Fréttir

Útgáva

Fréttir - 11.08.1918, Síða 3

Fréttir - 11.08.1918, Síða 3
FRETTIR 3 (Framhald af 1. síðu). smælingjum að eignast þarna lóðir og reisa þar hús, með þvi herfi- lega fyrirkomulagi sem er á fast- eignalánum í lánsstofnunum vor- um. Nokkrir efnamenn hafa þegar tryggt sér þar lóðir og eigi mun á löngu líða, unz lóðir eru þar allar seldar, — svo marga eigum vér efnamennina og smekkmennina, er fagna munu tækifærinu að ná í lóð á svæði þessu. Hér er fyrsta sporið stigið til þess að koma á fyrirmyndar húsa- skipun og húsagerð í samræmi við umliverfið. Og þótt öllum þorra manna verði um megn að búa svo um sig, þá er enginn vafi á því, að fegurð, þrifnaður og heilnæmi á þessum stað hvetur aðra til að gæta hins sama hjá sér eftir efnum og ástæðum. Og vér skulum einnig vona að á Sólvöllum fylgi' það fegurð og ytri þrifnaði, er oss vantar yfirleitt mest og enginn má án vera. En það er heilnæmt andlegt andrými, — lifsloft samúðar, sál- göfgi og kærleika. Þá fyrst má segja um Sólvöllu, að þeir »beri með sóma réttnefnið«. Hrað er í tréttum? Willemoes fór í fyrra kvöld vestur og norð- ur um land. Farþegar voru Vigfús Einarsson stjórnarráðsfnlltrúi til Austfjarða, Magnús Kristjánsson landsverzlunarstjóri til Akureyrar, Guðm. Ólafsson yfirdómslögm. til ísafjarðar, Magnús Gislason yfir- dómslögm. og Jón Stefánsson rit- stjóri o. íl. I Qrangir ósfiast iil að 6ara út „%3réitiru nú þagar. Gullfoss er væntanlegur í dag. Farþegar Garðar Gíslason og Carl Olsen heildsalar, Vilhelm Knudsen, Axel Kristjánsson o. fl. SíldTeiðarnar ganga mjög stirt. Veður hafa hamlað þeim vikuna sem leið. — Er áætlað að alls muni vera komnar á land milli 50 og 60 þús. tunnur. mun verða fyrsti stýrimaður á J Gullfossi. Almenningseldhúsið. Borgarstjóri hefur nú fengið skeyti um að áhöld til þess muni fást útflutt frá Danmörku. Er þess þá að vænta, að liðkist um fram- kvæmdir þessa þarfa fyrirtækis. Skósniiðju ællar bærinn að setja á stofn bráðlega. Er það gert samkvæmt ályktun fátækranefndar og svo til ætlast, að skóviðgerðir verði þar eitthvað ódýrari en hjá skósmið- uin bæjarins. Spejderen dráttarbátqrinn norski sem lagði af stað með seglskipið í eftirdragi, varð að snúa aftur vegna mótvinds þegar hann kom suður fyrir landið. Votviðri ✓ eru nú byrjuð. í gærdag rigndi mestallan daginn og rigningarlega lítur út í dag. I)oris saltskipið sem hingað kom á dögunum mun að líkindum fara austur á Seyðisfjörð með það af farminum, sem ekki er lagt upp , hér. Strand. Einmastrað seglskip strandaði í Vestmannaeyjum á föstudagskvöld- ið 9. þ. m. — Hafði timbur o. fl. meðferðis til Reyðarfjarðar. Laus prestaköll. Þessi prestaköll eru auglýst laus: Staðarhólsþing, Bjarnanes og Mos- fell í Grímsnesi. Alþingi hefur verið stefnt saman 2. sept. n. k. Mun starf þess nær eingöngu verða það að leggja fullnaðarsam- þykt á sambandssamningana milli Danmerkur og íslands. Þingmenn rnunu koma með Sterling í lok þessa mánaðar að austan og norð- an. Mun svo til ætlast að þingið standi ekki lengur en svo sem vikutíma, svo að þingmenn kom- ist aftur af stað með Sterling i ferðinni vestur um land. Borg er komin til Leith og mun að líkindum taka þar kolafarm og ýmsa smávöru. Eldspýtur hef eg1 nú fyrirliggjandi. * H. Benediktsson Reykjavík. S í m i S Símuefni: (tvær línur) „GEYSIR“ Póróltur Bech sem. var skipstjóri á Willemoes Ritstj.: Gaðm. Guðmundsson. Prentsmiðjan Gutenberg. Guy Boothby: Faros egypzki. 277 svaraði eg, »enda hefur enginn maður nokkru sinni haft yndislegri leiðtoga«. »Eg mundi vara þig við að vera að slá mér gullhamra ef öðru vísi stæði á«, svaraði hún og klappaði glaðlega á öxlina á mér, »en nú liggur svo vel á mér, að eg tek það ekki upp fyrir þér og annars verður þetta í seinasta skiftið, sem eg kem fram sem mat- móðir þín. Upp frá því verður það þín skylda að sjá mér farborða, en nú skulum við koma«. Hún fór með mig frá járnbrautarstöðinni út á götuna og gengum við all-langan spöl unz við komurn að matsöluhúsi. »Húsbóndinn hérna er gamalkunningi minn«, sagði hún, »og þó að hann sé kunn- ugur Faros, þá mun hann ekki segja honum frá, að við höfum komið hingað«. Við gengum þar inn og spurði Valería einn þjóninn, hvort búsbóndinn væri heima. Fór hann að svipast eftir því. Við biðum á meðan og gat eg ekki annað en tekið eftir því, hve hinir gestirnir sem þarna voru staddir, dáðust að fegurð og yndisleik lagskonu minnar. Þar á meðal voru nokkrir liðsfor- ingjar og var mér skapi næst að segja þeim til siðanna fyrir það, hvernig þeir gláptu á Valeríu, en þá heyrði eg að einhver kom þrammandi og sté þungt til jarðar og kom 278 þá inn til okkar einhver sá akfeitasti og sílspikaðasti maður, sem eg hef nokkru sinni augum litið. Hann gekk á lausaskóm, hafði rauða hettu á höfðinu og langa pípu í munninum. Hann var alrakaður og hafði margar undirhökur hverja niður af annari, svo að hvergi sá í hálsinn. »Þér kannist líklega ekki við mig, herra Schúncke«, sagði Valería um leið og hann heilsaði okkur. »Kæra ungfrú mín«, sagði hann. »Eg bið yður margfaldrar fyrirgefningar á því, að eg kom yður ekki undir eins fyrir mig«. Að svo mæltu leit hann eins og hálfskelkaður í kring um sig og bætti við: »En eg sé herra Faros hvergi. Er hann ekki með yður, eða kemur hann von bráðar?« »Nei — það vona eg, að ekki koini fyrir«, sagði hún og bætti við í hálfum hljóðum: »en eg veit, að mér er óhætt að treysta yður, herra Sehúncke. Sannleikurinn er sá„ að eg strauk frá honum«. »Herra trúr!« sagði gamli maðurinn. »Strukuð þér frá honum! Nú — mig furðar nú raunar ekkert á því, en þér megið ekki láta hann vita, að eg hafi haft þau orð. Annars er mér óskiljanlegt, hvernig þér hafið enzt til að vera svona lengi með honum, en auðvitað er það hlutur, sem mig varðar 279 ekkert um. Já — já! Mikill asni get eg verið! Hér stend eg og þvaðra og blaðra í stað þess að spyrja um hvað yður þóknist«. »Okkur langaði til að fá eitthvað að borða«, svaraði hún, »og enn fremur vildum við mælast til þess að þér létuð þess ógetið, að við hefðum hingað komið, ef herra Faros skyldi spyrja um okkur hér«. »Nei, auðvitað fer eg ekki að segja frá því og þið skuluð fá þá beztu máltíð, sem hér er kostur á«, svaraði hann. »Og enn fremur læt eg ykkur borða i mínu eigin herbergi, þvi að þar getið þið verið í næði. Mér þykir svo undur vænt um að fá að sjá yður aftur, kæra ungfrú min«! »Pað er fallega talað og gert af yður«, sagði Valeria, »og eg er yður mjög þakklát fyrir alt það ómak, sem þér gerið yður okkar vegna«. »Og það er ekki þakkarvert — og hver veit nema að þér veitið mér þá ánægju að leika fyrir mig á hljóðfærið yðar. Eg sé, að þér hafið tekið það með yður og það minnir mig á svo margt. Mér er sem eg sjái þann gamla — jæjanú, við skulum þá koma, því að annars verð eg að þessu skrafi fram á nótt«. Við fylgdum honum þá eftir til herbergis, sem var i hinum enda hússins og fór hann

x

Fréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.