Dagskrá II - 20.07.1901, Síða 4

Dagskrá II - 20.07.1901, Síða 4
DAGSKRÁ II. sá þ;ið í bollnnum mínum að ég mundi verða hamingjusöm með seinni manninum og því verð ég að Jiýta mér að eignast þann fyrri og Ijúka því af að vera með honum.“ PERLUR. Það er, nokkuð líkt að velja sér vín og bók; vinurinn getur verið glæsilegur og fríður sýnum, en tæl- andi, töfrandi og freistapdi; bókin getur virzt fögur en verið ginnandi og eyðileggjandi. Vinurinn á líkama og sál; bókin á það líka. Ilver bók sem þú les; hvert bröf sem þú fær, er partur af sál þess er reit. Sumir vinir eru eins ogskugginn, meðan bjart er getur maðnr ekki losnað við hann, en þegar dimt er orðið, þá sézt hann ekki. Kærleikurinn er lik.il! að himna- ríki- MANNÚÐ. Munaðarlaus stúlka er Þóra hét Þórólfsdóttir fór af stað frá íslandi til Vesturheims í fyrra sumar. Hún var félaus, en eitthvað af samferða- fólki hennar hafði lofað að lána henni farareyri; þegar til Englands kom var það loforð ekki efnt, en stúlkan var skilin eftir á hafnarstöð- inni í Liverpool án þess að nokkur væri beðinn fyrir hana. Þar stóð hún & bryggjunni mállaus og peningalaus, vinalaus og allslaus og horfði grátandi á eftir löndum sínum þegar þeir lögðu þaðan af stað. Síð- an hefir hún að líkindum ráfað um borgina þangað til hún heflr hnigið niður önnagna af þreytu cg sorg og sulti og dáið. Hví hafa blöðin aidret sagt frá þessu? hví heflr ekki verið reynt að komast eftir hvað um hana heflr orðiðí' Hver getur talið öll tár- in sem húri hefir felt áður en hún datt niður dauð I ókunnu landi? Hún var systir okkar allra þótt hún væri fátæk og munaðarlaus. STEINN í IIJARTASTAÐ. Nýlega var ung stúlka íslenzk tekin föst hér í Winnipeg og ákærð fyrir ósiðsemi. Þegar það fréttist siifnuðust nokkrir leikbræður henn- ar í lcring um hús móður hennar, sem er einstæðings ekkja, og köll- uðu þar ihástöfum alls konar bríxl- yrði með hlátri og gleði. Það var huggunin i raunum þessarar ógæfu- sömu konu; það var hluttekningin i böli þessarar systur, er þeir töldu brotlega — hafa líklega verið hvítir sjálflr. „Sá sem engann blett heflr, kasti fvrsta steininum á hana,“ sagði Kristur. Svo virðist sem reykiriga- og blóts- yrðaskóli sé stofnaður hjá húsi einu á Elgin ave. í Winnipeg. Það verður nánar skýrt síðar, ef sú stofnun held- ur áfram. VITNISBURÐUR GAMALS DRYKKJUMANNS. Döpur augu,*hár á höfði grá, horfin gleði, flúið æskubrosið; sálar minnar hjarta er hætt að slá, harðnað,stirðnað,kalið,dautt ogfrosið. Utgefandi Sig. Júl. Jóhannesson. Prentsmiðja Freyju.

x

Dagskrá II

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá II
https://timarit.is/publication/174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.