Bóksalatíðindi - 16.03.1896, Side 3
3
J»ær, sem jeg hefi í umboðssölu frá útlendum
Lókaverzlunum. í öðrum flokki eru bækur,
sem jeg gef af að eins 25% sölulaun, og í
Jíriöja flokki bækur, sem aS vísu eru reiknuð-
af 25% sölulaun, en sem jeg gef auka-af-
slátt á, er nemur 8*/s%, hverjum þeim bók-
sala, er selur af þeim fyrir minnst 50 kr. á
ári, og færi jeg þenna auka-afslátt bóksalan-
um til góða við áramótin, þegar jeg gjöri
reikning hans upp, því að þá fyrst get jeg
sjeð, hverjum hann ber með rjettu.
Vandinn við reikningsfærslu mína er því
einungis fólginn í því fyrir bóksalann, að búa
bókaleifaskrána svo undir, að rjett sje út-
reiknuð, bækurnar í fyrsta flokki færðar út
að frádregnum 20%, en hinar að frádregn-
um 25% sölulaunum, alveg á sama háttj
eins og vitsendingaskrár mínar eru reiknaðar.
Þegar það er gjört, þá eru fyrst færðar í
reikninginn bókaleifar frá fyrra ári, síðan
meðteknar bækur á árinu eptir útsendinga-
skránum og þar á móti færast bókaleifar við
árslokin og endursendar bækur, ef nokkrar
eru, sem einnig reiknist með nettó verði; er
þá mismunurinn upphæð sú, sem bóksalinn á
að stánda skil á, ef honum ber enginn auka-
afsláttur á bókunum í þriðja flokki, samkvæmt
því, sem áður er fram tekið.
Þeir, sem þykir það hægra, geta líka sent
bókaleifaskrána óútreiknaða, að eins sett tölu
bókanna í dálkinn framan við bókanöfnin, og
verður þeim þá sent endurrit af skránni út-
reiknað með reikningi sínum hjeðan, svo þeir
geti sjálfir athugað eptir á, hvort rjett er
eða eigi.
Enn fremur bið jeg útsölumennina aö gefa
því gaum, að sumar bækur, sem jeg hefi í
bókaverzlun minni, læt jeg eigi öðruvísi úti
en í »fastan reikning«. Er það svo að skilja,
&ð þær bækur má ekki telja með bókaleifum
og ekki endurskila, heldur verða þær að
borgast með sömu skilyrðum og aðrar seldar
bækur, eptir að ársreikningur er upp gjörður.
Á útsendingaskrá minni hef jeg sjerstakan
dálk fyrir bækur þær, sem svo stendur á.
Meðal þeirra er Barnalærdómurinn og /rnsar
bækur, senr jeg hef kallað inn og lítið er
orðið til af. Ætla jeg að auglýsa þær síðar
hjer í blaðinu. Með pöntun á þeim bókum
verða bóksalar því að haga sjer eptir því, hve
góður markaður er fyrir þær kringum þá, eða
þá að eins panta það af þeim, sem þeir hafa
vissa kaupendur að.
I sambandi við þetta mál vil jeg leyfa
mjer að taka fram, að oss meðlimum Bók-
salafjelagsins er einkar-áríðandi, að fá bóka-
leifaskrárnar sendar útfylltar frá útsölumönn-
um með fyrstu póstferð eptir nýár ár
hvert, jafnvel þótt þeir meö þeim sama pósti
geti eigi sent reikningsskil. Margt af bókum
þeim, sem vjer höfum í bókaverzlunum vor-
um, eru umboðssölubækur, sem vjer verðum
að gjöra reikningsskil fyrir, er á að vera lok-
ið fyrir 1. marz ár hvert, en þaö er oss því
að eins hægt að gjöra, að bókaleifaskrárnar
sjeu þá komnar til vor frá öllum útsölumönn-
um fjelagsins.
Sigfús Eymundsson.
Bóksalafjelagið.
Meðlimir Bóksalafjeiagsins eru:
Sigfús Eymundsson, bóksali í Beykjavík,
formaður fjelagsins.
Björn Jónsson, ritstjóri, í Reykjavík.
Friðbjörn Steinsson, bóksali, á Akureyri.
Sigurður Kristjánsson, bóksali, í Reykjavík.
Útsölumenn fjelagsins á ídandi:
Ari Hálfdánarson, hreppstjóri í Fagurhólsraýri
í Oræfum.
Benedikt Jónsson í Þinganesi í Hornafirði.
Benjamín Jóhannesson, kennari, í Flatey
í Breiðafirði.
Bogi Sigurðsson, verzlunarstjóri, í Skarðstöð
í Dalasýslu.
Einar Brynjólfsson, bókbind., á Sóleyjarbakka
í Árnessýslu.
Einar Markússon, verzlunarstjóri, í Ólafsvík.
Eyólfur E. Wíum á Búðum í Fáskrúðsfirði.
Gísli Jónsson í Hjarðarholti í Dölum.
Guðmundur Guðmundsson, bókhaldari,
á Eyrarbakka.
Guðmundur Guðmundsson, prentari,
á Oddeyri.
Halldór Jónsson, umboðsmaður, í Vík
í Mýrdal.
Hallgr. Jónsson, hreppstjóri, á Akranesi.
Jónas Bjarnarson, prestur, í Sauðlauksdal.
Jón Ármann Jakobsson, verzlunarmaður,
á Húsavík.