Baldur - 08.12.1906, Blaðsíða 4
4
BALDUR, 8. DESEMBER igo6.
Telefónmál.
m
í nýkomnu brjefi til Baídurs frá
Mr. Dagger, telefónfræðingi, sem
hann sendi ásamt ýmsum upplýs-
ingum óg bæklingum málinu við-
víkjandi, segir hann svo á parti:
"Það er með þessa löggjöf (telefón-
löggjöfina) eins og hverja aðra lög-
gjöf sem miðar að þvf að innleiða
umbætur f fyrsta skifti, að hún er
ekki fullkomin. Stjórnin gengst
fjdlilega við þvf, og er reiðubúin
að gjöra þær breytingar á henni
sem meiri hluti fólksins heimtar,
°g gjöra framkvæmdir f málinu
auðveldari samkvæmt þjóðeignar-
stefnunni".
Þetta er nú vel mælt, en betra
hefði verið að umbætur á lögunum
hefðu getað komið áður en greidd
eru atkvæði um þau. Því verður
nú samt ekki að heilsa, því fylkis-
þing kemur að sögn ekki saman
fyr en f fyrsta lagi 11. janúar. Það
hefir enn ekkert frjetzt af þvf,
hvaða lagabreytingar nefnd sú hef-
ir farið fram á, sem kosin var á
Portage la Prairie-fundinum um
daginn til að fara á fund stjórnar-
innar, og fá loforð um breytingar
á lögunum, og engin ákveðin lof-
orð, sem nokkuð það er á að græða
sem maður getur fótað sig á, eru
enn komin frá henni. Mjög er
það samt líklegt að lögunum verði
breytt f ýmsum atriðum og það
Ifklega til bóta, þvf gallarnir scm
á þeim eru munu fremur hafa ver-
ið af yfirsjónum en tilgangi, að
undanskildum ákvæðnm 13. grein-
arinnar í báikinum um sveitatele-
fóna, þvf manni getur naumast
arinað virzt en að þar sje verið að
gjöra tilraun til að reka menn til
að greiða atkvæði með sveitatele-
fónum, sem ekki var einungis ó-
þarfi, ef löggjöfin hefði verið góð,
heldur ógeðfeld þvingunartilraun.
Stjórninni er sjálfsagt annt um það
að lögunum sje sem bezt tekið, og
hún hefir farið lengra en góðu hófi
gegnir í þvf að fá menn til að fall-
ast á þau. Þessar syndir eru nátt-
úrlega sameiginlegar með öllum
stjórnum og ef um enga aðra galla
væri að ræða mætti vel duga.
Það atriðið sem er einna alvar-
legast er ákvæði það sem gefur
sveitastjórnunum vald til að stofn-
setja telefónkerfi, hve nær sem
vill eftir næstu sveitarkosningar,
í þeim sveitum, sem meiri hluti
atkvæða verður með sveitatelcfón-
um, án þess að þurfa að fá frckara
samþykki kjósendanna til að leggja
út fje fyrir stofnun telefónkerfis.
Við næstu sveitakosningar verður
engin skýrsla lögð fram um hver
sá kostnaður muni verða, sem kom-
andi sveitarráðsmenn muni setja
sveitina f, til að koma upp telc-
fónkerfi. Menn geta að cins greitt
atkvæði um það, hvort mönnum
geðjast svcitatelcfónhugmyndin
eða ekki; og segi meiri hluti kjós-
enda þá, mcð atkvæðum sínum,
að þeim geðjist hún, fær sveitar-
ráðið við það vald til að ráðast í
hvaða kostnað sem þvf lfzt með
leyfi fylkisstjórnarinnar, án þess að
spyrja kjósendurna frekara leyfis.
Þetta er slæmt ákvæði, en lfklega
verður þvf* breytt, ef annars Por-
tage la Prairie-nefndin fær nokkru
framgengt.
Yfirleitt gengur samt löggjöfin í
rjetta átt og þrátt fyrir gallana,
sem vonandi verða lagfærðir, er
hún góðra gjalda verð.
Að hægt sje að hafa telefónsam-
band fyrir minnaverð en t.d. Bell-
telefónfjelagið heimtar, er engum
vafa bundið, reynzlan er búin að
sýna það, og eftirfarandi skýrsla
sýnir hvað stjórnin hugsar sjer að
setja fyrir að nota tengilfnur fylk-
isins um leið og hún sýnir hvað
“Bell“-fjelagið setur nú fyrirsömu
vegalengd. Stjórnin byggir þcssa
áætlun sína á reynzlu þeirra tele-
fónfjelaga í Canada, sem ekki hafa
beint verið stofnuð til að græða fje
á starfi sfnu, en hafa þó staðið sig
vel:
VERÐ FYRIR 3 MÍNÚTNA
SAMTAL.
Núver. Stjórn-
verð arverð
‘Bell‘- f hæsta
fjeiags. lagi.
Frá Wpg tii— mflur
Eli 31 $ -3° 10 cts.
Morris 42 .40 15 -
High Bluff 48 .50 15 -
Dominion City 56 .50 2C -
Emerson 66 .50 25 -
Macgregor 77 .50 25 -
Darlingford 94 .60 35 -
Cypress River 95 .60 35 -
Pleasant Point 100 •75 35 -
Ilallsboro 111 •75 40 -
La Riviere 113 •75 40 -
Douglas 121 •75 40 -
Eden 131 •75 45 "
Kernnay 141 .90 50 -
Elgin 168 1.05 60 -
Whitewater 192 1.20 65 -
Þessi eftirfarandi skýrsla sýnir
hvað nokkur af þessum fjelögum
hafa sett fyrir telefónsamband yfir
árið á ýmsum stöðum f Canada :
King Township Telephone
Co., Ont............$ 9 00
The Harrietsville Tele-
phone Ass’n, Ont. 9 00
William Wade, Brighton,
Ont................ 10 00
The Sprague Tclephone
Co., Ont........... 10 00
The Bellechasse Tele-
phone Co., Que. . . 12 00
The Canadian Telephone
Co., Que........... 12 00
The Markham and Picke-
ring Telcphonc Co.,
Ont................ 12 Oo
Fro. Gauthier&Cie, Drum-
mondville, Que. .. 12 00
Þetta er f flestum tilfellum helm-
ingi og stundum meira en helm-
ingi minna en ‘Bell‘-fjelagið setur
fyrir samskonar afnot þráða sinna.
Kostnaðurinn við lagningu hvcrr-
ar mflu af telefónþráðum er, eftir
reynzlu manna f Canada frá $Z4
til $150, og cftir áætlun Mr. Dag-
gers ætti kostnaðurinn að verða um
$100 á mfluna.
Framanskráðar skýrslur ættu
menn að lesa með gaumgæfni þvf
þær eru góðar eins langt og þær
ná.
Á öðrum stað f blaðinu er aug-
lýsing viðvíkjandi atkvæðagreiðslu
um þetta mál við kosningarnar 18.
þ. m. Af þessari auglýsingu geta
menn sjeð, að þeir einir sem hafa
eignir sem ná $400 virðingu undir
skatt geta greitt atkvæði um það.
Hve margir eru þeir menn í Nýja-
íslandi? Líklega 30 til 40 af 5000
manns. Skyldi mönnum hjer nú
skiljast hve afkáraleg lága virðing-
in er. Þegar skýrslur um kosn-
ingaúrslitin koma til stjórnarinnar
sýna þær, að 30 til 40 manns hafa
greitt atkvæði I Eru Ný-íslend-
ingar aumingjar og öreigar ? Það
þarf skýringu við þctta og sú skýr-
ing getur ekki orðið neinn upp-
sláttur fyrir Ný-íslendinga.
E. Ó.
Eftirfylgjandi menn eru um-
boðsmenn Baldurs, og geta
þeir, sem eiga hægra með
að ná til þeirra manna heldui
en til skntstolu blaðsins, af-
hent þeim borgun fyrir blaðið og
áskriftir fyrir þvf. Það er ekkert
bundið við það, að snúa sjcr að
þeim, sem er til nefndur fyrir það
pósthjerað, sem maður á heima í.
Aðstoðarmenn Baldurs fara ekki í
neinn matning hver við annan í
þcim sökum:
Jóhannes Grímólfsson - Hecla.
Sveinn Þorvaldsson - - Icel. River
Stefán Guðmundsson - Ardal.
Sigfús Sveinsson - - - F'ramnes.
SigurðurG Nordal - - Geysir.
Finnbogi Finnbogas,-Arnes.
Guðlaugur Magnúss. - Nes.
Ól. Jóh. Ólafsson.....Selkirk.
Sigmundur M. Long - Winnipeg.
Sveinn G. Northfield- Edinburg.
Magnús Bjarnason - - -Marshland
Magnús Tait...........Sinclair.
Björn Jónsson.........Westfold.
Pjetur Bjarnason - - - - Otto.
Helgi F. Oddson-------Cold Springs
Jón Sigurðsson........Mary Hill.
Ingin.undur Erlendss. - Narrows.
Freeman Freemans. - - Brandon.
Guðmundur Ólafsson - Tantallon.
Stcphan G.Stephanss. - Markerville
Hans Hansson. - - Blaine, Wash.
Chr. Benson. - - - Pcint Rofcerts
(h T)r. O. Stephemen• &
Q 643 R°ss St.
m WINNIPEG, MAN. &
Telefón nr. 1498.
TAPAST hcfir frá heim-
ili undirritaðs, sect. 9—21 — 3 E.,
hvftur uxi, 4 vetra, dumb-rauð-
höttóttur, afhyrndur, en dálitlir
stikiar vaxnir upp aftur ; eyrna-
mark: heilrifað hægra og sýlt
vinstra, en heilrifan hefir verið
stýfð af. Finnandi er beðinn að
gefa tilkynningu sem fyrst.
Herman Goldhardt.
Nes P. O., Man.
HVER sem hefir tapað rauð-
um uxa, hvftum á fótum, kvið og
hala upp til miðs, og hvítum bletti
á mfilunum, óhornteknum og ó-
mörkuðum, á að gizka tveggja ára,
getur vitjað hans til mfn, með þvf
að borga áfallinn koí.tnað.
SlGURJóN JóNSSON.
Árnes P. O., Mam
ÁGRIP AF HEIMILISRJETT-
ARREGLUGJÖRÐ FYRIR
CANADA-NORÐVESTUR-
LANDIÐ.
J>ær ’sectionir' f Manitoba, Sas-
katchewan og Alberta, sem
númeraðar eru með jöfnum tölum,
og tilheyra Dominion stjórninni
(að undanskildum 8 og 26 og öðru
landi.sem er sett til síðu),eru á boð-
stólum sem heimillsrjettarlönd
handa hverjum (karli eða konu),
sem hefir fjölskyldu fyrir að sjá,
og handa hverjum karlmanni, sem
hefir fjölskyldu fyrir að sjá, og
handahverjumkarlmannisem eryfir
18 ára að aldri; 160 ekrur eða /
úr ’section1 er á boðstólum fyrir
hvern um sig.
Metin verða sjálfir að skrifa sig
fyrir því landi, sem þeir vilja fá, í
landst"kustofu stjórnarinnar, f þvf
hjeraði sem landið er f.
Sá sem sækir um heimilisrjett-
arland getur uppfylgt ábýlis-
skylduna á þrennan hátt:
1. Með þvf að búa f 6 mánuði
á landinu á hverju ári f þrjú ár, og
gjöra umtiœtur á þvf.
2. Með því að halda til njá
föður (eða móður, ef faðirinn er
dauður), sem býr á landi skammt
frá heimilisrjettarlandi umsækjand-
ans.
3. Með þvf að búa á landi,
sem umsækjandinn á sjálfur f nánd
við heimilisrjettarlandið sem hann
er að sækja um.
Sex mánaða skriflegan fyrirvara
þurfa menn að gefa Commissioner
of D:minion lands f Ottawa um
að þeir vilji fá eignarbrjef fyrir
heimilisrjettarlandi.
W. W. CORY,
Deputy of tiie Mmi3ter of the Interior
A IL-j sem hafið fyrir lengri
tíma orðið að stritast við saghest-
inn með smásög í höndum, og
sveizt blóðinu við að saga í cldfær-
in, ættuð að KASTA SöGINNI en
BRENNA SAGHESTINN, Og fá okk-
ur undirritaða til að saga eldivið-
i in 1 fyrir ykkur. Við gjörum það
mcð töfrakrafti, sem nefnist á inn-
lendu máli ”GASOLINE“.
Verðið vcrður sanngjarnt.
Þeir, sem hafa f hyggju að hag-
nýta sjer þenna verkljettir, ættu
að firma
G. P. Magnusson,
Gimli, að máli, og scmja við hann
um verð og verk.
Yðar þjónustureiðubúnir
Magnússon &
Brynjólfsson.
G-IMLI MAIL
TAPAST hefir frá heimili
Sigurjóns Thordarsonar, Nýhaga,
stór uxi, nfu til tíu vetra gamall,
móbrúnn, einlitur og stórhyrndur.
Uxi þessi tapaðist snemma í sum-
ar, og sást sfðast í gripum vestur
við Króksvatn. Finnandi er beð-
inn að senda tilkynningu til
S. SlGUKBSON,
Tlnausa P. O.—------Man.
Til
NÝ-ÍSLENDINGA.
Kæru landar!
Nú er jeg búinn að fá í verzl-
un mfna að Gimli miklar byrgðir
af allskonar harðvöru, og á leiðinni
er mikið af matvöru. Jeg get
fullvissað yður um, að þessar vör-
ur verða allar seldar með lágu
verði, eins lágu og mögulegt er að
fá þær fyrir annarstaðar á Gimli.
Þeir, sem kann að vanhaga um
sleða fyrir veturinn, ættu að sjá
mig viðvíkjandi kaupum, áður en
þeir gjöra út um kaup annarstaðar.
Jeg óska eftir viðskiftum yðar,
og lofa að skifta sanngjarnlega við
yður. Þeir, sem lifa f bæjarstæð-
inu Gimli, fá vörur keyrðar heim
til sfn samstundis og þær eru
kcyptar; hvort það er lftið eða
mikið sem keypt er, gjörir engan
mun.
Öll verzlunarvara tekin með
hæsta verði.
Yðar þjenustu reiðubúinn, er jeg
yðar einlægur
G. P. MAGNUSSON.
1111
Keyrsla:
Frá Gimli til Winnipeg Beach
kl. 8 á hverjum morgni.
Frá Winnipeg Beach til Giml
á hverjum morgni, eftir að
Winnipeg-lest er komin.
G. E. Sólmundsson.
Gimli Feed and Livery Stable,
2nd Ave Gimli.
$1.00
N y i r kaupendur
að BALDRI fá blaðið frá byrjun
nóv. þ. á. (meðan upplagið endist)
til ársloka 1907 fyrir $1.00, með
þvf móti að
borgað sje fyrirfram.
# % *
$800.22
S e x hundrud dollara er útistand^
andi fyrir Baldur. — Sendið &-
skriftargjöldin sem fyrst.
Þeir, sem fá rcikninga með
þessu blaði, eru beðnir að
borga sem fyrst og senda at-
hugascrndir ef villur eru i
þeim.