Dagsbrún - 20.10.1916, Blaðsíða 4
124
DAGSBRÚN
Sameinaðir stöndum vér, —
sundraðir föllum vér.
Nógu lengi höfum við verka-
menn og sjómenn þjónað stór-
borgurum þessa bæjar og látið
þá snúa okkur í kringum sig
eins og þeim hefir bezt líkað.
Pólitískur krabbagangur hefir
það verið, sem þeir hafa þramm-
að höfðingjarnir. Mörgu fögru
hafa þeir lofað, en flest hafa
þeir svikið. Sníkja sér út at-
kvæði, það hafa þeir kunnað,
en að gera nokkuð fyrir okkur,
það hafa þeir ekki kunnað. —
En af hverju hafa þeir farið
þannig með okkur? Af því að
við höfum ekki haft samtök um
að setja fram kröfur okkar og
ekki haft áræði til að lefla fram
okkar mönnum. En nú er úr
þessu hvorutveggju bætt. Al-
þýðufélögin hafa sett fram sína
stefnuskrá, og þeir menn, sem
félögin ætla nú að senda á þing,
eru úr okkar félagsskap. Og
eftir þeirri rejmslu, sem við
höfum af þessum mönnum, ber-
um við fult traust til þeirra og
vitum, að þeir þekkja betur kjör
okkar en þeir háu embættis-
menn, sem heimastjórnarflokk-
urinn teflir fram eða »miljóner-
arnir« ísafoldarliðsins, sem
mér vitanlega því siður hafa
gert neitt til að styrkja samtök
verkalýðsins. n.
Lygí eða misskilningur
er það hjá »Lögréttu« að Sveini
Björnssyni og Magnúsi Blöndahl
hafi verið boðið á fund Alþýðu-
flokksins en ekki þingmanna-
efnum Heimastjórnarmanna. Á
fundinum sem ísafoldarliðið boð-
aði til í Bárubúð, lýsti Ó. F.
því yfir að frambjóðendum væri
velkomið að koma á fund Al-
þýðuflokksins daginn eftir, enda
var öllum hleypt þar inn með-
an rúm leyfði, án tillits til skoð-
ana. Að Jón Magnússon og
Knud Zimsen ekki komu, hefur
því vafalaust verið af því að
þeir treystu sér ekki.
★ ★
¥
ísafold segir að Sveinn Bj.
hafi á fundi bent Ól. Fr. á, að
ef ekki hefði verið samið við
Breta, hefði alþýðan hér í Rvík
orðið atvinnulaus. En hefir
nokkur fundið að því að samið
var? N<d, heldur að því hve illa
var samið. Hvers vegna fengu
íslendingar 15 kr. minna fyrir
síldartunnuna en Norðmenn?
Hvers vegna? Vill nokkur segja
að Englendingar séu illviljaðri
okkur en Norðmönnum? Nei,
svarið er og verður: það var
illa samið, sumpart af því að
það var ílaustrað að því, sum-
part af því Sveinn Bjórns,son
hafði ekki næga þekkingu á
. .
Kannske ísaf. vilji segja að
atvinnan hafi orðið betri. hér í
Reykjavík af því við fengum
ekki nema 45 kr. fyrir síldar-
tunnuna í stað 60?
Alþýðumaður.
Magnús Blöndahl spurði að
því á fundi, hvað væri að vera
alþýðumaður, ef hann væri
það ekki. Sagðist kunna tré-
smíði, og áleit það fullgilda
sönnun fyrir því, að hann væri
alþýðumaður. En auðvitað er
það hvorki sönnun né hitt. —
Nikulás Rússakeisa.ri kann líka
trésmíði, og gæti víst boðið
Blöndahl út í það að hefla, en
líklegast kallar enginn hann
þó alþýðumann.
Alþýðumaður er aðallega sá,
sem lifir við sömu kjör og al-
þýðan, þ. e. við erviða líkams-
vinnu og fremur rýrar tekjur.
Hitt kemur málinu minna við
af hvaða bergi maðurinn er
brotinn, og embættismaðurinn,
lögmaðurinn, togaraeigandinn
o. s. frv. er ekki alþýðumaður
þó hann sé af alþýðufólki kom-
inn (en hér er ekki verið að
segja að hann geti ekki verið
nógu góður maður þó hann
sé ekki alþýðumaður).
Svívirðingar.
Auðsjáanlega halda sumir mót-
stöðumennirnir, að mest vinnist
með því að svívirða frambjóð-
endur Alþýðuflokksins. Þannig
gengur Ólafur Björnsson, sem
ekki hefir erft annað af gáfum
föður síns en fúkyrðin, svo
langt að hann kallar í síðustu
ísafold annan frambjóðanda Al-
þýðuflokksins (Jörund) garm.
Frámunalega má hann vera
gáfaður (eða hitt) herra Ó. B.
að halda, að hann afli Sveini
bróður sínum fylgi meðal verka-
manna með því að svívirða
þann mann, sem þeir hafa heiðr-
að með því að gera að for-
manni í félagsskap sínum og á
morgun gera að alþingismanni.
Himinn og jörð.
Fornar sœvarmenjar.
f-land hefir nær alt myndast af eld-
fjosum, þannig að hvert hraunlagið
hefir hlaðist ofan á annað. Einu sinni
fyrir mörgum miljónum ara var ísland
partur af stóru landi, sem tengdi
saman hið núverandi meginland Norð-
ur-Evrópu ou Ameríku. Seinna sökk
meginhluti af þessu landi í sjó, ekki
alt í einu, heldur seig það smatt og
smátt, og er nú alt að þúsund faðma
dýpi þar sem aður var land. ísland
var eitt sinn, eftir að það varð eyja,
mikið stærra en þ*ð er nú, og stóð
allur hinn svo nefndi grunnsævispallur
sem er kringum landið, þá upp úr
sjónum. 1
Fyrir þá, sem kynnu að vera hræddir
um, að Iandið sé altaf að slga, er gott
að fa að vita, að það er ýmist, að
landið sígur eða að því skýtur upp,
og fylgjast ekki allir hlutar þess að.
Þannig er landið að hækka nú við
Breiðafjörð, en að þvf er virðist að
lækka við Faxaflóa sunnanverðan.
Sjórinn flóði eitt sinn yfir alt það,
sem nú er Suðurláglendið; gekk þar
þá mikill flói inn í landið og voru 1
honurú margar háar eyjar (Hestfjall,
Vörðutefl, Skarðsfjall o. s. frv.).
Við Keykjavfk má sjá miklar sævar-
menjar. Holtið við Skólavörðuna, sem
verið er að aka í uppfyllinguna við
höfnina, er gamalt malarrif og má
þaðan greinilega sjá hið forna sjáv-
armál í Öskjuhliðinni.sem var eyja,
þegar malarrifið myndaðist.
í sumar veitti dr. Helgi Péturss eft-
irtekt fornri strandlínu er liggur
hærra, en menn hafa áður tekið eftir,
eða um ioo metra yfir núverandi
sjávarmál. Stendur fjöldi afefstu'bæj-
unum í Tungum og Hreppum i þess-
ari gömlu fjöru (en fyrir neðan bæina
er hinn forni marbakki).
Alþýðumenn.
Á morgun kemur á alþýðu
þessa bæjar að ganga sem sér-
stakur flokkur til að kjósa þing-
menn fyrir kjördæmið. Á því
hvernig þessi kosning fer, má
mikið marka, á hvaða þroskastigi
alþýðan stendur og hvaða fram-
tíð hún á fyrir höndum. Vinn-
um við sigur við kosningarnar,
þá getum við verið vongóðir að
við verðurn ofan á í baráttu
þeirri, sem engum heilskygnum
manni dylst, að er fyrir hönd-
um á milli auðvalds og örbyrgð-
ar. Miljónamenn eru að rísa
upp á meðal vor, og þegar þeir
sameinast og beita valdi sínu
gegn oss, sem nú þegar er farið
að brydda á, er stór hætta á
ferðum. En ef við stöndum alls-
staðar sameinaðir er hættan
ekki mikil, en séum við sundr-
aðir, er glötun vís. Hver verka-
maður og hver sjómaður sem
gefur þingmannaefnum höfðingj-
anna atkvæði sitt, svíkur sjálf-
an sig og félaga sína og hjálp-
ar til að snúa snörunni um sinn
eigin háls. ,Sá sem lætur vera
að kjósa er ekki betri.
Gamli.
Eftirskrift.
Haft er eftir einum uppskafn-
ingnum að þeir Jörundur og
Porvarður séu ekki nógu fínir
til að kjósast á þing.
Alþingiskosningarnar
Verkamannafélögin, háseta-
félögin og öll alþýða heíur tals-
vert að hugsa, þegar velja á
íulltrúa á þing. Málefni okkar
er ungt, eða með öðrum orð-
um, það er stutt síðan við
vöknuðum til meðvitundar um
að við þurfum að vernda það,
og reyna að koma hugsjónum
okkar í framkvæmd. Sömuleiðis
við allar opinberar kosningar
að styðja þá menn, sem okkur
tilheyra, og ef enginn okkar
manna skyldi vera í kjöri, þá
að kjósa þá eða þann, sem við
getum vonast eftir að verði
okkur og málefnum okkar helst
hlyntir.
Nú er stutt þangað til að við
eigum að sýna það. Þegar við
kjósum okkur þingmenn, eigum
við ekki að taka mark á þvi,
sem þingmannsefnin lofa, né á
því hrósi sem þeir hlaða á
sjálfa sig til að gylla sig í aug-
um okkar, áður en við kjósum
þá á þing. Heldur eigum við
að athuga, hvernig þeir áður
hafa reynst okkur.
Við erum ágætir meðan á
því stendur að þessir herrar
þurfa okkar með, en
þar á eftir verðum við lýs á
þjóðlíkamanum og sauðsvartur
almúgi, algerlega gagnslausir
eftir 21. þ. mán. Skemtilegast
væri að við gætum kosið mann
úr okkar kjördæmi; við eigum
líka kost á því við þessar kosn-
ingar þar sem Einar Þorgilsson
nú gefur okkur kost á að fá
sig fyrir þingmann.
Því miður hefur þessi maður
ekki verið félagsskap okkar
hlyntur frá byrjun, en þvert á
móti, hann hefur barist móti
líkum félagsskap, og það var
eftirtektarvert þegar liásetafé-
lagið var stofnað í fyrra haust,
að aðeins einn maður af þvi
skipi sem hann á og gerir út,
gekk í félagið, þó að aldrei
haíi jafn sterk samheldni sýnt
sig meðal sjómanna.eins og þeg-
ar þetta félag var stofnað, og ég
efast ekki um og veit, að þeir
sjómenn, sem á þvi skipi voru,
eru félaginu jafn hlyntir og þeir,
sem í félaginu eru, en samt
ganga þeir ekki í það. Hvað
veldur, hver heldur? Það var
líka eftirtektavert fyrir okkur,
að Einar var altaf mesti and-
vigismaður verkamannafélags-
ins hér í plássinu, og ekkert af
þvi fólki, sem hjá honum vann,
gekk í það.
I þá daga var ekki eins gott
með vinnu og nú er, svo því
var það hentast. En svo kom
fyrir, að Einar vildi kaupa
fiskireit, sem verkamannafélag-
ið átti, sem átti að seljast ódýrt,
en á fundi félagsins, þegar átti
að greiða atkvæði um hvort
hann fengi kauprétt á nefnd-
um fiskireit, kom verkfólk hans
í hópum og gekk í félagið, en
eftir að honum var synjað um
kaupin, sást það sjaldnar.
Eg er húsbóndi á minu heim-
ili, sagði Jón hreppstjóri.
Við verkamenn þurfum eng-
an húsbónda, og við megum
ekki kjósa andstæðinga okkar
á þing, þó þeir svo þykist
verkamanna-félagsmenn til 21.
október.
Verkamaður i Hafnarfirði.
Xlxðaverzlun
og
saumastoja
Guðm. Sigurðssonar
Laugaveg 10
selur ódýrt f ataefiii
ekta litir. Fljót af-
greiðsla — Vönduð
vinna. Ný fataefni
með hverju skipi, Sparið
peninga.
Prentsmiðjan Gutenberg.