Dagsbrún - 04.11.1917, Blaðsíða 2
90
DAGSBRÚN
(strandferöaskip landssjoös)
fer héðan í strauðjerð vestur og norður
um land til yikureyrar, mánuðag 12. nóv-
ember. Kemur við á Vestfjörðum, Norð-
urtirði, Reykjarfirði og Siglufirði til
Akureyrar.
Frá Akureyri til Reykjavíkur nálægt
22. nómember. Kemur við á Húnaflóahöfn-
unum og Sauðárkróki.
Nánar auglýst síðar og fást þá líka
áætlanir fyrir þessa ferð á skrifstofu
vorri. .
H.f. Eimskipafél. íslands.
Frá Vilhjálmi Stefánssyni.
Það þótti tíðindum sæta, þegar
það fréttist fyrir nokkrum árum,
að í Viktoríuiandi, sem er stórt
eyland fyrir norðan Ameríku, hefði
fundist Skrælingja-þjóðflokkur, sem
að sumu leyti mundi vera af
norrænu bergi brotinn. Þessi frétt
var sérlega eftirtektaverð fyrir
okkur íslendinga, bæði af því að
sá sem fyrstur fann þjóðflokk
þennan var íslendingurinn Vil-
hjálmur Stefánsson, sem nú er
heimsfrægur orðinn fyrir norður-
farir sínar, og af því að hugsan-
legt var að þjóðflokkur þessi væri
að sumu afkomandi íslendinga
þeirra er Grænland bygðu, enda
var það helzt skoðun Vilhjálms
að svo væri.
Það var 17. maí 1910 að Vil-
hjálmur fann þjóðflokk þennan, er
nefnir sig Haneragmiút. Þeir hafa
sömu lifnaðarhætti og Skrælingjar
og tála Skrælingja-málýsku, en
ýms orð í tungu þeirra líkjast því,
að þau væru komin úr íslenzku.
Til dæmis kölluðu þeir úlfinn
arg-luk, en ekki skildu Skræl-
ingjar þeir, er voru með Vilhjálmi,
það orð. Vilhjálmur áleit það vera
orðið vargur, og hefir fært að því
ýmsar líkur, t. d. að Skræiingjar
láti niðurfalla samhljóðanda í upp-
hafi framandi orða, og að þeir
bæti iðuglega endingunni -luk við
orð, er komast inn í mál þeirra
úr öðrum málum.
Vilhjálmur Stefánsson er ennþá
i norðurför þeirri, er hann lagði
af stað í 1913. En fregnir hafa
komið af honum, að hann hefir
fundið nýtt land fyrir norðan og
vestan Patreksland, og kom hann
að strönd landsins á 77° 43'
norðl. br. og 115° 43' v. f. gr.
Viihjálmur og félagar hans gátu
ekki staðið við þarna nema í þrjá
daga (til þess að geta komist á ís
aftur yfir til Bankslands), en þeir
fóru þó yfir um 30 mílur (danskar)
af strandlengju þess, og um 5
mílur inn í landið. Nóg var þar
af villidýrum, svo sem hreindýr
og fleiri dýr, en ekki sáu þeir
menn. Það mun þó vera hugmynd
Vilhjálms, að í þessu nýja landi
búi ef til vill afkomendur íslend-
inga þeirra er Græniand bygðu.
Það verður gaman að frétta
nánar af uppgötvun Vilhjálms.
£anðsspitalinn.
ötjórnarráðið hefir skipað lands-
spítalanefnd, sem á að rannsaka
og. gera tillögur um málið. For-
maður hennar er Magnús Sigurðs-
son. G. Björnson, Guðm. Hannes-
son og fleiri góðir menn eru í
nefndinni; alls eru sjö í henni.
Blaðið „Vísir" kemur með þá
visku i gær, að það sé ekki viiji
þingsins, að þessu máli sé hraðað,
og að það sé ekki landið, sem
eigi að sjá fyrir atvinnubótum,
heldur bæjar- og sveitafélögin. —
Þessa visku finnur blaðið auðsýni-
lega upp til þess, að gera stjórn-
inni óleik með því, er blaðinu það
auðvitað velkomið fyrir okkur, en
með þessu vinnur blaðið einnig á
móti olchur verhamönnunum.
Hvað er nú orðið úr allri um-
hyggjunni er „Vísir“ hefir undan-
farna mánuði þóttst bera fyrir vel-
ferð almennings, og sem gekk
svo langt, að það hvatti menn til
þess að fara og gefa sláturfélags-
stjórninni á ’ann.
Verkakarl.
Bjargráðanefnd.
Á alþýðuflokksfundi í haust var
samþykt að kjósa 5 manna nefnd
til að starfa í dýrtíðarmálum verk-
lýðsfélaganna í Reykjavík. Er nefnd-
in nú fullskipuð. Kaus verkam.fél.
Dagsbrún, Hásetafélagið og Verka-
kvennafélagið hvort um sig einn
mann í nefndina, og Prentarafé-
lagið og Bókbandssveinafélagið í
sameiningu einn, en Sambands-
stjórnin skipaði fimta manninn.
Laust og fast.
„Vörftui,“ heitir nýtt mánaðar-
blað, sem byrjað er að koma út.
Tvö blöð eru komin; blaðið er
afar lítið en virðist vera m mjög
fylgið sér. Ritstjóri er Hallgrímur
Jónsson kennari.
Hey brann fyrir Gunnari frá
Selalæk. Skaðinn töluverður, en
kofarnir heldur ekki tómir þar.
Steinþór Guðmnndsson cand.
theol. er skólastjóri Flensborgar-
skólans í vetur. Ögm. skólastjóri
dvelur nú urn tíma í Bandarikj-
unum.
Látinn er Ole Möller kaupmað-
ur á Hjalteyri. Hann var faðir
Lúðvíks Möller og Jakobs Möller
ritstjóra.
„Pípuhattar“ og „pel8“.
Við jarðarför Tryggva banka-
stjóra í fyrradag voru það þeir
einir, er voru með pípuhatta eða
í loðfeldi, sem óhindrað fengu að-
gang að þinghússgarðinum. Öðrum,
sem þessi tignareinkenni vantaði,
var bægt frá af tveimur lögreglu-
þjónurn, sem stóðu við garðshliðið.
Þessi ráðstöfun var sannarlega
ekki í anda hins framliðna, sem
vissulega hefði fremur kosið hinn
síðusta einlæga virðingarvott al-
mennings, en látalæti hinna.
Hver ráðið hefir þessu skal ósagt
látið; en hissa er eg á því, að
lögregluþjónarnir skuii takast á
hendur jafn óforsvaranlegt verk
og þessháttar aðgreining á fólki
sem hér er vikið á að framan.
Nokkrir þeirra sem vísað var
frá, gerðust svo djarfir að klifra
upp á garðinn — ég var meðal
þeirra — til að geta séð gamla
manninn lagðan til hinstu hvíldar.
— Á trjágrein í vesturhorni garðs-
ins sat þröstur, hnípinn og hljóður;
honum gátu „yfirvöldin8 ekki
meinað að heiðra vininn sinn fram-
liðna. '
Geiri.
Landsstjórnin og atvinnuleysið.
(Aðsent.)
Hvar sem atvinnulausir alþýðum.
hittast og tala saman; hvort það
er úti eða inni, þá er þessi spurn-
ing altaf á reiðum höndum: Hvað
líður atvinnurekstri stjórnarinnar
og hvað gjörir dýrtíðarnefnd sú er
hún skipaði því máli viðvíkjandi,
eða voru þetta dauðateygjur stjórn-
arinnar? Helzt lítur svo út, en
hver er meiningin með þessum
dj.....syndasvefni? Er það ætl-
un stjórnar og dýrtíðarnefndar að
láta alla þá sem eru atvinnu-
lausir, og sem fæstir munu vera
svo efnum búnir að geta staðist
þessa dýrtíð hjálparlaust, fara beint
á bæjarsjóð (sveitina) sem að sögn
er að miklu leyti skuldamegin.
Það munu flest vera sjómenn^
sem nú eru atvinnulausir, svo
stjórnin mun álíta að þeim sé nú
óhætt að hvíla sig í vetur, að
minsta kosti þeim sem undanfar-
ið hafa verið á útveg hr. Indriða
F.inarssonar skrifstofustj. og ísa-
foldar og auðvitað haft hinar vel
reiknuðu 3,600 kr. í laun, og svo
þeir sem stunduðu síldveiði i sum-
ar, sem ekki gat orðið að notum
vegna hirðuleysis aukaþingsaf-
sktæmisins þríhöfðaða, eða máske
sé verið að reyna hvað lengi vér
alþýðumenn þolum þeim háu herr-
um óþarfa drátt (eða algerð svik ?)
á þessu sviði, sem ætla mætti að
gœti verið lífsskilgrði fyrir þá sem
geta unnið flesta vinnu til lands
og sjávar, svo framt að stjórnin
kann með þetta að fara, en-hvað
getum við nú, og sérstaklega hús-
feður, þolað þetta rolufálm stjórn-
arinnar og bar-na hennar lengi?
Mér finst sem það hljóti að fara
aj) styttast úr þessu, af því að hér
getur tæplega átt við að: svo má
illu venjast að goll þgki. Að
öllu athuguðu væri nú varla óráð
að reyna að vekja þessa stjórn
til réttarmeðvitundar um sjálfa sig,
ef nokkur meðvitund skyldi vera
þar heima. Af því eg býst ekki við
að þessar línur geti vakið stjórn-
ina af 6—8 mánaða svefni, vil eg
leyfa mér að skora á alla leið-
andi menn í verklýðsfélögunum
og, vel að merkja, stjórn „Háseta-
félags Rvíkur" og stjórn „Alþýðu-
sambands íslands", að hefjast
handa þegar í stað og rugga dug'
lega, skriflega eða líklega helzt
munnlega, við þessari óhöndug'
legu samsetningu aukaþingsins
síðasta, sem menn af vana nefna
landsstjórn. Njáll.
Ijarmomum og piano
fást ávalt.
Hljóðfærahús Reykjavíkur.
Prentsmiðjan Gutenberg.