Fréttir

Issue

Fréttir - 04.11.1915, Page 3

Fréttir - 04.11.1915, Page 3
.4 nóv.] FRÉTTIR 143 )OOCXXX)OOOIOIOOOOOOOOOOOC FRÉTTIR koma út á hádegi hvern dag. Ritstjóri: Elnar Gunnarsson. Hittist daglega heima (Laufásv. 17) kl. 3—4. Sími 528. Afgreiðslan er f Aðalstræti 8 uppi, gegnt )>Reykjavíkurkaffl«, opin kl. 11—3 og 4—6. Sími 529. Auglýsingar má afhenda i afgreiðsluna eða í prentsm. Gutenberg, Sími 47í. Einnig er tekið við smáauglýsingum (gegn borgun) virka daga: í tóbaksbúð R. Levi’s. til kl. 11 síðd. og verzl. Kaupangi til kl. 8 siðdegis. iio 000000000008 „NAP0LE0N“ heitir besti vindiliinn fæst í LIVERPOOL. Reynið hann. Massagelæknir Guðm. Pétursson. Heima kl. 6—8 e. m. Simi 394. Garðastræti 4 (uppi). Massage • Rafmagn - Böð - Sjúkraleikfimi. Brúkuð islensk Jrimerki keypt hæsta verði á Prakkastíg- 7. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ X Naumastofa % X V örtihússins. X X Karlmamifatnadir best saumaðir. X X B°st efni. Fljótnst afgreiðsla. ♦ ♦♦♦♦♦♦♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦♦♦♦♦♦♦ Kækui*. Gunnar Gunnarsson: Ormarr Örlygsson, 8 blbr., 132 bls. og Danska frúin á Hofi, 8 blbr., 123 bls. — Reykjavík 1915. — Bókaverslun Sigurðar Krist- jánssonar. Eigi er það sök Gunnars Gunn- arssonar, að bækur hans hafa eigi komið fyrr út á íslensku en á öðru máli. Hinu er um að kenna, að nýjum höfundum er tekið svo illa hér, að bóksalar þora eigi að leggja í útgáfukostn- aðinn. En vonandi verður það nú hættulaust, úr því að Danir hafa viðurkent manninn. Er það vel að liann nýtur einhverra að. það er naumast rétt, sem sést hefir hér í blöðum, að hér sé urn þýðingar að ræða. Því að eg þykist þess fullviss, að höf. hafi frumritað bækurnar á islensku, skrifað þær jafnhliða á íslensku og dönsku. Sögur þessar eru þegar kunnar almenningi af umtali blaðnnna um dönsku útgáfuna, og þarf því eigi að fjölyrða um þær hér. Eg vil þó láta þess getið, að sögur þessar hafa mjög marga kosti fram yfir fjöldan af þeim skáld- sögum, sem koma nú út. Eink- um má geta þess, að þær halda lesöndum vel vakandi bæði sakir þess, að efnið er að mörgu ný- stárlegt og frásögnin góð. Líkist stíll höf. að mörgu leyti Hall Caine. Lesandinn íinnur og ljóst, að höf. er mikið niðri fyrir og að hann skrifar til þess, að láta aðra menn sjá það, sem þar býr, en eigi til þess eins, að fá rit- laun. Kostir þessir koma ljóslega fram í þessum tveim sögum, en þó mest og best í þriðju sög- unni úr þessum ættarsögnum, Gesti einej'gða. Almenningur þarf að eignast þessar bækur og geyma þær, því að þær þola vel meira en eiun lestur. B. J. f. V. Eftir Amazonfljóti frá upptökum til ósa. (Frh.) Að morgni hins níunda dags gengum við upp á liáa fjallsbrún; þaðan var vitt útsýni og lituð- umst við um þaðan. Komum við þá auga á mýrlenda sléttu suðaustur frá því svæði, sem við höfðum farið um. Við urðum að fara i hátfhring fyrir dálitla jökulbreiðu til að komast þangað. Þegar við komurn í náttstað að kvöldi, hafði sá hópur sem haldið hafði í norðvestur, þá sögu að segja, að hann héldi að hann hefði fundið upptökin. Eftir sögu þeirra að dæma hélt eg aö þeir hefðu fundið upptökin og lofaði þeim að við skjddum allir halda þangað að morgni. Við vorum venju fremur glaðir þegar við settumst að snæðingi um kvöldið. Við þóttumst hafa himinn höndum tekið, jafnvel þó við hefðum ekki nema veika von um að dvölin á þéssum óvist- lega stað væri bráðum á enda. Upptök Amazon fljótsins. Við höfðum stöðugt gætur á loftvoginni, en þegar við litum síðast á hana um kvöldið, sáust engin merki þess, að veðurbreyting væri í nánd. Næsta morgun vor- um við snemma á ferli, lögðum áhöldin á bakið og lögðum á stað áleiðis þangað sem ferðinni var heitið; staðurinn var á að giska í tveggja mílna fjarlægð. For- ingjar fararinnar, þeir sem komið höfðu þar daginn áður, bentu okkur á ofurlítið stöðuvatn eða tjörn. Úr henni runnu tvær smásprænur til suðurs og runnu út í mýrarblett sem var þakinn hávöxnu stargresi. Þótt tjörnin væri á fjalls öxl, sáum við þó strax að hún hafði ekkert af- rensli vestur á bóginn og þar gat Vilcanota ekki haft upptök sín. Við skiftum okkur því og fórum saman tveir og tveir til að kanna umhverfið. Eftir litla stund köll- uðu tveir af félögum okkar í á- kafa og eg flýtti mér til þeirra. þeir stóðu skamt hver frá öðr- um og störðu á litla tjörn á dá- litlum rana, en á bak við var fjallið jökli hulið. Engin minsta bára sást á tjörninni og hvergi vottaði fyrir afrensli. En þegar betur var aðgætt, seitlaði vatn í gegnum urðina við vestur bakk- ann og í hundrað faðma fjarlægð mátti vel heyra óminn af kvik- andi vatnsæðum. Hér voru etstu upptök, hér var vagga hins kvik- andi fljóts. (Frh.) JÓII Quðnason cand. theol. Laugaveg 33 kennir ormku, þýsku o. fl. Heima kl. 4-5 og eftir 8 á kvöldin. Frá Belg’íu. Briissel i júni 1915. Það eru nú liðnir tíu mánuðir síðan Belgía, eða mestur hluti hennar, komst undir yfirráð Újóðverja. Það er því eigi fjarri Vegi, að gefa dálítið yfirlit yfir þá at- burði, er síðan hafa gerst, og markað hafa svo mikilvæg Spor í sögu þessa lands. Pegar Pjóðverjar tóku Belgiu herskildi í fyrra mun varla nokkur Belgi hafa trúað þvi, að þeir gætu haldið henni svo lengi, sem raun er á orðin. Sú trú, að Þjóðverj- ai’ mundu brátt verða reknir burt úr land- inu, gerði það og að verkum, að þeir báru harm sinn betur þá en þeir gera nú. Flestir Belgir höfðu í byrjun stríðsins þá föstu sannfæringu, að hið sterka Vígi þeirra, Ant- NVerpen, mundi standasi umsát og árásir niánujjum saman> Qg þegar hún var fallin 1U u þeir því fastlega, að bandamenn inundu bráðlega hrekja Þjóðverja burtu þaðan. eru þejr komnjr Dfan af þvi. Nú trúa þeir þvi tæþlega lengtir, að 107 slík undur og kraftaverk geti gerst. En lausnar vænta þeir samt, og ætla að hún muni koma frá Ítalíu. Þeir trúa því statt og stöðugt, að skamt muni höggva í milli, eftir að Italía hefir gripið inn í stríðið, — þá muni Belgía íljótt ná sínu fyrra frelsi. Petta er nú tíðasta umræðuefnið hér meðal Belga, og fæslir Pjóðverjar munu gera sér mikið far um að svifta þá þeim sælu von- um. Pað mundi heldur ekki takast. Menn eru oft svo ótrúlega staðfastir í trúnni á það, sem þeir vona. — Alþýða manna í Belgíu hefir verið glapin og gint alla tíð síðan stríðið byrjaði, og þá fyrst rankar hún við sér aftur, er leiðtogar hennar setja sér að verkefni, að útrýma öllum þeim heimskulegu og röngu kenningum, er þeir undanfarið hafa básúnað út um alt. í Brússelarblaðinu »Le Bruxellois« kom nýlega út grein eftir frægan háskólakennara um þetta efni. Þessi lærði maður tekur sérstaklega til meðferðar slúðursögurnar, sem menn fylla hver annan með á götu- hornunum, og síðan breiðast út um alla borgina með sama hraða og eldur um sinu. Hann segir að nýlega hafi í nágrenni við sig sú fregn gengið fjöllunum hærra, að Þjóðverjar væru að hörfa til baka; það væri þegar búið að hrekja þá til Enghien. Það fylgdi með að ekki væri að marka þó að 108 þessa væri ekki getið í blöðum eða aug- lýsingum Þjóðverja; satt væri það eigi að síður. Og það átti að vera sannfrétt, að Frakkar og Englendingar væru búnir að leggja undir sig Brabant-héraðið. Það er óþarfi að bæta því við, að engin minsta á- tylla var fyrir þessu, og að því eigi að síð- ur var trúað eins og nýju neti, — eins og líka gleðisvípurinn á andliti manna næstu daga á eftir bar vott um. En þegar þeir svo fengu vissu fyrir því, að þeir hefðu hlaupið e tir Iygafregnum, þá var svo sem ekki að sj i á þeim nein hrygðarmerki. Þeir sögðu bai a að þetta hefði »farið milli mála«. Það sem gefur þessum lygasögum mestan byrundirvængi, eru flugritog prentaðir blaða- sneplar, fullir af allskonar kynjasögum, sem laumað er út meðal fólksins. Margar af þeim sögum stafa frá frönskum blöðum, svo sem »Figaro« og »Matin«. Það eru á- takanlega fjarstæðar sagnir af hugleysi, svik- semi og grimd þýsku hermannanna og öðru slíku. En þrátt fyrir alt þetta hefir þýska stjórn- in i Belgiu gert alt sem i hennar valdi stendur, til þess að koma öllu aftur í reglu- legt horf. — Landsstjórnin hefir skipað nefnd manna, sem eiga að reyna að finna ráð til þess að reisa úr rústum fjárhag og atvinnuvegi Belgíu. Núna sfðtistu mánuð-

x

Fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.