Frækorn - 01.06.1901, Blaðsíða 4

Frækorn - 01.06.1901, Blaðsíða 4
84 F E Æ K 0 R N. er var hirðstjóri Kandase Etíópíu- drottnignar. Maður þessi sat í vagni sínum og var að lesa spádómsbók Esajasar. Hann var guðhræddur heiðingi, en hafði aldrei heyrt boð- skapinn um dauða og upprisu Jesú Krists. Hann bað Filippus að setj- ast í vagninn hjá sér og fékk nú fræðslu um Krist — um trúna og skímina, sem hann einnig gæti öðl- azt og sem gæti leitt hann til guðs ríkis. En sem þeir fóru áíram veginn, komu þeir að vatni nokkru; þá mælti geldingurinn: „Sjá vatnið; hvað haml- ar mér að láta skírast?" [[En Filippus sagði: „Ef þú trúir af öllu þínu hjarta, getur þú hlotið skírnina. “ En hann svaraði og sagði: „Eg trúi því, að Jesús Kristur sé sonur Guðs.“* Og hann bauð að stöðva vagninn, og stigu þeir báðir niður í vatnið, Fil- ippus og geldingurinn, og Filippus skírði hann. En þá er þeir voru stignir upp úr vatninu, greip andi Drottins Filippus burt, og gelding- urinn sá hann ekki framar" (Pgj. 8, 36—39). Frásaga þessi sýnir oss það sama og hinar aðrar, að sömu reglunni var allt af fylgt. Þjónn Drottins flutti fagnaðarboðskapinn, ög sá, sem veitti honum móttöku með trúuðu hjarta, var skírður. Skímin fór fram á þann *) Orðiu frá [ standa ekki í brezku biblíuþýðingunni. hátt, að báðir stigu niður í vatnið, og Filippus skírði hirðstjórann, þegar hann hafði gjört þá játningu, að hann tryði á Guðs son. Það, að hann skírði hann, þýðir, að hann dýfði honum niður í vatnið og lyfti honum upp úr því aftur í nafni Guðs föður, sonar og heilags anda. Að því búnu stigu þeir báðir upp úr vatninu og héldu leiðar sinnar. I'etta var kristi- leg skirn, og af þessari frásögn lær- um vér, hverja eigi að skíra og hvernig eigi að skíra; og biblían nefn- ir ekki aðra skírnaraðferð. „Gott má af góðum hljóta.“ Hinn frægi danski málari C. var orðlagt góðmenni og hjálpvættur allra bágstaddra, sem hann náði til, eink- um lét hann sér þó annt um mun- aðarlaus ungmenni, sem enginn hirti um. Kallaði hann það sem oftast á valdi annara manna, að gjöra úr þeim góða og nýta menn. Hann var líka stórauðugur maður, og gat því látið til sín taka í því efni. Sparaði hann það og ekki, og áttu margir honum gæfu sína að þakka. Einu sinni sem oftar var hann á ferð og gisti í gestgjafahúsi nokkru. Þar komst hann í tal við ungan mála- flutningsmann, sem sagðist vera á leið til R. Sér hefði verið falið að verja sakamál fyrir unglingsmann, sem

x

Frækorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.