Dagskrá II - 21.09.1901, Side 2

Dagskrá II - 21.09.1901, Side 2
D A G S K R Á II. ingartrú. Allir glatast eilíflega, sem ekki verSa hólpnir. Mér fanst þetta sama sem sagt væri viö dr. Björnson: “Faðir pinn er nú í helvíti, lagsmaður, og verður par um alla eilífð 1” Og mér fanst eins og sagt væri við Sigurð J. Jóhannesson : 4 ‘Heyrðu kunningi, hann tengdasonur pinn fer til helvítis !” Mig hryllir við slíkri kenningu. Báðir pessir menn hafa neitað sumum trúaratriðum lútersku kirkjunnar. Ég fékk köllun frá “General Council,” sampykta af séra Jóni Bjarnasyni, forseta kirkjufélagsins, til að prédika í sumar á Washington eyjunni, bæði á íslenzku og norsku, en ég afsagði að gjöra það, aðal- lega fyrir þetta atriði. Útskúfunarkenn- ingin er beint á móti öllu réttlæti, allri sanngirni, öllum kærleika, öllu góðu, göf- ugu og háleitu, allri skynsemi. Hún fær- ir sjálfan guð mörgum tröppum niðurfyr- ir mennina, gjörir hann að engum guði, heldur harðstjóra, og mennina ekki að börnum hans, heldur þrælum. þetta er sannleikur, sem fjölda margir hugsa og einhver þarf að segja. Ástæðan fyrir því að þessi sannleikur þarf að vera sagður, er sú, að það að hlusta á ræður sem menn ekki trúa, lam- ar svo siðferðisþrek og réttlætistilfinning, að það færir menn á lægra menningarstig. Ef það mál, sem helgast er, dýpst og há- leitast af öllu því sem mannshjartað á til í eigu sinni, er alið og nært á þeirri óhollu fæðu, sem hræsni heitir, hvers má þá vænta í öðrum efnum ? pað er rangt að gera gys að trúarbrögðunum, en það er líka rangt að þegja við því, sem ljótt er í þeim, eins og öllu öðru. pau eru helgust allra mála og þess vegna á lygi og hræsni að vera sem allra fjarlægast þeim. ÉG HELD HANN SÉ VITLAUS. Ég held hann sé vitlaus—já, vitlaus er vitlaus og langtum meira; [hann hann segir þeim blátt áfram sannleikann, er sannleikann þola’ ekki’ að heyra. Heyrðu mér, kunningi’! ef viltu’ honum þá veittu’ honum ráðlegging holla, [vel og segðu’ að þeir grípi’ hann og grýti’ hann í hel ef gjörir hann þennan skolla! Hann fordæmir snörur og blóðvopn og bál og blessun þess læzt hann ei skilja. Hann heldur að kvennfólkið hafi sál og hjarta og skynsemi’ og vilja. Hann segir að ísland eigi sól og innir því liðsyrði stundum. Hann þolir það ekki—ja, þvílíkt fól— að þjóð hans sé talin með hundurn. Hann telur ei konunginn meira en mann, og munnheggst við klerkinn—og fleira! Ég held hann sé vitlaus—já, vitlaus er vitlaus og langtum meira. [hann SITT AF HVERJU. Á meðan karlmenn einir höfðu atkvæð- isrétt í Golorado-ríkinu var vínsölubann þar aðeins í tveimur bæjum. Svo fengu konur þar atkvæðisrétt og eftir 3 ár var komið á vínsölubann í 27 bæjum. Viljirðu ekki særa tilfinning nokkurs manns, þá talaðu aldrei sannleikann. Orð af sannfæring töluð ryðja sér ætíð braut að hjarta áheyrendanna, jafnvel þótt þeir séu þeim andstæðir. Nú á dögum er meira lagt í sölurnartil þess að byggja kirkjur á dýrum horn- lóðum ená réttum hornsteinum. Prestur sem prédikar á móti sannfæring sinni, eða án sannfæringar, ætti helzt að vera á Ieiksviðinu; þar á það vel við að geta sýnst annað en maður er. Fyrir 5 árum gjörðist sú saga í Suður- Ameríku, er hér segir. Ungur maður naut guðfræðiskenslu hjá presti og kendi jafnframt við sunnudagaskóla. Svo var það eitthvert skifti að tvær stúlkur, sem voru kennarar við sama skóla, hurfu. þær fundust svo loksins dauðar uppi í kirkju- turni, skornar í sundur í smástykki. Vasa- bók annarar stúlkunnar fanst í vasa unga mannsins og þóttu böndin berast svo að honum, að hann var dæmdur til dauða og hengdur. Síðustu orð hans voru: “ Ég er saklaus. ” Allir töldu hann sekan, nema móðir hans, hún trúði því ekki. Nú í vetur lagðist gamli presturinn og dó. Á banasænginni játaði hann að hafa myrt báðar stúlkurnar. Ungi maðurinn var saklaus. pessi saga talar betur á móti dauðadóminum en langar ræður. Einhverju sinni var Vilfrid Laurier spurður, hver væri æðsta skylda stjórnar- formanns, og svaraði hann : “ Að gjöra vilja þjóðarinnar.” Hann hefir gleymt því, karltötrið, þegar hann sveik loforð sitt í vínsölubannsmálinu. Atkvæði í því máli féllu þannig, að í Norðvesturlandinu var það samþykt með 905 atkvæðum fram- yfir, í British Columbia 249, Nova Scotia 22,382, Prince Edward Island 8,800, Manitoba 5,023, Ontario 36,702, New Brunswick 14,545. Kruger gamli er einn af allra einlægustu bindindismönnum þessara tíma. það er enn í minnum manna, að hann var eitt sinn í boði hjá Victoriu drotningu og neitaði að drekka skál hennar í áfengi ; hann drakk hana í mjólk. Hann samdi sjálfur og flutti á þingi hörð lög á móti vínsölu í Transwaal. Veittu engum einkaréttindi ; láttu lög og tækifæri vera jöfn fyrir alla ; láttu líf og eignir vera örugt, og þá verða allar ölmusugjafir óþarfar. Skyldan spyr: Hvað verð ég að gjöra ? Kærleikurinn spyr: Hvað get ég gjört ? Sá sem ekki vill lesa neitt annað en það, sem hann áðurveit og trúir, er svo mikill heimskingi að halda að hann viti alt. Menn eru til, sem teljast ráðvandir, og stela þó heill oghamingju annara manna, hvenær sem þeir sjá sér færi. Til eru þeir menn sem þykjast miklir af því að breyta aldrei skoðun sinni, en eigi állsjaldan hafa þeir sömu menn enga skoðun. Lítill maður getur verið 'stór heimskingi. Kristindómurinn er líf, en ekki reglur. Vér eigum oft tal við menn sem þykjast mjög af því að þeir hafi rétta trú og lifi eftir vissum reglum, en samt leggur kulda af þessum mönnum. Trúin þeirra er að- eins áhrifalaus geisli á ísjaka ; þá vantar kærleikann. Versti gallinn á sumum mönnum er það, að ekki má segja þeim sannleikann. Hversu margir af þeim, sem halda með stríði, skyldi vera viljugir að standa sjálf- ir fyrir byssukjöftunum ?—það er ekki sama að sitja inni og skrifa um stríð sem að berjast sjálfir. Eftirfarandi grein er tekin upp úr norska blaðinu ,,Reform, “ sem út kom 4. okt. 1898 og sýnir hún, hvort ritstjóri þessa blaðs hefir ekki á réttu að standa þegar hann talar um svik stjórnarinnar í vín- sölubannsmálinu. ,,SIGUR!—Atkvæðagreiðsla í Canada, með og mót vínsölubanni, fór fram 29. september, og sigruðu bindindismenn í öllu ríkinu með 60,000 atkvæða framyfir hina. Öll fylkin nema Quebec voru með vínsölubanni. í Nova Scotiavoru 23,000 framyfir og í Manitoba 6,000. Spurningin var lögð fyrir til atkvæða- greiðslu svo hljóðandi: ,,Eruð þér með lögum, sem banni allan innflutning, til- búning og sölu áfengis drykkjar?“ í Quebec voru 34,000 á móti, og er það mest kent ofstæki kaþólsku prestanna. Sigur bindindismanna er þó efasamur; vínsöluaflið er mikið og sumir óttast að herra Wilfrid Laurier veigri sér við að koma beint á móti þeim pólitlsku áhrif- um, sem hann hefir notið fyrir hjálp á- fengisins og muni því, ef til vill, stinga yfirlýsing (þjóðarinnar undir stól; kveða upp úrskurð á móti vilja hennar ogbregða

x

Dagskrá II

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá II
https://timarit.is/publication/174

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.