins og
sigldi á mánudaginn með Snorra goða
til þess að kaupa það. Gerir Guðm. ráð
fyrir að koma hingað á skipinu í byrjun
febrúarmánaðar. Hlutafé félagsins er 60
þúsund kr. og er það alt innborgað.
Jólatré og skemtanir fyrir meðlimi
sína hafa mörg félög haft hér um jólin.
Pessi kunnum vér að nefna: Klubbinn,
Skandia, Aldan, barnastúkan Æskan,
K. F. U. M. og Verslunarmannafélagið.
Trálofanlr. Trúlofuð eru Sofia (Frans-
dóttir fyrv. sýslum.) Siemsen og Magnús
Tómasson verslunarm., Stefanía I’rið-
riksdóttir (fyrv. alþm. Stefánssonar) og
Grímólfur Ólafsson skrifari, Guðrún
Magnúsdóttir úr Hörðudal og Marteinn
Einarsson kaupmaður.
heldur fund í Góðtemplarahusinu
Laugardaginn 3. Jan. kl. 8V2 e. m.
Próf. Ágiist Bjarnason talar.
Auk þess verður væntanlega
rætt um bæarstjórnarkosningar.
Allir velkomnir á fundinn.
Stjórnin.
„Force“, fiskiskip P. J. Tliorsteinsson
& Co., strandaði á Langaskeri á Akra-
nesi. Var skipið á leið til Rvíkur með
fisk frá Vestfjörðum. Geir fór uppeftir
til björgunar og liefir náð mestu eða
öllu af fiskinum.
Kirkja brennnr. Á annan dag jóla
kviknaði í kirkjunni undir Felli í Valns-
dal, meðan á tíðgjörð stóð. Fólk bjarg-
aðist út með lausa muni kirkjunnar.
Kviknaði frá skorsteini og nam eldur
þekju áður en fólk yrði vart. Kirkjan
var vátrygð, en einhver óregla á ið-
gjaldagreiðslu, svo tvísýnt talið hvort
hún fær upphæðina.
Ingólfshnsið. Um það var dregið 2. þ.
m. hrepti það hr. Pórhallur biskup
Bjarnarson. Númer seðilsins var 8665.
Gnðin. Magnússon skáld er orðinn að-
sloðarmaður á 3. skrifstofu í stjórnar-
ráðinu.
11619 bréf og bréfspjöld voru borin
hér út um bæinn á gamlárskveld og
nýársdag. í fyrra voru þau 8690.
Húsbrnni. Á gamlársdagskveld brann
gamla barnaskolahúsið á Siglufirði. Var
það notað setn pósthús og símaliús.
Símstjórinn, Jósef Blöndal, liafði farið
út fyrir skömmu með símskeyti og í
ýmsum öðrum erindum svo eigi varð
brunans vart fyr en fólk kom frá kveld-
söng. í liúsinu var engin íbúð, en lík
er stóð þar uppi náðist út. Auk þess
varð bjargað peningaskápnum og öllum
póstbókum, en töluvert af pakkapóst og
bréfum brann inni. (Vísir.)
Nýárssundið fór svo, að Erlingnr Páls-
son svam 50 metrana á 33'/« sekundu,
og varð þeirra langfijótastur er keptu
Áður fyr, er hann hefir verið
fljótastur svam hann 50 metrana á 37*/s
sekúndu. Hann vann því bikarinn góða,
og þar sem þetta er í þriðja sinn, þá
er bikarinn hans eign.
Erlingur er fæddur 3. Nóvember 1895,
og eru foreldrar hans Páll sundkennari
Erlingsson, bróðir Porsteins skálds, og
kona hans Ólöf Steingrímsdóttir. Á síð-
asta þingi var Ungmennafélagi íslands
veittur styrkur, til þess að styrkja mann
til sundiðkana ytra, og fær Erlingur
styrk þennan (500 kr.) og mun fara
utan bráðlega að sækja sér frægð og
frama.
Blaðlð „Reykjavík“ hætti að koma út
um áramótin. Eggert Claessen o. fl.
höfðu keypt hana til frálags. Hún var
gott heimastj.blað og ættu kaupendur
hennar því að kaupa »Árv.« eftirleiðis.
Vöruhúsið hefir orðið fyrst til þess
allra kaupmanna, íslenskra sem útlendra,
aðj gefa út veggalmanök á í s 1 e n s k u.
Pað er góð og lofsverð nýbreytni.
Hag-stofan er stofnuð var á síðasta
þingi er tekin til starfa, og hefir hún
aðsetur sitt í liinu nýja húsi Sturlu
kaupm. Jónssonar við Hveríisgötu. For-
maður liennar cr Porsteinn Porsteinsson
kand. polit. en aðstoðarmaður Georg
Ólafsson kand. polit.
Borgþór Jósefsson hefir legið hættu-
lega veikur í lungnabólgu en er nú úr
allri hættu og á batavegi.
í ár hefir það fyrst borið við í þing-
sögu vorri, að kvenmaður hefir gerst
kaupandi að Alþingistíðindunum. Pað
er frú Guðrún Björnsdóttir frá Prests-
hólum, fyr bæjarfulltrúi hér í Rvík, er
það hefir gert.
Borgarafnnd ællar Jóhann kaupm.
Jóhannesson að halda bráðlega hér í
bænum. Ætlar að ræða um fjárhags-
ástandið og veðdeildarlögin.
Alþingistídindin. Pau eru nú svo langt
komin að 10. hefti af umræðunum í
neðri deild er ný komið út.
Prentsmiðjan Gutenberg.