Dagsbrún


Dagsbrún - 02.03.1918, Side 2

Dagsbrún - 02.03.1918, Side 2
80 DAGSBRÚN manna séu sveitarlimir, sem kall- aö er, um það heflr oft verið rætt og ritað hver áhrif það hefir undir mjög mörgum kringumstæðum á sjálfstæði og starfsemi þeirra sem svo hamingjusnauðir eru að kom- ast á sveitina, sem er mjög svo eðlilegt þegar að því er gætt hver skilyrði fylgja sveitastyrknum, en vel getur það verið að það, að sem flestir séu á sveitinni, geti stundum komið vissum mönnum vel, og svo er mér spurn, kemur ekki á bak borgurum Eeykjavíkur að borga brúsann jafnt fyrir það, fé til framfærzlu þessum mönnum eins þótt það sé veitt sem fá- tækrafé eins og þó það sé veitt sem kaup fyrir vinnu, nema sá er munur, auk þess mikla munar sem það er fyrir verkamanninn, að þá er þó sú vinna sem fæst viss borgun uppí fjárhæðina sem veitt er. Hvað landssjóðs dýrtíðarvinnu viðvíkur, sérstaklega í sambandi við Reykjavíkurbæ, þá eru ekki miklar líkur til að bærinn hefði getað risið undir þeim útgjöldum sem af því hefði stafað að fæða þá í viðbót sem þar hafa haft vinnu og hafa, auk þess sem það er skylda, bæði lanaleg og sið- ferðisleg, að bera hver annars byrðar, og það sem það er þungt fyrir bæinn að bera útgjaldabyrð- arnar, er það miklu léttara fyrir landið. Tekjur bæjarins eru bein útgjöld eftir efnum og ástæðum sem fáir borga, tekjur landssjóðs eru óbein gjöld að mestu sem margir borga, og ekki svo lítinn hluta borga þeir sjálflr, sem dýr- tíðarvinnunnar njóta. Ég var kom- inn að því ráðinu að halda þess- um mönnum við lífið af fátækra- sjóði — og þá er hitt ráðið, að láta þá eiga sig og þá þarf ekki um það að spyrja hvað af því leiddi, hungur og dauði; en ekki er ólík- lngt að einhverjir hefðu, og það ekki einn og einn í einu, tekið sjálfir sinn rétt, og enginn getur sagt hvað af því hefði leitt. Það er ekki vist að allir Jónar hefðu orðið ánægðir með afleiðingarnar. Verkamaður. Forsmán kalla óg það að mönnunum sem eru að vinna að bæjarmónum í vetur (þeir eru fjórir, að ég held) skuli ekki vera borgað meira en 60 aurar um tímann, þar sem lágmark verkamannnfélagsins er 75 aurar, og það borgað bæði í bæjarvinnunni og annarsstaear og í landssjóðsvinnunni. Skora ég á forstöðumann móverksins, hr. Jón Þorláksson, sem fókk (og heflr máske ennþá) 25 kr. á dag fyrir að vera æðsta móráð bæjarins, að vera ekki að „knífa" þessa 15 aura á tímann við mennina. Þeir þurfa á þeim að halda eins og við hinir, og fá ýmislegt óþegið að heyra um „rof“ og fleira, som ég veit að Jóni Þorlákssyni leiðist að heyra nefnt. Bauðskeggur. Leiðbeining um notkun kornvöruseðla, brauðseðla og sykurseðla. Stjórnarráðið hefir skipað svo fyrir að eftir 1. marz 1918 má ekki selja rúg, rúgmjöl, hveiti, mais, maismjöl, bankabygg, hrís- grjón, hafragrjón og sykur nema gegn seðlum, sem út verða gefnir að tilhlutun landsverzlunarinnar og ekki brauð nema gegn seðlum, er bæjarstjórnin gefur út hér fyrir Reykjavík og fást í skiftum fyrir kornvöruseðla. Kornvöruseðlum og sykurseðl- um heflr nú verið útbýtt hér í Reykjavík til tveggja mánaða, marz og apríl, og heflr hver maður feng- ið seðla, er gefa rétt til að kaupa 20 kílógrömm af kornvöru og 4 kílógrömm af sykri. Á þessu tveggja mánaða tímabili fær enginn frek- ari seðla og verður hver einstak- ur maður að haga svo til, að þessi skamtur dugi. Sykurseðlunum er skift í 8 reiti og gildir hver reitur l/t kílógramm. Minna en ’/* kílógramm af sykri fæst því ekki keypt í einu, en vert er að geta þess, að seðilreitirnir gilda jafnt í marz og apríl þótt á þá sé prentað maí eða júní. Kornvöruseðlunum er og skift í 8 reiti og gildir hver reitur 2V2 kílógramm, en ef minna er keypt af kornvöru í einu en 2^2 kíló- gramm gefur seljandi kaupanda kornvörusmáseðla fyrir því, sem á vantar að keypt só 2^2 kílógramm. Hver smáseðill gildir x/a kílógr. og fæst þannig ekki keypt minna en V* kílógramm af kornvöru í einu. — Kaupmenn fá smáseðla á seðlaskrifstofunni í skiftum fyrir kornvöruseðla. Brauðseðlarnir eru tvennskonar og gefa rétt til að kaupa 1500 grömm (gulir), eða 250 grömm brauðs (bláir). Þeir fást aðeins í skiftum fyrir kornvöruseðla og við skiftin fær móttakandi brauðseðils sem næst 10°/« meira kornvöru- gildi í brauðseðlinum, en hann lætur af hendi í kornvöruseðlinum. Mjölvigt brauðs, þ. e. rúgbrauðs og hveitibrauðs, er í þessu sam- bandi talin 8/4 blutar af brauða- þyngdinni. 71/* kílógramm mjöls (3 seðilreitir) jafngildir þannig 10 kílógrömmum af brauði og í skift- um fyrir kornvöruseðla er gilda 71/* kílógramm verða því látnir brauðseðlar, er gilda 11 kílógrömm (10 kílógramm -j- 10°/o). Til leiðbeiningar við kaup á brauðum skal þess getið að þyngd brauða er ákveðin þannig: Rúgbrauð heil.... 3000 grömm —hálf. . . . 1500 — Normalbrauð og hálf- sigtibrauð heil . . . 2500 — —hálf . . . 1250 — Franskbrauð, sigti- brauð, súrbrauð og landbrauð heil . . . 500 — —„— hálf . . . 250 — Ef keypt er hálít rúgbrauð, ber því að afhenda seljanda gulan brauðseðil, en sé hálft hveitibrauð keypt skal afhenda bláan seðil. Sé aftur á móti keypt hálft nor- malbrauð eða hálfsigtibrauð, skal afhenda seljanda gulan seðil, en hann lætur bláan seðil í skiftum. Eftir 1. marz verður seðlaskrif- stofan í Hegningarhúsinu opin alla virka daga kl. 10—4, og verður kornvöruseðlum skift þar fyrir brauðseðla. Borgarstjórinn í Reykjavík, 27. febrúar 1918. K. Zimsen. Sögur úr stríðinu. Á kosningadaginn kvað kerling ein hafa komið með fasi miklu inn í eitt kjörherbergið og sagt: „Ja guð gefl ykkur nú öllum saman góðan daginn! Þeir sendu mór þarna sitt pundið af hvoru, og skilmæli um að eg væri endi- lega beðin að kjósa B-listann, og það er nú ekki nema alveg sjálf- sagt úr því þeir eru svona hugul- samir að vera að senda manni þetta. Það kemur sér, að fá það núna í dýrtíðinni. Það kvað eiga að setja kross við B-ið, en óg er nú orðin svo sjóndöpur að ég má til með að biðja ykkur að undir- vísa mér með það. Sama dag kom Marta v. móð og másandi, með höfuðið langt á undan, vindur sér upp tröppurnar í Barnaskólanum og segir: Hvar er B-ið. Hvar er B-ið. Hann Kjartan gaf mér krónu og sagði mér að kjó3a B-ið, og eg vil ó- mögulega svíkja hann, hann var svo undur góður við mig, bless- aður maðurinn, þetta er svo skelf- ing vel innrætt. Snemma sama dag stóð Blesi ofarlega á Klapparstígnum og hélt ræðu eins og honum er títt og sagði meðal annars: Um Svein veit maður það þó að hann er góður maður og mikill maður og friður maður, eða það var faðir hans að minsta kosti, og ekki er hætt við að Sveinn svíki það sem hann lofar. Sama dag kom mister Bílan í snöggri svipan inn í herbergi þar sem kona var að svæfa barn. Upp með yður, upp með yður, B-list- ann, B-listann, sagði Bílan óður og uppvægur, bíllinn bíður, bíll- inn bíður. Ég hefi þrjá bíla í gangi í allan guðslangan dag, og þó það væru þrjátiu þúsund bílar í henni Yik, skyldi ég hafa þá alla í gangi, og 3 vindlakassa sendi ég skrif- stofunni og mikið, mikið meira. Kafflð bíður, kaffið bíður, upp með yður, fljótt nú, B-listann, B-listann. Það eru ekki allar kerlingar jafn vitlausar, sagði konan loksins þeg- ar hún komst að. Alla aðra daga en kosningadaga eruð þið ríkis- bubbarnir svo stoltir að þið lítið ekki við okkur fátæklingunum, hvað þá heldur að þið mynduð snerta við okkur hinum minsta fingri því þá væri hættan sú að föt okkar kynnu að snerta ykkar fínu klæði er þið trúið á næst peningunum. En þetta kosningalítillæti þekki ég og veit að það er aðeins uppgerð. DAGSBRÚN kemur út á laugardögum, og er að jafnaði 4 síður aðra vikuna en 2 hina. Árg. kostar 3,00. kr. ogborgist fyrir- fram. Afgreiðsla og innheimta á Lauga- vegi 4 (Bókabúðinni). Ég kýs þá sem eru jafnlyndari í kurteisinni og kærleikanum. En ef þér komið á morgun og bjóðið mér bíltúr þá tek ég það til þakka, og verið þér nú sælir. Þá fór Bílan. A-listamaður. Alt flytur hann! Tvö blöðin höfum við hérna á Akureyri, „Norðurland" er alþekt, og þarf ekki að eyða orðum að því. Hitt blaðið, „íslendingur", var í fyrstu heldur vinveitt alþýðunni. Nú er það orðið enn meira kaup- mannasinnað en sjálft „Norður- land“. Ætla mætti að blöðin ræddu nú dýrtíðarmálin, en ekki er því að heilsa með „íslending", frekar en mörg önnur blöð. Alt „vitið" gengur í skammir um verkamenn (sbr. niðurjöfnunarnefndarkosning- jn) og stjórnína. Einkmn skammar blaðið stjórnina fyrir að hafa ekki styrkt kaupmenn til að verzla, m. ö. 0. styrkt þá til að okra á almenn- ingi. Er sorglegt að sjá prent- svertu eytt í annað eins á þess- um tímum. — En „íslendingur* er fluttur til kaupmanna, afhend- ingarstaðirnir eins og sannfæringint og tjáir ekki um það að fást. Þó öðru hefðu margir búist við aí jafn frjálslyndum manni og ritstjór- * inn virtist vera. Akureyringur. A öræíuni. Um mánaðamótin nóvember og desember síðastliðin lögðu 2 rnenn af stað úr Mývatnssveit austur á öræfin í eftirleit. Mennirnir voru: Benedikt Sigurjónsson frá Fremsta Felli í Kinn og Björgvin Árnason frá Garði í Mývatnssveit. Láu þeif úti 8 dægur, oftast í versta veðrii unz þeir komust við illan leik í Möðrudal. Yar þá Björgvin talsvert kalinn á vinstra fæti, en Benedikt var óskemdur. Höfðu þeir fundið 8 kindur. Eftir viku dvöl í MöðrU' dal lagði Benedikt aftur af stað ^ öræfln vestur á bóginn, og var uú einn, lá hann þá 2 nætur úti, faD0 5 kindur í viðbót, tapaði að vísu 4 af hópnum aftur en 9 kinduu1 kom hann í Grímsstaði. Er þes9Í eftirleit Benedikts talin all frseki' leg, enda er hann með afbrigðuú1 hraustur og harðger maður, kippir honum í kyn til fornman119 um harðfengi og karlmensku. „íslendingur" 4. jau- Prentsmiöjan Gutenberg-

x

Dagsbrún

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagsbrún
https://timarit.is/publication/173

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.