Frækorn - 01.06.1901, Síða 3

Frækorn - 01.06.1901, Síða 3
FRÆKORN. 83 Krists í trúuðum og elskandi hjört- um. Athöfn þessi átti enn fremur að bera vitni um hina miklu náð, er þeir höfðu öðlazt, sem sé fyrirgefning syndanna, og Drottinn bætir við þetta fyrirheitinu um gjöf heilags anda. Þetta fyrirheit náði ekki að eins til þeirra, sem hlýddu á orð postulans, heldur og til barna þeirra og allra þeirra, sem Guð vildi kalia hér til, jafnvel heiðingjanna, sem í fjarlægð voru. Ef hinar komandi kynslóðir Gyðinga vildu taka sinnaskifti og láta skíra sig í nafni Jesú Krists til fyrir- gefningar syndanna, þá vildi Guð einn- ig gefa þeim sinn góða heilaga anda, og heiðingjarnir áttu.sömuleiðis að fá aðgang að þessari miklu náð. Þeir, sem fuslega skipuðust við ræðu postulans, létu skírast, og þar bættust við á þeim degi nær þrjár þúsundir manna. Pað, að nafn Jesú Krists eitt sam- an er nefnt hér í sambandi við skírn- ina, sannar ekki, að postulamir hafi sleppt nafni föðursins og heilags anda við skírnina. Þetta var hin fyrsta opinbera skírnarathöfn, sem þeir fram- kvæmdu eftir upprisu og himnaför Krists, og þeir höfðu því ekki getað gleymt eða óhlýðnazt fyrirskipun Drottins síns og meistara, sem hann gaf þeim, áður en hann skildi við þá, þeirri fyrirskipun, að þeir skyldu skíra í nafni föðursins, sonarins og heilags anda. En þegar þeir eiga tal við Gyðinga, leggja þeir sérstaka á- herzlu á nafn Krists, því að Gyðing- ar trúðu að vísu á Guð föður og heilagan anda, en þeir höfðu fyrirlitið og krossfest Guðs eingetinn son. Skírn í Samaríu. Yegna ofsókn- anna miklu, sem söfnuðurinn í Jerú- salem varð fyrir, eftir að Stefán var grýttur, flýðu kristnir menn burt úr Jerúsalem út um allt Gyðingaland og Samaríu (Pgj. 8, 1.). Meðal þeirra var Filippus, sem hafði verið einn af fátækrastjórunum eins . og Stefán. Hann kom til borgarinnar Samaríu og flutti þar lýðnum lærdóminn um Krist. Fjöldi borgarmanna veitti kenn- ingu hans eftirtekt, og mikil gleði vai'ð meðal þeirra, af því að hann læknaði marga sjúka. „Nú sem menn trúðu Filippusi, er boðaði þeirn náðar- boðskapinn um Guðs ríki og nafn Jesú Krists, létu menn og konur skírast" (Pgj. 8, 12.). Trúin lifnaði, þegar fagnaðarerindið var prédikað; hinir trúuðu, bæði menn og konur, fundu til þess, að það, sem heyrir Guðs ríki til, er nauðsynlegast af öllu, hefur meiri þýðingu en nokkuð ann- að, og þá einnig skírnin. Þess vegna létu þeir skírast og uiðu þannig með- limir í söfnuði Krists. Skírn hirðstjörans. Pegar Filippus fór frá Samaríu eftir hoði Drottins suður á veg þann, sem liggur frá Jerúsalem til Gasa, hitti hann stór- höfðingja einn frá Etíópíu (svertingja),

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.