Alþýðublaðið - 24.04.1963, Blaðsíða 15
Eftir augnablik sagði ljós-
liærða bullan: „Ættum við að
lemja hlunkinn svolitið ,Töffi?
Gefa honum smá yfirhalningu?“
Hinn hnussaði út um brotið
nefið.
„Af hverju ekki það? Ég hef
ekki reynt neitt á mig í margar
vikur.“
Feiti ítalinn sagði snöggt:
„Ekkert svoleiðis. Hann verður
hér í fimm mínútur, svo fer
liann. Það snertir hann enginn".
Ljóshærði stárkurinn spýtti á
gólfið.
„Þú ræður".
Við stóðum þarna allir á með-
an mínúturnar liðu. Eftir tíma,
sem virtist miklu lengri en
fimm mínútur, sagði feiti ítal-
inn: „Komið. Við skulum koma
að horfa á leikinn aftur“.
Þeir þrír drögnuðust aftur inn
í bakherbergið og skildu mig eft
ir einan með negranum gamla.
Hann starði á mig og nuddaði
linakkann á sér með stórri
svartri hendi.
„Ég býst við, að þér séuð fædd
ur undir heillastjörnu, herra
minn“, sagði hann. „Þessir gæj-
ar eru harðir".
Ég fór út í nóttina og upp í
bílinn minn.
í II.
Þegar ég ók gegnum borgina
starfaði hugur minn hratt.
Það virtist engin leið út úr
þessari gildru. Það yrði nú ó-
mögulegt að finna Rimu aftur.
Hún gat haldið áfram að kúga
fé út úr mér óhult og án þess
að ég næði til liennar. Ég yrði
að láta hana fá alla peningana,
sem ég hefði upp úr brúnni, og
svo meira til. Ég vissi, að hún
mundi halda áfram að kúga út
úr mér fé það sem hún ætti eft-
ir ólifað.
Ég vissi, að kaupin á húsi
Terrells voru nú ekki annað en
fánýtur draumur. Hvernig átti
ég að skýra það fyrir Saritu?
Það var umhugsinin um Sar-
itu, sem herti mig upp. Ég hægði
’ ferðina og ók úpp að gangstétt-
inni.
Ég gat ekki tekið þessu, eins
og hverju öðru hundsbiti, sagði
ég við sjálfan mig og heit
reiði fór um mig. Ég varð að
finna leið út úr þessu.
í nokkrar mínútur sagt ég og
starði út um bílrúðuna á hina
miklu umferð, sem fór framhjá
mér, og reyndi að róa taugarnar.
Loks náði ég tökum á sjálfum
l— "
mér og tókst að hugsa rólegra.
Rima hafði gefið mér heimilis
fang á ba!-’’'a í Los Angeles. Þýddi
það, að hún væri á leið frá Hol-
land City til Los Angeles, eða
var þetta aðeins bragð til að
setja mig út af sporinu?
Ég varð að finna hana aftur.
Það var eina von mín. Ég varð að
finna hana og stinga upp í hana.
Ég ræsti bílinn aftur og ók
hratt til Ritzt-Plazahótelsins,
sem var skammt frá. Ég skildi
bílinn fyrir utan, fór inn og gekk
að ferðaskrifstofunni.
Stúlkan þar brost blítt til
mín.
„Get ég hjálpað yður?“
„Er flugvél héðan til Los
Angeles í kvöld?“
„Ekki lengur, herra minn.
Fyrsta vélin er klukkan tuttugu
og fimm mínútur yfir tíu í
fyrramálið."
„En lest?“
Hún tók upp ferðaáætlun,
blaðaði í henni og kinkaði síð-
an kolli.
„Það er lest klukkan ellefu
fjörutfu. Ef þér flýtið yður, gæt
uð þér náð henni."
Ég ók hratt til járnbrautar-
stöðvarinnar, lagði bílnum og
gekk að upplýsingaskrifstofunni.
Klukkan var hálf tólf. Þar var
mér sagt, að Los Angeles lestin
væri við pall númer 3.
Ég gekk varlega að palli þrjú
og leit í kringum mig eftir Rimu.
Ég stanzaði við blaðsöluskúrinn
við innganginn að pallinum. Hlið
ið var enn lokað. Þar béið þar
hópur af fólki. Rimu var hvergi
að sjá. Ég beið í felum, þar til
hliðið var opnað. Eftir tíu mín
útna bið horfði ég á lestina fara
af stað. Ég var viss um, að Rima
var ekki um borð.
Ég . gekk aftur áð bílnum.
Þetta hafði verið möguleikl, en
hann tókst ekki. Það væri von-
laust daginn eftir. Ég gæti ekki
bæði haft eftirlit með járnbraut
arstöðinni og flugstöðinni. Auk
þess var ekkert líklegra en að ,
hún hefði gefið mér heimilis-
fangið í Los Angeles til þess að
villa um fyrir mér. Hún gat haft
í huga að setjast að einhvers
staðar annars staðar. Ávísun mín
færi til Los Angeles, og þaðan
yrðu peningarnir sendir til hvaða
borgar sem væri. Það virtist
næstum óhugsandi að finna
hana.
Ég steig upp í bilinn og ók
heim. Þegar ég gekk frá lyftunni
að íbúð minni, horfði ég á úr-
ið. Klukkan var fimm mínút-
ur yfir tólf. Ef heppnin væri
með, væri Sarita komin í rúm-
ið. Ég var svo dapur og reiður
í skapi, að ég vildi ekki tala við
hana um kvöldið.
En heppnin var ekki með mér.
Þegar ég opnaði dymar, sá ég,
að það var ljós í setustofunni.
„Jeíf?“
Sarita kom fram að dyrunum,
þegar ég var aö fara úr frakkan-
um.
„Halló, elskan", sagði ég. „Ég
hélt, að þú værir háttuð".
„Ég hef verið að biða eftir
þér. Ég hélt, að þú ætlaðir aldrei
að koma“. Tónninn í rödd henn-
ar varð til þess, að ég leit
snöggt á hana. Ég sá, að hún
var æst út af einhverju. Langar
þig í eitthvað að borða?“
Þó að ég hefði ekki borðað
neinn kvöldverð, varð mér ó-
mótt við tilhugsunina um mat.
„Ég er búinn að fá allt, sem
ég þarf, þakka þér fyrir. Af
hverju ertu svona æst?“
Hún tók undir handlegginn á
mér og dró mig inn f stofu.
„Terrell hringdi fyrir tveim
stundum. Hann vill -fá ákvörðun
þegar í stað. Hann er búinn að
fá tilboð í húsið. Það er tiu þús
undum hærra, en hann setti upp
við okkur. Hann er svo góður.
Hann sagði, að sig langaði til,
að við fengjum húsið, og hann
ætlar að láta okkur hafa það
fýrir upphaflega verðið, en við
verðum að láta liann vita strax”.
Ég gekk frá henni og settist
niður.
„Jæja, þá var komlð að því.
Ég var sokkinn upp að liaus, áð-
ur en ég liafði tíma til að átta
mig eftir fyrsta höggið.
„Hann sagðist skyldu gefa mér
vikufrest", sagði ég og tók upp
sígarettuveskið • mitt og kveikti
mér í sígarettu.
„Ég veit það, elskan, en hann
er' nýbúinn að fá þetta tilboð“,
sagði Sarita og settist niður
gegnt mér. „Við getum ekki ætl-
azt til 'þess af honum, að hann
tapi tíu þúsund dollurum bara
vegna tveggja daga. Og hvers
vegna ættum við svo sem að
verið að hugsa um þetta. Hús er
um að kaupa húsið, er það ekki?
Það er ekkert, sem kemst í hálf
kvist við það, og það er raun-
verulega kjarakaup".
,Ja, nei“, sagði ég og horfði
ekki á hana. „Ég held ekki, að
ég geri þetta, Sarita. Ég hef
verið að hugsa um þetta. Hún er
talsvert varanlegur hlutur. Ég
ætla að eyða lífi mínu í þess-
ari borg. Hús Terrells er vissu-
lega ágætt, en ég held, að bezt
sé að lafa hér í svo sem eitt ár
og byggja síðan. Þegar svo er
komið, veit ég betur hvernig fjár
hagsástand mitt raunverulega
er. Ef lieppnin er með, ættum
við að vera farin að hafa það
sæmilega gott. Við gætum jafn
vel liaft það eitthvað enn betra
en svona kofabyggingu. Það er
betra að byggja. Um leið og við
erum búnir með brúna, skal ég
útbúa teikningu. Við getum unn
ið að henni saman. Þá fáum við
nákvæmlega það, sem við vilj-
um“.
Ég sá, að hún stirðnaði, og ég
gat séð vonbrigði hennar.
„En góði Jeff, á þessu verði
er húsið hrein gjöf. í stað þess
að hýrast í þessari leiðindaíbúð
í ár í viðbót, getum við flutt í
húsið, farið okkur rólega með
að byggja, og þegar við erum bú
in að byggja, getum við selt það
með ágóða.“
„Ég skil það“, sagði ég og
reyndi að halda í hemilinn á æst
um taugum mínum. „En ég vil
heldur biða. Ég held, að við lát
um húsið eiga sig“.
„Gérðu það, Jeff“. Það særði
mig og gerði mig reiðan að sjá,
hve þetta fékk mikið á hana. ,Ég
elska húsið. Viltu skipta um skoS
un? Ef við kaupum, greiðum við
ekki leigu. Við spörum hana.
Þetta þýðir að við komum fé okk
ar skynsamlega fyrir, og ég vfl
holzt ekki þurfa að vera hér anh
að ár í viðbót". !
,Mér þykir það leiðinlegt",
sagði ég, „en ég ætla ekki að
kaupa hús Terrells. Eigum við
að hætta að tala um þetta? Ég
er þreyttur og reiðubúinn til að
fara í rúmið“.
„En Jeff, þú getur ekki af-
skrifað þetta bara svona. Þettá
er veigamikið fyrir okkur bæði.
Við eigum peningana. Þú sam-
þykktir, að það væri einmitt það,
sem við vildum. Við getum ekki
haldið áfram að búa hér. Þú verð
ur að bjóða meira heim. Við
getum ekki boðið fólki hingað.
Maður í þinni stöðu verður að
eiga fallegt heimili“. .
„Sleppum þessu, Sarita. Éé
veit, hvað ég er að gera“.
Augnablik starði hún á mig,
og síðan sagði liún: „Jæja, auð
vitað, ef þú vilt hafa það svona,
állt í lagi. Viltu raunverulega,
að við verðum hér um kyrrt?“
„Þangað til við byggjum". (
„Þá gætum við kannski
keypt ný húsgögn: Við skulum
að minnsta kosti reyna að láta
það líta eitthvað skár út en það
gerir núna“.
„Við tölum um það seinna“;.
Ég stóð á fætur. „Við skulur®
fara í rúmið. Sjáðu hvað klukk
an er: hún er að verða eitt“. i
■')
T
— Það er gott að þú komst, pabbi — ef sjö menn geta gxafíð V
89 m. skurð á 63 mínútum, hvað geta þá 5 menn grafið á 17 og <
hálfum tíma?
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 24. apríl 1963 |,5'