Baldur - 24.05.1907, Side 4
4
BALDUR, 24. maí 1907.
Leikfimi.
Hugsið
um börnin ykkar.
Börn, sem eru að vaxa, geta
alls ckkiveriðán mikillar hreyfing-
ar, þar sem hver einstakur hluti
líkamans er f þvf ástandi, að hann
verður að hafa hraða blóðrás, ef
þroskinn og þróunin á að geta
komið að tilætluðum notum. Ein-
asta ráðið til að fá blóðið í nægi-
lega hreyfingu, er, að iðka lfkams-
æfingar, leiki, leikfimi, hlaup, o, s.
frv. Börnum er meðfædd þrá og
hvöt til að hreyfa sig; þau geta
helzt aldrei kyr verið. Því betra
tækifæri, sem börnin hafa í upp-
vextinum, til að uppfylla þessa
þrá, þess kröftugri og betri grund-
völl h'laða þau undir he'lsu sfna
allt lifið. Oft og einatt hefi jeg
heyrt foreldra taka svo til orða :
“Það eru aum vandræði með þetta
barn, það gildir einu hvað mikið
það borðar, samst þrffst það ekki,
það getur heldur aldrei nokkra
stund kyrt verið“. Svo kaupa
foreldrarnir barnið til að vera stillt
(sem svo er kallað), dálitla stund,
annaðhvort með sælgæti eða álfka
meðulum, og þegar þeim þykja ó-
lætin úr hófi keyra, þá beita þau
vcndinum að gömlum vana. En
því fer betur, að vöndurinn erekki
eins mikið notaður nú sem áður,
— enda ættu allir foreidrar að var-
ast að beita þessum uppeldistækj-
um. Er það ekki innilegasta og
bezta ósk foreldranna, að börnin
þeirra sjeu heilbrigð á sál og lfk-
ama og dafni vei ? Foreldrarnir
geta verið viss um, að þegar börn-
in vilja leika sjer dg ólmast, þá
fara þau eftir sfnu rjetta eðli. Er
það ekki ónáttúrlegt, þegar börn
t. d. frá 8—12 og 14 ára aldri fást
ekki tii að fara út og lcika sjer,
heldur eru inni og h'ggja f bókum
eða sauma, þann tfma, sem þau
hafa frf og ættu að hreyfa sig? —
Þetta þykir sumum foreldrum ákaf-
lega vænt urn, og hugsa jafnvel,
að þetta barn hljóti að verða ‘geni'
(í einhverja átt) með tfrnanum, —
en það fer stundum öðruvfsi en
ætlað er, fyrir þessum blessuðurr
börnum, — þvf þetta er vanalega
byrjun til blóðleysis eða annars
lasleika. Þessi dæmalausa kyrseta
á ekki við mannlegt eðli, og sfst
barnanna ; þau missa og við kyr-
scturnar ýms efni úr blóðinu, sem
eru nauðsynleg til að halda heilsu
og ná eðlilegum þroska, og svo
verða þessi veslings börn (eða
unglingar) að taka ‘pillur' og ‘púl-
ver‘ sjer til hjálpar, enda þótt
bezta meðalið væri auðvítað hreyf-
ing og útivist. En væri það ekki
betra og skynsamlegra af foreldr-
um, að fá börnin þcgar í byrjun
til að vera úti og leika sjer svo
langan tfma af deginum, sem þau
geta ? Jú, það er vfst, að þá mundu
börnin ekki vcrða aumingjar af
blóðleysi eða taugaveiklun, Börn,
sem ganga á skóla, og eru þar 4
og 5 stundir á dag, fara sfðan heim
og lesa undir morgundaginn í
Iengri eða skemmri tfma. Það
gctur þó hver heilvita maður sjeð,
að barnið þarfnast nauðsynlega úti-
lofts og hreyfingar, eftir þessa
innivist, þótt það fái dálitla hvfld
f skólanum, sem svarar 5 til 10
mfn. af hverjum tíma. Barnaskóli
Reykjavíkur er sá eini skóli hjer í
bæ, sem lætur kenna leikfimi nem-
endum sfnum, enda lfka er það sú
grein, sem líkaminn naumast má
án vera. Heilbrigt hjarta og heili
geta ekki haft bústað f veikluðum
líkama. Um fermingaraldur velja
flestir sjer starf, sem þeir svo
reyna að læra svo vel, að þeir geti
haft það fyrir lífsstarf, og þar af
leiðandi til lffsviðurhalds. Margar
af þessum lffsstöðum eru nú þann-
ig lagaðar, að það fylgir þeim á
vissan hátt nægileg hreyfing, (en
ekki heldur nema á vissan hátt) t.
d. trjesmiður, — þeirra hreyfing
er að mcstu leyti f þvf innifalin,
að hfiggva og hefla, og hvorugt
getur maður gjört án þess að vera
meira eða minna fboginn við vinn-
una. Þannig er það með flesta og
þvf nær alla vinnu, að maður get-
ur ekki fullnægt hlutverkinu, án
þess að vera meira og minna fbog-
inn, og á endanum fær maður
þannig lagað innsigli af þeirri
vinnu, sem maður gengur að, ,að
það er hægt að sjá á Ifkama og
limaburðum hvaða starf maðurinn
stundar. En tcikum nú t. d. þá,
sem ganga að skrifstofustörfum,
bóknátni, saumum eða annari inni-
vinnu ; þeir verða vanalega fölir
og heilsuleysislegir útlits; fá oft
boginn hrygg og framslútandi höf-
uð og axlir, vegna þess að vöðv-
arnir, bæði á hryggnum og annar-
staðar á Ifkamanum, missa mátt
sinn af 'ofiftílli brúkun, jafnframt
veikjast lungun og meltingarfærin,
og þar af lerðandi verður hjartað
og taugarnar veikari fyrir og mót-
tækilegri fyrir sjúkdóma. Eina
ráðið til þess að halda fallegum og
beinum vexti, eða ti'. að ná honum
nokkurnveginn aftur, ef hann miss-
ist, er, að iðka leikfimi; með þvf
styrkjast allir vöðvar, liðamót og
sinar, — f stuttu máli gjörir leik-
fimi bæði sál og lfkama þannig úr
garði, að sá eðasú, sem iðkarþessa
grein rjettilega og gjörir sjer far
um að gjöra æfingarnar rjettar, er
fær um að vinna að sfnu starfi,
hvað sem það nú er, án þess að
verða boginn eða stirður; þvert á
móti verður sá, er, iðkar leikfimi,
lipur og Ijettur á sjer, fallegur í
öllum sínum hreyfingum ; hann
verður harðgjör, þolnari og sterk-
ari, fær góða meltingu og styrkar
taugar, og hefir meira mótstöóuafi
gegn sjúkdómum. Þetta er löngu
sannað frá líffræðinnar sjónarmiði.
L. f Lögrj.
Heirnska
kjósendanna.
(Eftir N. Y, World)—Free Pr.
m
Hvað mundu New York-menn
s^gja um bankastjóra, sem rjeði
til sfn innbrotsþjóf til þess að ræna
bankann sinn ?
Hvað mundu þeir hugsa um
kaupmann, sem rjeði til sfn þjóf til
þess að stela úr búðinni frá sjer ?
Hvað mundu þeir hugsa um lög-
mann, sem hefði það fyrir reglu að
fásjermann til að múta dómnefnd-
inni til að vera á móti sjer?
Þeir mundu segja að bankastjór-
inn, kaupmaðurinn og lögmaður-
inn væru algjörðir vitfirringar, sem
ættu að vera á vitfirringaspítala.
En á þennan hátt hagar samt fólk-
ið í Nevv York sjer í opinberum
málum.
I reiði sinni út af svikum lífsá-
byrgðarfjelaganria og prettvfsi
stjórnardeildarinnar sem yfir þeim
átti að vaka, hafa þeir neytt lög-
gjöfina til að gjöra ný lög áhrær-
andi fjelögin. Þessi lög eru ónýt
nema þeim sje framfylgt. Fólkið
kaus Charles E. Hughes til að
framfylgja þeim, og svo sendir
það menn af sama tagi og Raines,
Graby og McCarren til cfri mál-
stofunnar, til að taka fram fyrir
hendurnar á rfkisstjóranum, svo
hann skuli ekki geta sett.þá mcnn
úr embættum, sem láta framfylgja
lögunum ábyrgðarfjelögunum í hag
og almenningi f óhag. Gæti póli-
tisk afskiftasemi verið klaufalegri.
Menn hrópa um fjárdrátt, um
óráðvendni og ráðrfki af hendi
stofnana sem almenningur hefir
skifti við. Þeir heimta kröftugar
fyrirskipanir frá rfkinu almenningi
til verndar. Og svo kjósa þeir til
þings undirgefna og margkeypta
þjóna fjárglæframannanna, svo að
það skuli ekkert geta orðið úr
framkvæmdum í þá átt, að koma
þessum fyrirspurnum í fram-
kvæmd,
Þeir heimta að fá það sem þeim
beri, ogþó stokkaþeir spilinþann-
ig, að þcir skuli fá hrökin. Þeir
setja ræningjann f bankann, þjóf-
inn i búðina og mútumangarann
f dómnefndina, og eru svo hissa á
afleiðingunum.
Islenzkt Skólamáí.
Sameiginlegt ‘picnic* fyrir nokkra
skóla f Norður-Nýja-íslandi
15. júnf.
Eitt af því scm hefir reynst á-
gætt meðal til að glæða einingu og
áhuga í skólunum, eru hinir árlegu
leikfundir, -sem ýmsir skólar hafa
haldið f sameiningu hjer og þar
um landið. Unglingar frá nokkr-
um skólum korna saman tiltekinn
dag, til að skemmta sjer með alls-
konar íþróttum. Síðastliðið ár
var þesskonar skólamót haldið að
Geysir, og tóku þrír skólar þátt f
þvf, og 15. júnf næstk, verður í
annað sinn haldið samskonar skóla-
mót, sem ætlast er til að 5 — 6
skólar taki þátt í. Leikir af ýmsu
tagi eíga að hafast um hönd, og
verðlaun verða gefin fyrir flýtir og
kunnáttu,
Nytsemí svona funda ætti öll-
um að vera augljós. Fyrir utan
það scm þeir gefa bina beztu
skemmtun fyrir alla sem viðstadd-
ir eru, fara þar fram nytsamlegar
æfingar. Tölur verða og fluttar f
því augnamiði að örva*unglingana
til atorku og framtakssemi.
Ef þessu fyrirtæki á að geta reitt
vel af, er nauðsynlegt að foreldrar
barnanna hjálpi kennaranum f að
hafa allt scm bezt undir búið. Ekk-
ert aðgöngugjald verður tekið, og
allir eru þar velkomnir, ungir og
gamlir. Það er búiztvið að skóla-
umsjónarmaður E. E. Best, frá
Winnipeg, verði viðstaddur oghafi
yfirstjórn á hendi.
Frá fregnrita að Geysir P. O,
SUNDURLAUSIR ÞANKAR.
m
Carnegie segir að það sje glæp-
ur að deyja ríkur. Rockefeller
tekur peningana af fólkinu svo þ; ð
fremji ekki glæp þegar það deyr.
Þeir segja að Rockefcller hafi
svo mikla peninga, að hann geti
ekki etið. Stundum get jeg ekki
etið fyrir peningasakir.
Sá scm framfylgir þvf sem hann
prjcdikar, scgir aldrei neitt.
Vjer sendum trúboða til Kfna
til að gjöra Kfnverjana svo góða
að þeir fari til himnarfkis, samt
viljum vjer ekki hafa þá í þessu
landi.
I Chicago eru yfir 7000 vfn-
drykkjuhús, og 3500 lögregluþjón-
ar, þ. e. a. s. tvö vfndrykkjuhús
fyrir hvern lögregluþjón. í Mil-
waukee eru íjögur vfndrykkjuhús
á móti hverjum einum lögrcghiþjón.
— Chicago á eftir að fara fram.
Ef maður í Missouri á sex kon-
ur, er hann sendur f tugthúsið.
En ef maður f Utah á sex konur,
er hann sendur á þing.
í Japan er hægt að fá konu fyr-
ir 50 cent.
Af 198 þingmönnum á Finn-
landi cru 19 konur, og af þeim
aftur 9 Iögjaínaðarkonur (sósfalist-
ar). [í Finnlandi eru nú hlutfalls-
kosningar].
Síðastliðin 40 ár hafa meira en
4,000,000 manna flutt burt af ír-
landi.
Portúgiska er töluð af 1 miljón
manna f Portúgal, en af 11 miljón-
um í Brasilfu.
f New York búa nú flciri ír-
lendingar en í Dublin, fleiri ítalir
en í Flórens, fleiri Pólverjar en í
Warschau og fleiri Gyðingar en f
Jerúsalem.
“MOTSAGNIR
BIBLIUNNAR“
cru til sölu hjá undirri uðmn,
Verð 25 cts.
E. ÓLAFSSON.
Gimli -- Man
Maí 1907.
s. M. Þ. M. F. F. L.
1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 2 5
26 27 28 29 30 3i
Tunglkomur.
Sfðasta kv. 4. kl. 3, 24 m.
Nýtt t. 12. kl. 2, 30 m.
Fyrsta kv. 20. kl. 2, 30 m.
Fullt t. ' 27. kl. 7, 49 m.
ÁGRIP AF HEIMILISRJETT-
ARREGLUGJÖRÐ FYRIR
CANADA-NORÐVESTUR-
LANDIÐ.
J)ær ’sectionir' í Manitoba, Sas-
katchewan og Alberta, sem
númeraðar eru með jöfnum. tölum,
og tdheyra Dominion stjórninni
(að undanskildum 8 og 26 og öðru
landi,sem er sett til sfðu),éru á boð-
stólum sem heimillsrjettarlönd
handa hvcrjum (karli eða konu),
sem hefir fjölskyldu fyrir að sjá,
og handa hverjum karlmanpi, sem
hefir fjölskyldu fyrir að sjá, og
handahverjumkarlmannisemeryfir
18 ára að aldri; 160 ekrur eða %
úr ’section* er á boðstólum fyrir
hvern um sig.
Menn verða sjálfir að skrifa sig
fyrir þvf landi, sem þeir vilja fá, í
landstökustofu stjórnarinnar, í því
hjeraði sem landið er 1.
Sá sem sækir um heimilisrjett-
arland getur uppfylgt ábýlis-
skylduna á þrennan hátt:
1. Með þvf að búa f 6 mánuði
á Iandinu á hverju ári í þrjú úr, og
gjöra umbœtur ú þvf.
2. Ivleð því að halda til hjá
föður (eða móður, ef faðirinn er
dauður), sem býr á landi skammt
frá heiinilisrjettaríandi umsækjand-
ans.
3. Með þvf að búa á landi,
sem umsækjandinn á sjálfur f nánd
við heimilisrjettarlandið sem hann
er að sækja um.
Sex mánaða skriflegan fyrirvara
þurfa menn að gefa Commissioner
of D'minion lands f Ottawa um
að þeir vilji fá eignarbrjef fyrir
heimilisrjettarlandi.
W. w. CORY,
Deputy of the Minister of he Interior
60 YEARO#
EXPERIENCE
Tradf. Markb
DE3IGN8
COPYRIGHTB &C.
Anyone eendlns a sketch and descriuUon snay
quickly nacertutn oht o)>inton froe whothor aa
tnvent.ion ia probably pntontable. Coimnunirft-
ttonsHtrtctlyconfldentlal. HANDBOOK on Uate#U
í'ínt free. Oldcst nH’enoy for BeourtriR patenta.
Patenta taken tnrouRh Munn & Co. recelye
tpeclal rwtice, wlthout charge. in the
Sdentific ílierlcan.
andaoirjoly lHiistrated weekly. J.argest ctr-
ition «>f nny sclentlflO journal. Terina. $3 a
r ; four months, $L fiold byall newsdealera.
........ “ 1 Uaw Vnrlr
T)r. O. Stephenaen■
643 Ross St.
WINNIPEG, MAN.
Telefón nr. 1498.