Dagsbrún - 22.12.1916, Page 1
r------------■"
í FREMJIÐ EKKI
í RANQINDI
DAGSBRÚN
BLAÐ JAFNAÐARMANNA
GEFIN ÖT MEÐ STYRK NOKKtJRBA IÐNAÐAR- OG VERKMANNAFÉLAGA
RITSTJÓRI OG ÁRYRGÐARMAÐCR: ÓLAFCR FRIÐRIKSSON
45. tbl. Reykjavik, föstudaginn 22 desember 1916.
Einkaverzlun á tóbaki.
Alþýðuflokkurinn hefirafnám
aðflutningstollanna á stefnuskrá
sinni, af því aðflutningstollar
eru afaróréttlátt skattafyrir-
komulag, og auk þess óhag-
kvœmt. í þeim löndum, sem
landseinkasala á lóbaki hefir
verið lögleidd — en það
er meðal annars í Frakklandi,
Austurríki, Ungverjalandi, Jap-
an, Ítalíu, Spáni, Portúgal, Rú-
meníu, Serbíu, Perú og Svíþjóð
— þykir landseinkasalan miklu
heppilegra fyrirkomulag bæði
fyrir ríkið og einstaklingana
heldur en tolla-fyrírkomulagið.
Bismark lagði á sínum tíma
írumvarp um einkasölu á tó-
baki fyrir þýska þingið, en
kom því eigi í gegn. í Eng-
landi heyrðist þegar fyrir stríðið
háværar raddir um, að rikið
ætti að taka að sér einkasölu
á tóbaki, og mun komast á
þar strax að stríðinu loknu, ef
ekki fyr.
í sumum af þessum löndum,
sem nefnd voru — einkum þau
sem síður eru mentalönd yfir-
leitt, t. d. Spánn, Portúgal og
Serbía — er einkasalan leigð
einstökum félögum, en það
hefir yfirleitt gefist langtum
ver en að landið ræki sjálft
verzlunina.
Ýms lönd, sem í fyrstu leigðu
félögum einkaréttinn, hafa því
hætt því og rekið verzlunina
sjálf, t. d. Ítalía, sem árið 1883
keypti allar eigur félags þess,
er áður hafði haft verzlunar-
réttinn, og hefur rikið sjálft
síðan rekið verzlunina og með
þeim árangri, að tekjur' þess
af henni eru nú árlega 220
milj. líra, en það er helmingi
meira en tekjur ríkisins með-
an það Ieigði verzlunarréttinn.
Árið 1810 gerði Frakkland
upptækar tóbaksbirgðir og tó-
baksverksmiðjur og borgaði
eigendunum (eftir mati) 60
milj. frc. fyrir birgðirnar, en
10 milj. fyrir verksmiðjurnar.
Hefir landið síðan rekið tóbaks-
einkaverzlun og framleiðslu.
^úbaksrækt er leyfð, en skyld-
ugt að selja ríkinu.
Allur gróði franska rikisins
þessu er 500 milj. franka
arlega; hreinn gróði 400 milj.
árlega.
í Auslurríki er hreinn gróði
*'ílnsins árlega 200 milj. aust-
urrískra kr„ og í Japan, sem
árið 1898 lögleiddi landseinka-
yerzlun á tóbaksblöðum og 6
árum síðar á öllu tóbaki (og
framl.) er tíundi hluti ríkis-
Nathan & Olsen
hafa á lager:
•Jólalierti.
Barna^pil.
Ijeikföng.
Olioeoladle suðn- ogr íit.
Confect.
Hnetixr margar teg.
A yextl niðurioðna og þurkaða.
Sardínur.
Vindla. Cigarettur.
o. m. fl.
Karlm stigvél frá kr. 9.98 5°|o afsláttur Kveninniskór frá kr. 1,90
til jóln! til jóla! til jóln!
Sköfatnaður
5°k afslátt
gefa dnbuseiis-íln'siedur af skófatnaði til jóla
til þess að rýma fyrir nýjum vörum
sem koma með s.s. GULLFOSSI.
Komið fljótt, meðan nógu er tir að velja.
Simi 39. @lausansBrώur. Hoiel Islnnd
tekjanna gróði af verzlun þess-
ari, auk þess sem afleiðing
hennar hefir orðið sú, að var-
an hefir batnað mikið, fram-
leiðsla og útflutningur stórum
aukist. ■,
Rúmenía hefir sett tóbaks-
einkaverzlun sína (sem landið
rekur sjálft nema á vindlinga-
pappír) sem veð fyrir ríkisláni.
Par eð alt tóbak og allir
vindlar eru aðfluttir hér á landi,
er langtum umsvifaminna að
koma á tóbaksverzlun hér en
i þeim löndum, sem nefnd
hafa verið og þegar hafa komið
á hjá sér einkaverzlun á tóbaki
Bessastaði á Álftanesi
heíir hreppsnefndin þar ný-
lega keypt af erfingjum Skúla
heitins Thoroddsen.
Afnám sykurtollsins.
Frumv. til laga um afnám
sykurtollsins flytur Jörundur
Brynjólfsson í Neðri deild. —
Jafn sjálfsagt og réttlátt mál
hlýtur að fljúga í gegn hjá
þínginu.
hefir mikið úrval af
frá 2 aiir. og npp.
Fjöregg brotið.
Eitt allra stærsta og þarfasta
verk, sem framkvæmt hefir
verið til þrifa og framfara þess-
ari þjóð, er stofnun Eimskipa-
félagsins, og sést á því bezt,
hvað þjóðin getur, eí húnsam-
einar sig um eitthvað, sem
hvorki stórpólitík eður aðrir
fleygar ná til að kljúfa. Pað er
næstum hið eina, sem gert
hefir verið til þjóðþrifa, sem
allir sannir íslendingar hafa
verið ánægðir með og flestir
litið vonaraugum til, sem bjarg-
vættar á þessu sviði.
Pað hafa margir kallað skip-
in »Gullfoss« og »Goðafoss«
ljöregg þjóðarinnar og það með
réttu á þessum síðustu og verstu
tímum, en eins og kunnugt er,
er nú annað eggið brotið —
»Goðafoss« strandaður. Blöðin
hafa sagt frá þessu slysi svipað
því, að fokið hefði hjallur eða
hesthúskofi, og er slíkt jafnað-
argeð líldega óvíða að finna
annarstaðar en hér á íslandi;
eg held, að þessi sljóleiki, sem
hér kemur fram, sé þjóðarein-
kenni, sem betur sæmdi þræl-
urn liðinna alda en frjáBum
mönnum þessara tíma. Þetta