Frækorn - 01.06.1901, Síða 6

Frækorn - 01.06.1901, Síða 6
86 F R Æ K 0 R N. landið okkar. Þá varð faðir minn að fara í herinn og lét líf sitt fyrir ætt- jörð sína. Eg var á 6. árinu, þegar móðir mín varð ekkja. Hún gat þá ekki unnið nægilega fyrir okkur báð- um. Hún varð að selja smíðatól föð- ur míns og allt annað Jauslegt. Þegar það var búið, fór hún að taka lán, og hugsaði sér að leggja þeim mun meiri vinnu á sig, til þess að geta borgað skuldirnar aftur. En hún lagði of mikið að sór, svo heilsan bilaði, þá var hún sett í fátækrahúsið, og þar dó hún litlu síðar. Nú var eg orð- inn föðurlaust og móðurlaust ein- mana barn, sem engan vin eðá vanda- mahn átti að. Eg var því hoðinn upp, með öðrum orðum: Það var leitað eftir, hver fáanlegur væri til að taka mig fyrir minnst meðlag af fá- tækrafé. Einn bauðst til að taka mig fyrir 14 dali um árið. Það þótti kostaboð, og var eg látinn til hans, án þess að grennslazt væri eftir, hvort hann kynni að meðhöndla unglinga á róttan hátt. Hann hefur víst ætlazt til, að eg ynni að mestu leyti fyrir mér. Eg var þá níu vetra, kunni að lesa og á góð- um vegi með kverið. Húsbóndinn var séður maður, og sá um, að hafa allt af nóg handa mér að gjöra af ýmsu því, sem hann áleit að mér væri ekki of vaxið. Hann gaf mér aldrei frítíma frá morgni til kvelds, nema örstutta stund tiJ að lesa í kverinu mínu. Þó var þetta nú sök sér. Hitt var verra, að eg gat aldrei gjört nokkurn skapaðan hlut svo, sem honum lík- aði, eða verið eins fljótur að neinu eins og hann ætlaðist til, þó eglegði mig sem bezt til, að gjöra honum til hæfis. Hann var því sífelidlega vond- ur við mig, skammaði mig fyrir hvað eina og lét oft ekki lenda við orðin tóm. En aldrei talaði hann orð í þá átt, að segja mér til eða leiðbeina mér í því, sem hann skipaði mór að gjöra. Þó tók yflr, þegar börnin hans komust á legg og gátu farið að leika sér úti við. Þá átti eg að sjá um þau. En þau voru óþekk og þeirn kom illa saman, og þegar eg þurfti að jafna miJli þeirra, líkaði því, sem undan varð að láta, stórilla við mig ög klagaði raig fyrir foreldrum sínum. Og með því þau vissu, að mér var aldrei til neins að afsaka mig, báru þau á mig ósannar sakir. í’eim var ávallt trúað. Og þá var það móðir þeiira, sem þóttist verða að jafna á mér fyrir það; og hún hlífðist ekki við því! Hún dró mig á hárinu og barði mig miskunnarlaust; svo dró hún af matnum mínum, — sem vana- lega var þó ekki of mikill. — Eg reyhdi að hæna börnin að mór með góðu, og hefði án alls efa tekizt það, ef þau hefðu ekki sífellt heyrt það til foreldrá sinna, að eg væri vondur strákur, sem ekki hefði annað fyrir þeim en illt eitt. Þau lærðu því

x

Frækorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.