Frækorn - 16.04.1902, Side 2

Frækorn - 16.04.1902, Side 2
42 Júda ætt, þingað til á dögum Agústusar Rómverjakeisara. f* á var stjórnarvaldið veitt útle ídingnum Heródesi, og var faðir hans Edómiti, en móðir hans frá Arabíu. Veldisspíran var farin frá Júda. Og hvað gerðist á þeim tíma ? Kæru vinir, þér getið sjálfir lesið það í nvju testamentinu. Siio, friðarhöfðinginn og frelsarinn, kom. Og ástæðu hafði hann til að segja við Gyðingana, sem ekki meðtóku hann: »Ef þér tryðuð Móses, þá tryðuð þér og mér, því hann hefur skrifað um mig.« Jóh. 5, 46. Enn nákvæmar var frá sagt um komu hans. Einmitt árið, þegar hann skyldi byrja starf sitt, var áður tiltekið. Eg vil í því tilliti benda á nokkur orð í Dan. 9- 25 : »Frá þeim tíma, að sú skipun útgengur, að Jerúsalemsborg skuli uppreist og bvggð verða, og allt til þess smurða, til höfð- ingjans, eru sjö sjöundir og tvær og sextíu sjöundir (ára).« t’egar þessi spádómur var gefinn, lá Jerúsalem í eyði, frá þeim tíma, er Nebu- kadnezar I5abyloníukonungur lagði borg- ina undir sig. Tíminn, sem spádómurinn t 1 tekur, er til samans 69 sinnum 7 ár, þ. e. 483 ár, sem ættu að ná til hins smurða, eða til Krists. Frá hvaða tímabili ætti að reikna þenn- an tímar það er nákvæmlega til tekið í þessum orðum spádómsins: »—Frá þeim tíma, að sú skipun út gengur, að Jerusalems- borg skuli uppreist og byggð verða.« Fn sú skipun var gefin af Artaxerxesi Persakonungi árið 457 f. Kr. Kristur var smurður við skírn sína, sbr. Postg. IO, 38. En hann var skfrður árið 26—27, samkvæmt vorum tímareikningi. t’að voru því útrunnin við skfrn hans: 457 ár f. Kr og 26 - e. Kr., eða alls 483 ár 69 sjöundir ára. Og guðspjallamaðurinn Markus scgir svoleðis frá um byrjun starfsemis hans: »Jesús veik í Galilealand og flutti þar gleðiboðskapinn um guðs ríki og sagði : »Tíminn er kominn, og guðs riki er nálægt; takið sinnaskifti og trúið evange- líó.« Mark. 1, 14, 15. Og þannig er einnig margt annað ná- kvæmlega sagt fyrir í gamla testamentinu um frelsarann. t’ar er spáð, að hann skyldi fæðast af mey (Es. 7, 14.); að hann skyldi fæðast í Bethlehem (Mika 5, 1); um flótta Jósqps og Maríu með hann til Egyptalands (Hós. II, 1); um verk hans og kenning (Es. 61, 1 —3.) ; um pínu hans og dauða (Es. 53.); um smáatriði í píslarsögu hans, t. d. að ldæðum hans skyldi skift og hlutkesti kastað um fat hans (Sálm. Dav. 22, 19) og að honum mundi vera rétt gall og edilc að drekka (Sálm. 69, 22.); orð hans á krossinum (Sálm.22, 1.); spáð er um upprísu h?ns og himnaför (Sálm 16.) o. s. frv. Og allt rættist. Varla finnast önnur orðatiltök oftar í guðspjöllunum en þessi: »Og allt þetta skeði, svo að rættist það, sem dróttinn mælti fyrir munn spá- mannsins* o. s. frv. Ritningin hefur fjölrnarga aðra spá- dóma að geyma. Flestir eru framkomnir, en nokkrir eru enn óuppfylltir; eru það sérlega þeir, sem vitna um hina síðari tilkomu Krist og enda veraldár, og með uppfyllingu hinna fyrri spádómá ritningarinnar fyrir augum vorum getum vér ekki efast um framkomu hinna síðari. — »ÖII ritning er innblásin af guði.« Þættir úr uppeldissögunni. III. John Locke. (1632 — 1704.) Hann var enskur læknir. íJað, sem Baco hafði sagt í fullri alvöru og Montaigne í gamni, tók John Locke upp að rýju til heimspekilegrar yfirvegunar. Bók hans heitir: »Hugleiðingar um uppeldi barna«. Einkunnarorð bókarinn- ar eru þessi orð : »Heilbrigð sál í heil- brigðum líkama« (Juvenal,. það vill hann láta vera endimark uppeldisins. Hann segir meðal annars: »Eg þori að fullyrða, að níu tfundu hlutar af öllum þeim, sem vér mætum á lífsleiðinni, eru orðnir það, sem þeir eru, góðir eða vondir, nytsamir menn eða

x

Frækorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frækorn
https://timarit.is/publication/181

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.