Dagskrá II - 28.01.1902, Page 2
2
D A G S K R A II.
heldur sem sannleikur til athugunar. Af
j>ví menn nú hafa engum skynsamlegum
aðfinningum vanist, þá pola þeir ekki að
heyra sannleikann sagðan ; halda að það
hljóti að vera gjört af óvild, framhleypni
eða einhverju öðru verra. það þarf að
venja fólkið af þessu, og ekki síst leiðtog-
ana. peir þarfnast sannarlega aðfinn-
inga.
JÓLABOÐ “ DAGSKRÁR II”.
það var mannkvæmt á North West
Hall sunnudagskveldið 5. þ. m. þegar
f jórðungur lifði áttundu stundar var hvert
sæti skipað innan frá gafli fram að dyr-
um; en þegar samkoman var sett, stóðu
menn svo þétt að tæpast varð komist á
hlið eftir miðju gólfi og þyrpingin náði
niður í miðjan stiga. þar eð samkoman
var haldin fyrir börn, hörfuðu sumir aftur
af fullorðna fólkinu; aðrir tóku börnin á
kné sér og skipuðu þannig 2 sama sæti.
Með aðstoð ýmsra vina sinna hafði rit-
■stjóri “ Dagskrár II ” skreytt fundarsal-
inn með litum þeim, er tákna einkenni
æskunnar og sakleysisins. J>ar voru enn
fremur 4 jólatré, skreytt ýmislega litum
ljósum og fögrum munum við barna hæfi.
Fyrst setti Sig. Júl. Jóhannesson sam-
komuna, bauð alla velkomna, óskaði
gleðilegs árs Og þakkaði mönnum hjálp
og aðstoð þá, er honum hafði veitt verið |
við þetta tækifæri. ])á var næst hljóð- |
færasamspil af hendi þeirra Guðmundarí
Andersons og systir hans, Mrs. Merrel,
og þótti ágæt skemtun. Að því loknu
kom fram herra Jónas Pálsson með flokk
ungra manna og kvenna er söng íslenzkt
lag til mestu skemtunar öllum er á hlýddu.
Eftir það var útbýtt brjóstsykri á meðal
allra barna yngri en 14 ára. Jiar á eftir
var gengið um með seðlakassa og öll börn
látin draga sjálf um muni þá, er þeim
voru ætlaðir að gjöfum. Að því búnu
var mununum útbýtt samkvæmt tölum
þeim er börnin höfðu hlotið. Og þrátt
fyrir það að húsið var troðfult, voru næg-
ar gjafir handa hverju einasta barni.
þessu næst sagði Sig. Júl. Jóhannesson
börnunum sögu jólatrésins og aðra sögu
um barnið með tvö andlitin, spariandlit
og hversdagsandlit. Jiá komu þau fram
aftur Guðm, Anderson og Mrs. Merrel
með hljóðfærasamspil og eftir það talaði
Gunnlaugur Jóhannsson börnunum til
skemtunar. í þriðja skifti léku þau syst-
kinin á hljóðfæri og loks sungu allir við-
staddir; “ Eldgamla ísafold Svo
voru börnin kyrlát og siðprúð að tæpast
heyrðist andardráttur á meðan ræðurnar
og skemtanirnar fóru fram.—Eins og
kannugt er, eru hér fjölmargir Islending-
ar í bænum, sem heyra ekki til neinni
kyrkju og veigra sér því við að senda
börn sín á þær jólatréssamkomur, er
söfnuðirnir halda; í öðru lagi hljóta þar
sum börn margar gjafir og stórar, en önn-
ur fáar og smáar, sem eðlilegt er. þessi
nýja jólatréssamkoma vill reyna að bæta
úr því hvorutveggja og tókst j>að mjög
vel í þetta skifti. það er siður margra
betri blaða sumstaðar í Evrópu að gatig-
ast fyrir þessháttar samkomum, en ekk-
ert íslenzkt blað hefir gjört það fyr.
Alúðar þakklæti flytur “ Dagskrá II ”
öllum þeim, er annaðhvórt lögðu fé eða
vinnu til þessa fyrirtækis, eða hvor-
tveggja; og þess skal getið,að þegar hefir
fengist lofun á ríflegum framlögum til
þess að hafa samskonar samkomu næsta
ár í enn þá stærri stíl. Nöfn gefendanna
verða birt í blaðinu síðar. þess skal getið
að stórkostlegast gáfu þau: kona Gísla
Olafssonar, ]>orsteinn Jjorkelsson, kona
Guölaugs Kristjánssonar og ungfrú Kristín
P'reysteinsdóttir. Allir sern veittu lið
sitt, gjörðu það kauplaust og nægir pen-
ingar fengust gefnir til þess að standast
kostnaðinn; er það þeim mun lofsverðara
þar sem enginn maður var beðinn að gefa
neitt, heldur komu allir með gjafirnar af
eigin hvöt. Er vonast til að börnin
muni öll eftir þessari samkomu og hlakki
j til þess að eiga von á annari eins um
j næstu jól.
I S L A N D .
Mjólkurbúin í mesta blóma; eitt stofn-
að í Birtingaholti í Hrunamannahreppi
og annað á Seli í saina hreppi. Hrepps-
búar eiga það í félagi. Hið þriðja er á
Kröggólfsstöðum í Ölfusi; fjórða > Arnar-
bæli, fimta á Páfastöðum í Skagafirði.
i Gert ráð fyrir að fjölga þeim í 1 5 með
jo__200 kýr. Smjörpundið seldist í
suniar á 76—7« aura. Indriði Einarsson
hefir höfðað inál á móti Tryggva Gunn-
arssvni fvrir meiðyrði í blaöagrein; B. M.
I Olsen hefir annað mál á móti W. Ó.
í Breiðfjörð fyrir sömu sök.—Jón Ólafsson
j hélt nýlega langan og fróðlegan fyrirlest-
í ur uin sjálfstjórn íslendinga. Hann
fylgir hvorugum floknum; fyrirfesturinn
á að prentast.—Dánir eru Garl Emel Ole
Muller,Iyfsali í Stykkishólmi. Ari Finns-
son > Saurbæ á Rauðasandi; Björn P.
Hjaltesteð járnsmiður í Reykjavík; Árni
Árnason í Kothúsum í Garði; Guðný
Filippusdóttir á ísafirði; Elisabet Egilson
í Hafnarfirði; Gróa Erlindsdóttir, ekkja
Bjarna prófasts Sigvaldasonar, prests að
Stað í Steingrímsfirði; Guðmundur Gísla-
son í Reykjavík. “Heiinastjórn” heitir
rit er stúdentar í Kaupmannahöfn hafa
gefið út; ábyrgðarmaður er Finnur Jóns-
1 son háskólakennari, eindregið frelsisrit.
Afskifti mentamannanna í Höfn af ís-
landsmálum nú á dögum minnir talsvert
á Fjölnismennina forðum. Isafoldar-
afturhaldsklíkan bansýngur þá í hverju
blaði með þeim kurteisis orðum sem hún
er vön að velja öllum framfara- og frjáls-
hugsandi mönnum. J>að eru sömu vlð-
tökurnar, sem Fjölnismennirnir fengu
hjá skammsýnum daufingjum, dáðlaus-
um letingjum og flaðrandi stjórnsleikjum.
En þeir létu ekki hugfallast og uppskeran
kom síðar.—Danska stjórnin hefir lýst
yfir því, að hún muni veita íslendingum
sem mest sjálfsforræði.—þjóðólfur hefir
þýtt orðrétt að heita má ágæta grein úr
Poletiken, sein heitir “ísland og Dan-
mörk ”. Máli íslendinga er þar eindreg-
ið haldið fram.—þeir séra Friðrik Frið-
riksson og Ástvaldur Gíslason vinna af
kappi að útbreiðslu unglingafélagsins í
Reykjavík. —Stúdentafélagið í Reykjavík
hefir ókeypis hús, ljós og hita í barna-
skólanum til alþýðufræðslu í vetur.
Björn Bjarnason frá Viðfirði hefir lokiö
háskólaprófi í Norrænu.— brunnið hús
Ólafs G. ísfelds á Vestdalseyri.—Dánir
Gfsli Gíslason á Snæfjöllum og Jón Kon-
ráðsson kaupm. Hjálmarssonar. Stór-
kostlegt þilskipaútgerðarfélag myndað á
Eyrarbakka; fjöldi manns hefir lagt í það
-00—8000 kr.—Jörðin Árnakot í Borg-
arhreppi á Mýrum nefnist hér eftir Gufá.
__Jósafat Jónasson í Reykjavík semur
ættartölur allra þeirra íslendinga, sem
æskja, réttar og nákvæmar og selur fyrir
10--20 kr.; það er fróðlegt, gagnlegt og
skemtilegt.—Sannfrétt er það talið að
nýi íslands ráðgjafinn Alberti vilji veita
íslendingum sérstakan ráðgjafa, búsettan
í Reykjavík.—Af 56 kjósendum í \ est-
mannaeyjum hafa 33 sent undirskrifaða
beiðni til Jóns Magnússonar landritara
um það að taka við þingkosningu á næsta
sumri; mikill meiri hluti kjósenda vill því
ekki hafa Valtý lengur.— Baróninn frá
Hvítárvöllum sagður dauður; sagt aðhann
hafi verið á ferð á Englandi félaus og alls-
laus; ekki viljað beiðast hjálpar og ráðið
sér bana.-Tafla til hægðarauka við marg-
földun og deiling er nýkomin út eftir Ei-
rík Briem; það er mjögmerk bók og kost-
ar kr. 7.20. “Dagbladet” lýkur á hana
lofsorði; segir að hún verði óefað þýdd á
ensku, frakknesku og þýzku.
JÓNAS PÁLSSON,
music-kennari, á heima að
525 Sherbrooke Str.
WlNNIPEG, MAN.