Fréttir

Eksemplar

Fréttir - 09.04.1916, Side 3

Fréttir - 09.04.1916, Side 3
[9. apríl. FRÉTTIR 497 Hersöngur þegnskylduliðsins eftir Víga-Giúm. Þegar árdagseldar brenna austurloft og skuggum renna, vekja lið til víga skal vinnustjórans hanagal. Vinstri hægri, vinstri hægri, vinstri hægri. Fylkið þétt. Vinstri hægri, vinstri hægri, vinstri hægri. Standið rétt. Sundur fjöll og hálsa holið, harða kletta sprengið, molið. Látið sigursöngva hátt syngja rekustálið blátt. Vinstri hægri o. s. frv. Höggvið, stingið holtarætur, hundasúrur, skollafætur. Yfir þenna voða-val vegur frægðar liggja skal. Vinstri hægri, o. s. trv. Af því að margir hafa spurt skal þessa getið — að til þess eru ýmsar ástæður þótt ekki séu stórar allar, en mest um gerir annríki ritstjórans, sem hefir annað stærra fyrirtæki að sjá um, en það er Fjallkonuútgáfan er nú hefir fengið á þriðja þúsund viðskiftavini. Væri ekki sú ástæðan myndu hinar ekki truila út- komu blaðsins. Núið stírur strax úr augum. — Stæltum vöðvum, hraustum taug- um beitið rétt við reku-slag, róman verður hörð í dag. Vinstri hægri, o. s. frv. Axlið reku! — Raðir beinar. — Reigið hausinn, vaskir sveinar, brjóstið upp og inn með kvið orðalaust að hermanns sið. Vinstri hægri, o. s. frv. Þegar raðir réttar standa, röskir neytið beggja handa, hermannlega hersinum heilsið þið með rekunum. Vinstri hægri, o. s. frv. Fram! — Með reku- feldum brandi frægð og heiður vinnið landi, gróinn tætið sundur svörð, sindri gneistum eggin hörð. Vinstri hægri, o. s. frv. Þegar hnígur sól í sæinn, soltnir gangið þið i bæinn; hálmi á að hermanns sið hvíldar síðan njótið þið. Vinstri hægri, o. s. frv. Það er fegurst fremd og sæla fyrir ekkert kaup að þræla, best að svelta sig i hel, svo að hinum líði vel. Vinstri hægri, vinstri hægri, vinstri hægri. Fylkið þétt. Vinstrihægri, vinstri hægri, vinstri hægri. Standið rétt. Ágætt hergöngulag hefir verið samið við vísur þessar. Verður það prentað við fyrsta tækifæri og hvortveggja sent út um land alt, svo að bæði kvæði og lag séu orðin lýðkunn, þegar þelta dæma- lausa velferðarmál þjóðarinnar, »þegnskyldan«, kemst á laggirnar. Til íastra íMnli ■ Fréttir sækjast ekki eftir fleirum íöstum áskrifend- um innanbæjar en þegar eru komnir, þar sem lausasalan er yfirhöfuð betri og það fyrir bæði seljanda og kaup- anda. En sem þakklætisvott fyrir trygð við blaðið fá hinir föstu áskrifendur gefins 1. heftið af Grænlandsför Vigfúsar Sigurðssonar með ágætri mynd höfundarins (myndin er seld sérstök fyrir 75 aur.) um leið og þeir greiða tillagið fyrir aprílmán. (50 aur). En áskrift sú gildir meðan 30 blöð eru að koma út af dagiegri útgáfu. Blöðin sem koma út við og við eru als ekki reiknuð þeim. — Lausasölukaupendur stöðugir myndu eins fá Grænlandsförina, ef kostur væri á að vita hverjir þeir eru. G. Gíslason & Hay, Ltd. Reykjavík. Talsímar: Heildsalan 481. SKrifsttofan 281. Hafa birgir ueðantöldum yörnm, sem. seljast kaupmönnum og kaupíélöjfum: ^ LAUFIN ^ 1. ár. Reykjarfk 9. apríl 1916. 11. tbl. Hveiti, margar teg. Hrísgrjón, 2 teg. Rúgmjöl, danskt og enskt. Rúgur, danskur. Bankabygg. Hálfbaunir. Maismjöl. Mais, heill. Molasses-fóðurmjöl. Kafíi, 2 teg. Te. Cacao. Vindlar og vindlingar, margar tegundir. Reyktóbak, margar góðar teg. Munntóbak, Neftóbak. Handsápur, margar tegundir. Grænsápa. Kristalssápa. Þvottasápa, »Balmoral Cleanser«. Eldspítur. Vefnaðarvörur, margskonar. Skófatnaður. Smjörlíki, 3 tegundir. Kex í tunnum. Brauð í kössum. Döðlur. Rúsínur. Ávextir, niðursoðnir. Ávaxtasulta. Niðursoðin' mjólk. Pappispokar, margar tegundir, allar stærðir. Prentpappír. Bárujárn, galv. ni'. 24 og 26. Þaksaum, galv. Þakpappi. Manilla. Hverfisteinar. Hverfisteinar. Línubelgir. Leirrör, 6”. Málningavörur. Broddnaglar. Ljábrýni. Sauðaklippur. Cper-baðlyf, lögur og dupt. G ulliulokksi. priiisefsísaii ór linotnnni. (Nl.). Ef þér aflur á móti látið okk- ur fara í friði, legg eg við dreng- skap minn að segja aldrei nokkrum manni hvar eg fann drotninguna og getið þér þá verið óáreittur það sem eftir er æfinnar hér í fjallinu«. Þegar er dvergakonungurinn heyrði þessa ræðu, sá hann það vænst ráða, að sleppa Alinlang með drotninguna, en sagði, að hann yrði þó fyrst að sjá fjár- hirsluna sína. Þar var hrúgað saman svo miklu af gulli og gimsteinum, að haugurinn nam við loftið. »Fyltu alla vasa þína«, sagði konungurinn við Alinlang. »Það sér ekki högg á vatni«. »Gefið mér einungis hnefafylli yðar af gimsteinum í hálsband handa unnustunni minni; ég er harðánægður með það«. Og það gerði konungurinn. Nú kvöddust þeir konungur og Alinlangur með mestu bliðu, og Svartur fylgdi þeim sið- an út. Fyrir neðan Qallið beið asn- inn bundinn. Alinlangur setti drotninguna á bak; þau héldu af stað og mættu bráðum þjón- inum. Hann tók litla húsbónd- ann sinn upp á öxl sér, og þau komu öll heilu og höldnu til hallarinnar. Enginn getur lýst gleði Gull- inlokkn, þegar hún sá móður sína, og konungurinn varð alls- hugar feginn að fá drotninguna aftur. Nú var búið til brúðkaups og mikið um dýrðir í ríkinu. Prins Alinlangur var nú orðinn reglu- legur prins, og átti með tíman- um að verða konungur. En í upphefð sinni og gleði gleymdi hann ekki gömlum vin- um. Eiganda asnans gerði hann að konunglegum yfirasnahirði, og föður sinn, skraddarann, lét hann koma til hirðarinnar og sitja þar í sóma og yfirlæti, alt til æfiloka. Bræðrum sínum fyrirgaf hann alt, sem þeir höfðu gert honum til miska og gerði þeim aldrei nokkurt mein. Flestar isl. afurðir keyptar hæsta verði. Tilboð óskast. *

x

Fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.