Dagsbrún - 20.10.1916, Qupperneq 2
126
DAGSBRÚN
X
NATHAN & OLSEN
hafa á lager:
Rúg1, Rúgmjöl, Maismjöl, Riis,
Hálfbaunir, Flórmjöl, 2 teg., Hveiti, 2 teg.
Kaífi, brent og óbrent, Kakaó, í 5 kg. pökkum
é
Niðursoðið KinHalijöt og Niðursoðnar IPerui*
Kex, sætt og ósætt í tunnum, Smákex, í kössum
TVI arsmaimsvindla, og- íieiri 1 eg'undir
Special Sunripe Cigarettur
og Fxtra F'lalce, Rjól og Rullu, Br. Br.
©
Ofnsvertu, Skósvertu, Gerpúlver
m
Ofnbursta, Skóbursta, Handbursta,
Fatabursta, Spegla,
Pvottaklemmur, með fjöðrum og án
Herðatré
Seglgarn, lcerti, spil
©
Póstpappfr, Vasabækar
Handsápur
0
Enskar lniíur, ^kinnliúíur, Loðhúfur
m
Vinnujakkar og blússur, bláar,
Drengjafatnað, Tfdpukjöla,
Nærfatnað allskonar,
Vetlinga, Sokka, Milliskyrtur
Alnavörur, margar tegundir
Hessian, Girðingastaura, Pakpappa,
Slcilvinílui*, Pakjárn
Myndagátur.
Ein eftir Ríkarð.
Laust og fast.
Yélbátnr strandar.
Vélb. Baldur strandaði um helgina
við Garðskaga, og er sagður mjög
skemdur. Hann er ro smálesta.
Kvæði Bólu-Hjálmars
útg. H. H. voru seld á bókauppboði
í fyrri viku á 12 kr. og 50 aura. Leví
keypti.
í Stálfjalli
eru þrjár kolanámur og hefir Guð-
mundur kolakeisari látið þær heita
eftir þessum þremur ráðherrum :
Einari Arnórssyni, Hannesi Haf-
stein og Birni Jónssyni.
Halda sumir að hann hafi gert það
af því, að hann hafi álitið, að mikill
hiti hafi verið (eða væri) í þessum
mönnum, og námurnar mundu því
reynast vel með þessum nöfnum.
Aðrir, sera mikla trú hafa á nöfnum,
spá illu fyrir þessu tiltæki kolakeisar-
ans og álíta, að það sé því að kenna,
að námurnar reynast svona kolalitlar
þ. e. innantómar.
Fylklr
heitir 2—3 arka rit „um atvinnuvegi,
verzlun og réttarfar", sem Frímann
B. Arngrímsson á Akureyri er farinn
að gefa út, og á að koma annan
hvern mánuð. í þessu fyrsta hefti eru
þessar greinar: Til almennings. Hring-
sjá. Aflið í grend við Akureyri. Upp-
fræðsla og agi. Réttur og réttarfar.
Ófriðurinn mikli. Rentulögin, o. fl.
Verð þessa heftis 1 kr.
Marz.
Togarinn „Marz“ fiskar eins og í
fyrra hér í flóanum og selur bænum
allan aflann. Síðustu daga hefir hann
fengið meira en selst hefir til bæjar-
manna, enda stendur sláturtíðin enn
þá yfir.
Einar Jochumsson
trúboðinn gamli, hefir af fátækt sinni
gefið ekkju með 6 börn, er nýlega
misti mann sinn, 50 kr., og ætlar að
gefa Samverjanum 200 kr. Þetta
mundi svara til þess, að þeir gæíu
sínar 50 þús. kr. hver, Zimsen, Elías
og Thor Jensen.
Af Blöndnósi er skriíað:
»Þó seint voraði hér og snjóa leysti
seint, var tíðin svo hagstæð stöðugt í
tvo mánuði, sem bezt má verða fyrir
allan gróður. Grasvöxtur varð mikill
bæði á túnum og úthaga, og þó að
nokkuð rigndi með köflum, voru þurk-
dagar á milli svo öll hey hafa verk-
ast heldur vel yfirleitt í allri sýslunni«.
Blóðeitrun.
Maður að nafni Hildibrandur Kol-
beinsson dó nýlega hér í Rvlk af
blóðeitrun. Hann var að vinna að
slátrun, en skar sig í fingur og hljóp
blóðeitrun í sárið.
Galdra-Loftnr.
2. þáttur Galdra-Lofts var leikinn í
haust á Akureyri. Jónas Þórarinsson
lék Loft, Gísli Magnússon ráðsmann-
inn, Magnúsína Kristinsdóttir Dísu,
en Ólaf lék Óskar Borgþórsson úr
Rvík.
Tónskáldið Sigvaldi Kaldalóns
læknir af Vestfjörðum hefir dvalið
um hrlð hér í Rvík, en er nú farinn
vestur aftur. Eggert Stefánsson söngv-
ari er bróðir hans.
Þjófnaður
var framinn á Siglufirði í septem-
berlok. Var mölvað upp kofort og
stolið 250 kr. í seðlum frá pilti er
Árni hét, Ólafsson, og ætlaði að stunda
nám í vetur við gagnfræðaskólann á
Akureyri.
»Stella« hertekinl
Blaðið »íslendingr« flytur þá frétt,
að mótorskipið „Stella«, eign Snorra
Jónssonar á Akureyri, sem hafi verið
á leið til Svíþjóðar með síld (átti að
koma við í Lerwich), muni hafa verið
tekið af Englendingum. Skipið hafði
meðferðis á þilfari 50 tn. af steinolíu,
sem áttu að fara til Norðfjarðar.
Þangað ætlaði einnig Björn Guð-
mundsson kaupm. úr Rvík, sem var
farþegi á skipinu.
Það scni fólkid vill iesa.
Trúlofuð: Kristín Jónsdóttir list-
málari frá Arnarnesi og Valtýr Stef--
ánsson landbúnaðarkandídat.
Höfnðstaðnrlnn
heitir nýtt dagblað sem farið er að
koma út hér í Rvík. Ritstjórar Þor-
kell Clementz og Jakob Thorarensen
skáld. Utg. Clementz.
Enu citt
nýtt dagblað er sagt að Guðbrand-
ur Jónsson fyrv. skjalaritari ætli að
fara að gefa út. Verða þá blöðin hér
í Rvík, sem koma út daglega, /l'ögur.
Knnni ekki að synda.
Níu ára gamall drengur datt út úr
bát við brimbrjótinn í Bolungarvík
og druknaði (eftir Vestra).
Guðm. frá Mosdal.
Guðm. Jónsson frá Mosdal, útskurð-
armaður, er nú se2tur að sem út-
skurðarmaður á ísafirði. Vonandi hafa
Isfirðingar vit á að leita til hans til
þess að fá sér eitthvað fallegt.
Heysknpur
við Isafjarðardjúp er sagður í með-
allagi, en í löku meðallagi í Barða-
strandarsýslu og Dalasýslu. Hér sunn- .
anlands hefir hann verið afleitur, en
ágætur norðan lands og austan.
Borgað 2 árg. fyrirfram með 5 kr.:
Bjarni Árnason, Holtsgötu 7.
Xlxðaverzlutt
og
saumastoja
Guðm. Sigurðssonar
Laugaveg 10
selur ódýrt íntacíni
ekta litir. JF'ljót »f-
"■reiösla — Vönduð
vinna. Ný fataefni
með hverju skipi, Sparið
peninga.
Jrúkaðar námsbxkur,
innlendar og erlendar sögu- og
fræðibækur, fást mjög ódýrar í
Bókabúðinni á Laugavegi 4.
Gamlar bækur teknar til útsölu.
Prentsmiöjan Gutenberg.