Baldur - 05.09.1907, Side 3
B A L D U R.
V. ár, nr. 28.
öðrum Iðndum. Austur-íslending-
ar eru lfka farnir að sjá að meðal
þeirra, sem hafa farið vestur um
haf, eru margir nýtir og góðir
drengir, sem íslandi væri upp-
bygging í að hafa, og ef það nö
orðið ýmsum af þeim, er bera
framtfðarhag íslands fyrir brjósti,
áhugamál, að f& eitthvað af þessu
fólki til að flytja heim aftur.
Reynslan hefir sýnt þeim, að þeir
menn, sem eftir nokkurra ára dvöl
1 Amerfku koma til íslands aftur,
koma með meira en það og það
mannsliðið; að þeir koma t. d.
með nýjar og betri vinnuaðferðir,
er þeir geta kennt mönnum, og &
þann hátt orðið landi og þjóð til
ómetanlegs gagns.
í stuttu máli er sfi breyting á
orðin, að f staðinn fyrir ríg þann
og misskilning, er átti sjer stað
milli Austur- og Vestur-íslend-
inga-, er nft kominn velvildar- og
bróður-hugur. í staðinn fyrir að
lfta mcð óvild og tortryggni á
vesturferðir og vesturfara, eru
Austur-fslendingar nú farnir að
hugsa um það, með skynsemi og
stillingu hvernig Austur og Vest-
ur-íslendingar mættu verða hvorir
öðrum sem mest til uppbyggingar;
hvernig hólzt mætti snúa vestur
ferðunum íslandi og fslendingum
til heilla.
Tvær eftirfarandi greinar, sem
komu út í "Lögrjettu", eru hjer
teknar upp til að sýna hve algjörð
ri breytingu hugsunarhálftur manna
& íslandi, gagnvart vesturferðum,
hefir tekið nú f seinni tíð. Fleiri
greinar, sama efnis, hafa birzt í
íslandsblöðunum, og lýsa þær
sama hugsunarhætti. Um það,
hve framkvæmanlegar sumar til-
lögurnar, sem koma fram f grein-
um þessum, eru, m& sj&lfsagt dcila;
en þær eru skrifaðar f rjettum
anda, og benda f rjetta átt. Þær
benda & þennan þrefalda
leika : að þeir Vestur-íslendingar,
sem heim kunna að flytja, eru Ifk-
legir til að verða íslandi til mikils
gagns; að flestir íslendingar
mundu heldur vilja búa & íslandi
en f öðrum löndum, ef Iffsskiiyrðin
& íslandi væru ekki miklum mun
verri en þau eru annarstaðar, og
að eina ráðið til að fá burtflutta ís-
lendinga til að flytja heim aftur, er
að leitast við að gjöra þeim mögu-
legt að lifa þar.
A. E. K,
Innflutningur
V estur-1 sl endinga.
%
Avalt heyra menn almenna um-
kvörtun yfir vinnufólkseklu hjer í
iandi, og er það óefað að utnkvört-
un sú erágóðum og gildum rökum
bygð. Það ér alls ekki ætlun mfn
með lfnum þessum, að útskýra
hversu miklu tjóni það veldur
landi og lýð, að hinar fáu atvinnu-
greinar, sem f landinu eru, verða
ekki reknar til fullra nota fyrir
vöntun á vinnandi fólki, en hitt er
áform mítt með lfnum þessum, að
vekja athygli skynbærra manna á
þvf, hvort ekki væri mögulegt að
hlynna að þvf, að fólk flytti inn í
landið, ekki útlendur ótrosalýður,
heldur okkar eigið fólk, sem flutt
hefir hjeðan vestur um haf. Það
er alls engum vafa undirorpið, að
margir íslendingar, sem nú dvelja
vestan hafs, óska sjer einskis fram-
ar en að vera komnir aftur heim
til ættjarðar sinnar, og hefi jeg
með höndum brjef frá mörgum
merkum mönnum og vönduðum,
sem nú búa í Amerfku, og lýsa
þau öll mikilli heimþrá. En um
leið má sjá það, að menn eru f vafa
um, hverju sje að að hverfa, og er
það að miklu leyti vor eigin sök,
sem búum kyrrir hjer heima.
Vjer höfum aldrei gjört okkur
verulegt far um að taka vel & móti
þeim fáu, sem korr.ið hafa hingað
heim frá Ameríku, og enda ekki
trútt um, að ferðamenn þaðan hafi
mætt andköldum getsökum um, að
þeir væru & mannaveiðum fyrir
Canadastjórn, og hefir þvf alla
jafna sá endir á orðið, að menn
þessir hafa leitað til Ameríku
aftur.
Jeg vil nú leyfa mjer að benda &,
hvort ekki sje gjörlegt, með til-
styrk þings og stjórnar, að stofna
öflugan fjelagsskap, sein ynni að
því, að n& þeim löndum vorum,
sem nú eru vestan hafs og löngun
hafa til að hverfa heim aftur, þann-
ig, að þeim yrði sýnd fullkomin
liðsemd hjer heima með atvinnu-
útvegun og fyrirgreiðslu um veru-
staði, og ábýli þeim, sem óskuðu
eftir að búa, og að öðru leyti bætt
úr brýnustu þörfum þeirra, þvf bú-
ast mætti við, að ekki mufidu allir
þeir, sem heim kæmu, hafa svo
fullar hendur fjár, að þeir gætu af
eigin ramleik uppfyllt þarfir þær,
sem búskapur og önnur sjálfs-
menska hafa í för með sjer.
Landar vorir vestan hafs verð-
sann- g^ui^a sannarlega af oss, sem hjer
erum heima, að vjer ekki að eins
bjóðum þá velkomna til ættjarðar-
innar, heldur einnig, að vjer sýn-
um það í verkinu, að þeir sjeu oss
kærkomnir, og fósturjörðin hefir
sannarlega þörf &, að fá aftur þau
börn sfn, scm hún hefir orðið á bak
að sjá. Jeg vil og leyfa mjer að
benda mönnum á, þótt þess ætti
vart að vera þörf, hversu Vestur-
íslenditigar hafa innilega tekiðþátt
f kjörum voruin hjer heima, með
því að senda stórgjafir hingað til
Ifknar þeim, sem sorgmæddir og
nauðstaddir hafa verið, og þykist
jeg þess fullviss, að þar hafi marg-
ur, ekki sfður en hjer, gefið af litl-
um efnum, en góðum vilja. Enn
fremur skal þess ekki látið ógetið,
að margur landínn kemur hjeðan
heiman að til Amerfku, inállaus og
fjelaus, og eru landar vorir í Amc-
ríku þckktir að þvf, að reynast
slfkum mönnum bjargvættir.
Vjer eigum alls ekki að láta það
viðgangast, að vjer seilumst eftir
ruslfólki frá öðrum löndum, en lát-
um aftur vora eigin Ianda vestan
hafs afskiftalausa, hversu innilega
sem þá kann að langa aftur heim
til ættjarðarinnar.
Jeg skal að svo komnu ekki fara
fleiri orðum um þetta mál, en vil
leyfa mjer að óska þess, að mjer
vitrari menn taki málefni þetta til
alvarlegrar íhugunar, jafnframt
þvf, að jeg geng að þvf vfsu, að
landstjórn og þing styðji að því
með ráðum og dáð, að íslendingar
þeir, sem löngun hafa til að flytja
heim aftur, geti haft að einhverju
að hverfa á föðurlandi sínu.
Ritað í júnímánuði 1907.
Bjarni Þorkelsson.
Fjelag gegn Vesturheims-
ferðum.
m
»11
G-IMl
Menn hafa á íslandi oft og ein-
att kvartað yfir Vesturheimsferð-
unum og skaða þeim, er af þeim
leiðir, Þarf ekki um það að f&st
hjer. En fnenn hefir greint tals-
vert & um ráð til að afstýra þeim.
Nú vill svo tii, að ýms önnur lönd
kvarta yfir þvf sama, og einkum
hefir Svfum staðið stuggur af hin-
um miklu Vesturheimsförum það-
an úr landi; kveður þar svo mikið
að þeim, að kunnugir segja, að
horfi til landauðnar f sumum sveit-
um. Nú hafa Svfar stofnað fjelag,
sem & að hafa það fyrir mark og
mið að berjast gegn útflutningi
fólks þaðan úr landi. Fjelagið
kallast ‘‘Nationalforeningen mot
emigrationen", og hefir deildir um
land allt. Tillag er að cins ein
króna áári, og er það gjört tilþess,
að allir geti verið með f þessu
þarfa^verki. hvað fátækir sem þeir
eru. Væri ekki hægt að gjöra
eitthvað lfkt á íslandi ? — Reyna
að koma upp fjelagi með öflugum
sjóð, og deildum eða erindrekum
um land allt. Svo þcgar frjettist,
að einhver bóndinn ætlar að taka
sig upp og fara til Vcsturheims,
— mætti þ& ekki reyna að hjálpa
honum til þess að ná betri lífskjör-
um heimaáFróni? Og einkum
ætti fjelagið að láta sjer annt um
að n& góðum íslendingum að vest-
an; þvf þaðan hafa ýmsir nýtir
menn komið aftur, menn sem hafa
getað kennt frá sjer ýmislegt, er
þeir hafa lært vestra og menn ekki
kunnað á Fróni.
Fjelagið ætti helzt að hafa deild
f Winnipeg, og má telja víst, að
ýmsir góðir landar vestan hafs yrðu
til að styrkja það, þvf ekki eru þeir
neinu bættari við það, að íslenzk
höfuðból leggist í eyði og fámenni
og fátækt breiðist út um sveitir á
hinni fornu ættjörðu þeirra.
Khöfn í júnf 1907.
S. Bl.
Komið til okkar þegarþjer þuríið að byggja.
Við höfum allar tegundir af yið til húsa-
bygginga, einnig
“LATHS“, HURDIR, GLUGGA, ÞAKSPON
0(J ‘PAPPJ.
Þjer sparið yður PENINGA með því að finna okkur, ef þ|éf
ÞURFIÐ AÐ BYGGJA.
Einnig seljum vjer HIN HEIMSFRÆGU
SHERWIN WILLIAMS MAL.
Tilbúin að eins ÚR HINUM BEZTU EFNUM.
He has outsoared the shadow
of our night;
Envy and calumny, and hate
and pain,
And that unrest which men
miscall delight,
Can touch him not, and torture
not again.
SlIELLEY.
SIGURD8S0K & THORYALDSON
GIMLI,-----MAN.
^C^C&C^t^t^C&C&C^C&C^C^C&C&JC&JC&JC&J#
8>
«
&
t§
T
L
rv jjijll
lllUil lu J
&
GIMLI. —------------ MAN.
Hefir ávalt 1 verzlun sinni birgðir
af eftirfylgjandi vörum:
8*
i>
ÁLNAVÖRU
BORÐDÚKA
SUMARHÚFUR
STÍF-SKYRTUR
NÆRFATNAÐ
BLANKETT
SKÓFATNAÐ
GROCERIES
PATENT-MEÐUL
GLERVÖRU
stundaKLUKKUR
LEIRVÖRU '
Þ
8*
Þ
«
C§
t§
«8
Ǥ
t§
c§
«
«
rS
Og margt, óteljandi margt fleira.
m m m
Ennfremur hinar alþekktu, ágætu
prjónavjelar.
m m m
Þessar vörur seljum við með eins tágu verði og hægt
er, gegn borgun út f hönd.
Komíö, sjáið og sannfærist.
Við óskum viðskifta, og munum þar af leiðandi reyna
að gjöra alla ánægða.
THE GPXTÆXjT
TXc.^A_I3IXsí G- C°.
G-IMLI.
8>
8>
p
Þ
8»
8>
Þ
í
8>
8»
8»
8>
Nor love thy life, nor hate; but
what thou liv’st, live well.
MlLTON.
TIL SOLU.
Undirritaður hefir til sölu bæjar-
lóðir víðsvegar um Gimlibæjar-
stæðið,
við bæinn
og sömuleiðis lönd í nánd
Upplýsingar viðvfkjandi verði
og skilmálum geta menn fengið
hjá mjer, brjeflega eða munnlega.
E. S. Jónasson.
P. O. Box 95.
Gimli,----Man.