Fréttir

Issue

Fréttir - 22.08.1918, Page 3

Fréttir - 22.08.1918, Page 3
frettir 3 JBVéttir. Kosta 5 anra eintakið i lausasölu. Fyrir fasta kaupendur 1 kr. ft ménnði. AuglýBingaverð; 50 aura hver centimeter i dálki, miöaö viö fjórdálka blaðsíöur. Aí greiðsln í Austur- stræti 18, sími 316. Við anglýslngnni er teklð á af- greiðslnuni og í prentsm. Gutenberg. Útgefandi: Félng i Reylijíivílí. Ritstjóri: Gruðm. Guðmundsson, Sími 448. ’ Pósthólf 286. Viðtalstími venjulega kl. 4—5 virka daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti. (Framhald af 1. síðu.) eftir fara, ef vel gengur og skip- töpum fækkar þar á slóðum, sem ekki er vafi á. Útgerðarmenn hér í Reykjavík og víðar af landinu reka fiskiveiðar eigi litlar við Vestmannaeyjar og hafa oft ausið þar auð úr sjó. Munu þeir fúsir þess, að leggja talsvert til þess að minni hætta vofi í framtíðinni yfir bátum þeirra, er þar eru að veiðum, en nú á sér stað í stórsævi því og brimróti, er hvergi er meira við landið en einmitt þar. Er það ekki einkennilegt og ömurlegur vottur um skort verk- íegrar menningar, að íslendingar skuli hafa sótt sjó í þúsund ár, en aldrei átt nokkra fleytu, er heitið gæti björgunarbátur? Þeir hafa horft á sægarpa sina hverfa hundruðum saman á hverri öld í sjóinn og einatt uppi við Iandsteina, en ekki haft mannrænu í sér til þess að fá sér björgunarbát. Vestmannaeyjabúar eiga mikla þökk skilið allra góðra manna fyrir það, að hata gert fyrstu til- raunina til þess að leysa þjóðina úr þessum álögum manndáða- skorts og sinnuleysis. Fyrirspurn. Gjörið svo vel, hr. ritstjóri, og leyfið línum þessum rúm í yðar heiðraða blaði. Hve lengi ætlar borgarstjóri að draga það, að selja mjólk eftir reglugjörð þeirri, er staðfest var síðastliðinn vetur, um mjólkursölu í Reykjavík, þar sem ákveðið er að mjólk skuli seljast eftir seðlum? Væri mjög æskilegt að ekki þyrfti lengur að viðgangast að óprúttnar ábyrgðarlausar stelpur, sem mjólkina afgreiða í sumum sölustöðum, léti þá sem ungbörn og sjúklinga hafa, og þar af leið- andi mesta þörf fyrir mjólkina, fara synjandi frá sér, og jafnvel visa þeim á dyr, en láta gæðinga sina hafa mjólk eflir því sem þeir vilja. Kona. Srar. Borgarstjóri mun hafa ákveðið að láta reglugerð þessa um mjólk- ursölu koma til framkvæmda nœstu daga, — mun og heilbrigðis- fulltrúi hafa sótt fast, að svo yrði gert hið allra bráðasta. Ritstj. Daglegt lij Svíakonungs. Daglegt líf þjóðhöfðingja var æði miklu fjölbreytilegra í fyrri daga, en nú. Frá fótaferð til hátta- tíma var öllu stjórnað í þann tíð eftir bendingu óskéikandi járn- sprota hinna ströngustu hirðsiða. | Eigi er ófróðlegt að bera saman hversu þá var við konungahirðir og nú. Sér þá gjörla, hversu þjóð- veldishugmyndir og lífshættir hafa einnig þar rutt sér til rúms og rýmt út hinum fornu, en stór- glæsilegu einveldisháttum. Á dögum Hinriks VIII. Breta- konungs hjálpaði sjáltur erkibisk- upinn af Kantaraborg konungi til að klæða sig. Tign og veldi Loðvíks XIV. Frakkakonungs var mest allra þjóðhöfðingja þeirrar aldar, og þótt lengra væri farið fram og aftur í tíma. Var og hvergi á seinni tím- um slíkt óhófsskraut á öllu sem þar, og hvergi mátti þar frá vikja hirðsiðum í smáu jafnt sem mikil- vægu. Jafnvel þegar »sólkonung- urinn« 1 Versölum lá á banasæng- inni, gleymdi hann ekki ófrávíkj- anlegum hirðsiðaboðum. Þannig segir sagan, að er nokkrir þeirra, er stóðu hjá konungi deyjandi, tóku að fella tár, revs Irfnn deyj- andi einvaldur upp við dogg og mælti með löngum hvíldum: »Vitið þér eigi, að það er bannað í lög- um vorum að gráta í návist kon- ungsins?« Svo var og i þá daga við hirðir Norðurlandakonunga, þótt eigi væri í svo stórum stíl sem hjá Loðvík XIV. T. d. þoldi eigi Gústaf III. Svíakonungur nokkra undantekn- ingu frá hinum ströngustu hirð- siðareglum, jafnvel ekki í viður- vist nánustu vanda- og venzla- manna sinna einna. Svo sem áður er að vikið, hefur þjóðveldisandi vorra tíma náð tökum á og tekist að eyða ýmsum kátlegum og óþörfum siðareglum og yfirdreps-lotningarprjáli við hirðir konunganna, sem gerðu ein- att líf yfirvaldsdrottnanna leiðinda- ævi — svo fremi erfðasynd hé- gómadýrðarinnar var þeim ekki runnin í merg og blóð. Að vísu ríkir enn þá Hennar Hátign hirðsiða-mælisnúran við hirðir Spánarkonungs og Austur- ríkiskeisara og að sumu leyti einnig við hirð Bretakonungs, íklædd öll* um fornum tildurskrúða. En tím- arnir leika hana grátt og nýjar skoðanir gera gys að henni. Nú er t. d. brosað að þvf, er sagt er frá hirð Viktoríu, hinnar gömlu og góðu Bretadrottningar, — að Hennar Há- tign hafi orðið að sitja í ljósreyk og eigi mátt skrúfa niður lampakveik- inn, vegna þess að hirðfrú sú in göfuga var eigi viðstödd, er em- bætti þetta hafði á hendi og hafði tekið það í arf frá móður sinni, ömmu og langömmu. Hirðlíf Svíakonunga hinna síð- ustu hefur lengi verið einfalt mjög og óbrotið, og konungur sá, er nú situr að völdum, Gústaf V., er hinn látlausasti maður og vill í flestu lifa að svipuðum hætti og þegnar hans. Ræður því persónu- leg vild og skaplyndi konungs, en eigi kænska, að koma sér þannig i mjúkinn hjá fólki sínu, né held- ur að hann telji sér skylt að vera þræll neinna þjóðveldis-hugmynda. Þær eru honum samgrónar og meðfæddar. Gústaf V. er í orðsins réttum skilningi óorgara-konungur og hátterni hans hið ytra er skugg- sjá þess eðlis, sem í honum býr, látlaust og sjálfum sér trútt í hví- vetna. Timar ársins eða dvalarstaðir hafa mjög litlar breytingar í för með sér um háttu konungs. Þeir eru hér um bil hinir sömu hvar sem hann dvelur, hvort sem hann er í höll sinni í Stokkhólmi, í Tullgarn eða skrautsölum Úlriku Eleónóru hinum fornu. Skal hér nú nokkuð sagt gjör frá hversdagsháttum og daglegu lífi konungs. Klukkan sjö rís konungur úr rekkju, án návistar eða aðstoðar hins allraháæruverðasta erkibisk- ups Svía eða nokkurra hirðmanna með löngum titlatogum. Eigi bíður heldur I anddyri eða forsal skari mikill með óþreyju eftir því, að hátignin komi fram og láti náðar- molum góðs morgunskaplyndis rigna yfir sig. Að veturlagi fer konungur nokkru seinna á fætur, venjulega undir kl. 8, en eigi síðar. Að þrem stundar-fjórðungum liðnum er kon- ungur alklæddur og hefur drukkið tebolla. Fer liann þá út á morgun- göngu, eða á veiðar, ef hann er úti í sveit, venjulega 2—3 daga í viku. Á veturna fer hann á héra- eða refaveiðar. Kl. 12 er hann kominn heim aftur; snæðir hann þá árbít. Tek- ur hann þá til stjórnarstarfa og veitir mönnum áheyrn. En ríkis- ráðsfundir byrja venjulega kl. 11 og standa yfir til kl. 3 þá daga sem þeir eru haldnir. Kl. 3Vs leikur konungur að »tennis«, er hann leggur mjög stund á, bæði sér til heilsubótar og fyrir ánægju sakir. Rúmlega kl. 4^2 ekur hann heim í bifreið og drekkur tebolla. Og í þessari dýrtíð er eigi mikið borið 1 það sem er með því, — ekki svo mikið sem sykurkvoða höfð ofan á kexið eða hveitibrauðs- sneiðarnar. Tekur konungur svo aftur til starfa og vinnur til kl. 8. — f*á er hádegisverður borinn á borð og konungur sezt að snæðingi. Frh. Dósir undan skósvertu eru keyptar háu verði í verzluninni í Austurstræti 18. Hvað er í íréttum? Sjóböð hafa lítið tíðkast hér í sumar, sem von er, þar sem verið hefur svo kalt oftast. — Ef til vill er ekki heldur við því að búast, að sjóðböð verði alment tiðkuð hér. Á þessum kalda útskaga sem vér byggjum er það sjaldan, að menn beinlínis langar að svala sér í köldu baði. — En hins vegar er það mikill skaði, að menn skuli ekki finna ástæðu tíl að iðka böð meira en gert er. Það er baðstað- urinn sem vantar. Framkvæmda- tnenn bæjarins þurfa að finna ráð til að bæta úr þessu og byggja nú sæmilegan baðstað. — Er í raun og veru sjálfgefið, að hann á að vera hér með sjónum nálægt Héðinshöfða og þangað á að leiða heitt vatn frá Laugunum ti! að milda sjóinn, svo að böðin verði notuð bæði vetur og sumar. Guðmundur Magnússou rithöfundur gekk í siðastliðnum mánuði upp á Eiríksjökul og voru með honum í þeirri ferð tveir synir Ólafs i Kalmanstungu. Sýni hafði ekki verið hið ákjósanlegasta, en kvað fagurt mjög í skíru veðri. Pórisdalur. 1 frásögninni í gær um ferðina í Þórisdal höfðu slengst saman nöfn þeirra Björns Gunnlaugssonar og Dr. Wunders eins og þeir hefðu verið samferða. Björn fór í dalinjj, austanverðan 1835, en L. Wunder yfirkennari frá Austurríki gekk í hann sama megin eins og sagt var árið 1909. Árið 1664 var það að préstarnir Björn Stephánsson og Helgi Grímsson gengu i hann vestanverðan frá Kaldadal til þess að kristna úlilegumenn, en gripu í tómt. Er miklu styttri vestri leiðin en hin esytri. Nafn sitt hefur dalurinn af þurs einum er Þórir hét, og Grettir Ásmunðarson heim- sótti og hafði hjá veturvist í daln- um, eftir því sem segir í Grettis- sögu 61. kap. Kappsláttnr líkur og haldinn var á Hvítár- bakkamótinu hafði farið fram á samkomu austur i Biskupstungum á sunnudaginn er var. wNafnlansa félagið« kalla þeir sig göngumennirnir, er fóru upp í Þórisdal. Er það þetta félag sem hefur látið gefa út ferða- kver það, er getið var um hér í blaðinu í gær og heitir »Handbók útilegumanna«. Gangstéttirnar við Lækjargötu er nú verið að malbika. Verður það sjálfsagt hrein- legra en hellulagningin rneð mold-

x

Fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.