Fréttir - 11.08.1918, Blaðsíða 1
FRÉTTIR
DAGBLAÐ
104. blað.
Reykjavík, snnnndaginn 11. ágást 1918.
2. árgangnr.
Fastar feröir til Piapalla
annan hvern dag frá Nýja
Landi, sími 367. Nýr Over-
land-bíll fæst ávalt í ,privat‘-
ferðir.
Magnús Skaftfeld,
sími heima 695.
„Sólveilir“
í Reykjavík.
»Sólvalla-félagið« heitir félag
nokkurt hér í Reykjavík; hefur á
það verið minst áður i blaði voru
lítið eitt.
Félag þetta á svonefnt wNjfja-túnít
suður af Landakotstúni og austur
af kirkjugarðinum, og hefur selt
nokkuð af landi sinu undir við-
bótina nýju við kirkjugarðinn.
Hafa þeir félagar nú skírt Nýja-
tún upp og nefnt »Sólvöllu«. Er
tún þetta slétt mjög, hallar að vísu
örlítið til suðurs, en sólríkt er þar
mjög og útsýni fagurt.
Félagið hefur bundist samtökum
um að koma þarna upp fyrir-
myndar hveríi af íbúðarhúsum ein-
stak.ra manna, hefur látið gera
myndauppdrátt og prenta. Selur
það lóðir undir hús með ákveðn-
um skilyrðum, samkvæmt reglu-
gerð, er hver lóðarkaupandi verð-
ur að skuldbinda sig til að hlíta
i húsagerð og frágangi öllum á
svæðinu.
Búast má við, að þarna verði
með tímanum fegursti staður borg-
arinnar, er hús eru þar reist á
hverri lóð og svo frá öllu gengið
á Sólvöllum, sem til er skilið, eink-
um er frá líður.
Eru þar lóðir undir 30 hús alis,
hver 2030 X 800 Q álnir og 1200
X 3045 Q] áln. hver hornlóð við
fyrirhugaðar götur.
Er húsaskipun svo hagað, að
allir hafi sól og ekkert hús geti á
annað skygt.
Svo skal götum haga, að aðal-
gatan sé lögð af Suðurgötu, með-
fram kirkjugarðinum norðanverðum
eins langt og hann nær og frá
honum í beinni línu um Sólvöllu
fast norðan við húsin Hof og Ás.
Aðrar götur eru um völluna:
1. Gata af Landakotsstíg í línu
austanvert við spitalann og beint
í suður um Sólvöllu. 2. Gata at
aðal-götunni, suður með framleng-
ingu kirkjugarðsins að vestanverðu.
3. Gata, sem liggur beint í vestur
,Reykur.
1-2 herbergi,
helzt með aðgang að eldhúsi, ósk-
ast til leigu 1. október næstk.
Við yziu hafsbrún frá eimknerri leikur
í drifhvítri Ijósbliku dökkur reykur,
Jeg sje hann liðast sem lokka hrokkna
um liljubrá unnar dreyra stokkna.
Eimknörrinn hylur haf og mugga,
á himininn fylgjan hans varpar skugga.----------
Jeg hugsa’ um stundina’, er stóð jeg og þagði
og síðasti bálur frá bryggju lagði.
Úr vjelrými hjartaslög, hljóð og stuna, —
hann hrökk við, titraði’ og tók að bruna.
í kjölfari sœflötinn sá jeg röggvast. — —
Um öxl leit kona — sem allra snöggvast.
Und Ijósum hattinum hárið blakka
í bylgjum lagðist um breiðan hnakka.
Á borðstokknum tjet hún sjer bátinn rugga. —
Og varp á ládeyðu voldugum skugga. — —
Gnðm. Guðmundsson.
K.höfn 10. ágúst, kl. 111U
frá vesturvigstðSvtmum.
Bandamenn hafa haldið fram 7 mílur á línunni Albert
— Montdidier, farið yfir Avre-fljót og handtekið 14000
fanga.
SUm í ójriðinum.
Fyrstu hersveitirnar frá Síam eru nu komnar til
Frakklands.
frá Rússum. ■
Óttalegt ástand er í liði Lenins. Fylgismenn hans
eru á glóðum og sjálfur sefur hann til skiftis í 12 her-
bergjum af ótta við banatilræði.
Bolsjevíkar hafa sent Bretum urslitakosti (ultimatum).
af götu nr. 2. á suður-takmörkum
Sólvalla. 4. Gataxá vestur-takmörk-
um Sólvalla, norður af Túngötu
og suður á götu nr. 3. — Hefur
bæjarstjórnin samþykt allar þessar
götulagningar.
Allar þessar götur á að leggja
að ófriðinum loknum og malbika
þær, — skal leggja holræsi, raf-
leiðslur og símaþræði í aðal-götuna
og út frá þessari aðal-leiðslu enda
inn að lóð hverri.
Göturnar eiga að vera 10 áln. á
br. eða 6 m. milli götukantsteina,
en -milli götukantsteina og gang-
stéttar, er verður 4 áln. breið hellu-
stétt, skal vera 4 áln. br. gras-
bekkur beggja megin við göturnar
alla leið. Skal gróðursetja tré í
grasbekk þessum og gera hverfis-
búar það í sameiningu, og skal öllu
fyrirkomið þar sem prýðilegast.
Hús má þar engin gera nema
íbúðarhús, og öll úr steini eða
járni, eða öðrum eldtryggum efn-
um. Má ekkert hærra vera en 2
bygðir auk kjallara, turna og ann-
ars skrauts. Enginn má þar hús
reisa, nema séð hafi og samþykt
gerð þess lóðareigendur þeir, er
við sömu götu búa.
Girða skal lóð hverja af list
mikilli og eigi má þar annað
svæði óbygt vera, en blómgarður,
er vera skal við hús hvert, svo og
trjágarður, prýðilegir gangstígar að
húsum. En ekkert má þar óhreint
vera. Skal aðdrætti hafa og burt-
flutning á sorpi eftir keyrslu-stígum
að húsabaki. Hver skal gera hreint
fyrir sinum dyrum, og vatnssalerni
ein má þar nota. Eigi má þar
skran sjást úti við og enginn ó-
þverri þrífast. í hliðum öllum séu
fagrar járngrindur og eigi skal
skemra vera frá aðalgötu eða 3.
götu að húsi, en 22 álnir. Eigi
má þar hænsni né svín hafa og
hesthús því að eins, að sett séu að
húsabaki og sjáist eigi frá götu.
Öll hús skal þar eiginnafni skíra.
Fyrirkomulag alt er sniðið að
því er tíðkast bezt erlendis í fögr-
um bæjum, einkum í Vesturheimi,
og mun A. J. Johnson bankaritari,
sem er gjaldkeri félagsins, hafa
mestu ráðið urn það alt, og eiga
hugmyndina að skipulagi þessu.
Eigi verður það heiglum hent og
(Framhald á 3. síðu.)
/
/