Fréttir

Tölublað

Fréttir - 27.10.1915, Blaðsíða 2

Fréttir - 27.10.1915, Blaðsíða 2
106 F R É T Tjl R [27. okt. Vetrarseta með €skimóum. Eftir Vilhjálm Stcfánsson. (Frh.) Margt skipið liggur þar sandi orpið, en yfir ekkert þeirra hafa gengið slík auðnu- brigði sem skrælingja-ferjuna Penelope. Skipshöfnin hafði sig brott von bráðar til sinna átthaga, en Stein gerði sér hús, þar sem hann var kominn, og sat þar um vetur- inn. Þar er nógur reki til eldiviðar, en ilt til veiða fyrir ísum, þegar hausta fer. En í sjálfum árósunum og austan megin þeirra, er veitt á ísi allan veturinn bæði í net og á dorg. Á auðu veiða Eskimóar með þeim hætti, að þeir festa annan enda nets við hæl á landi, en ýta hinum endanum út með stöng afarlangri, 60—80 feta. Fiskur er tregur meðan nótt er björt, en landburður, þegar dimma fer, sjóbirtingur, síld og fleiri tegundir. Fjögur net voru til á okkar heimili, 60 feta löng, og það kom fyrir, að við fengum 2— 3000 fiska á einni nóttu. Kvenfólkið gerir að, undir eins og fiskur- inn kemur á land, og kasar hann í gryfjum; timburflekar eru hafðir yfir þeim til að verja fiskinn fyrir hundum. Vertíðin byrjar snemma sumars, og því vill verða ólykt úr gryfjunum, þegar út á líður. En mörgum Esldmóum þykír fiskur bestur, þegar farið er að slá í hann, álíka og sumum annara þjóða mönnum þykir góður stækur ostur og úldið dýraket. Eg á kunningja, sem hafa vanist á að boðra súrmjólk hjá hjarð- mönnum í Asíu og engisprettur í Afriku, og likt fór mér; þegar fram liðu stundir, þótti mér hrár fiskur stórum betri úldinn heldur en nýr. í vetrarferð. í byrjun Októhermánaðar fór að trjósa á vötnum og víkum og brátt lagðist vetur- inn að. Eg smávandist á háttu landsmanna; í miðjum október lagði eg ullarfötin niður og klæddist skinni frá hvirfli til ilja eins og þarbornir Eskimóar. Eg saknaði aldrei neins vetrarklæðnaðar, sem tíjðkast í siðuð- um löndum, og sama sögðu sjófarendur, sem eg hitti síðar og sátu þann vetur 30 mílum vestar á ströndinni. Til vetrarsetu með Eskimóum i heimskautalöndum þurfa hvítir menn engan viðurbúnað — ekki neitt nema sæmilega heilsu. Um miðja Októberm. kom hópur Eski- móa ofan af landi og sögðu dýraveiði nóga. Þeir kölluðust »Nana tóma« og áttu heima fjórar þingmannaleiðir suður í landið i Klettafjöllum, þar sem vötnum veitir vestur til Yukon. tJað var afráðið, að við Hellu- nesjungar skyldum senda tvo hundasleða til þessara veiðimannabúða, með því að þeir lofuðu okkur eins miklu dýrakjöti beinlausu, eins og við gætum dregið með okkur, en það er um 60 fjórðungar á hvern sleða með 6 hundum fyrir, þegar langt þarf að fara. Mig fýsti vitanlega að fara þá för, til að venjast vetrarferðum áður en hörkur legðust að fyrir alvöru, með þvi að eg ætlaði þær yfrið erviðar og hættulegar. Margir hugsa, að ekki þurfi annað á sleða- ferðum með hundum, heldur en að sitja á sleðunum, veifa svipunni og láta hund- ana hlaupa. Þetta kann að vera svo sum- staðar í Labrador og umhverfis gullnám- urnar í Alaska, þar sem stígar eru troðnir og veitingahús við-hvern stíg. En norður við haf er öðru máli að gegna og alstaðar þar sem engin umferð er eða mannabygð. Þar má ekki ætla hundunum að draga meir en nauðsynlegan farangur og nesti og ef í lausasnjó kemui eða nokkuð er á fót- inn, verður að ýta á eftir og þykir gott, ef ekki verður að beita sér fyrir sleðann og draga jafnt og þétt. Þessir veiðimenn áttu sleða sínavið Hellu- nes frá því um vorið og voru komnir til að sækja þá. Þeir höfðu fjóra og við tvo, svo að sex voru sleðarnir, allir hlaðnir fiski sem mest mátti. Færð var þung af lausa- mjöll og því var ferðinni þann veg háttað, að einn gekk á undan á þrúgum, en sleð- arnir héldu í slóðina í halarófu og drógu allir, bæði hundar og menn. Þá dagana var sjaldan meiri kuldi en 19 gr. C. og mædd- umst við af hita, er þungt var að draga í ófærðinni. Þegar fjöllin tóku við, fórum við þröngan dal eftir árisi, því að öðru vísi verður ekki komist um fjöllin; því varð leiðin krókótt og sóttist seint. Oft urðum við að fara upp á bakkana til að komast hjá vatnsuppgangi á ísnurn. Árnar botnfrjósa í þetta sextíu stiga frosti, en vatnið leitar á í hallanum og flöir yfir ísinn og verður að gæta sín vand- lega að reka ekki niðnr úr tvískinnungnum, því þar af getur komið hættulegt kal. Við fórum 10 mílur fyrsta daginn, héld- um þó áfram í tima, og eftir átta daga komumst við upp á hæstu brúnina; þá fór að halla suður af og sóttist betur leiðin, og 9. daginn náðum við að kvöldi dags suður að skálum veiðimannanna. Peir stóðu við eina þverá ígulfljóts (Porcupine) nafnlausa, í skógarlundi, líklega þeim nyrsta, sem til er í þessari heimsálfu. (Frh.) Pórdunömar í Elsasz eftir Fritz Sánger. (Frh.). Nú bafði Schanni fengið upplýsingar, sem hægt var að byggja á. Hann fór sér ekki óðslega að neinu. Þegar hann kom niður í dalinn, stóð hann stund- um hálfan daginn á veginuin og spurði þá sem fram hjá fóru, hvort þeir vissu ekki neitt um stúlkuna. Schanni var 12 daga á leiðinni, þangað til hann fann þorpið þar sem Elsa var. Hún hafði unnið baki brotnu ýmist úti eða inni við. Þegar Schanni kom var hún úti við vinnu sína. Hann þekti strax af lýsingunni á klæðnaði hennar, að þetta mundi vera Elsa, þó að hún hefði ekki látið uppi, hvað hún héti. Honum var boðið glas af vini og drakk hann það með mestu ró, áður en hann fór að leita liana uppi, þar sem hún var lijá hinu vinnufólkinu. Att í einu stóð hún frammi fyrir honum og þau urðu bæði nærri því jafnhissa. Elsa hafði viðarbagga á bakinu og körfu i hend- inni. Hún nam staðar og rak upp stór augu. Allar hinar hræðilegu endurminningar liðinna daga stóðu henni alt í einu fyrir hugskots- sjónum. Schanni hafði fuflkoinið vald yfir sér. Elsa var nærri því eins og hann hafði hugsað, að eins þekti hann ekki þetta flóttalega augna- tillit. Hann vitdi segja eitthvað fallegt við hana. »Faðir þinn biður að heilsa þér!« Undrun hennar óx. »Pabbi —? Ert það þú, Schanni?« »Já, Elsa«. »Hvar er pabbi?« Schanni gekk nær henni. »Faðir þinn er heima«. »Heima? Á eg enn heimili?« »Já, Elsa; allir i þorpinu, og þar á meðal faðir þinn, bíða eftir þér«. »En stríðið, Schanni? Þó að þorpið hafi staðið þegar þú fórst, þá getur það nú verið rústir einar«. »Nei, Elsa; það er ekkerl stríð nálægt þorpinu. Við rákum Frakka burtu, og faðir þinn er kominn heim aftur og hefir nú gert við það af húsinu, sem eyðilagðist við spreng- inguna. Það er búið að jarða vinnumanninn. Þú áttir að hugsa um leiðið hans, af því að hann átti engan að, en þú hefir ekki gert það, og þvi er það ekkert annað en moldar- haugur. Það er líka leiðinlegt heimilislífið heima hjá þér. Eg gæti ekki átt þar heima. Faðir þinn sér aldrei glaðan dag og talar varla við nokkurn mann«. »Er þetta nú alt saman satt?« spurði hún eins og barn, sem sögð hefir verið saga. Það er alt eins og eg hefi sagt þér. Vín- berin eru þegar þroskuð, og því er nú mikið að vinna heima hjá þér. Manstu ekki hvað þér þótti gaman við vínuppskeruna í fyrra?« »Jú«, sagði Elsa stúrin á svipinn, »en þá var Frans líka heima«. Nú vissi Schanni þegar í stað hvað klukk- an sló. »Frans var á svo góðum batavegi þegar eg fór, að eg efast ekki um að hann getur hjálpað til við uppskeruna«. »Nú trúi eg þér ekki framar, Schanni; Frans varð fyrir sprengikúlu og misti báða fæturnar«. »Hafi svo verið«, sagði Schanni rólegur, »þá hlýtur hann að hafa fundið þá aftur og grætt þá við; því að þegar eg sá hann síð- ast, þá var hann á fótum, en stinghaltur og gekk við staf, og lék við hvern sinn fingur«. »Er þetta alveg satt, Schanni? »Mér var sagt —«. Schanni tók franskt dagblað upp úr tösku sinni. »Þetta blað keypti eg þegar eg kom til Sviss um daginn, lestu þessa grein!« Hann benti henni á staðinn og Elsa las. Þar var sagt frá því að Frakkar hefðu unnið allan dalinn sem var hjá þorpinu í Vogesa- fjöllunum. íbúarnir í þorpunum hefðu ráðist á liðsveitirnar, og því hefðu öll þorpin í dalnum verið lögð í eyði. »Sagan um að fæturnir hafi verið skotnir undan Frans, er víst álíka sönn og þessi saga. Trúir þú mér ekki betur en lygafregn- inni, sem þú fékst?« Elsa leit á hann, og fann undir eins að hann var henni vinveittur. »Jú, Schanni; eg trúi öllu sem þú hefir sagt mér. Og eg fer lieim með þér — heim til pabba«. Það var orðið áliðið dags þegar þau komu heim til þorpsins. Öll umferð var hætt um göturnar og einungis á fáum stöðum logaði ljós í húsunum, þó var ekki búið að slökkva í »Vínviðnum«. Elsa herti gönguna þegar hún sá að Ijós var í liúsinu. Hún fann ekki til þreytu. Schanni kærði sig ekkert um að fylgj- ast með henni. Hún gekk hægt inn í húsið, og opnaði hljóðlega stoíudyrnar. (Frh.)

x

Fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.