Fréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - 31.10.1918, Qupperneq 3

Fréttir - 31.10.1918, Qupperneq 3
FRÉTTIR 3 fundið þær hafa \ið sannleikann að styðjast, ertu hér með úrskurð- aður sekur um landráð gegn þjóð- inni og tilraunir að koma af stað stjórnarbyltingu. Dómstóll þessi dæmir þig til dauða og að þú sért skotinn«. Keisarinn, er að þessu hafði reynt að hafa stjórn á sjálfum sér. yfirbugaðist nú alveg og urðu her- mennirnir að grípa hann og verja hann falli. Hinn tötralegi skríll þarna í áhorfenda salnum klapp- aði lof í lófa við dómsúrskurðinn; stóðu þá dómarnir allir á fætur sem leikendur á sviði og hneigðu sig til beggja hliða, sem vissu þeir sig nú vera í augum fólksins sann- ar hetjur og föðurlands vini. í millitíðinni hafði keisarinn náð sér ögn og stamaði með veikri röddu: »Verði guðs vilji. En sýnið iniskunn konu minni og börnum. Eg mun deyja saklaus af þeim kærum, sem á mig eru nú bornar«. Hann reyndi að segja eitthvað meira, en hávaðinn þarna inni var nú orðinn svo mikill að ekki heyrðust orðaskil. Nær dauða en lífi var nú þessi fyrverandi valdhafl stærsta keisara- veldis veraldar borinn út af varð- mönnunum. Honum var ekið í kerru frá rétt- arsalnum tif aftökustaðarins, og á eftir kerru hans komu fimm aðrar kerrur, þéttskipaðar herinönnum Rauðu varðsveitarinnar og dóm- urunum. Mér var leyft að vera i kerru keisarans og gerði eg mitt ítrasta að tala í hann kjarkinn, er var nú óðum að þverra við þessa miklu eldraun, og byrlaði honum af hugg- un trúar vorrar til síðustu stundar hans. Klukkan var nú rúmlega tvö. Til beggja hliða við keisarann sátu hermenn úr Rauðu vai;ðsveitinni. Fyrir utan voru Kósakkar á hest- baki, Ásjóna keisarans var sem á liðnu líki. »Hvert er verið að fara með mig?« spurði hann annan vörðinn með hásri röddu. Verðirnir litu hvor á annan og svöruðu ekki. Með miklum erviðismunum tók keisarinn af hálsi sér kross settan gimsteinum. merktan krúnu keis- araveldisins fyrverandi. Rétti hann kross þenna að öðrum verðinum og stamaði: »Færðu þetta syni mínum. Berðu börnum mínum hinstu kveðju mína og segðu þeim að eg muni hitta þau í lifinu fyrir handan«. Vörðurinn gerði sér upp hósta, virtist verða órólegur og þagði. Hann horfði á krossinn, svo á fé- laga sinn og var á háðum áttum hvort hann ætti að taka við þessu. »Eg sé, að þú hefur giftingar- hring á fingri. Þú hlýtur að vera giftur og ált ef tii vill börn sjálf- ur. Viltu ekki gera þessa hinstu bón mína?« hélt keisarinn áfram i bænarrómi. Frh. og tekið fjölda fanga og herfang mikið. Jugo-Slavar sækja áíMontenegró og er komnir fram hjá Ipek og Diakowa. IjlutUysingjanejnðin. Stjórn Hollands hefur mótmælt þýzkum fregnum um nefnd fulltrúa hlutlausra þjóða, er hafi rannsakað spell- virkin í Belgíu. Spánverjar hafa einnig mótmælt fregnun- um fyrir sitt leyti. Sendisveitin spánverska í Brussel hefur sent frönskum blöðum yfirlýsingu um þetta, og er aðalefni hennar þetta: wPýzk blöð hafa sagt frá því, að hlutlaus nefnd, er í séu fulltrúar Spánverja og Hollend- inga í Brússel, hafi verið kvödd til þess að rannsaka spellvirki unnin á svæði því, er undanhald Pjóðverja hefur farið fram á. Pessir fulltrúar mótmæltu kröftuglega þessari fregn sem algerðri staðleysu, við barón von Lanken, sem hefur eftir kröfu þeirra látið birta leiðréttingu á henni í þýzkum blöðum«. Pví er bætt við, að sendi- herrar Spánverja og Hollendinga haíi eigi tekið sér aðra ferð á hendur, en að ferðast ásamt matvælanefnd í þarfir frönsku þjóðarinnar, til þess að gera sér grein fyrir ástandinu meðal Frakka í borgum þeim, er Djóðverjar hafa horfið úr. Ijsngir í Vinarborg. Frá Zúrich er símað, að hin mesta hungursneyð ríki í Vínarborg, þar sem allir matvælaaðflutningar séu teptir til borgarinnar frá Bæheimi og Ungverjalándi. Blöðin segja að áhyggjurnar út af þessu séu svo miklar, að allar stjórnmála og hernaðaráhyggjur séu hverfandi í samanburði við þær. Sjónleikar í Iðnó Föstudaginn 1, nóv. kl. 8 síðdegis: gðnori Semings og Sestnrinn Eftir llluga Svarta. Aðgöngumiðar seldir í Iðnó í dag kl. 4—7 fyrir hækkað verð og á morgun frá kl. 10 árdegis fyrir venjulegt verð. Sjá götuauglýsingar. Afgreiðsla „Frétta” er í Austur^træti \'T9 ními 231. geri svo vel að snúa sér þangað. JECaiipenduir geri svo vel að snúa sér þangað. Unr er tekið við nýjum á^krifenflnm. „c&rdffir“ eru 6azía auglýsingaBlaéié. Prentsmiðjan Gutenberg. Dreng áreiðanlegan og hreinlegan vantar mig strax. i Eyjólfur Jónsson frá Herru. Hbrengir ósRast tií að Bera ut „K&ráttir" nú þegar. Hvað er í iréttum? Kötlugosið. Öskufall mikið varð hér í gær síðdegis, er hvast var af austri. Eldblossar miklir voru einnig í nótt á austurhimin upp öðru hvoru. í Vík vissu menn eigi í gær til að nýtt jökulhlaup hefði orðið, en gosið væri í fullum gangi. Eigi vissu þeir hvað »Geir« hefði ágengt orðið austur við sandinn. V.b. »María« eru menn orðnir hálfhræddir urn. Fisksala til útlanda er nú að sögn frjáls orðin af öllum fiski sem óseldur er. Hafa Bretar, að því er mælt er, leyft að selja hann öllum nema óvinaþjóð- um sínum. Mun alhnikið enn óselt af honum, svo að þetta getur munað nokkru. Skýrsla mun í vændum mjög bráðlega frá útflutn.n. um kjötsöluna til Noregs, er »Vísir« hefur gert að umtals og árásarefni á stjórnina. Kvað stjórn- in vera »hvergi hrædd hjörs í þrá«, þótt »Vísir« sé ægilegur undir brún. Söluturninn er nú aftur að komast i lag, — verður þar tekið til starfa þessa daga. Mun mörgum þykja hagræði að geta fengið þar sendisveina, er á liggur, eins og áður var, þar sem varla er unt að fá mann til viðviks (í atvinnuleysinu?). Turninn ér tígulegri miklu á velli þar sem hann er nú, en hann virtist á torginu. Geir kom að austan í þessu bili. Kom öllum tunnum á land við sandana. Kveikingartími fyrir bifreiðar og reiðhjól í Reykjavik kl. 6.

x

Fréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir
https://timarit.is/publication/179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.