Fréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - 26.03.1916, Qupperneq 3

Fréttir - 26.03.1916, Qupperneq 3
[26. mars. FRÉTTIR 475 Frosin ýsa fæst'nú daglega i Ísliusí Jóns Zoéga, iími 128. Bankastræti. Sími 128. F'i*æ og Úlsírði sel eg eins og undanfarin ár. Svo sem: Grasfræ, Gulrófnafræ, Fóðurrófnafræ, Blómfræ. Allskonar Matjurtafræ og Útsæðiskartöflur, sem reynsla er fengin fyrir að eru fljótvaxnar, liarðgerðar og uppsberuríkar. Verð 8 kr. pr. 50 kgr. Pöntunum ufan af landi fylgi borgun. Óskar Halldórsson, garðyrkiumaður. Box 4ðð. BeyUjavík. Sími 4SS. Sýnishorn aj galkanliji. Æfilok hestanna. Fyrirskipunin hljóðaði þannig, að hlaða skyldi skotfæravagnana og hafa komið þeim til skotgraf- anna við B. í dögun daginn eftir án nokkurrar hlífðar við hestana. Lestarstjórinn tók sirkil upp úr vasanum og mældi út á kortinu. Það þurfti að komast 60 kíiórn. á 20 klukkutímum og um áning- ar var ekki að ræða; auk þess varð að fara með þessi þyngsla- æki eftir bröttum og blautum fjallastígum. »Svona — hafið þið alt til!« Hann klappaði á hálsinn á einum hestinum og strauk ennistoppinn frá augunum. Hesl- urinn fikraði við höndina á hon- um með snoppunni fremur af leik en hungri. Það er gott, hugs- aði lestarstjórinn, að þú veizt ekki hvað fyrir þér liggur. Nú eru vagnarnir tilbúnir. Lestar- stjórinn brá upp hendinni og lestin lagði af stað. Vegurinn sýndist engan enda ætla að taka; hestarnir drápu niður höfðunum hálfsofandi og þrömmuðu áfram, ökumennirnir sátu skakkir í sæt- um sínum með hálflokuð augu og þeir sem ríðandi voru heykt- ust sarnan í hnakknum. Þó voru þeir þreyttari en svo, að þá gæti dreymt, því að heilabúin voru ber og snauð eins og galtómt herbergi. Eina huggunin var, að sólin hélt líka leiðar sinnar eftir braut sinni um himinhvolfið. Stundum hrukku þeir upp þegar einhver vegieysan tók við eða komast þurfti yfir vað eða graut- fúna brú. Þeir hottuðu þá á hestana eða fóru að kýta hver við annan og hrestust við það. Eftir augnabliks hviid var haldið áfram út í næturmyrkrið. Hest- arnir toguðu í vagnana dauð- þreyttir en auðsveipir og báru sinn kross möglunarlaust alla liðlanga nóttina. Ef einhver við- staða varð, titruðu rennsveittir skrokkarnir, en þeir kveinkuðu sér ekki og gerðu verk sitt. Öku- mennirnir sárkendu í brjósti um þá, hálfskömmuðust sín fyrir þeim og tautuðu fyrir munni sér, að það væri fullmikið að leggja þetta á þá, en við því væri nú ekki hægt að gera, því að fyrir- skipununum yrði að blýða; alt og allir væru í bersýnilegri hættu ef skotfærin kæmust ekki á sinn stað um morguninn. Ætli að slcepnurnar hafi skilið þá? En það var þó bót í máli, að öku- mennirnir gálu ekki séð hið raunalega augnaráð þeirra í næt- urmyrkrinu. Hestarnir hertu á hverri taug og hverjum vöðva, þrömmuðu áfram á helstirðuiji fótunum og fetuðu veginn livern kílómeterinn af öðrum, en ekki er ólíklegt, að þeir hafi borið eitthvert skyn á ánauð sína og þrælkun. Vagnarnir kornu í tæka tíð og breytti nú farmur þeirra ónjdum járnhólkum í geigvænlegar og sigursælar hervélar. Tólf hest- arnir drápust þar í hesthúsi einu og voru sumir þeirra rnjög þjáðir þegar þeir voru látnir þar inn. Það hleypur of vöxtur í hjartað við áreynsluna og gætir þess ekki meðan verið er að pína hestana áfram, en svo veikjast þeir þegar þeir fara að hvílast. Þeir hafa gert skyldu sína og verða nú að gjalda þess. Er það æði mörg skepnan, sem liefir látið það á- sannast á vegleysum þessum, að hún var trú alt til dauðans. Drengur, röskur og áreiðanlegup óskast nú þegar til sendiferða í prentsmiðjuna Gutenberg og — ef til vill — til prentiiáms síðar. 1*orí Bryn|ólfssoii yflrrcttarniálnilntningsmnánr. Skrifstofa Aöalstræti 6 (uppi). Tals. 250 Skrifstofutimi frá kl. 12—1 og4—6síðd. orgils Sfaííanói. Því er þögn Um Þorgils leiði? Vóru fuglar flognir, Söngmenn sömu Sumardaga, Og honum heimagangar. Settist svell Að silfrinboga Fossins uppi í fjalli. Hugðu hann í Heljar greipum Glaumar Gjallarbrúar. Hann úr Helju Hafa numið Auðnur íslands bænda: Önn og íþrótt — Orf í hendi Sögu-bók í barmi. íslensk Iðunn, Endurborin, Þreyr að Þorgils haugi. Leyfir Landást, Landminnugri, Unnusta sinn, Eilífð. — Átti eg í austri Erfiljóða Vísa átt. í vestri Beið, en biðin Brást mér. — Farðu Sæll af þingi, Þorgils. 16-1.T6. Stephan G. Stephansson. (»Lögberg«). Stökur. Illa hallár högum manns lieiðin mjallar kalda, fyllir allar lautir lands, leiðir falli valda. Kári byrstur kveður óð, klæðin ristir hörðu, meðan þyrstir þjóð í blóð þrengist vist á jörðu. M. Markússon. (»Lögberg«). Örin og ljóðið. Eftir Longfelloiv. í loft upp eitt sinn ör eg skaut, og ekkert vissi’ eg hvert ’ún þaut; svo geyst og hátt ’ún ílaug mér frá, að festa mátti’ ei sjónir á. í vindinn Ijóð af vör mér hraut, og vissi ekkert hvert það þaut; því fám mun sjón svo gefin góð, að geti flug sitt þreytt við ljóð. Eg löngu síðar sá i eik hvar sárbeitt örin mín stóð keik; og ljóðið orðrétt hefi eg heimt — í hjarta vinar fann það geymt. Jón Runólfsson. (»Lögberg«). « LAUFIN® 1. ár. Reykjavík 26. mars 1916. 9. tbl. Grullinlokka, priusessau úr linotuuui. (Frh.). Gullinlokka roðnaði af gléði; konungurinn brosti ánægjulega, því honum þótti lofið gott, og yfirhirðmærin klappaði Alinlang á kinnina og sagði, að hann væri reglulega vel mentaður, ungur maður. Öll hirðin sagði það sama. Nú vildi Gullinlokka kon- ungsdóttir fá að vita, hvort hann hefði nokkurn tíma unn- ið nokkurt hreystiverk. Hann svaraði blátt áfram og yfirlætislaust, að það væri alt undir því komið, hvað henni þóknaðist að kalla hreystiverk. »Til dæmis að taka«, sagði hann, »hefi eg varið föðurleifð mína fyrir ellefu bræðrum, ogy var sá minsti þeirra þrefalt stærri en eg, og í dag neyddi eg tvo, hvern öðrum óviðráð- anlegri, til að þjóna mér«. Prinsessunni þótti stórmikið koma til þessara hreystiverka, og dáðist mjög að hetjunni litlu, — en auðvjtað hafði hún enga hugmynd um, að föður- leifðin var ekki annað en poka- skjatti með pjötlum, og þjón- arnir horaður asni og eigandi hans. »Þetta er ágætt«, sagði hún; »farðu nú og leitaðu móður mína uppi. — Þegar það er búið, skal eg undir eins giftast þér«. — Hún rétti honum hend- ina og brosti blíðlega. Konungurinn sagðist vera harð-ánægður með hann sem tengdason, og gæti hann haft upp á drotningunni væri ekk- ert því til fyrirstöðu að þau giftust. »Jæja!« sagði Alinlangur, »það er velkomið að eg leiti að henni; en ef eg skyldi finna hana, verð eg að geta séð á einhverju, að hún sé sú rétta, — og hún verður að geta vit- að, hvort það er satt, að þið hafið sent mig til hennar. — Eg þyrfti að hafa eitthvað með mér, sem hún á«. Þá kom Gullinlokka með saumakassann hennar mömmu sinnar, þann sem hnotan var geymd i, — hún hafði sem sé alt af legið þar kyr. — Galdra- nornin hafði heyrt, að drotn- ingin var gerð útlæg, og þorði aldrei að koma i höllina til að

x

Fréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.