Fréttir - 11.10.1918, Side 3
FRETTIR
3
Kréttir.
Rosta 5 aura eiutakið í lausasölu.
Fyrir fasta kaupendur 1 kr. á inánnði.
Auglýsingaverð: 50 aura
hver centimeter í dálki, miðað við
fjórdálka blaðsiður.
Algreiðsla í Austur-
Stræti IT', simi 331.
Við auglýsingnm ®r tekið á af-
greiðslunni og í prentsm. Gutenberg.
Útgefandi:
Félag í ReyUjavík.
Ritstjóri:
Guðm. Guðmundsaon,
Sími 448. ‘ Pósthólf 286.
Viðtalstími venjulega kl. 4—5 virka
daga á Óðinsg. 8 B uppi á lofti.
einnig getið (sjá eftirmálann).
bBrúðkaup munksinsa (Hochzeit
des Mönchs), er kom út 1884, er
talin enn betri bók og væri því
óskandi, að henni yrði einnig snú-
ið á íslenzku; er þar sagt frá
Dante og hirðmönnum ýmsum í
Verona og lætur Meyer þessa
hirðmenn einn og einn koma fram
í sögunni og endurspeglast lundar-
far þeirra í orðum þeirra og at-
höfnum á meistaralegan hátt.
r>Freisting Pescaraa (»Versuchung
des Peskara«) er fjórða rit Meyers,
er lýsir afskiftum Karls 5. af Ítalíu.
Meyer lætur í sögum þessum
sögumann segja frá og nernur sag-
an við og við staðar af viðræðum
þeirra, sögumannsins og þess, er á
hlustar, eins og í »Dýrlingnum«.
Sagan fær af þessu persónulegan
blæ og verður þægilegri aflestrar.
»Dýrlingurinn« er ágæt bók og á
þýðandinn þakkir skilið; gegnir
furðu, hve miklu hann fær áorkað
af ritstörfum innan um öll önnur
störf sín.
A. J.
Trú og- töfrar.
Eftir Edv. Westermarck prófessor.
(Frh.)
Trú og töfrar hafa þannig lifað
og þrifist mæta vel langan aldur
hlið við hlið. En vaxandi þekking,
er brugðið hefur nýju Ijósi á trú-
arbrögðin, hetur að lokum dregið
fíflahettuna ofan yfir fjölkyngina,
er jafnvel hinir voldugu, ódauð-
legu Ólymps-tívar titruðu fyrir af
ótta í árdaga.
II.
Nú hefur sýnt verið, að trú og
töfrar sameinast einatt í athöfnum
þeim, er menn nota til þess að
reyna að hafa áhrif á guði sína.
Nú ætla eg að taka nokkur dæmi
til þess að sýna hið nána samband
milli trúar og töfra, er þar kemur
í Ijós. Trúin á töframögn hefur
sem sé stundum lagt sinn skerf til
þess, áð siðir og réttarhugtök, er
viðgangast manna á milli, fengi á
sig trúhelgi eða trúarhefð.
Töframagn getur ýmist verið
^eillavænlegt eða óheillavænlegt.
Heillavænlegt töframagn býr í
Náð hafa þeir fótfestu á Mont-Saint-Martin og St.
Morel og farið fram hjá Liry, Monthois og Challerange,
farið yfir Aire og tekið Grand-Pré-járnbrautarstöðina og
fjölda fangá.
JCljóðfœrasvQ ii
þriggja manna, spiíar nú d
€&jallfíonunni d fívorju fívöíói
Virðingarfyllst
c3. ÍDafílsfaé.
Æðardúnn
i 1
óskast keyptur. Tilboð sendist
Carl Höepfner h.f.
Rey k:j avík.
blessunarorðum, en óheillavænlegt
í bölbænum. Blessanir og bölvanir
eru upprunalega ekki bænir til
nokkurs guðs, — þær eru blátt
áfram töfratæki til þess að flytja
með óskir sínar og vilja á guði,
menn eða málefni, sem blessað er
eða bölvað, til þess að áhrifin
hríni á þeim í verki. Trúin á slík-
an milliburð eða færzlu hugsana á
rót sína í hinu nána sambandi
sem er milli óskarinnar og hug-
myndarinnar um fullnægju hennar.
Óskin er skoðuð fræ veruleikans,
er beita þarf við dálitlu töframagni,
svo gróður verði úr, sem ávöxt
ber.
Þennan kraft getur óskin fengið
á ýmsan veg. Ef hún er borin
fram eða jafnvel hugsuð af inanni,
er talinn er gæddur töframætti,
svo sem er um svo nefnda helga
menn, þá er það eitt í sjálfu sér
nóg trygging þess að henni verði
fullnægt. — Óskin hefur þá sjálf
fullnægjuskilyrði í sér fólgið. Sama
getur átt sér stað, ef óskirnar eru
bornar fram með sérstakri aðferð
eða færðar í stílinn sem sérstakar
þulur, er yfirnáttúrlegur kraftur er
eignaður, — hinar svonefndu töfra-
þulur. Augu eða augnaráð stöku
manna á einnig sérstakt vald á
eða mátt til að flytja áhrínsóskir
og fá þeim fullnægt. Og svo er eitt
ráð oft notað til þess að »hlaða«
óskir yfirnáttúrlegu magni. En það
er að blanda í blessunarorðin eða
bölbænirnar nafni e\nhverrar yfir-
náttúrlegrar veru, einhvers anda
eða einhvers guðs og snúa þá um
leið óskinni í ákall. Upprunalega
mun þó ekki hafa verið ætlast til
með þessu að reyna að hafa áhrif
á vilja hinnar yfirnáttúrlegu veru,
heldur var nafnið eitt talið nægja
til þess að hlaða blessunina eða
bölvunina töframagni því, er eigi
varð bundið í algengum og látlaus-
um orðum.
Þannig sjást bæði í Gamla testa-
mentinu og í Talmud leyfar þeirrar
fornu ímyndunar, að gagn sé að
nota nafn guðs einnig í bölbænum,
sem eru allsendis ómaklegar. En
er trúræknin festi dýpri rætur, hlaut
sú ímyndun að hverfa úr sögunni.
Réttlátur og máttugur guð getur
eigi fallist á, að hann og nafn
hans sé notað sem viljalaust verk-
færi í höndum vondra manna.
bölvunin verður því smám saman
að bæn, er aðeins verður bænheyrð
því að eins, að hún sé makleg. í
orðskviðum Salomo’s segir, að
ómakleg bölvun fari fram bjá
markmiðinu »eins og spörfugl
flögrar, eins og svala flýgur, — hún
verður ekki að áhrínsorðum.« Og
sama gildir um blessunina. Jakob
fékk blessun föður síns með brögð-
um, og er hann hafði fengið hana,
þótti eigi nema eðlilegt að hún
rættist á honum, nákvæmlega eins
og læknislyf hefur sömu ágætis
áhrifin, hvort sem sjúklingurinn
hefur keypt það eða stolið því.
En síðar takmarkaðist áhríns-
máttur blessunarinnar og fór eftir
hugarfari því, er blessuninni fylgdi,
er hún var fram borin. Svo er
komist að orði í Davíðs-sálmum,
að sá sem sáir miskunsemi, upp-
sker blessun.
Nú ber það oft til að einhver
guð er ákallaður í sambandi við
ákveðnar athafnir; gera menn sér
oft í hugarlund, að hann launi
eða refsi fyrir þær athafnir, jafnvel
hvort sem menn ákalla hann eða
ekki.
Þar á ofan er oft svo, að bölv-
anirnar sjálfar eru gerðar að sér-
stökum persónum og eru þá hugs-
aðar sem yfirnáttúrlegar verur.
Refsinornir Grikkja (erinnys) voru
t. d. einatt aðeins persónugerfingar
bölvana, er menn lögðu á aðra.
Frh.
Háttvirtir
aðkomumenn og bæjarbúar!
Bregðið yður snöggvast inn í
verzlunarbúð
snar
og athugið birgðir og vörutegundir:
. Vefnaðarvörur allskonar,
Fataefni góð.
Prjónavörur fjölbreyttar,
Kvenskyrtur með ermum.
Hreinlætis og þvottavörur,
Pvottabretti.
Silkislifsborðar
ljóntandi fagrir.
Skrautlegir látúnsstjakar.
Ferðadúkar (Plaids).
Regnkápur.
Borðdúkar flosaðir.
Rekkjuvoðir.
Skólatöskur.
Speglar stórir og smáir.
Myndablöð og Myndabækur.
Klossakassar.
Hjólleikföng margar teg.
;fílbúm.
Póstkpjalða- og
jflynilarammar
í mjög stóru úrvali.
Sænskir Primusar
prímus-nálar og oddar.
Saumavólar
handsnúnar með hraðhjóli og
10 ára verksmiðjuábyrgð
á 65 og 70 kr. eftir gæðum.
Fjölbreyttar tækifærisgjafir
og margt og margt íleira
gott og gagnlegt.
Dreng-i
vantar til að selja Fréttir.