Fréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - 09.04.1916, Qupperneq 1

Fréttir - 09.04.1916, Qupperneq 1
Iládegis- átgáía. Verði 2 aurar , 133. tl>l- Reykjavík, sunnudajafinn 9. apríl. 1910. Karlmannaíöt, XJuglingaföt, Drengjaföt, fást í Bankastræti 11. (miðbúðinni). Jón Hallgrímsson. SaltaOnr LmOí (Kofa) Simskeyti. Borðeyri fimtudag. Stórhrfð hefir verið hér lengst- um í hálfan mánuð; er fann- koman mjög mikil, enfrostlítið og stundum frostlaust. Þrátt fyrir hríðina eru hænd- ur vel birgir af heyi og þurfa ekki að kvíða vorinu hvað það snertir. ís hefir hvergi orðið vart við hér við flóann eða i Skagafirði, og ekki hafa ísfirðingar heldur orðið varir íss. Hákarlaveiðar sem stundaðar eru jafnaðarlega á vetrum trá Steingrimsfirði, Ófeigsfirði og víð- ar á norður ströndum, hafa nú brugðist, þrátt fyrir góðar gæftir fram að hríðarkastinu. f Sigtr. Jóhannsson bóndi á Framnesi í Skagafirði er nýdá- inn. Hann var mjög við aldur. Banameinið var krabbamein. Hafði hann leitað lækninga í Reykjavík. Vestmannaeyjum föstudag. Fiskafli hefir verið hér svo mikill undanfarið að allar al- mennar skemtanir hafa niður fallið nema bíóin á sunnudög- um. Vont veðnr er í dag og hefir litið aflast. Akureyri í gær. ískyggilegt útlit. í marga daga hefir verið hér látlaus hríð og er alt á ltafi í snjó. Engin branda úr sjó og alt útlit yfir höfuð hið ískyggileg- asta. V erzlunin Björn Kristjánsson„ VandaðarvöiHir. Odýrar vörnr. Nýkomið: Nærfatnadur, karla og kveiiiia. Peysur. VefnaÖarvöru er bezt að Iraupa lijá V. B. K J3rjó5t$ykur5verk5miðjari í Stykkishólmi býr til allskonar brjóstsykur úr besta efni. Pantanir afgreiddar um hæl um alt land. Styðjið innlendan iðnað. Reynið Stykkishólms- sætindin — og þér kaupið aldrei annarstaðar! Einar Vigfússon. Guðm. Sigurðssonar Klæðaverzlun Laugaveg 10. Talsími 377. Nýtískn fataefni. Lágt verð. Föt afgreidd á 10—12. Sparið peuinga. Höfuðstaðurinn. GLANSKÁPUR svartar, OLÍUFÖT (sjóföt gul), REGNFRAKKAR, REGNKAPUR fást í BANKASTRÆTI II (miðbúðinni). Jón Hallgrímsson. Tólg i verzl. ,¥on‘. Flóra tekin. Flóra var tekin af ensku her- skipi nú í vikunni er hún var komin hér undir iand og farið með hana til Stornoway á Suð- ureyjum. Hún hafði farið frá Færeyjum 3. þ. m. kl. 1 síðd. en þann 6. kom hún til Stornoway. Övíst er hvenær hún sleppur þaðan, komið heíir fyrir að skipum á hingað leið hefir verið haldið þar 10 sólarhringa. Svein Björnsson er mælt að landsstjórnin hafi sent til Lundúna til þess að reyna þar að fá vitneskju um hvernig samgöngum og viðskift- um milli íslands og Englands eigi að vera háttað. Gnllfoss átti að fara frá Leith í gær. Peningaverð útlendra ávísana hefir staðið óbreytt hér á pósthúsinu síðan 24. f. m. og er það furðu lengi. Markið þá 64 aur. frankinn (frakkn.) 59 aur. og sterlingspund 17. kr. Bjarni Björnsson skopleikari hélt y>Feikna-grin« í Bárubúð á miðvikudagskveldið og var aðsókn svo mikil að ekki komust allir að sem vildu. — Enda greidai Bjarni 52 kr. í bæ- arsjóð fyrir leyfið til að halda þessa skemtun. Skemtunin þótti ágæt og var leikarinn marg klappaður upp Hér var margar spánýjar gaman- vísur að heyra og auk þess ein- slök vesturheimsk ræða, sem raddir margra þektra manna tóku fram í. í gærkveldi var end- | urtekin skemtunin og í síðasta ! sinni i kveld. Hvað ntcnn tala uni í bænnm. Bann Englendinga á úttlutningi héðan til Norðurlanda er áhyggju- efni mörgum, sem von er. Þá ekki siður et samband við Eng- lendinga verður útilokað með kafbátahernaði Þjóðverja. Þá hættir botnvöruútvegurinn vegna kolaleysis. Þá koma ekki Norð- menn hingað til síldveiða í sum- ar og margt verður hér í kalda koli sem áður blómgvaðist. Pinglesin afsalsbréf 30. rnars: 1. Hannes Thorarensen o. fl. selja 28. f. m. Ágúst H. Bjarnason 601 □ lóð úr Steinshollsbletti eystra. 2. Ólafur Guðnason selur 15. f. m. Jónínu Jónsdóttur hús- eignina nr. 29 B við Njáls- götu. 6. apríl: 1. Landsbankinn selur 30. f. m. H. Hansen vélasmið húseign- ina nr. 119 við Laugaveg. 2. Bæjarstjórn Reykjavíkur selur sama manni á erfðafestu 3,96 hekt. land í Lauganesmýri. 3. Dánarbú Kristjáns Jónssonar selur 30. f. m. Ólafi Þórðar- syni húsið nr. 5 við Vega- mótastíg. 4. Firmað J. P. T. Bryde í Likv. selur 21. f. m. firmanu H. P. Duus þilskipið Valtý RE 98. 5. Sturla Jónsson selur 21. febr. þ. á. Hannesi Guðmundssyni húsið nr. 48 B við Njálsgötu.

x

Fréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.