Breiðablik - 01.08.1913, Blaðsíða 1

Breiðablik - 01.08.1913, Blaðsíða 1
BREIÐABLIK. MánaSarrit til stuSnings íslenzkri menning. FRIÐRIK J. BERGMANN RITSTJÓRI. VIII. ÁR. 'WINNIPEG, ÁGÚST 1913 Nr. 3. SJÁLFSTÆTT KANADA. íslendingadagsræða 2. ág. 1913, flutt í Wynyard, Sask. AÐ ætti að vera hverjum góðum manni eðlilegt og' sjálfsagt að hugsa um landiÖ, þar sem hann hefur tekið sér ból- festu, með hlýjum hug. Velferð þess er velferð sjálfs hans. Heiður þess og sómi er um leið heiður og sómi hans. Kanada er eitt af heitnsins yngstu lönd- um. Líkja mætti henni við eyju, sem nýlega hefir rekið koll úr hafi. Kanada er rétt ný farið að koma inn í mattnkyns- söguna. Kanada hefir verið hingað til nálega sögulaust land. Saga Kanada hefir að sönnu verið rituð og er lesin í skólunum. En heyrt hefi eg námsfólkið segja, að það sé leiðinlegasti og erfiðasti kafli mannkynssögunnar, sem það lærir. Þar sem lítið hefir gerst, verður að tína til smámuni til að fylla bókina, — smá- muni,sem erfitt er að festa í minni og illa gengur að láta grafast inn í hugann. Kanada hefir legið í þagnargildi. Það hefir bakast af sól og laugast af regni eins og slétturnar, sem hér hafa verið að byggjast síðast liðin tíu ár, eða skemur. En um leið og maður tekur sér bólfestu á einhverjum stað, myndast saga. Þó fyrsta býiið sé torfkofi, ofurlítill moldar- hóll, sem holur er að innan, myndast þar saga. Þar er maður að hugsa. Þar eru fy'rirtæki í byrjan. Þar er nýr sköpunar- máttur kominn til sögu. Þar hefst ný sköpunarsaga. Heimurinn sem er, fer smám saman að breytast í heim eins og hann á að vera. Lærðir menn þrefa um, hvort Kanada- menn eigi skilið að kallast þjóð. Og á því getur leikið nokkur vafi. Lengi var það álitið, að til þess að geta talist sér- stök þjóð, yrði íbúar landsins að tala sérstaka tungu. Og Kanadamenn eiga enga sérstaka tungu. Tungumálið, sem hér hefir orðið ofan á, er tungan hans Jóns Bola. Hana verður hver útlendmg- ur að keppast við að læra og neyðist til um leið oftast nær að hafa eigið móður- mál sitt útundan. Tungan hans Jóns Bola er tungumál brezku eyjanna. Hvernig getur hún gert Kanadamenn að þjóð? En þá renna menn augum suður yfir landamærin. Þar verða inenn varir við níutíu miljónir manna, sem mæla máli Jóns Bola og samt sem áður eru þjóð. Það dylst eng- um. Þeir hafa tekið af öll tvímæli. Bandamenn eru þjóð, — ein hin glæsileg- asta og fegursta söguþjóð, — þjóð í fararbroildi, — hugsjónaelsk þjóð, sem háð hefir hverja baráttuna á fætur ann- arri fyrir æðstu hngsjónir mannanna.

x

Breiðablik

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Breiðablik
https://timarit.is/publication/168

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.