Dagskrá II - 26.03.1902, Side 3
D A G S K R A II.
3
svíkjum málefni vort. Guö forði oss frá
l>ví.
“Sigurinn tilheyrir peim sem aldrei preyt-
ist aö reyna, jafnvel þótt litlar séu líkur
lil sigurs(1 segir Napoleon. Hver mundi
hafa trúað pví, aö Luther gæti eins mik-
iö og hann gjöröi, pegar hann hafði á
móti sér bæöikeisaraogpáfavaldiö?Áræði
hans, kjarkur, óþreytandi elja, hvíldar-
lausar tilraunir, óbifanleg staðfesta, ó-
dauðlegt traust á góðu málefní, óskeikul
trú á guð í sjálfum honum, lifandi áhugi,
takmarkalaus ásetningur um að gjöra alt
mögulegt, og meining orða og kenninga
sýnd í verlcum. þetta voru alt t>ær her-
sveitir sem Luther réði yfir, og hann vann
sigur. Hann átti stundum við annað eins
að berjast og vér nú, en hvenær skyldi
hann hafa tekið pað ráð, að leggja árar í
bát? Aldrei. Hann vissi pað að þótt hann
félli, þá mundu spor sín í sandi tímans,
eins og Longfellow segir, vekja aftur
starfsprána hjá þeim, er á eftir kæmu, ef
á þeim sporum sæist að þau sneru altaf
fram — aldrei aftur-
“Efasemdir vorar eru svikarar, sem láta
oss tapa því, sem vér ef til vill hefðum
eignast ef vér hefðum reynt. Að þora
ekki að reyna, er sama sem að þora ekki
að lifa," segir Sheakspear. Má vera að
vér töpum 2. apríl þótt vér greiðum at-
kvæði, en gjörum vér það ekki, þá er ó-
sigurinn vís. Eigum vérað láta vfnsal-
ana sletta oss því í nasir að vér höfum
okki nent að reyna? “Tilraunir, jafn
vel án vonar, skapa mönnum nýja
vegi, leiða fram í þeim krafta, sem þeir
sjálfir vissu ekki af,” segir Franklín.
Reynum að vinna; látum aldrei ósigur
vorn verða fyrir aðgjörðaleysi, vonleys,
kjarkleysi.
“Hikandi menn láta grautinn kólna í
spæninum frá diskinum upp að munnin-
um,” segir Cervantes. Ef vér reynumst
óákveðnir eða hÍKandi í því að greiða at-
kvæði 2. apríl, þá á þessi málsháttur sann-
arlega heima á oss. Sýnum það, að
hvernig sem að er farið, hvaða rangind-
um sem vér verðum beittir, þá verði ó-
sigurinn þó sem næstur sigri og aldrei
sjálfum oss að kenna.
“Hver sem ekki er með mér, jihann er
á móti mér, ” segir Kristur. [^JJá, hver sá,
sem ekki greiðir atkvæði 2. apríl, hann
gefur vínsölunni sitt atkvæði. Hún þarf
einu atkvæði færra til þess að geta haldið
áfram, fyrir hvert það atkvæði, sem menn
draga í hlé. J)eir eru því beinlínis sama
sem að greiða atkvæði með vínsölunni.
Vill nokkur sannur bindindismaður hafa
það á samvizkunni? Ég vona ekki.
GAMLA SAGAN.
í sambandi við atkvæðagreiðsluna 2.
apríl, hefir alt mögulegt verið gjört til
þess að mæla á móti vínsölubanni yfir
höfuð og fá sem flesta til þess að halda
enn þá vernd yfir þeirri verzlun. Um
það skal farið fáum orðum. Tilfinning
manna hefir sagt þeim að þáð væri ekki
rétt að vernda það með lögum, sem önn-
ur eins óheill hefir stafað af og vínsöl-
unni. Vér vitum það öll að þúsundir
manna glatalífi sínu árlega fyrir vínsöl-
una. Vér vitum það vel að hún er völd
að sárum, sem aldrei gróa. Vér íslend-
ingar vitum það vel að margir af vorum
efnilegustu mönnum féllu og falla fyrir
henni. Vér vitum það vel að hún rændi
oss öllu því mikla og góða, sem lengri og
bjartari lífdagar hefðu framleitt í sálu
Kristjáns Jónssonar og gefið íslenzku
þjóðinni. Vínsalan er orsök í dauða
hans. Vér vitum það vel að vínsalan
svifti oss Gesti Pálssyni á bezta aldri og
dró úr stórvirkjum hans á meðan hann
lifði. Vínsalan var orsök í dauða hans.
Vér vitum að árlega kemur það fyrir í
þeösu ríki að eiginmenn lífláta konur sín-
ár aj völdum vínsölunnar. Vér vitum að
vínsalan liggur eins og ljón við hverjar
hýsdyr svo mæðurnar þora tæpast að
hleypa út sonum sínum; saklausu börn-
unum sínum. Vér vitum að konur, já,
þúsundir kvenna opna hurðina með hálf-
um huga þegar mennirnir, sem þær elska,
sern hafa svarið þeim vernd og forsjá,
trygð og ást, koma ölvaðir heim á kveld-
in; þær eru hræddar um að þeir mis-
þyrmi þeim, þegar þær hafa soltið heima
allkn daginn og langar til að njóta hvíld-
ar; að þeir muni misþyrma blessuðum
saklausu börnunum sínum. Já, þetta
vitum vér alt og á hvaða grundvelli get-
um vér þá verndað vínsöluna?
Heimskringla er keypt af stjórninni til
þess að halda fram málum hennar; eitt af
málum kennar er vínsölubann, samkvæmt
ræðumHugh John, Campbellsog Roblins.
Heimskringla er líka keypt til þess áf vín-
sölumönnum að flytja 8 boðorð á móti
því að greiða atkvæði með vínsölubanni.
Heimskringla hefir boðið bindindismönn-
um að kaupa sig til þess að flytja önnur
8 boðorð með vínsölubanni. J)etta er nú
stefnufesta! Bindindismenn voru of
vandir að virðingu sinni til þess að þiggja
aðra eins vændiskonu og Heimskringla er
orðin.
ÍSLAND.
Farið að vinna að kolanámi á Færeyjum;
þar er sögð gnægð kola, einnig góður
eldfastur leir, kopar og fleiri málmar;
talið ,víst að sama megi segja um Island.
Nú er ekki nema einn pólitiskur flokkur
á Islandi; Valtýskan dauð og grafin. það
eí stefna Bened. sál. Sveinssonar sem nú
er aðeins um að ræða ; en fjærri mætti
hláturgyðjan standa þeim manni, sem
ekki vaknaði bros á vörum þegar hann
heyrir jafnmikinn barnaskap og þann, að
ísafold hafi í seinni tíð haldið fram þeirri
stefnu !—þurrabúðarmenn nokkrir hafa
tekið útinælingar til túnræktunar undir
Jökli. — Botnverpingar kringum land all-
an veturinn—Rjómabú á að setja á stofn
hjá Gísla Einarssyni í Ásum í Hreppum
— Fjárverzlun víða miklu betri í haust en
í fyrra—Dánir: Helgi Jónsson á Ósbakka
á Skeiðum, þorkell Ögmundsson frá Odd-
geirshólum í Árnessýslu, Jón Sigurðsson
frá Efravelli í Gaulverjabæjarhreppi, Ás-
grímur Sigurðsson á Gljúfri í Ölfusi, Ög-
mundur Gíslason á Laugarási í Árnessýslu,
Vilhjálmur Jónsson Borgfjörð, bróðir
Klfemenz bæjarfógeta á Akureyri og Dr.
Finns í Höfn, séra Jón Stefánsson á Hall-
dórsstöðum í Bárðardal, frá Ásólfsstöðum
í Árnessýslu, Halldór Stefánsson frá Gilj-
um á Jökuldal.-----Stórum steini kastað
innum glugga hjá bæjarfógeta í Reykja-
vík, glugginn brotnaði aðeins, að öðru
leýti sakaði ekki.—Guðmundur Ásbjarn-
arson staðfestur af konungi sem prestur
fríkirkjumanna í Reyðarfirði.—Meðalhlut-
ur á Stokkseyri 700 kr. frá réttum til jan-
úarloka.—Jarðabætur ogtúngræðsla mik-
il í Vestmannaeyjum, þar á að byggja ís-
hús í sumar.—-Frímann B. Anderson hefir
sktifast á við Marconi um að koma þráð-
laúsum skeytum milli íslands, Færeyja og
Hjaltlands, Grænlands og Canada. Norsk
blöð telja líklegt að þaö takist.-Félag
myndað í Ölfusi til þess að setja upp tó-
vinnuvélar við Reykjafoss í Varmá.------
þessi mannalát hafa frézt að heimán; Jón
Jónsson frá Austurvelli og Guðmundur