Dagblaðið - 29.12.1914, Page 2
101
DAQBL.
51 tb.
43 foringja og liðlega 2500 fanga. Næsta dag eltu Rússsr
Austurríkismenn, sem hörfuðu undan, og tóku þá ennfremur 8
vjelbyssur og um 1000 fanga.
Hjá Duchla voru Austurríkismenn hraktir frá stöðvum sínum
og hörfa nú óðfluga undan. í síðustu orustunni í þessu hjer-
aði hafi Austurríkismenn beðið geysilegt tjón og skilið eftir
10,000 fanga í höndum Rússa.
Reniers-Bureau London.
London, 28 des. kl. 4,15 síðd.
4. skip hafa farist í Norðursjónum, 1 þeirra var norskt, 1
hollenskt en 2 voru bresk; Höfðu þau rekist á tundurdufl, sem
Þjóðverjar stráðu út, er þeir rjeðust á Scarborough. Fjöldi manna
fórust.
Austurríkismenn hafa aftur beðið ósigur í Galizíu og mist
3500 menn og 18 hríðbyssur.
Eftir JVlorgunblaöinu í Reykjavík
TÖULTT
Stúkurnar Isafold-Fjallkon n nr. 1 og Brynja nr. 99 halda
sameiginlegan fund í stóra s 1 Goodtempláráhússins 1. jan. 1915
kl. 6 e. h. Þetta tilkynnist hje með fjrelögum beggja stúknanna.
Bréf
til Bessa í Básum.
iii.
Einhver munur er á stjórnmálamönminum
hjer eða í Básasveitinni, það er eilthvað
meiri mannsbragur á mönnum hjer. Jeg
hefi nú altaf verið »neutraU í pólitíkinni,
eins og þú veist, en af því þú ert áhuga-
samur, gamall heimastjórnarmaður, þá hefi
jeg gaman af að segja þjer af bardagaað-
ferðum og róksemdum flokksbræðra þinna
hjerna á Akureyri, svona þjer til leiðbein-
ingar og eftirbreytni. Hjer eru tvö stjórn-
málablöð, hvort öðru betra og fjölbreytt-
ara. Heitir annað Norðri og hitt Norður-
land. Þau eru bæði af sama flokki og eins
og bæta hvort annað upp. Ritstjórarnir eru
nefnilega báðir hæfileikamenn, cn hver upp
á sinn hátt. Ritstjórí Norðra getur skrifað
vel, en nennir því ekki, en ritstjóri Norð-
urlands aftur á móti nennir vel að skrifa,
en getur það ekki, svo þú sjerð, að það
er einmitt einkar hentugt, að hafa blöðin
svona tvö saman, því að þegar þau jafna
þannig hvort annað upp, þá veröur aðal-
útkoman upp á það ákjósanlegasta.
Nú síðan heyrðist að kóngurinn vildi
ekki samþykkja stjórnarskrána og væri jafn
vel tregur með fánann líka, hefir birst hver
greinin annari betri hjerna í blöðunum.
Þáð getur engínn lesið þær greinar ógrát
andi, svo átakanlega er lýst þessum sorg-
aratburðum. Sá sem skrifar í Norðra heit-
ir J. J. H.. en í Norðurland skrifar ritstjór
inn sjáltur.
í þessum greinum er bent á hvílík ó-
hamingja nú dynur yfir þetta land. Kven-
fólkið verður enn um fleirí ár að stynja
undir þrældómsokinu, undirokað, kúgað,
þrælkað, eins og það hefir verið undan
farið. Það verður enn þá ef til vill um
niargra ára bil svift hinum helgustu mann.
rjettindum hvers manris, þeim rjettindum,
að mega kjósa til alþingis og láta »agitera«
í sjer fyrir kosningar.
E'ia þá æskulýðurinn; hann fær ekki að
njóta sín, úr því að stjórnarskráin varð
ekki samþykt. Eða þetta segir J.J. H., svo
að það hlýtur að vera rjett. Reyndar skil
jeg ekki við hvaða æskulýð hann á, því
að kosningarrjettur er þó bundinn við 25
ár í stjórnarskrárfrumvarpinu, alveg eins
og nú er.
Ellegar þeir konungkjörnu, hve lengi
þessir . . . að sitja á þingi, landi og þjóð
til niðurdreps, þessir fuglar, sem urða í
urð ósjálfstæðis og fyrirlitlegs Dana sleikju-
skaps öll sjálfstæðismál þjóðarinnar. Við
þekkjum þessa peia, því einn þeirra er
hjer á Akureyri, og margir vonuðu að
hann yrði ekki landskjörinn ef stjórnarskrá-
in hefði orðið samþykt og annar er hjer
í nágrenninu. Reyndar má nú búast við
að margir þessir sömu skollar hefðu orðíð
landskjörnir en þú sjerð náttúrlega að það
væri munur. Þeir hefðu komið betur fram
sem slíkir. Jeg skil reyndar ekki í hverju
þetta liggur, en þetta er alment viðurkent
og veit hver maður.
Öllu þessu lýsir J. J. H. hreint aðdáan
lega. En hvað er það hjá stærsta óláninu,
og því lýsir hann best. Það er íslenski
fáninn, sem við verðum nú að sjá á bak
fyrst um sinn. Hann lýsir hinni lofsverðu
baráttu Hannesar Hafstein fyrir því að
útrýma Dannebrog hjeðan og útvega land-
inu sjerstakan fána. Hvílík hrygð hlýtur
nú að búa í brjóstum allra sannra föður-
landsvina, og Hannesar Hafsteins ekki síst,
að verða nú enn að horfa upp á Danne-
brog blakta við hún bæði á landi og við
strendur landsins? Sút flaug í brjóstið, eins
má hjer um segja.
Þetta er nú mest í J. J. H. grei»inni. En
Norðurlandsgreinin er svoria meira almenn.
Það er hrópandans rödd sem hrópar »Vei
þeim sem hneykslunum veldurt. Æskan
og kveufólkið hrópar, »vei þeim sem,
leiðir slíkar hörmungar yfir þjððina*. Hann
á líklega við konunginn.
Þungt er þetta alt. En við hverju er að
búast, eins og þegar til ráðherra er valinn
sýslumaður úr fámennu hjeraði í sveit.
Þetta bendir J. J. H. líka á. Hvaða'undir-
búning hafa slíkir t. d. í samanburði
við þá, sem settir hafa verið til þess að
þjóna umfangsmiklu embætti í kaupstað.
Það gefur að skilja að slíkir menn væru
færari til þess að koma ár sinni fyrir borð
við konung.
Simon.
Oaman og alvara.
Maður nokkur amerískur, varð ósáttur
við prestinn sinn og voru þeir engir vinir
mörg ár. En þegar hann fann að dauðinn
nálgaðist gerði hann boð dftir prestinuin
og bað hann að finna sig. Prestur skund-
aði strax af stað í þeirri von að hinn
deyjandi maður vildi sættast við sig,
Þegar haun kom aö sóttarsænginni sagði
sjúklingurinn af veikum mætti: »Jeg á
að eins eftir nokkrar klukkustundir og
Ijet sækja yður — ljet sækja yður til þess
að láta yður vita — að láta yður vita, að
þetta er síðasta tækifærið til þess — til
þess að biðja mig fyrirgefningar.«
í samkvæmi var einu sinni mikið talað
um tóbaksreýkingar og hávaðinn af kven-
þjóðinni sem þar var, var á sama máli
utn það, að reykitigar styttu mönnum
aldur.
»Nei, það er ómögulegt« sagði einn karl-
mannanna. »Til dæmis er hann gamli
Jörgen, föðurbróðir minn, mjög hraustur
og er hann bráðum 70 ára gamall, en
pípan lians er aldrei köld allan daginn*.
»Það sannar ekkert« svaraði ein kvenn-
anna. »Ef hann hefði ekki reykt, væri hann
ef til vill 80 ára nú.«
Ur bœnum og grendinni.
Annaðkvöld ætlar »UngmennafjelaS
Mörðuvallasóknar* (forniaður Einar óujf'
ormsson á Ósi) að leika tvo smáleikj 1
nýja þinghúsinu. Heita leikirnir „Happlö«
og „Tveir heyrnarlausir".