Frækorn - 01.06.1901, Side 8

Frækorn - 01.06.1901, Side 8
88 FRÆKORN. en þar sem hans andi er, þar er frelsi." Og víst er um það, að því meir sem kirkjan hefur af þessum bókstafsþrældómi, því minna hefur hún af guðs anda, anda frelsisins. — Eftir vígsluna prédikaði hinn nývígði prestur, og sagðist honum margt vel. Eitt þótti oss þó einkennilegt, til þess að segja ekki óviðfelldið: Hann á- minnti menn um að kasta ekki trúnni á eilífa útskúfun, þótt sagt hafi verið og telja megi alkunnugt, að einmitt margir prestar á íslandi í tali við menn utan kirkju játast trúa ekki á hana. Og meðan svona stendur á, mun það htið gagna, þótt þeir „á stólnum" við og við í þessu efni hangi í „bókstafnum", prédika hana samt að eins af því, að játningarrit kirkjunnar heimti það af þeim. Þeir prestar eru auðvitað til, sem sjálfir trúa einlæglega á eilífa útskúfun, og vér höfum enga ástæðu til að ætla, að séra Vigfús hafi talað á móti sinni nanfæringu. Hitt og þetta. Elnn kaupandi Frækorna skrifar oss meðal annars með síðasta pósti: „Eg hef lesið rit yðar, bæði Frækorn og smáritin, og sum þeirra oft. Eg hef haft sannarlega bæði gagn og ánægju af að lesa þau. Þau hafa styrkt hina barns- legu trú á Frelsara minn í hjarta mínu, sem mér var innrætt á æskuárunum og uppörvað mig til að elska guðsorð og bera lotningu fyrir því, og þau hafa opn- að augu mín fyrir mörgu, sem eg áður hvorki hugsaði um né þekkti.“ Slík bréf, sem vér höfum fengið frá fleir- um, gleðja oss og uppörva til að gjöra allt, sem í voru valdi stendur, til þess að „Frækorn11 framvegis mætti „styrkja hina barnslegu trú á frel«arann“, „uppörva menn til að elska guðsorð og hera lotn- ingu fyrir því“, og vér leyfum oss að biðja alla góða menn og konur, sem skilja stefnu og tilgang blaðs vors, og eru því hlynntir, að hjálpa oss eftir megni, með þvi að útvega blaðinu góða útsölumenn og kaup- endur. Eftir því, sem kaupandatalan eykst, munum vér geta gjört blaðið betur og betur úr garði. WÝ BÓK! Einar Blagnússon: Fráhvarfið frá hin- um sanna kristindómi og rétt afturhvarf. 64 bls. í kápu, 50 au.. Fæst hjá höf. og í Pósthússtræti 16, Reykjavík. „19. ÖLDIN—YFIRLIT.“ Myndin, sem fylgdi 9. thl. Frækorna, selzt sér, og verður send með pósti til allra, sem senda til útg. 30 au. í frímerkjum. Utsölumenn fá venjuleg sölulaun. Sendið pantanir sem fyrst til D. östlund, Pósthússtræti 16, Rvík. FRÆKOEN koma út h. 1. og 15. í hverjum mánuði, kosta hér á landi 1 kr. 50 au., i Vest- urheimi 60 cents. Borgist fyrir 1. okt. Ursögn ógild nema komin sé til útg. fyrir 1. okt. og úrsegjandi sé skuldlaus fyrir blaðið. Afgreiðsla hlaðsins er í Pósthússtræti 16, Reykjavík. ÚTG. OG ÁBYR&BABM,: DAVID 0STLUNI) ALDAB-PRENTSMIBJA.

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.