Dagblaðið - 08.02.1915, Blaðsíða 2
172
DAOBL.
86. tbl.
Búist er við, að vátryggingargjöld
muni nú hœkka að mun vegna sigl-
ingabannsins.
Stórt skip kom í morgun fermt
salti.
Botnvörpungarnir afla ágætlega.
Kveðja.
A einum kransinum, sem var lagð-
ur á kistu frú Margrjetar sál. Valde-
marsdóttur var eftirfarandi kveðja frá
hinni háöldruðu ömmu hinnar látnu:
Hálf tíræð amma
upp til hæða bendir
á eftir þjer
og fölvan krans á kistu
þína sendir
og kveðju ber.
Kveðjan er stutt,
en stutt er líka stundin,
er stari jeg mót,
af miskunn Guðs þá
muni verða fundin
öll meinabót.
Því hlaustu, barn, að
Ijúka lífi og deyja, —
og lifði’ jeg enn?
En þó mitt kvöld sje kalt
og langt að þreyja,
% þá kem jeg senn.
Stúlka
getur fengið vist í góðu húsi hjer f
bæ. — Ritstjóri vísar á.
Lög íslands
öll þau er nú gilda
safnað hefir Einar Arnórsson
koma út í 12 — 15 heftum á kr.
1.25 (en að eins 75 aur. fyrir áskrif-
endur).
Nytsamasta bókin sem út hef-
ir komið á íslenzku í langa tíð.
Hver fulltíða maður þarf að
eiffa hana.
Móti áskriftum tekur Sig. Sigurðs-
son bóksali. Sýnishorn liggjaframmi
hjá honum.
Peir sem segja til sín fyrir 9.
febr., fá bókina á mjög góðum
pappír.
y\UGLYSING.
Verðlagsnefndin hefir breytt hámarki útsöluverðs
fyrir Akureyri á eftirtöldum vörutegundum sem
hjer segir:
Bankabygg 50 aura kílógrammið.
Hveiti 40 —--------
Petta birtist hjer með.
Skrifstofa Eyjafjarðarsýslu og Akureyrar 6. febrúar 1915.
9áll Cinarsson.
Hinir viðurkendu, ágætu, endurbættu
„Danu-motorar
af öllum stærðum, fást með Iangbestum kjörum,
ef þjer snúið yður til verslunarstjóra Hallgríms
Davíðssonar á Akureyri.
Jqi ði œh tarfjelagið
a Akuieyii
heldur fund þriðjudaginn 9. þ. m. kl. 5 slðdegis í veitingasal Sig. Fanndals.
Fundarefni:
1. Nýir fjelagsmenn teknir inn.
2. Landsjóðsstyrkurinn.
3. Erindi Ræktunarfjelags Norðurlands um kvikfjárræktarniálið
STJÓRNIN.
Úr þýskum blöðum.
Hamburger Fremdenblatt 20/i2 1914
getur þess að Frakkar hafi vegna her-
foringjaskorts gjört nokkra Annamsbúa
að herforingjum í franska hernum og
nefnir sjerstaklega Annamsbúann Do-
Hun-Chan, sem sje óberst-lautinant og
ráði fyrir hersveit hvítra manna.
Rykir blaðinu það nokkuð langt
farið að setja Asfu-mann til að stjórna
Evrópubúum.
Ágœt
sœt saft
fæst hjá
Eggert Einarssyni.