Fréttir

Eksemplar

Fréttir - 26.03.1916, Side 1

Fréttir - 26.03.1916, Side 1
Iladegis-útgáía. Verð: 2 aurar W 124. tt»l. Reykjavík, Sunnudaginn 26. mar/. ÍQIÖ. Hverja á að hringja upp? 528. Bókaversl. Fjallkonnútgáfnnnar. 263. — Gi'ðm. Gamallelssonar. 135. — Sigf Eymundssonar. 528. Dagblaðið Fréttlr (Blaðið 2 aur.) 409. Eimskipafélag íslands 282. Heildsöluversl. A. Gnðmnndsson. 281. ---- G. Gíslason & Hay. 4«. --- Nnthan & Olsen. 7. íshúsið (Nordal). 369. Klæðskeri Guðm. Bjarnason. 32. — H. Andersen & Söu. 88. Konditori L. Brnnn (Skjaldbreið). 334. Læknir Porraldnr Pálsson, sér- fræðingur i meltingasjúkdómum k). 10—11 árd. Laugaveg 18. Netaverslun Sigurjóns Péturssonar. — Th. Th. Sendisveinaskrifstofan. Skóverslun L. G. Lúðvígssonar. — Stefáns Gunnarssonar. Skrautgr.v. Halld. Slgnrðssonar. Tóbaksverslun M. Leví. ---- R. P. Leví. Verksmiðja Jónat. Þorsteinssonar. ----sætindagerð etc. M. , Th.S.BIördahls, Lkg.6. Verslun Árna Eiríkssonar. — Ásg.G.Gunnlaugsson&Co. — jvsgríms Eyþórssonar. — Björn Kristjánsson, — Einars Arnasonar. — Guðm. Hafliðasonar Vg.48. — Gnðm. Olsen, Aðalstr. 6. — H. P...Duus. — Jóh. Ogm. Oddssouar. — Jóns Bjarnasonar, Lgv. 33. — Jóu Björnsson & (Jo. — Jóns Hallgrímssonar. — Jóns Zoéga. — Jóns Þórðarsonar. — Knupangnr. — Liverpool Th. Th. — Ludv. Hafliðasonar Vg. 11. — Vísir (Matvöruverzlun). — Yon, Lnugnveg 55. — Vöruhúsið. 137- 167. 444. 82. 351- iF' 64. 31- 265. 102. 316. 38. 49. 427. H5- i5- 339- 538- 386. 459- 128. 62. 244. 43- 240. 555- 353- 158. Siraskeyti. Vestmanneyjum í dag. Kolalaust og vatnslaust er hér nú og horíir til stórvand- ræða. Haunar von á kolaskipi, en verður þó reynt að fá kol til bráðabyrgða frá Reykjavík. Norðan rok er hér enn. Mótor- bátarnir komnir fram sem vant- aði í fyrradag. Heilbrigði gott nema nokkur gula. Halldór Ginnnlögsson læknir hefir legið uin tíma í inflúensu, en er nú batnað. Fisknr kominn afar mikill hér á land, svo fádæmum sætir. Hafa að jafnaði róið 70 mótorbátar héðan. Höfuðstaðurinn. Jón Porláksson verkfræðingur, fór utan með Botniu. Var förinni heitið til Noregs til innkaupa á brúarefni o. fl. Alþingistíðindin frá síðasta þingi, eru nú loks öll komin út, nema efnisskrá. Er hún væntanleg bráðlega. Mr. Cable breskur ræðismaður hér, fór utan með Botniu. Veikindaskrá Reykjavíkur í febrúarmán. Hlaupabóla 14 Taugaveiki 1 Skarlatssótt 8 Rauðir hundar ... 3 Heimakoma 2 Hálsbólga . 93 Barnaveiki 2 Kvefsótt 351 Kveflungnabólga.. . 68 Lungnabólga . 6 Iðrakvöl . 36 Lekandi 9 Sárasótt 1 Berklar . 15 Sullaveiki 1 Ivláði . 40 Krabbamein . 3 Ofdrykkja 1 Onðm. Magnússon prófessor for utan með e/s ís- landi sér til heilsubóta. Fór kona hans með honum. Guðm. Hannesson prófessor hefir tekið við kenslu G. M. prófessors við háskólann. Andrés Björnsson cand. phil. verður jarðaður á morgun. Stúdentafélagið og Leik- félagið heiðra minningu hans með því að kosta útförina. Mótorbátarnir 5 úr Sandgerði, sem menn vissu ekki um í gær, hvort náð hefðu landi, hafa allir koinið fram í Hafnarleir. Dr. Gnðm. Finnbogason fór utan með Botníu. Ætlar hann til Vesturheims til fyrirlestra- halds þar, eftir beiðni »Jón Bjarna- sonar-skóla«. Jón prófessor Helgason heldur i dag síðari hluta hins ágæta fyrirlesturs síns: Reykjavik Í4 vetra. Mun fyrirlesturinn síðar koma út í »Safni til sögu íslands«. Fyrirlestur Sig. kennara Johnsons kemur út í Andvara í sumar. Ýmir, botnvörpuskip úr Hafnarfirði, strandaði i fyrradag í Þorláks- höfn. Björgunarskipið Geir fór suður í gær að reyna að ná hon- um út. Nýr Háskólasjóður. y>Hið islertska kvenfélag« hefir gefið liáskólanum 4146 kr. sjóð. Landssíminn slitnaði í fyrradag fyrir austan Blönduós og er enn bilaður. Veð- urskýrslur því engar frá Akureyri eða Seyðisf., né aðrar fréttir. Gert hefir verið við símann til Vest- mannaeyja, var hann bilaður hjá Miðey. _______________ Nýr leiðangur til Grænlands er í undirbúningi frá Danmörku. Hefir enginn leiðangur verið gerð- ur þangað siðan 1912. En nú með vorinu ætlar Knud Rasmus- sen í nýjan leiðangur þangað og verða í för með honum þeir Peter Freuchen og jarðfræðingur- inn stud. mag. Lange Koch, son- ur Kochs fríkirkjuprests í Úbb- erúp — og enn fremur tveir Eski- I móar. Árið 1910 stofnaði Knud Ras- mussen nýlenduna Thúle á Norð- ur-Grænlandi og hvílir umsjón nýlendunnar sumpart í höndum hans og sumpart nefndar einnar, sem M. H. Ngboe er formaður fyrir. Peter Frenchen hefir sezt að eins og nokkurs konar vara- konungur í Thúle og hefir þar bæði verið rekin verzlun og gerð- ar vísindalegar rannsóknir. Þann- ig fóru þeir Knud Rasmussen og P. Frenchen yfir jökulfláka Græn- lands til Danmerkurfjarðar og Pearylands árið 1912. Er nú mynduð nefnd vísindamanna, sem á að stýra þessum nýja leiðangri og hafa framvegis á hendi um- sjón með rannsóknum þeim, sem gerðar kunna að verða í Thúle. Nefnd þessa skipa mikils metnir vísindamenn svo sem þeir pró- fessor H. Júngersen, dýrafræðing- ur, heimskautafarinn kafteinn J. P. Koch, jarðfræðingurinn og steinafræðingurinn prófessor 0. B. Böggild, land- og þjóðafræð- ingurinn prófessor H. P. Stœnsbye og grasafræðingurinn dr. phil. C. H. Ostenfeld. Leiðangurinn 1912 leiddi það í ljós að Pearyland er áfast við Grænland, en aftur var ekki hægt að fá vitneskju um eiði það, sem er milli Independencefjarðar að austan og Nordenskjölds flóa og Osbornesfjarðar að vestan. Verð- ur starfssvið Ieiðangursins eink- um á þessum slóðum því að þar er Grænlandskortinu mjög ábóta- vant, en verði is til fyrirstöðu þarna, þá er I ráði að rannsaka og kortleggja Melvilleflóann. Árið 1914 reyndi P. Frenchen að rannsaka hérað þetta, en var svo óheppinn að detta ofan í jök- ulsprungu og misti þar áhöld sín svo að hann varð að hætta við alt saman. Vonast menn nú eftir betri árangri og leggur Knud Rasmussen á stað eflir fáeina daga. Það er liklegast að hann stigi á land í Holsteinsborg seinni hluta aprílmánaðar, haldi þaðan upp í landið á hundasleðum og komst til Thúle eftir svo sem 3 vikur. Er það 250 mílur vegar og því næst verður haldið áfram eftir jökulbreiðunum til Adam Bierings lands (koma þangað í miðjum júní) og verður tveggja mánaða viðdvöl þar. Gangi alt að óskum, komast leiðangurs- menn aftur til Thúle í ágústmán- uði og þaðan heim með skipinu Kap York í nóvembermánuði. Petta er ferða-áætlunin í stuttu máli og óskum vér ferðamönn- unum gæfu og gengis. Þeir skilja við Norðurálfuna löðrandi í blóði og vonast eftir friðvænlegri horf- um, þegar þeir koma heim aftur. Sjálfir ætla þeir að heyja strið við hættur og erfiðleika heim- skautalandanna og er óskandi, að þeim verði sigurs auðið. (Politiken). Hörð tíð og snjófall mikið. Winnipeg 3. febr. Hér í Winnipeg hafa verið sí- feld frost og þokuhriðar, og hefir snjór safnast svo mikill, að gaml- ir menn fullyrða, að ekki hafi jafn mikill snjór komið hér í tuttugu ár. Lestirnar komast ekki áfram eða sitja í sköfiunum eða renna af teinunum, og strætisvagn- arnir komast óvíða nema uxagang og stuudum verða þeir að blása og hvíla sig, eins og uxar fyrir þungu hlassi. — í Klettafjöllunum tekur þó út yfir; það er i Alberta sumstað- ar 15 feta jafn snjór á hálendinu en 30—40 feta skaflar, og á Cana- dian Northern brautinni er sagt, að á 132 mílum, frá Vancouver til Boston Bar, sé 4 feta þykt ís- lag á brautinni, og verði að höggva það með íshöggum, og þar á ofan séu aftur þykkir snjó- skaflar. Vita menn ekki, hvenær þar komast lestir i gegn.

x

Fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.